
2 minute read
Vallarnefnd
from Ársrit GKG 2020
Vallarnefnd GKG 2020
Vallarnefnd er ein af leiðum félagsmanna til að hafa áhrif á framkvæmdir og umhirðu golfsvæðis GKG. Vallarnefnd heldur reglulega fundi með vallarstjóra GKG þar sem m.a. verkefnum er forgangsraðað en auk þess fundar hún aukalega þegar vinna þarf úr ákveðnum verkefnum eða veita álit. Covid hafði þau áhrif á störf vallarnefndar að notast var við fjarfundi í nokkur skipti og aukin áhersla lögð á umræðuþræði á facebook síðu vallarnefndar.
Advertisement
Vallarnefnd GKG 2020: Björgvin Smári Kristjánsson Einar Þorsteinsson Elísabet Böðvarsdóttir Sigurður Kr. Egilsson Sigurfinnur Sigurjónsson Ingunn Einarsdóttir Jón Ingvar Jónasson Guðmundur Á. Gunnarsson, vallarstjóri Guðni Þorsteinn Guðjónsson, aðstoðarvallarstjóri
Vor- og haustframkvæmdir á svæði GKG voru með mesta móti á árinu 2020. Haldið var áfram því markmiði að auka jákvæða upplifun golfarans á vellinum í samræmi við heildarúttekt golfarans sem farið var í á árinu 2019. Sett var upp nýtt og glæsilegt skilti við heimreiðina með merki GKG sem býður kylfinga velkomna. Umhverfi 1. teigs var stórbætt, hlaðið var upp og gróðursett nýtt beð sem skilur að 1. teig og bílastæði. Malbikað var nýtt stæði fyrir golfkerrur við 1. teig ásamt því að sett var upp myndarlegt holtagrjót sem mun merkja teiginn til framtíðar. Þessir tveir staðir, þ.e. heimreiðin og 1 teigur eru einna mikilvægustu “augnablik” golfarans þegar hann hefur leik fyrir utan klúbbhúsið sjálft. Haldið var áfram að snyrta golfvöllinn meðal annars með því að bæta tröppum við teiga á vellinum, fyrst og fremst til að verjast átroðningi og koma í veg fyrir moldarflög. Kantsteinar voru settir á fjölda staða til að aðgreina betur göngubrautir og teiga og stýra betur umferð. Haustmánuðir voru nýttir vel og farið í miklar drenframkvæmdir á 4. - 7. braut í Leirdalnum. Bönkerar við 6., 7. og 12. braut í Leirdal voru endurgerðir og skipt um undirlag. Við klúbbhúsið var hannað eitt stærsta æfingargrín á landinu, samtals 2000 fm. og jarðvegur undirbúinn fyrir það, Mun það verða opnað árið 2022 og stórbæta aðstöðu fyrir barna- og unglingastarf, og fyrir hinn almenna félagsmann til æfinga. Fyrir utan þessar helstu vor og haustframkvæmdir var almennur sláttur og umhirða á völlum GKG yfir sumartímann,og sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikil ásókn á vellina.
Í vor og haust var bætt við mannskap til að tryggja það að þær framkvæmdir sem farið var í myndu verða kláraðar fyrir sumarvertíð og til að nýta góða haustdaga til framkvæmda. Er góð reynsla af því og gert ráð fyrir að það verði til frambúðar.
Framundan eru frekari framkvæmdir sem lúta að því að að snyrta völlinn enn frekar og auka jákvæða upplifun golfarans. Vellirnir í sumar voru í sínu besta formi um langt skeið og hafa starfsmenn vallarins unnið af mikilli elju að bæta völlinn sem skilar sér í aukinni ánægju félagsmanna. Mörg spennandi verkefni eru framundan. Vallarnefnd þakkar vallarstjóra og starfsmönnum fyrir ánægjulegt samstarf.
Sigurður Kr. Egilsson, formaður vallarnefndar GKG.