KVENNANEFND
Skýrsla kvennanefndar GKG fyrir árið 2020
Nefndin hélt áfram samvinnu við styrktaraðilana okkar sem hafa stutt okkur dyggilega síðustu ár. TARAMAR, sem er íslenskt sprotafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu á húðvörum sem draga úr sjáanlegum áhrifum öldrunar. Ásamt Víntríó ehf sem selur Freixenet freyðivín. Við þökkum þessum fyrirtækjum sem og öllum þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem gáfu okkur vinninga í ár fyrir stuðninginn. GKG konur voru einnig duglegar að safna vinningum fyrir okkur, það er ómetanlegt að eiga ykkur að og án ykkar stuðnings væri erfitt að halda úti svo öflugu starfi.
Núverandi kvennanefnd GKG tók til starfa í byrjun árs á félagsfundi kvennanefndar sem haldinn var 15. janúar. Vel var mætt á fundinn þar sem m.a. voru tilnefndar konur til stjórnar kvennanefndar GKG. Núverandi stjórn skipa: Ásta Kristín Valgarðsdóttir, formaður, Heiða Jóna Hauksdóttir, varaformaður, Arndís Berndsen, ritari, Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir, gjaldkeri. Meðstjórnendur eru: Fjóla Rós Magnúsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Sólveig Smith og Valgerður Friðriksdóttir sem kom ný inn í stjórnina á fundinum. Tvær konur létu af stjórnarstörfum þær Þorgerður Jóhannsdóttir og Inga Birna Einarsdóttir og er þeim þakkað kærlega fyrir vel unnin störf á liðnum árum.
Á félagsfundinum í janúar ræddum við um starfið okkar og hvað konur myndu helst vilja að við legðum áherslu á. Góð mæting var á fundinn í ár og almenn ánægja með störf nefndarinnar. Áhugi var fyrir því að vera með golfmót í hermunum í haust. Golfmótin áttu að hefjast í nóvember þegar opnað yrði aftur og var búið að reikna með einu móti í hverjum mánuði fram til vors sem verða nánar auglýst síðar, eða þegar leyfi fæst fyrir slíkum viðburði.
Hlutverk kvennanefndar • Stuðla að samvinnu og samstöðu kvenna í GKG og efla félagsanda meðal þeirra. • Skipuleggja æfingar, mót og aðra viðburði fyrir konur í samráði við þjónustustjóra. • Hlúa sérstaklega vel að og bjóða velkomna nýja félaga. • Að reynslumeiri konur leiki reglulega með reynsluminni konum. • Að eiga samstarf við aðra golfklúbba.
Konudagurinn er að verða árlegur vinkonudagur hjá okkur og var það engin undantekning í ár. Við slóum öll aðsóknarmet þegar þar mættu um 150 konur í brunchinn þar sem dagskrá kvennanefndar var kynnt og kom Þórkatla Aðalsteinsdóttir, sálfræðingur til okkar með gott innlegg inn í golfsumarið. Margir góðir gestir mættu og nýjar konur gengu í klúbbinn. GKG konur hafa verið með fasta tíma á þriðjudögum í Kórnum og var boðið upp á stöðvaþjálfun frá 21. janúar þar sem við fengum Ástrós Arnarsdóttur PGA golfkennaranema til liðs við okkur í ár. Lagt var upp með að hafa fjögur námskeið í Kórnum en vegna heimsfaraldurs urðum við að stytta og breyta síðustu tveimur námskeiðunum sem enduðu á spili með Ástrós á Mýrinni. Í lok fyrri námskeiðanna var haldið púttmót í Kórnum en því miður varð að fella seinna púttmótið niður vegna samkomutakmarkanna.
Markmið kvennanefndar Að hlutfall kvenna í klúbbnum sé hærra en í nokkrum öðrum golfklúbbi á landinu. Starf nefndarinnar er sjálfboðaliðastarf en starfið er að sama skapi mjög gefandi og skemmtilegt, sérstaklega þegar viðtökur eru jafngóðar og þær hafa verið þrátt fyrir erfitt ár. Í ár var heimsfaraldur að stríða okkur og þurftum við að breyta og fella niður nokkra viðburði hjá okkur sökum þess. Einnig var tekið upp nýtt skráningarkerfi á öllu landinu, sem var ekki að hjálpa okkur en vonandi á eftir að uppfæra það og gera okkur öllum næsta ár auðveldara. Við stefnum að því að hafa fræðslufund þegar hömlum líkur, til að kynna betur nýtt kerfi og erum strax farnar að hlakka til að gera starfið enn betra á næsta ári.
Fyrirlesturinn með Ólafíu Þórunni féll niður í apríl og einnig skemmtikvöldið sem var á dagskrá síðasta vetrardag líkt og undanfarin ár. Fyrirhuguðum fræðslufundi sem vera átti í maí var einnig felldur niður vegna ástandsins ásamt vissuferðinni og lokahófinu en þrátt fyrir það að fella hafi þurft niður
19