

RX 45 0 h+ Pl ug-i n H ybri d
Þessi einstaki lúxussportjeppi hrífur þig strax við fyrstu kynni, enda hannaður til að skera sig úr og taka forystu.
Komdu í Kauptúnið - þín bíður óviðjafnanleg akstursupplifun!
Ágætu GKG-félagar !
Íþróttafélagið okkar, GKG, varð 30 ára þann 24. mars á þessu ári. Að því tilefni voru haldnar kynningar á starfi klúbbsins á vormánuðum.
Haldið var afmælismót um miðjan ágúst, þar sem velunnurum klúbbsins, þar á meðal bæjarstjórum Garðabæjar og Kópavogs, var boðið til leiks sem
Stjórn GKG 2024
Frá vinstri:
Sigurður Kristinn Egilsson, Sigurjón Sigurjónsson, Ragnheiður Stephensen, Berglind Stefanía Jónasdóttir, Jón Júlíusson, Sigmundur Einar Másson, Einar Þorsteinsson og Birgir Leifur Hafþórsson. Á myndina vantar Sigríði Olgeirsdóttur.
4. Skýrsla stjórnar
8. Stjórn og nefndir
9. Skipting félagsmanna
11. Íþróttasvið
19 Kylfumælingar
22 Háttvísibikarinn
Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG agnar@gkg.is
Jón Júlíusson formaður GKG
og afrekskylfingum, starfsmönnum og stjórnarfólki GKG.
Þetta starfsár GKG hefur á margan hátt verið gott hjá okkur í klúbbnum. Við höfum vanist því á síðast liðnum árum að leika golf í íslenskri veðráttu og má segja að sumarið hafi látið bíða eftir sér alveg fram í september.
Þrátt fyrir það voru spilaðir álíka margir golfhringir og síðustu ár.
21. Kvennanefnd
25. GKG 30 ára
26. Mótanefnd
32. Úrslit Meistaramóts 2024
38. Öldungar 65+
40. Nýting valla
41. Vallarstjóri
42. Sviðsstjóri vallarsviðs
43. Vallarnefnd
47. Viðburðarnefnd
48. Áritun stjórnar
49. Áritun óháðs endurskoðanda
52 - 53. Rekstraryfirlit og Efnahagsreikningur
54. Sjóðstreymi
56. Líflegur golfklúbbur (myndir)
58. Klúbbmeistarar 2024
Ársrit GKG 2024
Útgefandi: Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar. Ábyrgðarmaður: Agnar Már Jónsson. Umbrot/uppsetning: Sigurður Hlöðversson. Ljósmyndir: Agnar Már Jónsson, Guðmundur Árni Gunnarsson, Marinó Már Magnússon, Magnús Már Harðarson ræsir og myndir frá félagsmönnum. Prentun: Svansprent.
Stjórnarstörf
Stjórnin hélt 10 fundi á árinu. Á fyrsta fundi stjórnar í desember skipti hún með sér verkum.
� Ragnheiður Stephensen varaformaður og form. mótanefndar, og í vallarnefnd
� Sigurjón Sigurjónsson ritari, formaður vottn(GEO) og situr mótanefnd.
� Einar Þorsteinsson gjaldkeri og form trjár.nefn og v.nefnd
� Sigmundur Einar Másson formaður íþróttanefndar
� Berglind Stefanía Jónasdóttir formaður kvennanefndar
� Sigurður Kristinn Egilsson formaður vallarnefndar
� Sigríður Olgeirsdóttir fulltr í vott.nefn og Mulligannefnd
� Birgir Leifur Hafþórsson fulltr. í íþróttanefnd
Ég vil fyrir hönd GKG, þakka þeim fyrir störf þeirra á árinu.
Síðustu tvö árin hefur stjórnin sett sér starfsáætlun sem miðar að því, að tekin eru fyrir ákveðin þemaefni á stjórnarfundum auk fastra dagskrárliða og málin krufin. Rýnt var í íþróttamálin og afreksstarfið, mótamál, veitingaþjónustuna og fleira svo eitthvað sé nefnt.
Vinna við endurskoðun á stefnu klúbbsins hélt áfram, sem stjórn, starfsfólk og félagsmenn tóku þátt í. Markmiðið var m.a. að skerpa á áherslum sem og samskiptaleiðum innan sem utan félagsins. Ráðgjafarfyrirtækið Expectus hélt utan um það verkefni fyrir okkur.
Fyrri hluti þeirrar vinnu fór fram sl. haust, sem miðaði m.a. að því að gera úttekt á íþróttamálum innan klúbbsins. Seinni hluti stefnumótunarinnar fór síðan fram í mars/apríl og raungerist sú vinna í endurskoðuðum markmiðum og stefnu GKG, og í slagorðunum: Jafnrétti – Ábyrgð – Gæði – Kraftur – Gleði „JÁ-GKG“.
Starfsfólk
Það hefur verið gæfa okkar að hafa samhent og traust starfsfólk í gegnum árin.
Á vallarsviði urðu þær breytingar að ráðinn var nýr vallarstjóri og Guðmundur Árni er nú sviðsstjóri vallarsviðs. Við vallarstjórastarfinu tók hún Kate Stillwell sem hefur mikla og víðtæka alþjóðlega reynslu þrátt fyrir ungan aldur.
Það var mikill harmur að vélamaðurinn okkar hann Óskar Örn lést á árinu sem er að líða. Óskar átti hug og hjarta okkar GKG-inga, var ekki bara iðinn til verks heldur mikill hæfileikamaður hvort sem um var að ræða viðgerðir, smíði og tæknimál. Hugur okkar GKG-inga er með fjölskyldu Óskars.
Miklar breytingar urðu á Íþróttasviðinu í kjölfarið á stefnumótunarvinnu golfklúbbsins. Guðmundur Daníelsson var ráðinn íþróttastjóri og Haukur Már Ólafsson var ráðinn fagstjóri íþróttasviðs.
Nýendurbætt sundlaug, 25 m útilaug samtengd við litla barnalaug. Gufubað, heitir pottar og kaldur pottur, líkamsrækt. Góð aðstaða fyrir fatlaða.
Afgreiðslutími:
Mánud - föstud kl. 06:30 – 22:00
Laugard og sunnud kl. 08:00 – 18:00
Íþróttamiðstöðin Ásgarður
Sími: 550 2300 gardabaer.is
Eina öldulaug landsins og stærsta vatnsrennibrautin 10 m há og 80 m löng. Útilaugin er 25 m, innanhúslaug, heitir pottar, buslulaug, gufuböð og líkamsrækt.
Góð aðstaða fyrir fatlaða.
Afgreiðslutími:
Mánud - föstud kl. 06:30 – 22:00
Laugard og sunnud kl. 09:00 – 18:00
Breiðumýri, Álftanes, Sími: 550 2350
Fastráðið starfsfólk GKG er nú eftirfarandi:
� Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóri frá 2012
� Guðmundur Árni Gunnarsson, vallarstjóri frá 2001 nú sviðsstjóri vallarsviðs.
� Kate Stillwell, vallarstjóri frá 2024
� Úlfar Jónsson, íþróttastjóri frá 2004, þjónustustjóri frá 2022
� Guðrún Helgadóttir, skrifstofustjóri frá 2010
� Victor Freyr Sigurðsson, aðstoðarvallarstjóri frá 2024
� Andrés Guðmundsson, þúsundþjalasmiður frá 2016
� Daníel Aron Gunnarsson, verslunarstjóri frá 2022
� Sigfinnur Helgi Gunnarsson, aðstoðarverslunarstjóri frá 2022
� Guðmundur Daníelsson, þjálfari frá 2022, íþróttastjóri frá 2024
� Haukur Má Ólafsson, fagstjóri íþróttasviðs frá 2024
� Arnar Már Ólafsson, þjálfari frá 2019
� Andrés Jón Davíðsson, þjálfari frá 1. jan. 2020
� Aron Snær Júlíusson, þjálfari frá 2024
Á árinu hætti Ástrós Arnarsdóttir íþróttastjóri sem fór erlendis í nám. Þökkum við henni fyrir frábært starf í gegnum árin. Á sumrin bætist verulega í starfsmannahópinn hjá okkur og lætur nærri að starfsmenn séu á milli 60 og 70 þegar best lætur.
Félagsmenn
Í ár var 2.801 kylfingur skráður í GKG sem er fjölgun um 171 á milli ára. Fjölgun varð öllum aldursflokkum, þó mest í barna- og unglingastarfinu. Eldri kylfingum fjölgar enn, en það kemur ekki á óvart þar sem öldungastarfið hefur verið til fyrirmyndar síðustu árin.
Aldurshópar GKG skiptast með eftirfarandi hætti: Börn og unglingar eru samtals 740 sem skiptist niður á golfleikjanámskeið með 457 börn, 12 ára og yngri 129 börn og 13-18 ára 154 kylfingar. Á aldursbilinu 19-25 ára eru 202 kylfingar. Hinn almenni kylfingur frá 26 til 69 ára telur 1.481 meðlimi og 70 ára og eldri 378 talsins.
GKG íþróttafélag -lýðheilsustofnun
GKG er svo sannarlega frábær lýðheilsustofnun fyrir alla fjölskylduna. Eftir að Íþróttamiðstöðin kom til sögunnar, nýta margir kylfingar þjónustu GKG allt árið.
Mikilvægi GKG í nær-samfélaginu er því gríðarlega mikilvægt. Við erum uppeldisstofnun fyrir börn og unglinga. Hinn almenni félagsmaður sækir sér hreyfingu og félagsskap til okkar. Síðast en ekki síst er stór hópur eldri borgara sem sinnir ekki bara sinni daglegu hreyfingu heldur sækir í félagskapinn, margir á hverjum einasta degi allt árið. Í starfinu koma aldurshóparnir saman, og iðka íþróttina sumar, vetur, vor og haust.
Og það er frábært, ekki satt?
Íþróttastarfið
Strax i upphafi var eitt af markmiðum stofnfélaga GKG að félagið hefði sérstöðu umfram aðra klúbba þar sem höfuðáherslan væri lögð á íþróttastarfið. Sú áhersla hefur haldið í gegnum tíðina og það er óhætt að segja að nýliðið keppnistímabil hafi verið einstaklega gjöfult hvað varðar árangur okkar kylfinga.
Lesa má nánar um árangur okkar í skýrslu íþróttasviðs sem kemur hér á eftir.
Vellir og mannvirki
Stóru verkefnin framundan er uppbygging á 9 holu golfvelli GKG í stað Mýrarinnar sem og bygging á nýrri þjónustumiðstöð fyrir vellina. Vinna við deiliskipulag Hnoðraholts og nánasta umhverfis GKG hefur því miður dregist um of, en nú lítur út fyrir að eitthvað sé að gerast í þeim málum. Á síðasta ári var ákveðið að stofna samstarfshóp um skipulag og framkvæmdir á svæði GKG. Haldnir hafa verið þrír fundir á árinu með sveitarfélögunum.
Jafnframt áttum við tvo góða fundi með Skógræktarfélagi Garðabæjar vegna fyrirhugaðra framkvæmda við nýja völlinn í Smalaholtinu. Á seinni fundinn í júlí mættu fulltúar skipulagsyfirvalda í Garðabæ, hönnuður golfvallarins, stjórn og ráðgjafar Skógræktarfélagins ásamt fulltrúum GKG. Í lok fundar var gengið um svæðið, mæld út GPS hnit á útlínum og legu golfbrauta sem og lega golfbrauta með tilliti til nálægðar við „trjásýnistíg“ Skógræktarfélagsins sem er mikilvægt að varðveita á svæðinu.
Ég tel að niðurstaða þessa júlífundar geti stuðlað að mjög svo ásættanlegri lausn fyrir alla hlutaðeigandi aðila. Drög að skipulagstillögu sem nú liggur fyrir hjá skipulagsyfirvöldum sveitarfélaganna og byggir á fyrrgreindri lausn, fer vonandi í umsagnarferli á allra næstu vikum.
Fjármálin
Það er mikilvægt að rekstur GKG gangi vel og skili hagnaði sem nýttur er til fjárfestinga í völlum, tækjum og aðstöðu. Árið í ár var einstaklega gott rekstrarlega séð. Rekstrartekjur voru tæpar 527 milljónir og jukust um tæpar 71 milljón á milli ára. Rekstrargjöldin eru 440 milljónir og EBITDA hagnaður var því 87 milljónir samanborið við 52 milljónir árinu á undan. EBITDA hagnaðurinn er nýttur til að greiða niður lán og fjárfestingar. GKG fer ekki varhluta af því frekar en aðrir sem skulda að vaxtakostnaður hefur hækkað umtalsvert og greiðslubyrði lána GKG hefur aukist úr 15 milljónum á ári upp í 21 milljón. Hreinn rekstrarhagnaður fjárhagsárið 2024 er 42 milljónir.
Það er mikilvægt að við eigum borð fyrir báru því framundan eru miklar fjárfestingar í nýrri þjónustumiðstöð golfvalla en við munum missa núverandi aðstöðu á næstu tveimur árum. Þrátt fyrir sterka stöðu þá er lítið rúm til frekari fjárfestinga og því hefur GKG enga burði til að fjármagna þá byggingu öðruvísi en með verulegri aðkomu sveitafélaganna.
Lokaorð
Ég vil nota tækifærið í lokin að þakka öllum starfsmönnum GKG fyrir þeirra störf sem og þeim öllum þeim sjálfboðaliðum sem komið hafa að starfi GKG á árinu. Án ykkar væri GKG ekki til.
Við GKG-fólk segi ég, verum bjartsýn um bætta aðstöðu og betri tíð með bros á vör.
Jón Júlíusson, formaður
Stjórn
Formaður
Jón Júlíusson
Varaformaður
Ragnheiður Stephensen
Ritari
Sigurjón Sigurjónsson
Gjaldkeri
Einar Þorsteinsson
Meðstjórnendur
Berglind Stefanía Jónasdóttir
Birgir Leifur Hafþórsson
Sigmundur Einar Másson
Sigríður Olgeirsdóttir
Sigurður Kristinn Egilsson
Framkvæmdastjóri
Agnar Már Jónsson
Þjónustustjóri
Úlfar Jónsson
Skrifstofustjóri
Guðrún Helgadóttir
Vallarstjóri
Kate Stillwell
Aðstoðarvallarstjóri
Viktor Freyr Sigurðsson
Sviðsstjóri vallarsviðs
Guðmundur Árni Gunnarsson
Þúsundþjalasmiður
Andrés I. Guðmundsson
Íþróttastjóri/PGA kennari
Guðmundur Daníelsson
Ástrós Arnarsdóttir (hætti störfum í ágúst)
Fagstjóri íþróttasviðs/PGA
kennari
Haukur Már Ólafsson
Afreksþjálfari/PGA kennari
Andrés Davíðsson
Arnar Már Ólafsson
Unglingaþjálfari/PGA kennari
Aron Snær Júlíusson
Golfverslun GKG
Daníel Aron Gunnarsson
Sigfinnur Helgi Gunnarsson
Aganefnd
Bergþóra Sigmundsdóttir, formaður
Ragnheiður Stephensen Bergsveinn Þórarinsson
Forgjafarnefnd
Kjartan Bjarnason (formaður)
Sæmundur Melsted Bergveinn Þórarinsson
Íþróttanefnd
Sigmundur Einar Másson (formaður)
Etna Sigurðardóttir
Sveinn Kristinn Ögmundsson
Thelma Harðardóttir
Kvennanefnd
Berglind S. Jónasdóttir, formaður
Svala Vignisdóttir, varaformaður
Valgerður Friðriksdóttir, gjaldkeri
Helga Gunnarsdóttir, ritari
Meðstjórnendur
Elín María Sigurðardóttir
Sigríður Ólafsdóttir
Sigríður Bergþórsdóttir
Kristín Stefánsdóttir
Hulda Ólafsdóttir Klein
Kynningarnefnd
Sigurður Hlöðversson
Mótanefnd
Ásta Kristín Valgarðsdóttir
Birgir Hrafn Hafssteinsson
Björg Elsa Sigfúsdóttir
Björn Steinar Stefánsson
Brynjar Þórsson
Dröfn Eyjólfsdóttir
Einar Vignir Hansson
Erna Ósk Kettler
Eva Yngvadóttir
Fjóla Rós Magnúsdóttir
Helga Björg Steingrímsdóttir
Helga S. Sigurgeirsdóttir
Herbert Baldursson
Hulda Alfreðsdóttir
Ingibjörg Hinriksdóttir
Ingibjörg Steinþórsdóttir
Ingibjörg Þ. Ólafsdóttir
Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir
Jónína Þrúður Stefánsdóttir
Kristín Kristmundsdóttir
Kristrún Sigurðardóttir
Ólafur Arnar Kristjánsson
Ólöf Ásgeirsdóttir
Randver Fleckenstein
Sesselja Magnea Matthíasdóttir
Sigurður Ásgeir Ólafsson
Sigurjón Sigurjónsson
Símon Á Gunnarsson
Skúli Pálsson
Sóley Gyða Jörundsdóttir
Sólveig Smith
Valgerður Ólafsdóttir
Trjáræktarnefnd
Einar Þorsteinsson, formaður
Jens Sigurðsson
Jón Ingvar Jónasson
Vallarnefnd
Sigurður Kristinn Egilsson (formaður)
Einar Þorsteinsson
Ragnheiður Stephensen
Ragnar Már Garðarsson
Ingibjörg Hinriksdóttir
Birgir Leifur Hafþórsson
Viðburðarnefnd
Markús Einarsson (formaður) Ingibjörg Hinriksdóttir
Heiða Hauksdóttir
Öldunganefnd
Kristján Snædal (formaður) Gunnar Árnason
Einar B. Tómasson
Atli Ágústsson
Randver Ármannsson
Elísabet Þórdís Harðardóttir
Soffía Ákadóttir
Árni Gunnarsson
Dómarar sem störfuðu fyrir
GKG á árinu: Bergsveinn Þórarinsson, AD Kjartan Bjarnason, AD Sæmundur Melstað, AD Þorgrímur Toggi Björnsson, AD
Helgi Már Halldórsson, LD
Jón K. Baldursson, LD
Ásta Kristín Valgarðsdóttir, HD Eggert Ólafsson, HD
Heimir Jón Guðjónsson, HD
Leifur Geir Hafsteinsson, HD
Magnús Bjargarson, HD Þorsteinn Guðmundsson, HD
Búseta félagsmanna í lok starfsárs 2024
Aldursskipting
Kynjaskipting félagsmanna í lok starfsárs 2024 Allir félagsmenn
Mannvit hefur nú sameinast COWI, alþjóðlegu ráðgjafarfyrirtæki á sviði verkfræði, hönnunar og arkitektúrs. Við erum með átta starfsstöðvar víðsvegar um landið, auk starfsemi í yfir 35 löndum og telur samstarfsfólk okkar um 8.000 sérfræðinga.
Markmið okkar eru skýr: Við, ásamt viðskiptavinum okkar, stuðlum að sjálfbærum heimi og sköpum lausnir í sameiningu sem bæta lífsgæði fólks og komandi kynslóða.
Nánar á www.cowi.is
Nefndir og starfsfólk íþróttasviðs
Íþróttanefnd skipa:
Sigmundur Einar Másson (formaður)
Birgir Leifur Hafþórsson
Etna Sigurðardóttir
Sveinn Kristinn Ögmundsson
Thelma Harðardóttir
Foreldraráð:
Helena Gunnarsdóttir
Hrafnhildur Björnsdóttir
Lena Heimisdóttir
Margrét Björg Guðmundsdóttir
Thelma Harðardóttir
PGA kennarar, þjálfun og kennsla:
Andrés Jón Davíðsson, afreksþjálfun
Arnar Már Ólafsson, afreksþjálfun
Aron Snær Júlíusson, afreks/barna/unglingaþjálfun
Guðmundur Daníelsson, íþróttastjóri
Haukur Már Ólafsson, fagstjóri
Skólastjóri leikjanámskeiða:
Einar Gunnar Guðmundsson
Barna- og unglingastarf
Hjá GKG stunda börn og unglingar æfingar nánast allt árið um kring. Gerðar voru gjaldskrár breytingar síðasta haust. Nú í ár var boðið uppá heilsársgjald og inni í æfingagjaldinu var eins æfing í viku fyrir almenna hópa en þrjár æfingar í viku ef viðkomandi var í afrekshópum.
Þá var hægt að vera á sumaræfingum í almennu hópunum og stóðu þær yfir frá 1. júní til 30. ágúst.
Nauðsynlegt er að vera félagi í GKG til að sækja þessar æfingar.
Sumaræfingar barna og unglinga Súluritið hér fyrir neðan sýnir fjölda á sumaræfingum 2020-2024. Miðað við núverandi skráningaferli þá eru hér bæði þau sem eru skráð á sumargjald og þau sem eru skráð með heilsársgjald.
Frekar kalt var í veðri í sumar og var mæting á æfingar á köflum eftir því. En þegar að full mannað er á æfingar og golfleikjanámskeiðið er líka í gangi þá er fjölmennt á æfingasvæðinu og þarf að skipuleggja það vel svo að ekki komi upp árekstrar. Huga þar vel að æfingasvæðunum og bæði þurfa ungir og eldri kylfingar að ganga þar vel um. Netabúrið við enda bílastæðisins er vel nýtt á sumaræfingum. Eins var kærkomin viðbót þegar að afrekshópar gátu farið að æfa við flatir á nýja hlutanum sunnan við bílastæði GKG.
Heilsársæfingar barna og unglinga
Súluritið hér fyrir neðan sýnir fjölda á heilsársæfingum (áður vetraræfingum) 2020-2024.
Eftir nokkra fækkun iðkanda árið 2023 þá fjölgaði aftur í hópnum 2024 og erum við með svipaðan iðkanda fjölda og árin 2021 og 2022. Þó skal nefna að fækkun hefur verið í stúlkna hópnum og þarf að huga betur að því.
Léttar og meðfærilegar kerrur til léttra utninga, garðvinnu eða fyrir ýmsar tómstundir. Kerrurnar eru vandaðar, sterkbyggðar og byggðar ofan á vandaðan Knott öxul með exitora öðrun.
Öflugir snjóblásari með stillanlegum kastara. Fer leikandi í gegn um mikinn og þungan snjó og kastar allt að 12 metra. Bæði 60v rafmagns og bensínknúnar
Þægilegar í notkun og umgengi. Samanbrjótanlegar og fyrirferðalitlar í geymsluna eða bílskúrinn. Bæði 60v rafmagns og bensínknúnar
Sá háttur hefur verið hafður á undanfarin ár að þjálfarar taki frí í október ár hvert. Núna í ár var ákveðið að halda úti æfingum í október. Þá með hjálp leiðbeinenda og þjálfararnir gátu tekið sitt frí í október.
Golfleikjanámskeið 6-12 ára Sumarið 2024 voru námskeiðsvikurnar 7 og voru haldin námskeið fyrir og eftir hádegi og voru því 14 námskeið voru í boði.
Heildarskráning þátttakenda sumarið 2024 var 521. Alls tók 456 einstaklingur þátt í námskeiðum GKG, margir tóku því fleiri en eitt námskeið.
Þetta er veruleg fjölgun frá því 2023 en þá voru 283 þátttakendur. Við þökkum þetta að miklum hluta betri markaðssetningu síðasta vor.
Einar Gunnar Guðmundsson var skólastjóri golfleikjanámskeiðanna líkt og sumarið 2023. Þökkum við Einari Gunnari fyrir góða stjórn á námskeiðunum og gott utan um hald.
Við teljum að 520 þátttakendur á golfleikjanámskeiðum séu efri þolmörk eins og námskeiðin eru útfærð núna. Við viljum líka hækka gæðin á námskeiðunum og veita þátttakendum betri þjónustu. Við höfum hafið þá vegferð og ætlum við að koma enn betur undirbúin inn í næsta sumar hvað þetta varðar.
Þá var mjög ánægjulegt að sjá hversu margar stelpur sóttu námskeiðin núna í sumar og þurfum við að grípa þann hóp og fá þær til að koma inn á æfingar. Kynna golfið betur fyrir þeim þannig að þarna séum við að fá til okkar framtíðar kylfinga inn í klúbbinn.
Keppnir barna og unglinga Líkt og undanfarin ár þá stóðum við fyrir tveim mótaröðum fyrir yngri kylfingana okkar. Flóridana mótaröðin var spiluð á Mýrinni. Sú mótaröð er ætluð þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref á golfvellinum. Kristalsmótaröðin er spiluð á Leirdalsvelli og er ætluð þeim kylfingum sem að eru komnir lengra í íþróttinni. Þetta er 18 árið sem að þessar mótaraðir eru spilaðar.
Alls tóku 46 kylfingar þátt í Flóridana mótaröðinni og 51 kylfingur tók þátt í Kristalsmótaröðinni.
Árangur afreksfólks GKG
Árangur kylfingana okkar var mjög góður sumarið 2024. Þá að við náum ekki alveg að slá út met sumrinu 2023 þar sem 12 Íslandsmeistaratitlar komu í hús. Titlarnir þetta árið voru 9 og getum við verið mjög stolt af öllum okkar Íslandsmeisturum.
Klúbbmeistarar GKG
Karen Lind Stefánsdóttir og Ragnar Már Garðarsson
Íslandsmeistaratitlar 2024
Íslandsmót golfklúbba 16 ára og yngri drengja
Arnar Daði Svavarsson, Benjamín Snær Valgarðsson, Björn Breki Halldórsson, Gunnar Þór Heimisson, Snorri Hjaltason.
Íslandsmót golfklúbba 18 ára og yngri drengja
Guðjón Frans Halldórsson, Guðmundur Snær Halldórsson, Magnús Ingi Hlynsson, Óli Björn Bjarkason, Pálmi Freyr Davíðsson.
Íslandsmót golfklúbba 50 ára og eldri konur
Elísabet Böðvarsdóttir, Hanna Bára Guðjónsdóttir, Helga Björg Steingrímsdóttir, Jóhanna Ríkey Sigurðardóttir, María Málfríður Guðnadóttir, Petrún Björg Jónsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Ragnheiður Stephensen
Íslandsmót golfklúbba karlaflokkur
Aron Snær Júlíusson, Guðjón Frans Halldórsson, Gunnlaugur Árni
Sveinsson, Hjalti Hlíðberg Jónasson, Kristófer Orri Þórðarson, Ragnar Már Garðarsson, Róbert Leó Arnórsson, Sigurður Arnar Garðarsson.
Íslandsmót í höggleik 14 ára og yngri drengja
Björn Breki Halldórsson
Íslandsmót í höggleik 50 ára og eldri Ragnheiður Sigurðardóttir
Íslandsmót í holukeppni
Anna Júlía Ólafsdóttir
Íslandsmót í höggleik
Hulda Clara Gestsdóttir
Aron Snær Júlíusson
Stigameistarar
Aron Snær Júlíusson – Stigameistari GSÍ 2024
Hulda Clara Gestsdóttir – Stigameistari GSÍ 2024
Arnar Daði Svavarsson – 15-16 ára piltar
Landsliðssæti
EM stúlknalandslið – Eva Fanney Matthíasdóttir
EM piltalandslið – Guðjón Frans Halldórsson, Gunnar Þór Heimisson og
Arnar Daði Svavarsson
EM karlalandslið – Gunnlaugur Árni Sveinsson
EM kvennalandslið – Hulda Clara Gestsdóttir, Anna Júlía Ólafsdóttir
Öldungalandslið
EM landslið kvenna 50+ - Ragnheiður Sigurðardóttir og María Guðnadóttir
EM landslið karla 50+ - Gunnar Páll Þórisson
Mestu framfarir:
Helga Grímsdóttir og Óli Björn Bjarkason
Efnilegust:
Embla Hrönn Hallsdóttir og Björn Breki Halldórsson
Verðlaun fyrir framúrskarandi árangur (kylfingur ársins):
Eva Fanney Matthíasdóttir og Arnar Daði Svavarsson
Sigurður Arnar Garðarsson keppti á 9 mótum á ECCO mótröðinni náði hann best 2. sæti og varð í 53. Sæti á stigalista ECCO mótaraðarinnar.
Bjarki Pétursson lék á 20 mótum á ECCO mótaröðinni náði þar best 2. sæti og endaði í 23. sæti stigalista ECCO mótaraðarinnar.
Hlynur Bergsson lék á 24 mótum á ECCO mótaröðinni og náði þar best 7. sæti og endaði í 52. sæti á stigalista mótaraðarinnar.
Aron Snær Júlíusson tók þátt í 5 mótum á ECCO og Nordic Golf League mótaröðunum. Hans besti árangur var 3. Sæti á ECCO Polish Masters og endaði Aron í 23. Sæti stigalista Nordic Golf League.
Hulda Clara Gestsdóttir fagnaði sigri á sínu fyrsta háskólamóti þegar hún sigraði Summit League Women’s Champion í Bandaríkjunum.
Gunnlaugur Árni Sveinsson sigraði á sínu fyrsta háskólamóti þegar hann sigraði á The Blessings Collegiate Invitational í Bandaríkjunum.
Lokaorð íþróttastjóra
Frá því að ég kom til starfa á GKG árið 2023 hefur verið frábært að fylgjast með þeim krafti sem að er í félaginu. Hér er fagfólk á hverju strái og við erum mjög rík af bæði frábærum iðkendum og frábæru starfsfólki og ekki síst sjálfboðaliðum sem að leggja félaginu lið.
Við munum alltaf reyna að gera betur, það á bæði við í starfinu og líka úti á
golfvelli. Ég er mjög þakklátur fyrir það tækifæri að fá að taka við af Ástrós Arnarsdóttur sem íþróttastjóri GKG í byrjun september sl. Þegar að Ástrós fór til náms í Noregi. Hún byggði upp flottan ramma um starfið og mun ég gera mitt besta til að halda því góða starfi áfram.
Vil ég við þetta tækifæri þakka Ástrós fyrir það flotta starf sem hún vann á vegum GKG.
Mér við hlið verður Haukur Már Ólafsson sem fagstóri íþróttasviðs og munum við í samvinnu við þjálfara og íþróttanefnd vinna að framgangi íþróttasviðs GKG.
Árangurinn á liðnu sumri var góður og getum við verið stolt af öllum okkar iðkendum. Það var bæði gleði og líka vonbrigði úti á velli. En alltaf héldu kylfingarnir okkar og komu til baka með það markmið að bæta sig og gera betur næst.
Við uppskárum 9 Íslandsmeistaratitla. Hulda Clara og Aron Snær og urðu aftur Íslandsmeistarar í höggleik á sama tíma. Anna Júlía varð Íslandsmeistari kvenna í holukeppni.
Í almenna starfinu hjá okkur varð fjölgun í iðkanda hópnum en þá þurfum við að gæt að því að fá fleiri stelpur með okkur í lið. Stúlkna hópurinn stækkaði ekki eins mikið og strákahópurinn. Við þessu þurfum við að bregðast og ætlum að gera áttak í því.
Góð þátttaka var í golfleikjanámskeiðunum okkar í sumar. Náðum við þátttakandafjölda aftur upp eftir fækkun ársins 2023. En við þurfum líka að hugsa um gæði þeirrar þjónustu sem við veitum og hafa góða umgjörð um þessi vinsælu námskeið. Þarna þurfum við að bæta okkur og er komin áætlun fyrir næstu skref i þeirri vegferð.
Að lokum segi ég takk fyrir tímabilið.
Áfram GKG!
Guðmundur Daníelsson, Íþróttastjóri GKG
GKG býður upp á alhliða þjónustu fyrir kylfumælingar í US Open básunum í Íþróttamiðstöðinni.
Hlöðver Guðnason PGA golfkennari er einnig menntaður í kylfumælingum mun bjóða upp á þessa mikilvægu þjónustu fyrir kylfinga á öllum getustigum. Þjónustan er áfram í samvinnu við ÍSAM – OJ&K sem selur tvö af vinsælustu vörumerkjum heims í golfbransanum, Titleist og Ping.
Hvers vegna kylfumælingar
Gamlar og illa farnar kylfur, of stuttar / langar, of léttar / þungar, stífar eða mjúkar geta verið mikil hindrun fyrir alla framför í golfiðkun og lagfæringu á golfsveiflunni. Mæling hentar öllum kylfingum sama hvar þeir eru staddir í golfiðkun. Fjárfesting í kylfum er töluverður kostnaður og því mikilvægt að fá strax góðar kylfur sem henta viðkomandi. Einnig er hröð þróun í kylfuhausum og golfsköftum sem geta bætt verulega golfiðkunina í dag. Lega og þyngd kylfuhauss, stífleiki og lengd skafts, þykktin á gripi, allt eru
þetta atriði sem geta haft mikil áhrif á sveifluna og þar með boltaflugið og boltahraða, spuna, hæð, kylfuhraða, lengd og stefnustjórnun. Það er því mikilvægt að hafa rétta búnaðinn strax í upphafi til að ná sem mestu út úr golfsveiflunni og láta skoða reglulega eftir því sem kylfingurinn nær árangri og nýjar kylfur eru keyptar. Með notkun TrakMan mælinga verða til nákvæmar upplýsingar um höggin og hvernig mismunandi kylfur og sköft geta bætt högggin hvað varðar lengd og beinni högg.
Hvað er í boði
Hægt er að panta tíma hjá Hlöðveri og fá mælingu fyrir driver, járnasett og fleygjárnin. Einnig eru í boði púttmælingar með Sam Puttlab greiningartækinu.
Nánari upplýsingar og tímapantanir hjá Hlöðveri: hlodverg@simnet.is og 8611407 og NOONA
Karen Lind Stefánsdóttir
Háttvísibikarinn er veittur þeim unga kylfingi sem þykir hafa skarað fram úr á árinu hvað varðar árangur og framfarir, ástundun, metnað til að ná langt, félagsanda og ekki síst fyrirmynd annarra félagsmanna, yngri sem eldri hvað varðar háttvísi innan vallar sem utan.
Karen Lind hefur undanfarin ár verið ein af okkar fremstu kylfingum síðustu ár. Karen varð klúbbmeistari GKG 2024. Karen er frábær fyrirmynd fyrir aðra kylfinga. Hefur mikinn metnað, er jákvæð og er leiðtogi í hóp. Karen hefur verið ein af leiðbeinendum okkar á golfleikjanámskeiðum GKG og sýnt þar frumkvæði og góða nærveru. Karen hefur verið dugleg að taka þá í mótum á GSÍ mótaröðinni ásamt því að taka þátt í mótum á Unglingamótaröð GSÍ.
Núna í nóvember sl. skrifað Karen undir samning við
University of St. Thomas í St. Paul, Minnesota og mun hefja þar nám 2025 og spila með liði skólans sem leikur efstu deild í NCAA í Bandaríkjunum.
Fyrrum bikarhafar
2023 – Gunnlaugur Árni Sveinsson
2022 - Katrín Hörn Daníelsdóttir
2021 - Jón Þór Jóhannsson
2020 - Róbert Leó Arnórsson
2019 - Anna Júlía Ólafsdóttir
2018 - Jón Gunnarsson
2017 - Hulda Clara Gestsdóttir
2016 - Hlynur Bergsson
2015 - Elísabet Ágústsdóttir
2014 - Aron Snær Júlíusson
Skýrsla kvennanefndar GKG fyrir árið 2024
Núverandi stjórn tók til starfa á aðalfundi kvennanefndar sem var haldinn 1. febrúar. Það var mjög góð mæting en um 60 konur mættu og fengu konurnar sér að borða á meðan farið var yfir árið og sumarstarfið kynnt, í lokin kom Anna Steinsen og var með áhugaverðan fyrirlestur um samskipti milli ólíkra kynslóða.
Núverandi stjórn skipa: Berglind S. Jónasdóttir formaður, Svala Vignisdóttir varaformaður, Valgerður Friðriksdóttir gjaldkeri, Helga Gunnarsdóttir ritari. Meðstjórnendur eru: Kristín Stefánsdóttir, Elín María Sigurðardóttur, Sigríður Ólafsdóttir, Hulda Ólafsdóttir Klein og Sigríður Bergþórsdóttir sem kom ný inn í stjórn. Engin kona lét af stjórnarstörfum í ár.
Hlutverk Kvennanefndar
• Stuðla að samvinnu og samstöðu kvenna í GKG og efla félagsandann meðal þeirra
• Skipuleggja æfingar, mót og aðra viðburði fyrir konur í samráði við þjónustustjóra.
• Hlúa sérstaklega vel að og bjóða velkomna nýja félaga.
• Að reynslumeiri konur leiki reglulega með reynsluminni konum.
• Að eiga samstarf við aðra golfklúbba
Markmið kvennanefndar
• Að hlutfall kvenna í klúbbnum sé hærra en í nokkrum öðrum golfklúbbi á landinu.
Starf nefndarinnar er sjálfboðaliðastarf en að sama skapi mjög gefandi og skemmtilegt, sérstaklega þegar viðtökur hafa verið jafngóðar og þær hafa verið hjá GKG konum. Nefndin hélt áfram samvinnu við styrktaraðilana okkar sem hafa stutt vel við starfið síðustu árin. Taramar sem er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á húðvörum sem
draga úr sjáanlegum áhrifum öldrunar. Ásamt Víntríó sem selur Freixenet freyðivín. Við þökkum þessum fyrirtækjum sem og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem styrktu okkur um vinninga þetta árið. Einnig voru GKG konur duglegar að safna vinningum og þökkum við þeim kærlega fyrir. Án þessa stuðnings gætum við ekki haldið úti öllum þessum viðburðum með svona mörgum og flottum vinningum.
Í vetur vorum við með 5 golfhermamót, fyrirlestur, púttmót og pub quiz.
Við byrjuðum sumarið með Stellu opnunarmótinu á Mýrinni þar sem rúmlega 100 konur voru skráðar.
Í júni spiluðum við á Kiðjabergi með Kiðjabergskonum, fórum til Vestmannaeyja og spiluðum við heimakonur og síðan Freixenet mót á Mýrinni. Í júlí fórum við og spiluðum í Sandgerði með heimakonum og vorum með Nailberry mót á Mýrinni. Í ágúst tókum við á móti Grindvískum konum og spiluðum við saman Leirdalinn og vorum með Hell Ice Coffee Texas mót á Mýrinni.
Lokapunkturinn á sumrinu var í september en þá vorum við með lokamótið okkar á Leirdalsvelli þar sem allar 107 konurnar sem tóku þátt fengu verðlaun og svo var lokahóf með mat og skemmtiatriðum um kvöldið.
Einnig erum við með fasta tíma á þriðjudögum á Mýrinni þar sem GKG konur spila saman og margar fóru svo inn í skála og fengu sér að borða saman á Mulligan.
Ég vil þakka öllum GKG konum og styrktaraðilum fyrir frábært ár því án ykkar væri ekki hægt að halda úti svona flottu kvennastarfi.
Áfram GKG, Berglind Stefanía Jónasdóttir
Ljósmynd Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Í aðdraganda bæjarstjórnarkosninganna 1994 sóttu áhugasamir kylfingar
í Garðabæ og Kópavogi hart að bæjarfulltrúum sínum um að hraða uppbyggingu golfvalla í sveitarfélögunum, sem stæðust samanburð við aðra golfvelli á höfuðborgarsvæðinu.
Benedikt Sveinsson í Garðabæ og Gunnar Birgisson í Kópavogi áttu tal saman haustið 1993 eins og svo oft áður. Þeir voru báðir á þessum tíma í forystu meirihluta í bæjunum.
Þeim kom saman um að reyna að fá stjórnir golfklúbbanna í báðum bæjunum þegar haustið 1993 til þess að sameinast í einum golfklúbb sem hefði einn 18 og einn 9 holu völl.
Golfklúbbur Garðabæjar hafði fengið land fyrir 18 holu golfvöll og á þessum tíma hafði þekktur golfvallararkitekt lokið við að teikna 18 holu völl í í Vatnsmýrinni.Uppbyggingu á 9 holum var lokið en nú vantaði meira fé til þess að ljúka uppbyggingu seinni 9 holanna. Golfklúbbur Kópavogs hafði lengi reynt að fá land undir golfvöll en það virtist ekki ætla að takast.
Haustið 1993 barst stjórnum beggja golfklúbbanna erindi frá sveitarfélögunum um að sameina klúbbana í einn golfklúbb. Þetta var gert að undirlagi Benedikts og Gunnars. Báðir klúbbarnir samþykktu sameiningarhugmyndina eftir miklar umræður enda þótt hér væri um að ræða nýstárlega og djarfa hugmynd tveggja öflugra sveitarfélaga sem voru þá í miklum vexti
Eftir mikla undirbúningsvinnu sérstakrar nefndar var Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar stofnaður þann 24 mars 1994. Þá var mikill hugur í mönnum og stefnt var að hraðri uppbyggingu og öflugum golfklúbbi á næstu árum. Enn vantaði mikið fé til þess að ljúka byggingu golfvallarins og kom þá enn til kasta Benedikts og Gunnars að útvega nægjanlegt fé til framkvæmda. Það er skemmst frá því að segja að þeir studdu ávallt óskir klúbbsins um lán til framkvæmda þrátt fyrir töluverða andstöðu félaga sinna í bæjarstjórnum beggja bæjanna. Á fyrstu 10 til 15 árum klúbbsins voru framkvæmdaskuldir klúbbsins verulega háar og klúbburinn hefði ekki getað greitt þau lán. Það kom því í hlut beggja bæjanna að greiða þær skuldir. Fyrir atbeina Benedikts og Gunnars náði það fram að ganga.
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefði líklega aldrei orðið til ef ekki hefði komið til frumkvæði þeirra félaga um sameininguna. Einnig má segja að klúbburinn hefði aldrei lifað af fyrsta áratuginn ef ekki hefði komið til ómetanlegur og óbilandi stuðningur þeirra.
Nú á 30 ára afmælisári GKG er því við hæfi að minnast með þakklæti og virðingu þeirra beggja, Benedikts og Gunnars, er voru frumkvöðlar að stofnun klúbbsins og mestu og bestu stuðningsmenn hans.
Gunnlaugur Sigurðsson, f.v. formaður Guðmundur Ólafsson, f.v. gjaldkeri
Í nýjum Hleðslugarði ON í Öskjuhlíð er nægt pláss og endurnærandi umhverfi. Þar geta 12 hlaðið í einu. Svæðið er fjölskylduvænt og skemmtilegt með bekkjum, mylluspili, trampólíni og frábærum gönguleiðum.
Sá sem þetta skrifar arkaði úr í vetrarkuldann og myrkrið á leiðinni á fund út í bæ þegar hann var stöðvaður af einstaklingi. Hann kynnti sig sem Geir Borg og ég kannaðist við hann frá margmiðlunarfyrirtækinu Gagarín. Geir rétti mér vöndul sem hann sagði að væri úr dánarbúi pabba síns Kjartani Borg sem var einn af frumkvöðlum GKG. Þau orð fylgdu að klúbburinn hefði hugsanlega áhuga á innihaldinu.
Seinna um daginn þegar ég opnaði vöndulinn og sá innihaldið áttaði ég mig á því að hér var mikill fjársjóður fyrir klúbbinn. Um var að ræða upphaflegu teikninguna af Vífilstaðavelli sem sænski golfvallahönnuðurinn Jan Sederholm teiknaði. Ég hafði samband við Geir og bauð honum í kaffispjall sem hann þáði og hvatti mig jafnframt að bjóða Birni Olsen með en hann og Kjartan voru miklir mátar og unnu saman að stofnun GKG.
Því miður komst Geir ekki í kaffispjallið en systir hans Anna Borg mætti í hans stað ásamt Birni.
Björn sagði okkur að það hefði farið gríðarleg vinna í að stofna golfklúbbinn. Fyrst þurfti að tryggja land undir golfvöllinn og sömdu þeir félagar við
Landspítalann um afnot af landinu, leigan reiknaðist sem 10 spilagjöld á ári. Þá var ekkert til fyrirstöðu að stofna golfklúbbinn og var Golfklúbbur Garðabæjar stofnaður 16. apríl 1986 og Björn var fyrsti formaður klúbbsins. Næsta skref var að græja klúbbhús og var söluskáli á Selfossi keyptur. Til að ganga frá kaupunum gekk Björn sjálfur í ábyrgð fyrir greiðslum þá að upphæð 2,5 milljónir. Þá þurfti að græja vatn og rafmagn en þeir félagar létu grafa fyrir því og allar lagnir voru lagðar af sjálfboðaliðum og greiðvikni veitufélaga.
Anna tók undir að stofnun golfklúbbsins hefði mótað fjölskyldulífið hjá þeim. Þó svo að hún hafi ekki sjálf verið í golfi þá voru málefni golfklúbbsins mikið rædd á heimilinu og metnaður pabba hennar í garð golfklúbbsins endalaus. Sem dæmi um þann metnað, þá fengu þeir félagar sænska golfvallahönnuðinn Jan Sederholm til að teikna 18 holu völl. Jan hefur hannað marga glæsilega golfvelli á Norðurlöndum eins og til dæmis golfvöll Álandseyja sem er stórfenglegur. Teikningin liggur á borðinu á milli þeirra Önnu og Björns og verður nú römmuð inn og hengd upp til sýnis. Eins og svo oft með frumkvöðla þá var stóra vandamálið að fjármagna framkvæmdirnar. Til þess þurfti sveitafélagið að koma vel að málum en það var langt í frá sjálfgefið. Úr varð að Golfklúbbur Garðabæjar sem kominn var með þá aðstöðu sem að fram greinir og Golfklúbbur Kópavogs sem enn var án landsvæðis voru sameinaðir. Stofnfundurinn var haldin 24. mars 1994. Fyrsti formaðurinn var Finnur Jónsson sem hafði áður tekið við af Birni sem formaður Golfklúbbs Garðabæjar en Kjartan Borg tók við af honum árinu á eftir.
Þetta frumkvöðlastarf er í dag ómetanlegt fyrir okkur GKG-inga og magnað hvað klúbburinn hefur náð langt á þeim 30 árum sem hann hefur starfað. Því er að þakka öllu þeim fjölmörgu einstaklingum sem hafa lagt hönd á plóginn sem og sveitafélögin sem hafa stutt vel við bakið á GKG.
Til hamingju með afmælið GKG
Aggi.
Í GKG er starfrækt mótanefnd sem kom að sex mótum hjá klúbbnum í sumar. Í nefndinni eru um 25 sjálfboðaliðar ásamt dómurum og starfsfólki klúbbsins. Nefndin mannar þær stöður sem þarf við hvert mót eins og t.d. móttöku skorkorta, eftirlit á völlum, ræsa og veitingavakt.
Golfarar flykktust út að spila um leið og vellirnir opnuðu og voru þeir vel nýttir í sumar.
Samtals voru spilaðir 7.316 golfhringir í mótum hjá GKG árið 2024, 5.307 á Leirdalsvelli, 1.539 á Mýrinni og 470 hringir erlendis. (sjá töflu). Auk þessa voru haldin nokkur minni einkamót á báðum völlum.
Meistaraflokkur karla Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Högg alls
Ragnar Már Garðarsson
Aron Snær Júlíusson
Magnús Yngvi Sigsteinsson
Ragnar Már sigraði eftir bráðabana
Meistaraflokkur kvenna
Karen Lind Stefánsdóttir
Embla Hrönn Hallsdóttir
Helga Grímsdóttir
1
2
3
niður 213
niður 213
4 Högg alls
niður 231
niður 239
niður 242
1. flokkur karla Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Högg alls
Rúnar Jónsson
Þröstur Þorkelsson
Gunnar Kiatkla Eiríksson
niður 243 Rúnar sigraði eftir bráðabana
1. flokkur kvenna Hringur 1 Hringur 2
Hansína Þorkelsdóttir
Kristín Helga Ingadóttir
María Málfríður Guðnadóttir
3 Hringur 4 Högg alls
Féll niður 242
niður 244
2. flokkur karla Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3 Hringur 4 Högg alls
Sigmar Ingi Sigurðarson
Garðar Snorri Guðmundsson
niður 253
Féll niður 254 Þórhallur Sverrisson
2. flokkur kvenna Hringur 1
Bára Guðjónsdóttir
3. flokkur karla Hringur 1 Hringur 2
3. flokkur kvenna
4. flokkur karla
1
2
3
4 Högg alls
5. flokkur karla Hringur 1
50+ karlar höggl. án fgj. Hringur 1
Jóhannsson
50+ karlar höggl. með fgj. Hringur 1
Harðarson
Þór Friðgeirsson
50+ konur höggl. án fgj.
50+
65+ konur höggl. án fgj.
65+ konur höggl. með fgj.
ára piltar höggl. án fgj.
Telpur 13 til 14 ára höggl. án fgj. Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3
Telpur 13 til 14 ára höggl. með fgj. Hringur 1 Hringur 2 Hringur
Drengir 13 til 14 ára höggl. án fgj. Hringur
Drengir 13 til 14 ára höggl. m/fgj. Hringur 1 Hringur 2 Hringur 3
Þór Ólafsson
Strákar 12 ára og yngri höggl. án fgj.Hringur 1 Hringur 2
Strákar 12 ára og yngri höggl. m/fgj.Hringur 1
Stelpur 12 ára og yngri höggl. án
Hlutverk mótanefndar:
• Fjallar um árlega áætlun um öll mót á golfvöllum klúbbsins sem þjónustustjóri leggur fram. Þetta gildir um innanklúbbsmót, opin mót á vegum klúbbsins, mót á vegum fyrirtækja og mót á vegum GSÍ.
• Undirbýr og fylgist með framkvæmd móta í samvinnu við þjónustustjóra og annað starfsfólk klúbbsins.
Markmið mótanefndar:
• Klúbburinn sé ávallt í fremstu röð mótshaldara innan GSÍ.
• Árlega séu haldin mót við allra hæfi á vegum klúbbsins.
• Styrkja félagsandann í klúbbnum með öflugum innanfélagsmótum.
• Mótshald fyrir fyrirtæki efli rekstur klúbbsins.
Framkvæmda- og þjónustustjóri starfar með mótanefnd og formaður mótanefndar er Ragnheiður Stephensen.
Fastir liðir í mótadagatali GKG eru VITA mánudagsmótaröðin, Liðakeppni GKG, Holukeppni GKG, Meistaramótið, Opnunarmótið, Hjóna- og parakeppni, Sumarsólstöðumótið, Niðjamótið, Minningarmótið og Bændaglíman.
Einnig standa Öldunganefndin, Kvennanefndin og Íþróttanefnd fyrir mótum og viðburðum á hverju sumri.
Sumarið hófst með Bola Opnunarmóti GKG 11. maí í fínasta vorveðri. Mótið markaði einnig opnun Leirdalsvallar og um leið upphaf golfvertíðarinnar.
Full skráning var í mótið en alls tóku 176 þátt, 53 konur og 123 karlar. Það er alltaf mikil tilhlökkun að taka þátt í fyrsta móti sumarsins til að sjá hvernig völlurinn kemur undan vetri og til að hitta aðra félagsmenn sem er nú stór partur af okkar margrómuðu GKG stemningu. Keppt var bæði í karla og kvennaflokki og veitt voru glæsileg verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni og efsta sætið í höggleik í hvorum flokki.
Höggleikinn án forgjafar sigruðu Aron Snær Júlíusson á 67 höggum og Una Karen Guðmundsdóttir á 80 höggum.
Punktakeppni með forgjöf kvennaflokkur 1. sæti Unnur Líndal Karlsdóttir 42 punktar 2. sæti Áslaug Sigurðardóttir 37 punktar 3. sæti Una Karen Guðmundsdóttir 37 punktar
Punktakeppni með forgjöf karlaflokkur 1. sæti Grétar Rúnar Skúlason 46 punktar
2. sæti Snorri Einarsson 40 punktar
3. sæti Gunnar Þór Heimisson 38 punktar
Veitt eru verðlaun fyrir besta skor í höggleik án forgjafar.
Höggleikur án forgjafar karla
Heiða Hauksdóttir fór holu í höggi á mótinu á 17. braut.
Icewear Hjóna og parakeppnin var haldin 1. júní og var frábær þátttaka en 68 pör eða 136 keppendur mættu til leiks. Í ár var kúreka þema og sérstök verðlaun voru veitt fyrir „samstæðasta best klædda parið“. Systurnar Ingveldur Björk og Steinunn Ásta Finnsdætur og eiginmenn þeirra Eggert
Snorri og Gunnar Guðmundssynir. Spilaður var betri bolti með forgjöf þar sem fleiri punktar liðsins telja á holu og voru veitt verðlaun fyrir þrjú efstu sætin, auk nándarverðlauna á öllum par þrjú brautum og eftir annað högg á 18. braut. Allir þátttakendur fengu glæsilega teiggjöf frá Icewear.
Óhætt er að segja að keppnin hafi verið geysispennandi en 5 lið voru jöfn í efsta sæti en þegar reiknaðar voru seinustu 9, 6 og 3 holurnar þá varð lokastaðan eftirfarandi:
1. sæti Ágúst Arnbjörnsson og Bertha Traustadóttir 47 punktar
2. sæti Steinunn Ásta Finnsdóttir og Eggert S. Guðmundsson 47 punktar
3. sæti Kristmann Rúnar Larsson og Hlíf Böðvarsdóttir 47 punktar
4. sæti Hrafnhildur H Rafnsdóttir og Kristján Gunnarsson 47 punktar
5. sæti Ólafur Eggert Guðmundsson og Erna Arnardóttir 47 punktar
Sumarsólstöðumót Stellu og GKG var haldið 15. júní og er það búið að festa sig í sessi sem innanfélagsmót. Mikil þátttaka var í mótinu og komust færri að en vildu í mótið á Leirdalnum en 28 liðum var komið fyrir á vellinum í fjögurra manna texas scramble með shotgun ræsingu. Einnig var boðið upp á skráningu á Mýrina og þar tóku 6 lið þátt, því alls 136 keppendur. Mjótt var á munum og munaði bara einu höggi á hverju sæti í þremur efstu sætunum og einnig urðu tvö lið svo jöfn í fjórða sæti.
Leirdalur: verðlaunasæti:
1. sæti Davíð Stefán, Njörður, Pálmi, Ragnar Þórður 53 punktar
2. sæti Bjarni. Jón Sveinbjörn, Sigrún Auður, Ólöf Ósk 52 punktar
3. sæti Kristófer Helgi, Sigurður Ómar, Vignir Þ, Þröstur 52 punktar
Mýrin: verðlaunasæti:
1. sæti Berglind Hólm, Ingigerður, Jón Páll, Þorsteinn 49 punktar
2. sæti Gunnar Auðunn, Gísli, Ragnar Freyr, Ríkharður 46 punktar
3. sæti Aðalsteinn Ingi, Baldvin, Heiða Sigrún, Kristín 42 punktar
Hápunktur sumarsins er alltaf Meistaramótið okkar en í sumar var keppt í 31. sinn. Nýtt met var sett í fjölda þátttakenda en alls voru skráðir 528 þátttakendur í 27 flokkum og leikið var á báðum völlum. Í ár, líkt og í fyrra, var 2. flokkur karla fjölmennasti flokkurinn með 60 keppendur en taflan sýnir fjölda keppenda í hverjum flokki:
Fyrstu fjóra daga mótsins var ágætis veður en svo kom rigning og vindur sem gerði keppendum og mótsstjórn erfitt fyrir. Á lokadegi mótsins var völlurinn óleikhæfur vegna bleytu og var sú ákvörðun tekin að blása umferðina af.
Bráðabana þurfti um klúbbmeistaratitil karla og fóru Ragnar Már Garðarsson og Aron Snær Júlíusson í bráðabana og uppskar Ragnar Már titilinn með pari á 18. holunni. Þetta var í annað sinn sem Ragnar Már er klúbbmeistari karla.
Klúbbmeistari kvenna var Karen Lind Stefánsdóttir sem hampaði titilinum í fyrsta sinn.
Auk fastra liða tók klúbburinn að sér að halda þrjú GSÍ mót, þ.e. Nettó unglingamótið, Íslandsmót 50 og 65 ára og eldri og einn dag af þremur á Íslandsmóti golfklúbba 12 ára og yngri. Að auki fór eitt mót á LEK mótaröðinni fram hjá okkur í ágúst.
Nettó unglingamót GSÍ fór fram hjá okkur í fjórða sinn og var haldið dagana 6.-8. júní. 136 þátttakendur tóku þátt í tveimur aldursflokkum drengja og stúlkna á Leirdalnum. Einnig var haldið eins dags „áskorendamót“ á Mýrinni og tóku 60 börn þátt í þremur aldursflokkum. GKG-ingar stóðu sig einstaklega vel og unnu til margra verðlauna og sigur í tveimur flokkum.
Nettó Golf14 – Leirdalur
Drengir 14 ára og yngri
Högg
1. sæti Björn Breki Halldórsson GKG 146
2. sæti Máni Freyr Vigfússon GK 148
3. sæti Birgir Steinn Ottósson GR 155
Stúlkur 14 ára og yngri
Högg
1. sæti Elva María Jónsdóttir GK 163
2. sæti Sara M. Guðmundsdóttir GM 183
3. sæti Eiríka Malaika Stefánsdóttir GM 184
Nettó 15-18 ára - Leirdalur
Stúlkur 15-18 ára
Högg
1. sæti Pamela Ósk Hjaltadóttir GM 232
2. sæti Fjóla Margrét Viðarsdóttir GS 232
3. sæti Bryndís Eva Ágústsdóttir GA 236
Piltar 15-18 ára
Högg
1. sæti Guðjón Frans Halldórsson GKG 216
2. sæti Veigar Heiðarsson GA 219
3. sæti Skúli Gunnar Ágústsson GA 227
Pamela Ósk og Guðjón Frans eru Nettómeistarar 2024 þar sem þau léku á lægsta skori pilts og stúlku á 54 holum.
Innanfélagsmótaraðir GKG árið 2024 Í ár voru þrjár mótaraðir í gangi hjá GKG, auk Kristals- og Floridana mótaraðirnar sem ætlaðar eru barna- og unglingastarfinu. Þetta voru VITAgolf Mánudagsmótaröðin, Holukeppni GKG og Liðakeppni GKG. Daníel og Sigfinnur voru mótstjórar Mánudagsmótaraðarinnar, Sigurjón Sigurjónsson sá um Holukeppnina og Ingibjörg Ólafsdóttir hafði umsjón með Liðakeppninni. Við viljum þakka þeim kærlega fyrir þeirra frábæru vinnu. Óhætt er að segja að þau hafi staðið sig virkilega vel í utanumhaldi og eiga stórt hrós skilið fyrir það.
VITAgolf mánudagsmótaröðin var á sínum stað alla mánudaga í sumar og fóru alls 12 mót fram frá 20. maí til 12. ágúst. Metþátttaka var í sumar en mest tóku 170 manns þátt í einu móti og 119 að meðaltali yfir sumarið. Fjórir bestu hringirnir töldu til sigurs og var til mikils að vinna því VITA gefur sigurvegurum í báðum flokkum ferðavinning og þökkum við þeim kærlega fyrir góðan stuðning í gegnum árin.
Úrslit VITAgolf Mánudagsmótaraðarinnar voru eftirfarandi:
Kvennaflokkur:
1. Sólrún Halldórsdóttir 163 punktar ( 42, 40, 40, 41)
2. Áslaug Sigurðardóttir 161 punktur (41, 41, 40, 39)
3. Helga Þórdís Guðmundsdóttir 157 punktar (38, 41, 39, 39)
Karlaflokkur:
1. sæti Andri Þór Jónsson 167 (41, 45, 41, 40)
2. sæti Þór Sigurþórsson 167 (46, 42, 39, 40)
3. sæti Árni Kristinn Gunnarsson 161 (45, 36, 39, 41)
Í holukeppni GKG er keppt um holumeistaratitil karla og kvenna, sem keppa svo um holumeistaratitil GKG. Í ár voru 48 karlar og 26 konur sem tóku þátt og voru það Mario Ingi Martel holumeistari karla og Sigríður Ólafsdóttir holumeistari kvenna sem kepptu um titilinn og lauk þeirri viðureign með sigri Arnórs, sem er holumeistari GKG árið 2023.
Kvennaflokkur:
1. sæti Sigríður Ólafsdóttir vann Valgerði 5/4
2. sæti Valgerður Ólafsdóttir
3. sæti Lilja Þorvarðardóttir vann Kolbrúnu Ólafsdóttur 2/1 sem hafnar þá í 4. sæti
Karlaflokkur:
1. sæti Mario Ingi Martel lagði Arnór 4/3
2. sæti Arnór Árnason
3. sæti Sturla Rafn Guðmundsson eftir leik við Togga sem endaði 4/3
Holumeistari GKG
Sigríður Ólafsdóttir sigraði Mario Inga Martel eftir æsispennandi úrslitaleik 1/0
Í ár voru 24 lið sem kepptu í Liðakeppni GKG og komust færri að en vildu. Leikið var jafnt og þétt yfir sumarið og fór úrslitaumferðin fram 7. september á Lokamóti keppnishalds GKG.
Jimenez liðið eru Liðakeppnismeistarar GKG en þeir lögðu stelpurnar í Sláandi 2,5 gegn 0,5 vinningi í úrslitaviðureigninni þar sem leikinn er einn fjórleikur og tveir tvímenningar, líkt og í öllum leikjum sumarsins.
Í keppninni um bronsið sigraði Pray for birdies eftir góða rimmu við Skotturnar.
Úrslit úr liðakeppni GKG
1. sæti Jimenez Group
2. sæti Sláandi
3. sæti Prey for birdies
Niðjamót GKG er einnig fastur viðburður hjá okkur í GKG sem Gunnar Jónsson er mótstjóri og sér um með miklum myndarskap. Spiluð er punktakeppni með Greensome fyrirkomulagi þar sem báðir liðsmenn leika af teig og skiptast svo á að leika boltanum sem valinn er í holu. Í ár voru 108 þátttakendur og rann allur ágóði í barna og unglingastarf klúbbsins.
Úrslit urðu eftirfarandi:
1. sæti Lilja Þorvarðardóttir og Helga Gunnarsdóttir
44 punktar
2. sæti Þórhallur Sverrisson og Dagur Þórhallsson 43 punktar
3. sæti Karl Elí Þorgeirsson og Rut Þorgeirsdóttir 43 punktar
Að lokum má ekki gleyma að nefna það frábæra starfi sem kvennanefnd klúbbsins heldur utan um og þar er Berglind Stefanía Jónasdóttir formaður. Einnig er öflugt öldungastarf í klúbbnum sem Kristján Snædal leiðir ásamt öldunganefnd klúbbsins og að lokum eru frábær barna- og unglingamót sem Úlfar þjónustustjóri hefur haldið utan um ásamt hans góða fólki á Íþróttasviði.
Við óskum öllum vinningshöfum til hamingju með árangurinn í sumar og þakkar undirrituð þeim fjölmörgu sjálfboðaliðum, stuðningsaðilum og starfsfólki klúbbsins fyrir samstarfið og þeirra frábæra starf í þágu klúbbsins, því án ykkar er þetta ekki hægt.
Ragnheiður Stephensen Formaður mótanefndar
Heldri kylfingar GKG 65 ára og eldri
Skýrsla stjórnar fyrir árið 2024
Öldunganefnd GKG skipa:
Kristján Snædal, Atli Ágústsson, Randver Ármannsson, Gunnar Árnason, Einar B. Tómasson, Elísabet Þórdís Harðardóttir, Soffía Ákadóttir og Árni Gunnarsson. Tveir heldri kylfingar GKG bætast við nefndina nú í nóvember 2024, það eru Friðbjörn Steinsson og Lilja Ólafsdóttir.
Vetrardagskrá 2023-2024
Hermamót 65+. Þau voru mjög vel sótt allan veturinn og þurfti stundum að bæta við hermum.
Sumardagskráin 2024
Fyrsta mót sumarsins fór fram 22 maí á Mýrinni 9 holur.
Þátttakendur voru 58 .
Sigurvegari var Sigríður Hjaltadóttir með 19 punkta, betri síðustu 6. Annað sæti Guðmundur Karlsson með 19 punkta.
Þriðja sæti Hugo Rasmus 18 punktar.
Fæst högg Gunnar Árnason 37 högg.
Næstur holu á 9. braut var Hjördís Jónsdóttir 3,06 metrar.
Næst á dagskrá var Vinamót GKG og GM á Hlíðarvelli 5 júní 2024. Þátttakendur voru 83, 42 frá GKG og 41 frá GM. Flestir punktar karla: Sigurvin Einarsson GM 37 punktar. Flestir punktar kvenna: Gunnhildur Magnúsdóttir GM, 38 punktar. Fæst högg karla: Tómas Jónsson GKG 77 högg. Fæst högg kvenna: Hrefna Birgitta Bjarnadóttir GM, 94 högg. Heildar punktar 25 efstu hjá hvoru liði: GKG 705 punktar, GM 754 punktar. 19. júní var haldið innanfélagsmót á Leirdalnum. Þátttakendur voru einungis 20. Veðrið snarvitlaust átti þátt í því. Eftirtaldir urðu í efstu sætum: 1. Hjörvar O. Jensson 38 punktar, 2. Ólafur B. Björnsson 35 punktar, 3. Gunnar Árnason 34 punktar, betri seinni 9. Fæst högg: Guðlaugur Kristjánsson, 80 högg.
17. júlí fór fram Vinamót GKG og GK á Leirdalsvelli, 18 holur. Mættir voru samtals 64 kylfingar, 34 frá GKG og 30 frá GK. Eftirtaldir hlutu verðlaun: Flestir punktar karla Guðmundur Þóroddsson GKG 37 punktar, betri á seinni 9. Flestir punktar venna Elísabet Böðvarsdóttir GKG, 39 punktar.
Fæst högg karla: Kristinn Þórir Kristjánsson GK, 78 högg. Fæst högg kvenna: Ragna Stefanía Pétursdóttir GKG 100 högg. Næst holu á 17. braut: Fríða S. Kristinsdóttir GKG, 2,29 metrar. Heildarpunktar 25 efstu hjá hvoru liði. GKG 829 punktar, GK 751 punktar.
7. ágúst fór fram Vinamót GKG og GM á Leirdalsvelli. Þátttakendur 82, 41 frá hvorum klúbbi. Eftirtaldir hlutu verðlaun. Flestir punktar karla: Friðbjörn Arnar Steinsson GKG, 39 punktar. Flestir punktar kvenna: Ragna Stefanía Pétursdóttir GKG, 38 punktar. Fæst högg karla: Gunnar Árnason GKG, 80 högg. Fæst högg kvenna: Hrefna Birgitta Bjarnadóttir GM, 95 högg. Næstur holu á 17. braut: Hallgrímur Hallgrímsson GKG,
0,47 metrar. Heildarpunktar 25 efstu í hvoru liði: GKG 768 punktar, GM 805 punktar. Heildar punktafjöldi samanlagt úr báðum mótum: GKG 1473 punktar og GM 1559 Punktar. GM eru því sigurvegarar samanlagt árið 2024. Farandbikarinn verðu því í vörslu sigurvegaranna næstu 12 mánuði.
22. ágúst fór Vinamót GKG og KG fram á Hvaleyrarvelli. Þátttakendur 64, 30 frá GK og 34 frá GKG. Eftirtaldir hlutu verðlaun.
Flestir punktar karla Halldór Þ. Snæland GKG, 35 punktar.
Flesta punkta kvenna: Svandís Bjarnadóttir GKG, 37 punktar.
Fæst högg karla: Már Sveinbjörnsson GK, 80 högg. Fæst högg kvenna: Guðrún Halldórsdóttir GK, 97 högg. Heildarpunktar 25 efstu úr hvoru liði: GKG 728 punktar, GK 753 punktar. Samanlagt úr báðum keppnum: GK 1.504 punktar og GKG 1.557 punktar. Farandbikarinn verður því áfram hjá GKG næstu 12 mánuði.
Mánudagsmótaröðin var leikin frá 20. maí til 12 ágúst, alls 12 mót. Þátttaka 65+ var góð og var tekinn saman besti árangur þeirra úr þremur mótum. Eftirtaldar urðu í efstu sætum kvenna: Áslaug Sigurðardóttir 161 punktur, Ragna Stefanía Pétursdóttir 155 punktar og Elísabet Böðvarsdóttir 147 punktar. Eftirtaldir urðu í efstu sætum karla: Friðbjörn Arnar Steinsson 156 punktar, Þröstur Bjarnason 153 punktar, Bergsveinn Þórarinsson 152 punktar.
Höggleiksbikarinn fær Gunnar Árnason með 210 stig úr þeim 6 mótum sem sérstaklega eru haldin fyrir 65+, þar sem allir leika af sömu teigum. Lokamótið fór fram 11 september og voru leiknar 9 holur á Mýrinni, tveggja manna Texas Scramble. Þátttakendur voru 45. Sigurvegarar Jónatan Eiríksson, Jón Einarsson og Anna Harðardóttir 23 punktar. Í öðru sæti Einar Guðmundsson og Ágústa Guðmundsdóttir 21 punktur betri síðustu 6. Í þriðja sæti Hjörvar O. Jensson og Fríða Guðmundsdóttir. Lokahóf 65+ fór fram um kvöldið Hjá Mulligan þar sem afhending verðlauna fór fram við hátíðlega athöfn.
Vetrardagskrá 2024-2025.
Hermamót 65+ verða haldin fyrsta miðvikudag í hverjum nánuði. Mótin hefjast kl 9.15 til 12.15 frá október 2024 til og með maí 2025. Alla aðra miðvikudaga eru púttmót 65+ frá kl. 9.15 til 11.00.
GKG 65+ hafa í gegnum árin styrkt unglingastarf GKG.
Í ár söfnuðust um kr. 400.000.
Við viljum þakka framkvæmdastjóra GKG Agnari Jónssyni sérstaklega fyrir frábært samstarf, þar sem hann styrkti okkur með hluta verðlauna og einnig með feykilega gott tilboð á golfbílum á mótaröðinni. Einnig þökkum við öllu starfsfólki GKG fyrir frábært samstarf svo og starfsfólki Mulligan fyrir frábæra þjónustu og veitingar.
Fyrir hönd 65+ nefndarinnar, Kristján Snædal
Kæru meðlimir GKG,
Ég vil byrja á að þakka félagsfólki GKG fyrir ótrúlega hlýtt viðmót sem ég hef fengið síðan ég kom til Íslands. Ég er mjög þakklát fyrir hvernig viðtökurnar hafa verið og hversu auðvelt hefur verið fyrir mig að aðlagast venjum og hefðum klúbbsins sem og að hafa fengið tækifæri til að kynnast vel íslenskri menningu.
Eins og með hvaða golfvöll sem er, er mikilvægt að skilja þarfir og eiginleika hvers staðar fyrir sig. Til að ná þessu er lykilatriði að hafa skýran skilning á núverandi stöðu okkar og hvert við stefnum í framtíðinni. Þetta felur í sér að samræma markmið okkar við væntingar sem flestra félaga og ákveða hvar áherslur vallarins liggja á hverjum tíma yfir keppnistímabilið. Á nýliðnu tímabili hefur aðaláherslan verið á vöxt og endurheimt. Við höfum sett í framkvæmd ýmsar næringaráætlanir til að viðhalda jöfnum vaxtarhraða í gegnum tímabilið. Þessi viðleitni hefur gert okkur kleift að halda áfram ögra flötum, teigum, og forflötum á háum álagstímum. Einnig höfum við unnið að því að skilgreina betur svæðin við flatir, þannig að munur á flöt, brautarkrafa og karga sé sýnilegri. Meðlimir hafa eflaust tekið eftir nýrri aðferð við meðferð brauta og forflata, svokallaðri rökun þar sem pinnar eru dregnir eftir brautinni til að ýfa upp grassverðörðinn. Þessi aðferð miðar að því að efla vöxt hliðarskála sem vaxa út frá aðalplöntu, sem aftur stuðlar að heilbrigðari krónu. Eins og alltaf eru ljós, loft og vatn lykilþættir fyrir bestu vaxtarskilyrði. Þetta er sérstaklega mikilvægt eftir vetrartímabil þegar gras er í dvala og er mögulega hulinn af ís og snjó.
Með því að búa til rými fyrir loftstreymi getum við verulega bætt heilsu gróðurins.
Einnig hefur mikil áhersla verið lögð á glompur, þar sem okkar glompusérfræðingur Bensi hefur borið hitann og þungann. Hann hefur unnið ótrúlega mikið við að fjarlægja illgresi og steina, endurmótað jaðar og lögun glompna og þannig betur tryggt nýja staðla fyrir slétta, vel rakaða jaðra.
Með því að halda vélbúnaði frá mörkum glompnanna höfum við dregið úr áhættu á mengun frá jarðvegi og grasstráum, sem hefur leitt til miklu hreinni og skarpari brúna. Ég vil hrósa öllum starfsmönnum fyrir ástríðu þeirra við þessa stefnu og vilja þeirra til að aðlagast nýjum aðferðum. Eins og með hvert annað verkefni í viðhaldi vallarins er stjórnun glompna áframhaldandi verkefni og ég er staðráðin í að fylgjast með þróun þess. Framtíðin býður upp á ógrynni af möguleikum og tækifærum. Ég er spennt og bjartsýn fyrir framtíð klúbbsins og mínu hlutverki í að stuðla að velgengni hans.
Ég vil einnig koma á framfæri mínar innilegar þakkir til Guðmundar Árna, fyrir stuðning og þolinmæði hans, sem hefur verið ómetanlegt. Hans frumkvæði hefur gert mér kleift að samþættast í takt við vallarteymið sem hann hefur byggt. Sjálfur völlurinn er sönnun á ósérhlýfnri vinnu þeirra sem komu á undan mér og ég hlakka til að vinna náið með teyminu okkar til að efla gæðin enn frekar og skapa völl sem við öll getum verið stolt af.
Takk aftur fyrir áframhaldandi stuðning ykkar.
Með kveðju, Kate Stillwell
Skýrsla sviðstjóra vallarsviðs 2024
Nú er að baki ljómandi gott golf ár hjá okkur á vellinum. Við opnuðum völlinn í nokkuð góðu standi en Mýrin opnaði 8. maí og Leirdalurinn 11. maí. Sumarið var í kaldara lagi og það var haustið einnig og lokuðu vellirnir því þann 15. október.
Það er ljóst að öll sú vinna sem lögð var í flatirnar í fyrra skilaði sér vel inn í árið í ár. Vísbendingar um bætt ástand voru farnar að sjást haustið áður þegar töluvert af fræi var byrjað að skila sér upp.
Líkt og áður hefur komið fram þá var ákveðið að gera breytingar á vallarsviði síðasta haust. Breytingarnar fólust í því að skipta stöðu vallarstjóra upp í tvö stöðugildi. Eftir nokkuð umfangsmikið ráðningarferli þar sem auglýst var bæði hérlendis og erlends fengum við yfir tuttugu umsóknir. Eftir greiningu og viðtöl við marga frambærilega umsækjendur var Kate Stillwell ráðin sem vallarstjóri og Guðmundur Árni tók við stöðu sviðsstjóra vallarsviðs. Kate kom heldur betur með ferska vinda inn í starfið og lét til sín taka á sínu fyrsta tímabili. Þá hefur Viktor Freyr Sigurðsson aðstoðarvallarstjóri hafið nám í grasvallarfræðum sem breikkar hópinn enn frekar og mun skila auknum gæðum hjá okkur þegar fram líður. Við hlökkum mikið til komandi ára í þessu góða samstarfi á vallarsviði.
Af fjárfestingum ársins var uppfærsla á Rain Bird vökvunarkerfinu okkar umfangsmest. Eftir uppfærsluna höfum við miklu betri stjórn á vökvun á þeim svæðum sem kerfið nær til. Kate stýrði uppfærslunni með miklum myndarskap. Grafa þurfti við hvern úðunarhaus og skipta um stjórnbúnað og kláraðist verkið á mettíma nú í haust og kerfið því klárt fyrir komandi átök næstu árin. Á árinu bættist nýr liðléttingur í flotann ásamt því sem sandarinn var endurnýjaður. Liðléttingur er fjölnota tæki sem eins og nafnið gefur til kynna léttir undir í mörgum verkum.
Það er mikilvægt að halda áfram í endurnýjun á vélum og tækjum vallarins. Í sumar lentum við í ítrekuðum erfiðum bilunum á flatarslátturvélum okkar sem gerði okkur erfitt fyrir. Við settum líka þrjá róbóta í vinnu sem keyptir voru árið áður. Róbótarnir komu vel út í karganum á brautum næst íþróttamiðstöðinni og sjáum við fram á að fjölga slíkum tækjum með tímanum. Fyrir fjölgun róbóta þarf að leggja rafmagn víða um völlinn svo hægt sé að setja upp hleðslustöðvar. Það ætti að vera mikill hagur beggja sveitarfélaganna að hjálpa okkur að koma rafmagni inn á völlinn á ýmsum stöðum svo við getum þegar frá líður endurnýjað dísilblásandi sláttuvélar með vélum sem keyra á umhverfisvænu rafmagni. Þetta ætti að vera samvinnuverkefni allra sem að þessu félagi standa.
Nýframkvæmdir eru alltaf töluverðar hjá okkur ár hvert. Hér er stiklað á stóru. Tré voru flutt úr Hnoðraholti og þeim plantað milli sjöundu og áttundu brauta á Leirdalsvelli. Gerð voru kerrutorg við fyrstu teigana á Mýrinni, glompur við sautjándu flötina á Leirdal voru endurgerðar og nýr sandur settur í þær. Nýr fremsti teigur á tíundu braut á Leirdal var byggður og sáð í hann. Þá var stígur á sömu holu framlengdur með malbiki. Töluvert af drenlögnum voru settar í sjöundu braut á Mýrinni og við sautjándu flöt á Leirdal.
Trjárækt hefur á síðustu árum fengið aukinn sess í starfi vallarstarfsmanna. Á árinu voru 4300 bakkaplöntur af birki, furu og greni settar niður. Plönturnar voru styrkur úr verkefninu Vorviður sem er hluti af aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar í loftslagsmálum þar sem stutt er við ýmis félagasamtök. Plönturnar fóru á hina ýmsu staði og vonandi munu þær dafna vel þar og styðja við fyrirliggjandi trjárækt vallarins. Þá var einnig útbúið stórt beð með blöndu trjátegunda við stíginn að fyrsta teig á Leirdalsvelli.
Yfir háveturinn voru vallarstarfsmenn í viðgerðum á vinnuaðstöðu okkar.
Skipta þurfti um gólf í gámum þar sem aðstaða er fyrir útiföt og fataskipti.
Gólfplöturnar voru orðnar mjög lélegar, líklega meira og minna allt myglað því starfsmenn voru farnir að stíga niður úr gólfinu. Þá þurfti líka að skipta um klæðningu á vegg inni á verkstæði sem var morknaður í sundur. Þessi aðstaða er okkar félagi alls ekki sæmandi og líklega ekki margir sem myndu láta bjóða sér sambærilega vinnuaðstöðu. Vonandi er ekki langt í að bætt verði úr því innan fárra ára verður núverandi hús að víkja fyrir framkvæmdum í Vetrarmýri. Það er von vallarstarfsmanna að skipulagsmál vegna byggingar á nýrri vélamiðstöð klárist sem allra fyrst þannig að hægt sé að fara af stað.
Það er erfitt að setjast niður og rifja upp árið því hugurinn rennur alltaf beint til 5. október þegar við fengum fréttir af því að okkar frábæri verkstæðisformaður hefði fallið frá langt fyrir aldur fram. Óskar Örn Davíðsson hefði orðið þrítugur í lok desember næstkomandi. Þrátt fyrir stuttan tíma í starfi hjá GKG þá eru margar frábærar minningar sem koma upp þegar hugsað er til hans. Hópurinn allur saknar Óskars gríðarlega og mun halda minningu hans á lofti um ókomna tíð.
Eins og staðan er núna eru fjórir starfsmenn við störf allt árið: Guðmundur Árni Gunnarsson sviðstjóri vallarsviðs; Kate Stillwell vallarstjóri; Viktor Freyr Sigurðsson aðstoðarvallarstjóri og Andrés I. Guðmundsson þúsundþjalasmiður. Í janúar næstkomandi mun Davíð Guðmundsson taka við starfi verkstæðisformanns en hann hefur um langt skeið unnið fyrir okkur sem jarðverktaki en ætlar nú að söðla um taka við þessari stöðu. Þá stendur til að auglýsa á næstu vikum eftir garðyrkju- eða skrúðgarðyrkjufræðingi í fullt starf á vallarsviði og eru miklar vonir bundnar við þá viðbót sem slíkur starfsmaður færir okkur.
Ég vil þakka öllum starfsmönnum vallarsviðs á árinu fyrir frábært starf. Einnig vil ég þakka framkvæmdarstjóra, vallarnefnd, trjáræktarnefnd og stjórn fyrir samstarfið á árinu.
Guðmundur Árni Gunnarsson
• Einkakennsla • Paratímar • Hópkennsla • Hópæ ngar
Ari Magnússon arimaggpga@gmail.com 867 8411
Arnar Már Ólafsson arnar@gkg.is 897 7773
Hlöðver Guðnason hlodverg@simnet.is 861 1407
Guðjón Daníelsson gudjond@gmail.com 844 3455
Ragnar Már Garðarsson ragnarmar12@gmail.com 847 6211
Gjafabréf í kennslu er frábær gjöf fyrir golfarann! Hafðu samband við kennarann til að panta gjafabréf.
Vallarnefnd GKG 2024
Vallarnefnd er ein af leiðum félagsmanna til að hafa áhrif á framkvæmdir og umhirðu golfsvæðis GKG. Vallarnefnd heldur reglulega fundi með vallarstjóra GKG þar sem m.a. verkefnum er forgangsraðað en auk þess fundar hún aukalega þegar vinna þarf úr ákveðnum verkefnum eða veita álit.
Vallarnefnd GKG 2024:
Sigurður Kristinn Egilsson
Einar Þorsteinsson
Ragnheiður Stephensen
Ragnar Már Garðarson
Birgir Leifur Hafþórsson
Ingibjörg Hinriksdóttir
Guðmundur Á. Gunnarsson, sviðsstjóri vallarstjóri Kate Stillwell, vallarstjóri GKG
Líkt og undanfarin ár var farið í töluverðar framkvæmdir á golfvallarsvæði GKG. Áfram var unnið við að laga bönkera og snyrta ýmis svæði, en helstu framkvæmdir má sjá í skýrslu sviðsstjóra vallarsviðs Guðmundar Árna Gunnarssonar. Óhætt er að segja að á síðustu árum hefur völlurinn fengið gríðarlega upplyftingu, hvort sem það eru stígar, kantsteinar, tröppur við teiga, laga ýmis álagssvæði, nýir trjáræktarreitir, drenlagnir. Allt eitthvað sem við munum njóta næstu árin. Völlurinn var jafnframt í sínu besta formi í sumar og grínin sjaldan betri. Veðrið var hins vegar ekki upp á sitt besta, en erfitt að ráða við það.
Líkt og við fjölluðum um á síðasta ársfundi voru gerðar breytingar á skipulagi vallarsviðs í lok sumars, þ.e. ráðinn var sérstakur vallarstjóri
fyrir golfvellina undir sviðsstjóra vallarsviðs. Starf vallarstjóra var auglýst sérstaklega haustið 2023 og bárust fjölmargar umsóknir. Að endingu var Kate Stillwell ráðin sem vallarstjóri GKG. Kate er reyndur vallarstjóri frá London og hafði síðstu árin unnið að byggingu 18 holu golfvallar í London, The Inspiration Club. Markmið með þessari breytingu er ekki síst að auka sérfræðiþekkingu hjá félaginu og mynda sterkt teymi af lærðum vallarstjórum sem vinna sleitulaust að því að vellir GKG séu í fremstu röð. Óhætt er að segja að Kate hafi komið inn og byrjað með miklu krafti studd dyggilega af Guðmundi sviðsstjóra vallarsviðs. Farið var í endurnýjun á vökvunarkerfi, eitthvað sem við munum sjá árangur af næstu árin. Breytt var um áherslu í áburðargjöf og nýjar línur lagðar í umhirðu á vellinum, meðal annars í slætti í kringum grín, útlínur brauta og bönkera sem félagsmenn nutu góðs af í sumar. Mikilvægt er fyrir félagið að halda áfram að byggja upp teymi af lærðum vallarstjórum og öðru fagfólki, enda er starfsfólk á vallarsviði mikilvægasta auðlind vallarins. Með breytingum á vallarsviði var Viktor Freyr ráðinn sem aðstoðarvallarstjóri og er núna í námi í grasvallarfræðum við Elmwood skólann í Skotlandi. Félagið mun í vetur auglýsa eftir garðyrkjufræðingi og væntingar um að sá aðili byrji af krafti næsta vor.
Þetta starfsár gekk þó ekki áfallalaust fyrir sig, en seint á árinu lést okkar ötuli Óskar Örn Davíðsson, yfirmaður vélasviðs og er hugur okkar hjá fjölskyldu Óskars.
Vallarnefnd þakkar starfsmönnum vallarsviðs fyrir framúrskarandi vinnu á þessu starfsári og ánægjulegt samstarf. Óhætt er að segja að völlurinn hafi verið í sínu besta formi í sumar.
Sigurður Kr. Egilsson, formaður vallarnefndar GKG.
Sund fyrir alla
Sundlaugarnar í Kópavogi bjóða upp á fyrirmyndaraðstöðu með vatnsrennibrautum, gufu, heitum og köldum pottum. Frítt fyrir yngri en 18 ára og 67 ára og eldri.
Opið
virka daga 6:30–22:00, um helgar 8:00–18:00
Sundlaug Kópavogs
Borgarholtsbraut 17–19
Salalaug Versölum 3
Á árinu hefur nefndin staðið fyrir eftirfarandi viðburðum:
7. mars Félagsvist
Samkvæmt samþykktum GKG er hlutverk viðburðarnefndar að “auka gildi þess að vera GKG-ingur og efla GKG andann”. Þessu hlutverki sinnir nefndin m.a. með skemmtanahaldi, fyrirlestrum, spilakvöldum o.fl.
- Markús Einarsson, formaður
- Ingibjörg Hinriksdóttir
- Heiða Hauksdóttir
Með nefndinni starfaði Úlfar Jónsson, þjónustustjóri GKG.
Nefndin hefur haldið 2 formlega fundi, en samskiptin hafa mest verið í formi tölvupósta og samtala.
14. mars Fyrirlestur um liðleika og liðleikaþjálfun golfara.
Lilja Sigurgeirsdóttir.
24. apríl Fyrirlestur um val á kylfum. Hlöðver Guðnason.
29. apríl Fyrirlestur um leikreglur og hegðun golfara á golfvellinum. Þorgrímur Toggi Björnsson ásamt Bergsveini Þórarinssyni, Helga Má Halldórssyni og Jóni K. Baldurssyni.
29. maí “Eru höggin þín að fara í ruslið”. Fyrirlestur um tölfræði í golfi. Sigmundur Einar Másson.
23. sept. Ragnar Garðarsson kynnti námskeið sem hann mun bjóða upp á í vetur.
17. okt. Fyrirlestur um hvernig við getum notað veturinn til þess að verða betri golfarar. Gauti Grétarsson.
16. nóv. Kynning á ELVA þrívíddarskanna. Arnar Már Ólafsson.
5. des. Jólafélagvist.
Þátttaka í viðburðunum var mjög góð og oftar en ekki var húsfyllir.
Til stjórnar Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar.
Áritun um endurskoðun ársreikningsins
Álit
Við höfum endurskoðað ársreikning Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar rekstrarárið 1. nóvember 2023 til 31. október 2024. Ársreikningurinn hefur að geyma rekstrarreikning, efnahagsreikning, sjóðstreymisyfirlit, upplýsingar um mikilvægar reikningsskilaaðferðir og aðrar skýringar.
Það er álit okkar að ársreikningurinn gefi glögga mynd af fjárhagsstöðu félagsins 31. október 2024 og afkomu þess og breytingu á handbæru fé á rekstrarárinu sem lauk 31. október 2024, í samræmi við lög um ársreikninga.
Grundvöllur álits
Við endurskoðuðum í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Ábyrgð okkar samkvæmt stöðlunum er lýst frekar í kaflanum Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins í árituninni. Við erum óháð félaginu í samræmi við gildandi siðareglur fyrir endurskoðendur. Við teljum að við höfum aflað nægilegra og viðeigandi endurskoðunargagna til að byggja álit okkar á.
Aðrar upplýsingar í ársskýrslu
Stjórn og framkvæmdastjóri bera ábyrgð á öðrum upplýsingum. Aðrar upplýsingar eru ársskýrsla að undanskildum ársreikningi og áritun okkar á hann. Álit okkar á ársreikningnum nær ekki til annarra upplýsinga og við staðfestum þær ekki á neinn hátt.
Í tengslum við endurskoðun okkar á ársreikningnum ber okkur að lesa aðrar upplýsingar í ársskýrslu þegar þær liggja fyrir og meta hvort þær séu í verulegu ósamræmi við ársreikninginn eða aðra þekkingu sem við höfum aflað okkur við endurskoðunina eða virðast verulega rangar. Ef við, á grundvelli vinnu okkar, ályktum að verulegar rangfærslur séu í öðrum upplýsingum ber okkur að skýra frá því. Við höfum ekkert að upplýsa hvað þetta varðar.
Ábyrgð stjórnar og framkvæmdastjóra á ársreikningnum
Stjórn og framkvæmdastjóri eru ábyrg fyrir gerð og glöggri framsetningu ársreikningsins í samræmi við lög um ársreikninga og fyrir því innra eftirliti sem þau telja nauðsynlegt til að gera þeim kleift að setja fram ársreikning sem er án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka.
Við gerð ársreikningsins ber stjórn og framkvæmdastjóra að leggja mat á rekstrarhæfi félagsins og upplýsa, eftir því sem við á, um þætti er varða rekstrarhæfi og miða grundvöll reikningsskilanna við áframhaldandi rekstrarhæfi, nema þau ætli annað hvort að leysa félagið upp eða hætta starfsemi þess, eða hafa engan annan raunhæfan kost en að gera
Stjórn og framkvæmdastjóri skulu hafa eftirlit með gerð og framsetningu ársreikningsins.
Ábyrgð endurskoðanda á endurskoðun ársreikningsins
Markmið okkar eru að öðlast hæfilega vissu um hvort ársreikningurinn í heild sé án verulegra annmarka, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, og að gefa út áritun endurskoðanda sem inniheldur álit okkar. Í hæfilegri vissu felst áreiðanleiki en ekki trygging fyrir því að endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla muni alltaf leiða í ljós verulega annmarka ef þeir eru fyrir hendi. Annmarkar geta komið fram vegna sviksemi eða mistaka og eru taldir verulegir ef þeir einir og sér eða samanlagt gætu haft áhrif á efnahagslegar ákvarðanir sem notendur ársreikningsins taka á grundvelli hans.
Við endurskoðun í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla beitum við ávallt faglegri dómgreind og viðhöfum
•
Greinum við og metum hættu á verulegri skekkju í ársreikningnum, hvort sem er vegna sviksemi eða mistaka, skipuleggjum og framkvæmum endurskoðunaraðgerðir til að bregðast við þeirri hættu og öflum endurskoðunargagna sem eru nægjanleg og viðeigandi til að byggja álit okkar á. Hættan á að uppgötva ekki verulega skekkju vegna sviksemi er meiri en að uppgötva ekki skekkju vegna mistaka, þar sem sviksemi getur falið í sér samsæri, fölsun, að einhverju sé viljandi sleppt, villandi framsetningu eða að farið sé framhjá innra eftirliti.
Öflumviðskilningsáinnraeftirliti,semvarðarendurskoðunina,tilaðskipuleggjaviðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
Öflum við skilnings á innra eftirliti, sem varðar endurskoðunina, til að skipuleggja viðeigandi endurskoðunaraðgerðir, en ekki til að veita álit á virkni innra eftirlits félagsins.
• • Metumviðhvortreikningsskilaaðferðirogreikningshaldslegtmatstjórnendaogtengdar skýringarséu viðeigandi.
• • Metum við hvort reikningsskilaaðferðir og reikningshaldslegt mat stjórnenda og tengdar skýringar séu viðeigandi.
Ályktumviðumhvortnotkunstjórnarogframkvæmdastjóraáforsendureikningsskilannaumrekstrarhæfisé viðeigandiogmetum,ágrundvelliendurskoðunarinnar,hvortaðstæðurséutilstaðarsemvaldiðgætu verulegumvafaumrekstrarhæfifélagsins.Efviðteljumaðverulegurvafileikiárekstrarhæfiberokkur,í áritunokkar,aðvekjasérstakaathygliáviðeigandiskýringumársreikningsinseða,efslíkar skýringareru ófullnægjandi,aðvíkjafráfyrirvaralausriáritun.Niðurstaðaokkarbyggirá endurskoðunargögnumsemaflað erframaðdagsetninguáritunarokkar.Samtsemáðurgetaatburðireðaaðstæðuríframtíðinnigertfélagið órekstrarhæft.
Ályktum við um hvort notkun stjórnar og framkvæmdastjóra á forsendu reikningsskilanna um rekstrarhæfi sé viðeigandi og metum, á grundvelli endurskoðunarinnar, hvort aðstæður séu til staðar sem valdið gætu verulegum vafa um rekstrarhæfi félagsins. Ef við teljum að verulegur vafi leiki á rekstrarhæfi ber okkur, í áritun okkar, að vekja sérstaka athygli á viðeigandi skýringum ársreikningsins eða, ef slíkar skýringar eru ófullnægjandi, að víkja frá fyrirvaralausri áritun. Niðurstaða okkar byggir á endurskoðunargögnum sem aflað er fram að dagsetningu áritunar okkar. Samt sem áður geta atburðir eða aðstæður í framtíðinni gert félagið órekstrarhæft.
Metumviðframsetningu,uppbygginguoginnihaldársreikningsinsíheild,aðmeðtöldum skýringum,og hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
Metum við framsetningu, uppbyggingu og innihald ársreikningsins í heild, að meðtöldum skýringum, og hvort ársreikningurinn gefi glögga mynd af undirliggjandi viðskiptum og atburðum.
Viðupplýsumstjórnmeðalannarsumáætlaðumfangogtímasetningarendurskoðunarinnarogverulegatriðisemupp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Við upplýsum stjórn meðal annars um áætlað umfang og tímasetningar endurskoðunarinnar og veruleg atriði sem upp kunna að koma í endurskoðun okkar, þar á meðal verulega annmarka á innra eftirliti.
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Staðfesting vegna annarra ákvæða laga
Ísamræmiviðákvæði2.mgr.104gr.laganr.3/2006umársreikningastaðfestumviðsamkvæmtokkarbestuvitundað ískýrslustjórnarsemfylgirþessumársreikningieruveittarþær upplýsingarsemþarberaðveitaísamræmiviðlögum ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
Í samræmi við ákvæði 2. mgr. 104 gr. laga nr. 3/2006 um ársreikninga staðfestum við samkvæmt okkar bestu vitund að í skýrslu stjórnar sem fylgir þessum ársreikningi eru veittar þær upplýsingar sem þar ber að veita í samræmi við lög um ársreikninga og koma ekki fram í skýringum.
• • KPMG ehf.
Garðabær, 30. nóvember 2023
Garðabær, 2. desember 2024
• • KPMG ehf.
1. nóvember 2023 til 31. október 2024
Félagsgjöld ...............................................................................................
Vallargjöld .................................................................................................
Leigutekjur ................................................................................................
Tekjur af golfmótum .................................................................................
Rekstrarframlög og fyrirtækjasamningar ...................................................
Sértekjur íþróttasviðs ................................................................................
Vörusala ....................................................................................................
Aðrar rekstrartekjur ...................................................................................
Laun og launatengd gjöld ......................................................................... Íþróttamiðstöð og áhaldahús ....................................................................
Golfvöllur og æfingasvæði ........................................................................
Keppnisgolf, mótahald og kennsla ............................................................
Gjöld til GSÍ ...............................................................................................
Kostnaðarverð seldra vara .........................................................................
Annar rekstrarkostnaður ........................................................................... Afskriftir rekstrarfjármuna .........................................................................
Rekstrartekjur umfram rekstrargjöld
og (fjármagnsgjöld)
Vaxtatekjur og verðbætur .........................................................................
Vaxtagjöld og verðbætur ..........................................................................
Tekjur umfram gjöld
Golfvöllur ..................................................................................................
Bifreiðastæði og umhverfi ........................................................................
Vélar, tæki og áhöld ..................................................................................
Vörubirgðir ................................................................................................
Viðskiptakröfur .........................................................................................
Aðrar skammtímakröfur ............................................................................
Handbært fé .............................................................................................
Veltufjármunir samtals
Eigið fé .....................................................................................................
Skuldir við lánastofnanir ............................................................................
Langtímaskuldir samtals
Viðskiptaskuldir .........................................................................................
Næsta árs afborgun langtímaskulda .........................................................
Aðrar skammtímaskuldir ...........................................................................
Íþróttamiðstöð og áhaldahús .................................................................... Ársreikningur Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar 31.10.2024
Tekjur umfram gjöld .................................................................................
Rekstrarliðir sem hafa ekki áhrif á fjárstreymi:
Söluhagnaður rekstrarfjármuna ............................................................
Afskriftir rekstrarfjármuna .....................................................................
rekstrartengdra eigna og skulda:
Vörubirgðir, lækkun (hækkun) ...............................................................
Skammtímakröfur, lækkun (hækkun) ....................................................
Skammtímaskuldir, hækkun (lækkun) ...................................................
Fjárfesting í rekstrarfjármunum ................................................................
Söluverð rekstrarfjármuna ........................................................................
Mótframlag bæjarfélags samkvæmt samkomulagi ...................................
Afborgun langtímalána ..............................................................................
Skuldir við lánastofnanir, breyting .............................................................
Hækkun á handbæru fé
Handbært fé í byrjun rekstrarársins
Handbært fé í lok rekstrarársins
Færsluhirðing Landsbankans
KEPPNISFERÐIR
ÍÞRÓTTAFERÐIR
ÆFINGAFERÐIR
ENDURMENNTUNARFERÐIR
VIÐSKIPTAFERÐIR
Hamraborg 20 200 Kópavogur Sími 578 9888 visitor.is
KAREN LIND
STEFÁNSDÓTTIR
RAGNAR MÁR
GARÐARSSON
Aron Snær Júlíusson, Íslandsmeistari karla
Anna Júla, Íslandsmeistari í holukeppni
Hulda Clara Gestsdóttir, Íslandsmeistari kvenna
Karlasveit, Íslandsmeistari í 1. deild
Kvennasveit, Íslandsmeistarar 50 ára og eldri
Piltarsveit, Íslandsmeistarar 16 ára og yngri
Ragnheiður, Íslandsmeistari 50 ára og eldri
Piltarsveit, Íslandsmeistarar 18 ára og yngri
Það sést á sveiflunni