Fornleifaskráning á Seltjarnarnesi

Page 143

Ráðagerði (224:034) og Gerði (223:025) bent til að einhver ræktun hafi átt sér stað á umræddum slóðum. Sterkari vísbendingu gefa þó örnefnin Bygggarður og Vælugerði sem benda sterklega til kornræktar enda Væla talið dregið af fornnorræna orðinu Váll (Válir í ft.) sem merkir brenndar trjáleifar á sviðinni jörð og samkvæmt Sigurði Þórarinssyni er oftast notað í tengslum við e.k. akurrækt.33 Engar leifar sjást nú um Vælugerði en samkvæmt örnefnalýsingu var þar áður hringlaga gerði í hlíð Valhúsahæðar.34 Skammt frá bæjarstæði Bygggarðs, við sjó, má greina sigið garðlag í jörðu (sjá 226:006-007) og sumarið 2004 tók fornleifafræðingurinn Margrét Hermanns Auðardóttir skurð í garðinn til að reyna að grennslast fyrir um hlutverk hans og aldur. Garðurinn reyndist byggður fast ofan á landnámslagið og telur Margrét hann vera frá fyrri hluta 10. aldar. Hún telur líklegt að garðurinn hafi verið „reistur utan um landskika þar sem bygg var ræktað” og þaðan sé nafnið Bygggarður komið þótt hún viðurkenni að erfitt sé að útiloka að garðurinn hafi getað gegnt öðru hlutverki.35 Síðla á 8. áratugnum veittu menn fyrst athygli hringlaga gerðum í heimatúni Ness. Síðan þá hafa gerðin verið mynduð úr lofti nokkrum sinnum, mæld upp og skurðir teknir í fjölmörg þeirra án þess að óyggjandi niðurstöður hafi fengist um hlutverk gerðanna. Samtals voru skráð 19 gerði eða þústir í heimatúni Ness. Af þeim teljast 14 til hinna dularfullu, hringlaga gerða. Af hinum fimm reyndust tvær þústir öskuhaugar eða rústahólar (224:015 og 017) og þrjár þústir til viðbótar voru túlkaðar sem útihús (sjá 224:011-013). Prufuskurðirnir leiddu í ljós að a.m.k. sex gerðanna virtust af sömu gerð og frá svipuðum tíma. Ljóst þótti að mannvirkin væru hvorki hýbýli manna né skepnuhús en ekki var hægt að gera upp á milli hvort líklegast væri að þau hefðu verið notuð til geymslu fyrir hey eða annan forða, verið notuð til kornræktunar eða e.t.v. þjónað hlutverki í ræktun og uppbyggingu túnsins.

Mannvirki tengd sauðfjárrækt (utan heimatúna) Lágt hlutfall skráðra fornleifa á Seltjarnarnesi tengdust sauðfjárbúskap. Þetta endurspeglast m.a. í því að aðeins ekkert fjárhús var þekkt á svæðinu þó ekki sé dregið í efa að þau hafa leynst víða. Í samræmi við það voru fáar minjar um fjárbúskap í úthögum og aðeins skráðar fimm slíkar minjar. Mjög misjafnt er hvað menn hafa kallað kvíar og hvað rétt eða stekk á svæðinu og virðast mismunandi mannvirki stundum ganga undir sömu nöfnum. Á svæðinu voru skráðar tvær kvíar, ein rétt, tveir stekkir og tvö sel sem þó reyndar falla utan

33

Sjá Sigurður Þórarinsson. 1944 og Guðrún Einarsdóttir. 1979, 19-20. Ö-Seltjarnarnes AG, 3 35 Sjá Margrét Hermanns Auðardóttir. 2005, 25 og víðar. 34

143


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Fornleifaskráning á Seltjarnarnesi by Eyjólfur Garðarsson - Issuu