5 minute read

Mótanefnd

Next Article
Íþróttasvið

Íþróttasvið

Störf mótanefndar 2020

Ætla mætti að störf mótanefndar hafi mótast verulega af þeirri vá sem hvílt hefur yfir landsbyggðinni þetta árið. Merkilegt nokk tókst okkur þó að halda sjó og halda flest mót sem hefð er fyrir.

Advertisement

Auk innanfélagsmótaraðanna sem fjallað er um hér á eftir hélt GKG fjöldann allan af mótum, innanfélagsmót, opin mót og GSÍ mót. Mótavertíðin hófst þann 16. maí með Opnunarmóti GKG og endaði með Bændaglímunni 3. október, sem þó var óhefðbundin þar sem ræst var út af 1. teig í stað þess að ræsa á öllum teigum, ástæðan var samgöngu takmarkanir stjórnalda.

Hjóna- og parakeppnin var haldin 6. júní og var glæsileg af vanda, Sigurvegarar voru hjónin Atli Hilmarsson og Hildur Kristjana Arnardóttir. Þann 11. júní héldum við glæsilegt barna- og unglingamót, Nettó mótið sem er hluti af unglingamótaröð GSÍ. Sumarsólstöðumót Stella Artois var haldið með pompi og prakt þann 20. júní. Hápunktur sumarsins var án efa Meistaramót GKG, þar var öllu flaggað til að gera mótið sem glæsilegast og í fyrsta sinn héldum við mótið með rauntímaskráningu á skori keppenda. Stemningin var mun meiri fyrir vikið og virkilega gaman að fylgjast með kylfingum koma upp 18. holuna og vita nákvæmlega hvernig staðan var og oftar en ekki mikil spenna og dramatík. Þann 23. til 25. júní héldu GKG og Oddur sameiginlega Íslandsmót golfklúbba. Þetta var annað árið sem mótið var haldið með þessum hætti og tókst okkur vel til með mótahaldið. Ekki skemmdi það fyrir að strákarnir okkar lönduðu Íslandsmeistaratitlinum þetta árið, til hamingju GKG!

Kærar þakkir til allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliðum sem hafa lagt hönd á plóg við að gera mótin hjá GKG einstök og eftirminnileg! Hér á eftir fylgir svo umfjöllun um innanfélagsmótaðirnar.

Björn Steinar Stefánsson, formaður mótanefndar.

Innanfélagsmótaraðir GKG árið 2020

Í ár voru þrjár mótaraðir í gangi hjá GKG, fyrir utan Kristals- og Floridana mótaraðirnar sem ætlaðar eru barna- og unglingastarfinu. Þetta voru Vitagolf Mánudagsmótaröðin, Holukeppni GKG og Liðakeppni GKG eða Ryder GKG 2020. Eggert Ólafsson var mótsstjóri Mánudagsmótaraðarinnar, Sigurjón Sigurjónsson sá um Holukeppni GKG og Ingibjörg Þ Ólafsdóttir hafði umsjón með Liðakeppni GKG. Við viljum byrja á því að þakka þeim kærlega fyrir þeirra starf. Óhætt er að segja að þau hafi staðið sig virkilega vel í utanumhaldi og eiga stórt hrós skilið fyrir það.

Vitagolf Mánudagsmótaröðin fór fram níu mánudaga sumarið 2020. Þrír bestu hringir töldu til sigurs, þannig að þessi mótaröð var sérstaklega hentug fyrir þau sem höfðu áhuga á að taka þátt í mótaröð en gátu ef til vill ekki skuldbundið sig við ákveðnar tímasetningar eða fjölda hringja. Mest tóku 70 kylfingar þátt og var það fyrsta mánudaginn, eftir það fór þátttakendum að fækka en þó voru þeir aldrei færri en 18. Skorskráning fór þannig fram að skylda var fyrir þátttakendur að hafa leikmann með í hollinu sem gæti staðfest skor. Skor var skráð í golfbox en einnig á skorkort og þau yfirfarin að mánudegi loknum til þess að staðfesta þátttöku og í leiðinni skorið sem skráð var í golfbox. Til þess að taka svo saman árangurinn var búinn til sérstakur stigalisti fyrir mótaröðina sem staðfesti endanlegan sigurvegara í hvorum flokknum fyrir sig.

1. sæti

2. sæti

3. sæti Kvennaflokkur Vitagolf mánudagsmótaröðin - Úrslit Karlaflokkur

Elísabet Böðvarsdóttir 115pt Bergþór Sveinsson 133 pt

Helga Þórdís Guðmundsdóttir 114 pt

Sólveig Smith 111 pt Atli Ágústsson 117 pt

Ellert Guðjónsson 115 pt

Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir að gera þessa mótaröð svona skemmtilega.

Holukeppni GKG fór fram með örlítið breyttu sniði í ár en undanfarin ár. Nú var keppt í flokki karla og kvenna um holumeistara karla og kvenna GKG, en tvistið var að sigurvegarar í karla og kvennaflokki spiluðu leik um Holumeistara GKG. Hámarksfjöldi þátttakenda var 64 í hvorum flokki fyrir sig og því samtals hefðu 128 kylfingar geta tekið þátt. Í karlaflokki tóku 46 þátt en í kvennaflokki 18. Mótið var sett upp í Golfbox og tókst það vel. Leikmenn höfðu að jafnaði 2 vikur til að ljúka sínum viðureignum, en höfðu 3 vikur í kringum Meistaramót GKG. Undir lok sumars var orðið ansi strembið að fara út og spila leikina þar sem að veðrið stríddi okkur þó nokkuð með mikilli rigningu og roki. Úrslitaviðureignum var frestað en það endaði þó með því að Ásta Kristín Valgarðsdóttir og Garðar Ólafsson léku um titilinn Holumeistari GKG og Dröfn Eyjólfsdóttir og Emil Austmann um 3. sætið. Blautt var veðrið, en þau létu ekkert stoppa sig. Úrslitin urðu svo þannig að Ásta Kristín sigraði Garðar 3/2 og óskum við Holumeistara GKG innilega til hamingju með sigurinn! Emil sigraði svo Dröfn í leiknum um 3. sætið 4/2 og óskum við honum innilega til hamingju með það!

1. sæti

2. sæti

3. sæti

4. sæti

5. sæti

6. sæti

7. sæti Riðill 1 Ólsen bandið

Happy Hookers

Valkyrjur Referendarius

Gerplurnar Total Hamrar

Ræsarnir Riðlakeppnin - Úrslit Riðill 2

Total sláttuvélar

Vinir Múffa

Skotturnar

Pray for birdies Sleggjurnar Seven Eagles og Albatross

Við viljum þakka öllum sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna því það gerði þetta mót svo margfalt skemmtilegra og virkilega spennandi. Síðast en ekki síst var Liðakeppni GKG haldin þar sem var ekki einungis keppt um besta spil í golfinu heldur er einnig verið að keppa um flottustu búningana og liðsstjóra ársins. Samtals voru 13 lið sem tóku þátt og skiptust þau í 2 riðla. Í hverjum leik tefldu liðin fram fjórum leikmönnun og stilltu upp í tvo tvemenninga og einn fjórmenning. Þetta spilaðist þannig að liðin í hvorum riðli fyrir sig spiluðu um toppsætið í sínum riðli til þess að eiga svo úrslitaviðureign við toppsætið í hinum riðlinum. Óhætt er að segja að mikil spenna var í leikjunum sem margir hverjur réðust ekki fyrr en alveg á lokametrunum, sumir fóru jafnvel í bráðabana! En þetta endaði þannig að Ólsen bandið og Total Sláttuvélarnar léku um titilinn í ár og höfðu þar Total Sláttuvélarnar betur eftir bráðabana.

1. sæti 2. sæti

3. sæti

4. sæti

Búningar Liðsstjóri Ryder GKG 2020 - Úrslit Total sláttuvélar Ólsen bandið

Vinir Múffa

Happy Hookers

Valkyrjur Hlöðver Guðnason

Til hamingju með sigurinn Total Sláttuvélar og til hamingju með ykkar góðu frammistöðu öll sem eitt sem tókuð þátt í mótinu. Þetta var virkilega skemmtilegt og vel að þessu staðið. Eins og með öll mót sem enduðu seinni part sumars hafði Covid-19 sitt að segja þegar kom að verðlaunaafhendingu og þess háttar gamni. Því miður hefur ekki verið hægt að halda verðlaunaafhendingu hátíðlega eins og til stóð að gera, en við vonum að sjálfsögðu að við getum gert það við fyrsta tækifæri. Þangað til hlýðum við sóttvarnaryfirvöldum og lítum til baka yfir virkilega vel heppnað golfsumar, með þvílíkum fjölda hringja sem við spiluðum í sól og blíðu, líka mörgum í rigningu og roki, en heilt yfir getum við þakkað fyrir frábært golfsumar.

This article is from: