Ársrit GKG 2020

Page 23

MÓTANEFND

Störf mótanefndar 2020 Innanfélagsmótaraðir GKG árið 2020

Ætla mætti að störf mótanefndar hafi mótast verulega af þeirri vá sem hvílt hefur yfir landsbyggðinni þetta árið. Merkilegt nokk tókst okkur þó að halda sjó og halda flest mót sem hefð er fyrir.

Í ár voru þrjár mótaraðir í gangi hjá GKG, fyrir utan Kristals- og Floridana mótaraðirnar sem ætlaðar eru barna- og unglingastarfinu. Þetta voru Vitagolf Mánudagsmótaröðin, Holukeppni GKG og Liðakeppni GKG eða Ryder GKG 2020. Eggert Ólafsson var mótsstjóri Mánudagsmótaraðarinnar, Sigurjón Sigurjónsson sá um Holukeppni GKG og Ingibjörg Þ Ólafsdóttir hafði umsjón með Liðakeppni GKG. Við viljum byrja á því að þakka þeim kærlega fyrir þeirra starf. Óhætt er að segja að þau hafi staðið sig virkilega vel í utanumhaldi og eiga stórt hrós skilið fyrir það.

Auk innanfélagsmótaraðanna sem fjallað er um hér á eftir hélt GKG fjöldann allan af mótum, innanfélagsmót, opin mót og GSÍ mót. Mótavertíðin hófst þann 16. maí með Opnunarmóti GKG og endaði með Bændaglímunni 3. október, sem þó var óhefðbundin þar sem ræst var út af 1. teig í stað þess að ræsa á öllum teigum, ástæðan var samgöngu takmarkanir stjórnalda. Hjóna- og parakeppnin var haldin 6. júní og var glæsileg af vanda, Sigurvegarar voru hjónin Atli Hilmarsson og Hildur Kristjana Arnardóttir. Þann 11. júní héldum við glæsilegt barna- og unglingamót, Nettó mótið sem er hluti af unglingamótaröð GSÍ. Sumarsólstöðumót Stella Artois var haldið með pompi og prakt þann 20. júní. Hápunktur sumarsins var án efa Meistaramót GKG, þar var öllu flaggað til að gera mótið sem glæsilegast og í fyrsta sinn héldum við mótið með rauntímaskráningu á skori keppenda. Stemningin var mun meiri fyrir vikið og virkilega gaman að fylgjast með kylfingum koma upp 18. holuna og vita nákvæmlega hvernig staðan var og oftar en ekki mikil spenna og dramatík. Þann 23. til 25. júní héldu GKG og Oddur sameiginlega Íslandsmót golfklúbba. Þetta var annað árið sem mótið var haldið með þessum hætti og tókst okkur vel til með mótahaldið. Ekki skemmdi það fyrir að strákarnir okkar lönduðu Íslandsmeistaratitlinum þetta árið, til hamingju GKG!

Vitagolf Mánudagsmótaröðin fór fram níu mánudaga sumarið 2020. Þrír bestu hringir töldu til sigurs, þannig að þessi mótaröð var sérstaklega hentug fyrir þau sem höfðu áhuga á að taka þátt í mótaröð en gátu ef til vill ekki skuldbundið sig við ákveðnar tímasetningar eða fjölda hringja. Mest tóku 70 kylfingar þátt og var það fyrsta mánudaginn, eftir það fór þátttakendum að fækka en þó voru þeir aldrei færri en 18. Skorskráning fór þannig fram að skylda var fyrir þátttakendur að hafa leikmann með í hollinu sem gæti staðfest skor. Skor var skráð í golfbox en einnig á skorkort og þau yfirfarin að mánudegi loknum til þess að staðfesta þátttöku og í leiðinni skorið sem skráð var í golfbox. Til þess að taka svo saman árangurinn var búinn til sérstakur stigalisti fyrir mótaröðina sem staðfesti endanlegan sigurvegara í hvorum flokknum fyrir sig.

Kvennaflokkur

Kærar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliðum sem hafa lagt hönd á plóg við að gera mótin hjá GKG einstök og eftirminnileg! Hér á eftir fylgir svo umfjöllun um innanfélagsmótaðirnar. Björn Steinar Stefánsson, formaður mótanefndar.

23

Vitagolf mánudagsmótaröðin - Úrslit Karlaflokkur

1. sæti

Elísabet Böðvarsdóttir 115pt

Bergþór Sveinsson 133 pt

2. sæti

Helga Þórdís Guðmundsdóttir 114 pt

Atli Ágústsson 117 pt

3. sæti

Sólveig Smith 111 pt

Ellert Guðjónsson 115 pt


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Ársrit GKG 2020 by gkg_golfklubbur - Issuu