
8 minute read
Íþróttasvið
from Ársrit GKG 2020
Skýrsla íþróttasviðs GKG vegna 2020
Markmið barna- og unglingastarfs GKG
Advertisement
• að halda utan um og efla barna- og unglingastarf klúbbsins. Í samræmi við það eru meginmarkmið þessi: • Að veita ungum kylfingum í GKG, afreksmönnum jafnt og þeim sem skemmra eru á veg komnir, aðbúnað og atlæti sem jafnast á við það sem best gerist hjá öðrum golfklúbbum.
• Að styðja eftir föngum við bakið á íþróttastjóra og þjálfurum í því skyni að þeir megi ná sínum markmiðum.
• Að efla samstöðu ungu kylfinganna og félagsanda. • Að efla samstöðu foreldra ungu kylfinganna og fá fleiri til þátttöku í því að búa þeim gott atlæti við ástundun íþróttarinnar. • Að leita ráða til þess að fjölga stúlkum sem leika golf.
• Að tryggja öflugt upplýsingaflæði til foreldra og barna í því skyni að auka þátttöku þeirra enn.
• Að fjölga keppendum frá GKG á unglingamótum GSÍ og unglingamótaröð GKG.
Íþróttanefnd skipa:
Sigmundur Einar Másson, formaður Gestur Þórisson Helga Þorvaldsdóttir
PGA þjálfarar:
Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfari Andrés Jón Davíðsson, barna/unglingaþjálfari Ástrós Arnarsdóttir, barna/unglingaþjálfari Hlöðver Guðnason námskeið/einkakennsla Gunnlaugur Elsuson námskeið/einkakennsla Úlfar Jónsson íþróttastjóri

Aðstoðarleiðbeinendur í sumar á æfingum og leikjanámskeiðum voru alls 31 talsins.


Barna- og unglingastarf
Barna- og unglingastarf: GKG státar af lang fjölmennasta barna- og unglingastarfi golfklúbba landsins, og reyndar í öllum heiminum. Hér fyrir neðan má sjá fjölda skráðra iðkenda í GKG 18 ára og yngri. Inni í þessum tölum eru börn sem taka þátt í golfleikjanámskeiðum GKG, en þau fá takmarkaða félagsaðild.

Taflan sýnir fjölda skráðra iðkenda sem taka þátt í félagsæfingum GKG yfir sumarið (júní – september). Taflan sýnir fjölda skráðra iðkenda sem taka þátt í vetraræfingum GKG (nóvember – júní).
Golfleikjanámskeið GKG
Aukinn fjöldi leiðbeinenda sem við fengum til aðstoðar í sumar gerði það að verkum að við gátum aukið framboðið miðað við í fyrra. Í heildina voru tæplega 500 skráningar, en eftirtektarvert var að tiltölulega lítil skráning var í júli. Líkleg ástæða þess var mikil ferðalög barnafjölskyldna hér innanlands í þeim mánuði.
Golfleikjanámskeiðin eru mjög mikilvæg fyrir nýliðun í golfíþróttinni. Fyrir flesta er þetta fyrsta kynning af golfi og því mikilvægt að vel sé tekið á móti krökkunum og þeim sinnt vel.
Taflan hér fyrir neðan sýnir fjölda á golfleikjanámskeiðum GKG undanfarin


fjögur ár. Öflugt barna- og unglingastarf er forsenda endurnýjunar í íþróttinni og heilbrigðs reksturs í framtíðinni. GKG einsetur sér að halda forystu í barna- og unglingastarfi og leita áfram leiða til þess að laða að og halda börnum og unglingum í golfi.

Keppnir barna- og unglinga
Keppnir barna- og unglinga: Við leggjum áherslu á að krakkarnir geti nálgast íþróttina á eigin forsendum. Sum börn vilja mæta á æfingar og stunda þegar þeim hentar, meðan önnur hafa brennandi áhuga og metnað til að ná langt. Við bjóðum upp á umgjörð sem sinnir hvoru tveggja. Við hvetjum krakkana til þátttöku í keppnum en gætum þess að þau fái verkefni við hæfi. Líkt og undanfarin ár vorum við með tvær mótaraðir, Floridana mótaröð byrjenda í Mýrinni og Egils Kristals unglingamótaröðina fyrir vanari unglingana á Leirdalsvelli. Floridana mótaröðin er mikilvæg fyrir fyrstu skrefin í keppni þar sem lögð er áhersla á afslappað andrúmsloft og að þau njóti sín að spila í góðum félagsskap. Á þessum vettvangi læra þau að fara eftir helstu golf- og siðareglum, halda skor osfrv. Um 80 krakkar tóku þátt í a.m.k. einu móti í sumar í Floridana mótaröðinni.
Þegar krakkarnir hafa tekið þátt í Kristals mótaröðinni nokkrum sinnum þá beinum við þeim í Áskorendamótaröð GSÍ, sem eru 18 holu mót, og loks Unglingamótaröð GSÍ, sem eru 36-54 holu mót leikin á tveimur til þremur dögum, ætluð forgjafarlægri börnum og unglingum.
Eins og sést á stöplaritinu þá standa GR og GKG fremst með flesta þátttakendur á Unglingamótaröð unglinga - “Þar sem stjörnur verða til”, en eitt af markmiðum okkar hefur verið að hafa sem breiðastan hóp keppenda í öllum mótaröðum.

Hér fyrir neðan má sjá verðlaunayfirlit fyrir GSÍ mótaraðir unglinga og fullorðinna.

Loks sjáum við hér skiptingu verðlauna í öllum Íslandsmótum ársins á mótaröðum unglinga og fullorðinna, auk Íslandsmóta golfklúbba unglinga og efstu deildar.

Afreksstarf GKG
Hápunktur sumarsins var sigur karlaliðs GKG á Íslandsmóti golfklúbba. Þetta var í sjöunda sinn sem GKG sigrar í karlaflokki, annað árið í röð og þriðja sinn á seinustu fjórum árum. Tryggði sveitin sér þátttökurétt á Evrópumót klúbbliða, sem fór þó ekki fram vegna Covid19. Í heildina var árangur sumarsins ágætur, en alls lönduðu okkar kylfingar 8 Íslandsmeistaratitlum, sem er með því besta sem náðst hefur á einu tímabili. Hvað unglingaflokka varðar þá hefur árangurinn vissulega verið betri en viðmiðin og kröfurnar sem við gerum eru miklar og við stefnum ávallt að framúrskarandi árangri. Samkeppnin er hörð og í keppni þá þarf þolinmæði og þrautseigju, vinna markvisst ár frá ári, þá uppskerum við ríkulega.

Uppskera afrekskylfinga okkar árið 2020 er með því besta í sögu klúbbsins, með tilliti til fjölda Íslandsmeistaratitla.
Íslandsmeistaratitlar
Alls lönduðu GKG kylfingar átta Íslandsmeistaratitlum (sjö árið 2019 og fjórum árið 2018).
Íslandsmeistari í höggleik: Bjarki Pétursson Íslandsmeistari í höggleik 35 ára og eldri: Sigmundur Einar Másson Íslandsmeistari í höggleik 17-18 ára pilta: Sigurður Arnar Garðarsson Íslandsmeistari í höggleik 17-18 ára stúlkna: Hulda Clara Gestsdóttir Íslandsmeistari í holukeppni 19-21 árs stúlkna: María Björk Pálsdóttir Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik 15-16 ára drengja: Dagur Fannar Ólafsson Íslandsmeistarar golfklúbba 12 ára og yngri: Drengasveit: Arnar Daði Svavarsson, Benjamín Snær Valgarðsson, Björn Breki Halldórsson Gunnar Þór Heimisson, Snorri Hjaltason, Stefán Jökull Bragason.
Íslandsmeistarar golfklúbba í 1. deild: Karlasveit: Aron Snær Júlíusson, Bjarki Pétursson, Egill Ragnar Gunnarsson, Hlynur Bergsson, Kristófer Orri Þórðarson, Ólafur Björn Loftsson, Ragnar Már Garðarsson, Sigurður Arnar Garðarsson. Þjálfari: Andrés Jón Davíðsson
Stigameistarar á Íslandsbankamótaröð GSÍ: Dagur Fannar Ólafsson, 15-16 ára drengir
Klúbbmeistarar GKG Hlynur Bergsson Hulda Clara Gestsdóttir
Viðurkenningar hafa ávallt verið veittar á uppskeruhátíð barna- og unglingastarfsins á haustin en sökum samkomutakmarkana þá verður slíkt að bíða betri tíma. Listi yfir þá kylfinga sem fá viðurkenningar eftir tímabilið verður birtur um það leyti sem hægt verður að veita verðlaunin.
Eldri kylfingar (LEK):
GKG á breiðan hóp kylfinga sem keppir í mótaröðum LEK. GKG átti 6 fulltrúa í landsliðum Íslands, en vegna hins dæmalausa ástands í heiminum voru flest mót sem landslið eldri kylfingar taka þátt í felld niður og Ísland sendi ekki líð í þetta eina sem fram fór. Eftirtaldir kylfingar voru valdir í verkefnin:

Lið karla 55 ára og eldri:
Gunnar Páll Þórisson, Gunnar Árnason og Sighvatur Dýri Guðmundsson
Lið karla 70 ára og eldri:
Þórhallur Sigurðsson
Lið kvenna 50 ára og eldri (EGA):
María Málfríður Guðnadóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir

Lið kvenna 50 ára og eldir (ESLGA):
María Málfríður Guðnadóttir og Ragnheiður Sigurðardóttir Í Íslandsmóti eldri kylfinga sem fram fór í Borgarnesi lék María Málfríður Guðnadóttir í umspili um 1. sæti í flokki kvenna 50 ára og eldri en tapaði fyrir Þórdísi Geirsdóttur.
Í Íslandsmótum golfklúbba eldri kylfinga enduðu konurnar 3. sæti í 1. deild sem leikin var í Vestmannaeyjum. Karlasveitin náði sínum besta árangri frá upphafi og lenti í 2. sæti í 1. deild eftir stórkostlega sigra á GK og GR en heimamenn á Akureyri reyndust sterkari í úrslitaleiknum.
Fyrirlestrar og fróðleikur:
Samkomutakmarkanir vegna Covid19 faraldursins settu svip sinn á æfingar í vor og í haust og þurftum við að fella niður æfingar í nokkrar vikur samkvæmt fyrirmælum sóttvarnayfirvalda. Við brugðum á það ráð í vor þegar við þurftum að loka aðstöðunni að bjóða upp á alls konar fyrirlestra og
fróðleik með fjarfundabúnaði, sem allir félagsmenn gátu horft á og tekið þátt í umræðum. Mæltist þetta vel fyrir og var gaman að geta haldið sambandi við iðkendur og félagsmenn með þessum hætti.
Utanhússæfingaaðstaða:
Sá mikli fjöldi barna- og unglinga, yfir 800 einstaklingar, sem æfir og stundar golf hjá okkur á sumrin, skapar mikla áskorun fyrir okkur að viðhalda gæðum í þjálfun og skipulagi. Óhætt er að segja að æfingaaðstaðan utanhúss í sumar hafi verið langt því frá fullnægjandi og gerði það að verkum að starfsumhverfi þjálfara og leiðbeinenda og möguleikar til markvissrar þjálfunar voru engan veginn boðlegir. Þegar í lok sumars var hafist handa við að skipuleggja grassvæðin þannig að hægt væri að dreifa hópum betur þannig að meira næði skapist fyrir þjálfara og iðkendur að æfa markvisst. Ef við horfum nokkur ár fram í tímann þá er framtíðin björt hvað var utanhússæfingaaðstöðu fyrir pútt og vipp og högg innan við 100 metra, en þangað til þurfum við að gera það besta úr stöðunni og ramma betur inn þau grassvæði sem við höfum.
Innanhússæfingaaðstaða:
GKG er í sérflokki hvað þetta varðar og með stækkun inniaðstöðunnar í Íþróttamiðstöðinni þá geta kylfingar notið sín enn betur að æfa og spila við frábærar aðstæður allt árið. Gert er ráð fyrir að stækkunin verði tilbúin í lok nóvember og verða þá í boði 16 golfhermar og tvær æfingaflatir, auk veitingatorgs þar sem hægt er setjast niður og “chilla“. Auk þess var æfingaaðstaða okkar í Kórnum færð í sama klassa s.l. vor og Íþróttamiðstöðin, en þar eru 6 Trackman golfhermar í básum með öllum þeim búnaði sem þarf til að gera upplifun æfingarinnar og spilsins. Ennfremur er þar stór æfingaflöt og önnur minni.
Þessi framúrskarandi aðstaða gerir GKG kylfingum, hvort sem það eru börn og byrjendur, afrekskylfingar eða hvunndagsgolfhetjur, kleyft að stunda íþróttina og ná stöðugum framförum, í hvetjandi og notalegu umhverfi.
Að lokum þökkum við starfsmönnum, nefndarmönnum, aðstandendum og ekki síst sjálfboðaliðum fyrir mjög ánægjulegt samstarf á árinu.
Áfram GKG!
f.h. Íþróttasviðs, Úlfar Jónsson, Íþróttastjóri
Sigmundur Einar Másson, formaður íþróttanefndar




