6 minute read

Kvennanefnd

Next Article
Öldungar 65

Öldungar 65

Skýrsla kvennanefndar GKG fyrir árið 2020

Núverandi kvennanefnd GKG tók til starfa í byrjun árs á félagsfundi kvennanefndar sem haldinn var 15. janúar. Vel var mætt á fundinn þar sem m.a. voru tilnefndar konur til stjórnar kvennanefndar GKG. Núverandi stjórn skipa: Ásta Kristín Valgarðsdóttir, formaður, Heiða Jóna Hauksdóttir, varaformaður, Arndís Berndsen, ritari, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, gjaldkeri. Meðstjórnendur eru: Fjóla Rós Magnúsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Sólveig Smith og Valgerður Friðriksdóttir sem kom ný inn í stjórnina á fundinum. Tvær konur létu af stjórnarstörfum þær Þorgerður Jóhannsdóttir og Inga Birna Einarsdóttir og er þeim þakkað kærlega fyrir vel unnin störf á liðnum árum.

Advertisement

Hlutverk kvennanefndar • Stuðla að samvinnu og samstöðu kvenna í GKG og efla félagsanda meðal þeirra. • Skipuleggja æfingar, mót og aðra viðburði fyrir konur í samráði við þjónustustjóra. • Hlúa sérstaklega vel að og bjóða velkomna nýja félaga. • Að reynslumeiri konur leiki reglulega með reynsluminni konum. • Að eiga samstarf við aðra golfklúbba.

Markmið kvennanefndar Að hlutfall kvenna í klúbbnum sé hærra en í nokkrum öðrum golfklúbbi á landinu. Starf nefndarinnar er sjálfboðaliðastarf en starfið er að sama skapi mjög gefandi og skemmtilegt, sérstaklega þegar viðtökur eru jafngóðar og þær hafa verið þrátt fyrir erfitt ár. Í ár var heimsfaraldur að stríða okkur og þurftum við að breyta og fella niður nokkra viðburði hjá okkur sökum þess. Einnig var tekið upp nýtt skráningarkerfi á öllu landinu, sem var ekki að hjálpa okkur en vonandi á eftir að uppfæra það og gera okkur öllum næsta ár auðveldara. Við stefnum að því að hafa fræðslufund þegar hömlum líkur, til að kynna betur nýtt kerfi og erum strax farnar að hlakka til að gera starfið enn betra á næsta ári. Nefndin hélt áfram samvinnu við styrktaraðilana okkar sem hafa stutt okkur dyggilega síðustu ár. TARAMAR, sem er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á húðvörum sem draga úr sjáanlegum áhrifum öldrunar. Ásamt Víntríó ehf sem selur Freixenet freyðivín. Við þökkum þessum fyrirtækjum sem og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gáfu okkur vinninga í ár fyrir stuðninginn. GKG konur voru einnig duglegar að safna vinningum fyrir okkur, það er ómetanlegt að eiga ykkur að og án ykkar stuðnings væri erfitt að halda úti svo öflugu starfi.

Á félagsfundinum í janúar ræddum við um starfið okkar og hvað konur myndu helst vilja að við legðum áherslu á. Góð mæting var á fundinn í ár og almenn ánægja með störf nefndarinnar. Áhugi var fyrir því að vera með golfmót í hermunum í haust. Golfmótin áttu að hefjast í nóvember þegar opnað yrði aftur og var búið að reikna með einu móti í hverjum mánuði fram til vors sem verða nánar auglýst síðar, eða þegar leyfi fæst fyrir slíkum viðburði.

Konudagurinn er að verða árlegur vinkonudagur hjá okkur og var það engin undantekning í ár. Við slóum öll aðsóknarmet þegar þar mættu um 150 konur í brunchinn þar sem dagskrá kvennanefndar var kynnt og kom Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur til okkar með gott innlegg inn í golfsumarið. Margir góðir gestir mættu og nýjar konur gengu í klúbbinn. GKG konur hafa verið með fasta tíma á þriðjudögum í Kórnum og var boðið upp á stöðvaþjálfun frá 21. janúar þar sem við fengum Ástrós Arnarsdóttur PGA golfkennaranema til liðs við okkur í ár. Lagt var upp með að hafa fjögur námskeið í Kórnum en vegna heimsfaraldurs urðum við að stytta og breyta síðustu tveimur námskeiðunum sem enduðu á spili með Ástrós á Mýrinni. Í lok fyrri námskeiðanna var haldið púttmót í Kórnum en því miður varð að fella seinna púttmótið niður vegna samkomutakmarkanna.

Fyrirlesturinn með Ólafíu Þórunni féll niður í apríl og einnig skemmtikvöldið sem var á dagskrá síðasta vetrardag líkt og undanfarin ár. Fyrirhuguðum fræðslufundi sem vera átti í maí var einnig felldur niður vegna ástandsins ásamt vissuferðinni og lokahófinu en þrátt fyrir það að fella hafi þurft niður

viðburði hjá okkur var mikil aukning í golfíþróttinni og þar var GKG engin undantekning og fjölgaði félagsmönnum úr 1966 í 2537 á milli ára. Þar af fjölgaði konum úr 618 í 812 á öllum aldri en í aldurshópum 26 ára og eldri voru 486 konur en eru nú 553. Í algengasta aldurshópnum frá 26 til 68 ára eru konur í 37% hlutfalli í klúbbnum en í heildina eru konur í 32% hlutfalli í GKG.

Í sumar sáum við til sólar og fengum við að spila golf sem gladdi marga. Fastir golftímar voru alla þriðjudaga þar sem Mýrin var spiluð ásamt fjölmörgum mótum yfir sumarið. Mótin voru flest í Mýrinni og Leirdalnum en einnig vorum við með önnur mót í samvinnu við aðra golfklúbba. Mótin voru blönduð, bæði einstaklings og Texasscramblemót, með fullri forgjöf og einnig þar sem hámarksforgjöf var 36. Það er góður andi í kvennastarfi GKG og hefur verið notalegt að koma inn í skálann eftir spilið og njóta góðs matar og velgjörðar að hætti Vignis kokks, Tomma, Jönu og þeirra fólks. Því miður var þetta ekki alltaf hægt í sumar þegar fjöldatakmarkanir voru hertar en það kemur annað gott golfsumar eftir þetta.

Farið var í árlega vorferð að Kiðjabergi á Sjómannadaginn, 7. júní og var spilað við heimakonur líkt og undanfarin ár. Alltaf gaman að spila Kiðjaberg og völlurinn kom vel undan vetri þar sem við fengum höfðinglegar móttökur að vanda.

Hin árlegu vinkvennamót voru haldin í júní og ágúst og er lagt upp með það að tvær konur úr hvorum klúbbi spili saman í hverju holli. Rúmlega 100 konur tóku þátt í hvoru móti fyrir sig. Við spiluðum við GM konur í júní þar sem fyrst var spilað hjá þeim og svo buðum við þeim til okkar að spila Leirdalinn. Fyrra vinkvennamótinu lauk með sigri GKG kvenna eftir harða baráttu við konurnar úr Mosó. Seinna vinkvennamótið var við GR konur í ágúst þar sem við spiluðum Korpuna hjá þeim og svo komu þær og spiluðu Leirdalinn með okkur. Engin verðlaunaafhending var vegna samkomutakmarkanna eftir þetta mót sem endaði einnig með sigri GKG kvenna.

Þegar litið er til baka má segja að þetta hafi verið einstaklega sérstakt ár eins og áður hefur komið fram. Heimsfaraldur sem varð til þess að við urðum að fella niður viðburði hjá okkur en líka var þetta ár sérstakt á þann hátt að við höfum sjaldan spilað eins mikið golf hér á landi þar sem golfarar voru ekki að fara erlendis til að spila og met slegin á flestum völlum landsins í spiluðum hringjum. Við létum ekki deigan síga þrátt fyrir ýmsar hömlur og héldum dagskrá að mestu leiti sem var fjölbreytt og hlaðin viðburðum og mótum í ár. Auk þess voru GKG konur duglegar að taka einnig þátt í öðrum mótum og viðburðum hjá klúbbnum, eins og meistaramóti, holukeppni, liðakeppni, mánudagsmótaröðinni og öðru. GKG konur eru einfaldlega bestar. Árinu lauk með veglegu lokamóti um miðjan september þar sem nær allar konur fengu verðlaun og allar konur fengu veglegar teiggjafir frá Cintamani og Perform.is. Við viljum þakka þessum fyrirtækjum og öðrum styrktaraðilum kærlega fyrir stuðninginn í ár vonumst til áframhaldandi samstarfs á komandi ári.

F.h. kvennanefndarinnar vil ég að lokum þakka öllum þeim sem komið hafa að starfi okkar í ár og gert það jafn glæsilegt og raun varð á. Fyrst og fremst hinni einu og sönnu GKG konu sem mætir í viðburðina okkar, án hennar væri ekkert kvennastarf. Hinum margrómaða GKG anda og síðast en ekki síst öllu starfsfólki GKG, þá sérstaklega Ástrós sem aðstoðaði okkur með svo margt, þið eruð öll frábær. Hlökkum til næsta árs með ykkur.

Áfram GKG Ásta Kristín Valgarðsdóttir

This article is from: