
1 minute read
Öldungar 65
from Ársrit GKG 2020
Skýrsla GKG 65+ fyrir árið 2020
Öldunganefnd skipa, Átli Ágústsson, Randver Ármannsson, Örn Ásmundsson, Svandís Bjarnadóttir og Hrefna Sigurðardóttir formaður.
Advertisement
Golfhermamót 2020. Við vorum mætt í hermana 8. janúar og síðan spiluðum við mánaðarlega fram í apríl. Mikil þátttaka var í þessi mót og komust færri að en vildu.
Sumardagskráin. 20. maí mættu 33 á æfingamót á Mýrinni – 3. júní mættu 41 í mót á Leirdalum. 24. júní mættu 21 í mót á Selfossi – 22. júli mættu 44 í mót á Mýrinni. 26. ágúst mættu 34 í mót á Leirdalnum, sem kom í staðinn fyrir Borgarnes. 9. september var lokamótið á Leirdalnum og var spilað Texas scramble og þá mættu 46 félagar. Ljóst er að Covid hefur haft einhver áhrif á mætingu og í lokamótið í fyrra mættu 62 en í ár 46 félagar. Allir eru að fara varlega og við virðum allar reglur. Lokahófið okkar var ákveðið í október og þá ætluðum við að borða góðan mat og afhenda verðlaun fyrir sumarið og einnig að útnefna stigameistara sumarssins. Öllu þessu hefur verið slegið á frest þar til við getum komið saman og notið góðra veitinga í skálaum okkar. Vetrardagskrá 2020 – 2021 Golfhermamót frá kl. 9:00 til 12:00 1. Mótið verður 14. október – felllt niður vegna Covid 2. Mótið verður 11. nóvember 3. Mótið verður 9. desember 4. Mótið verður 13. janúar 2021 5. Mótið verður 10. febrúar 6. Mótið verður 10. mars
Þessar dagsetningar eru fráteknar fyrir okkur í vetur og höfum við 6 herma til ráðstöfunar svo nú á að vera pláss fyrir alla. Við skráum okkur í mótin eins og í fyrra með því að hringja í síma 565-7373. Mótin verða auglýst þegar nær dregur og við hlökkum til að mæta í okkar glæsilegu inniaðstöðu sem er að klárast þessa dagana. Sumardagskráin verður með sama sniði og í fyrra og verður hún auglýst þegar nær dregur.
Mótagjaldið var í sumar kr. 1.000 og höfum við afhent framkvæmdarstjóra hagnað að fjárhhæð kr. 199.400 sem skal verja til barna- og unglingastarfs GKG.
Við þökkum öllu starfsfólki GKG fyrir frábært samstarf og stuðning á árinu og einnig starfsfólki Mulligan fyrir gott viðmót og frábæra þjónustu.
Fyrir hönd nefndarinnar Hrefna Sigurðardóttir formaður.
Traustir Áreiðanlegir Endingargóðir
Allir golfbílar GKG eru EZGO.
