
4 minute read
Útihús og túngarðar
íbúðarhúsið á þessum slóðum. Það má þó draga í efa og vel mögulegt að kot og eða þurrabúðir hafi getað verið byggðar á sama/svipuðum stað áður og bendir reisulegur bæjarhóllinn fremur til þess að þar kunni byggð að hafa varað um lengra skeið. Knútsborga er ekki getið í Jarðabók Árna og Páls, en mögulegt er að það sé einungis vegna þess að nafnabreyting hafi orðið á býlinu enda er, í Jarðabókinni, getið fjölmargra býla sem nú eru týnd. Af útliti að dæma má ætla að talsverðar mannvistarleifar reynist þar undir sverði. Sjálfur bærinn hefur staðið á háhólnum en á honum hefur einnig verið fjöldi kálgarða og útihúsa. Hóllinn hefur verið sléttaður en þar er nú talsverð órækt. Hann er um 50 X 35-40 m og er mest 1,5 m á hæð. Ekki voru greinanlegir bæjarhólar á hinum býlunum/bústöðunum 38 sem skráð voru á Seltjarnarnesi en íbúðarhúsin á Vegamótum (221:013), í Hrólfsskála II (222:002), Bakkakoti (223:006), Pálshús (227:004) og vitahúsið í Gróttu (225:002) standa enn uppi.29 Öll eru húsin byggð á árunum 1852-1904 og eru því elstu steinhús Seltjarnarness ef frá er talin sjálf Nesstofa. Þeirra elst er Pálshús byggt á 6. áratug 19. aldar. Auk þessara húsa stendur gamla timburhúsið í Ráðagerði enn. Það var byggt um á 9. áratug 19. aldar, er nýuppgert og mikil bæjarprýði á nesinu. Ekki eru eftir neinar tóftir gamalla bæja á Seltjarnarnesi. Þó má enn greina undirstöður Litlabæjar (224:018) þó að leifum bæjarins, sem var steinsteyptur, hafi verið rutt út.
Auk þeirra býla sem hér er getið byggðist talsverður fjöldi býla/íbúðarhúsa upp á Seltjarnarnesi á áratugunum fyrir miðja 20. öld. Upplýsingar um staðsetningu og sögu þessara yngri býla er að finna í Seltirningabók.
Advertisement
Útihús og túngarðar
Eins og algengt var á Íslandi voru skepnuhús dreifð um tún á bæjum á skráningarsvæðinu til að dreifa áburði. Hlutfall útihúsa á Seltjarnarnesi var þó, eins og gefur að skilja, nokkuð lægra en á landbúnaðarsvæðum. Þess í stað voru fleiri byggingar tengdar sjósókn. Aðeins voru skráð 46 útihús á Seltjarnarnesi og eru þá meðtalin með öll þau útihús sem þekkt eru innantúns á hjáleigum og smábýlum. Verður þetta hlutfall að teljast fremur lágt. Á nesinu eru þekktar heimildir um tvö fjós, annars vegar í landi Melhúsa (sem
29 Auk þessara húsa má nefna Bollagarða (224:042) þar sem stendur steinhús. Húsið er hins vegar ekki byggt fyrr en á 3. áratug 20. aldar og því telst það ekki til fornleifa. Það var hins vegar byggt á sama stað og áður stóð torfbær.
byggðist frá Lambastöðum sjá 221:029) en hins vegar í Hrólfsskála (222:020). Bæði húsin eru nú löngu horfin og svæðin komin á kaf í íbúðarhúsabyggð. Auk þessara fjósa er örnefnið Fjósaklöpp (sjá 222:011) þekkt í Hrólfsskálalandi og gæti það bent til þess að í námunda við hana hafi einnig staðið fjós. Ekki eru þekktar heimildir um fleiri forn fjós á Seltjarnarnesi en þó ólíklegt annað en þau hafi verið á flestum af stærri bæjunum. Líklegt er að þau hafi sumstaðar verið sambyggð gömlu torfbæjunum. Ekkert fjárhús var skráð á Seltjarnarnesi og aðeins var skráð eitt hesthús (224:088). Það stóð í Nesi rétt norðan við þar sem hús apótekara stendur nú. Hesthúsið brann en úr leifunum var síðar sléttað.
Heimildir eru þekktar um eina skemmu (227:010) í landi Bakka og örnefnið Smíðislaut í Gróttu (225:013) gæti bent til smiðju en á hvorugum staðnum sjást nokkur ummerki um mannvirki. Ekki voru þekkt nákvæm hlutverk fleiri útihúsa á Seltjarnarnesi en skráð voru 39 útihús til viðbótar þar sem ekki var nákvæmlega vitað hvaða hlutverki húsið gegndi. Eins og gefur að skilja voru flest útihúsin í heimatúni stórbýlisins Ness, alls en þar
voru
þekkt 12 þekkt útihús og auk þess 12 önnur útihús í heimatúnum
Fjöldi Bær útihúsa Númer
Lambastaðir 1 221:002 hjáleiga sem tilheyrðu Nesi, flestar Melstaður 2 221:021, 029 í Knútsborgum. Af öðrum bæjum Hrólfsskáli 4 222:003-004, 011, 020 Bakki 2 223:003 og 015 á nesinu var algengast að þekkt Nes 12 224:011-013, 084, 088, 127-133 væru 1-3 útihús. Undantekningar Bollagarður 2 224:089-090 Ráðagerði 1 224:102 frá þessu eru Hrólfsskáli þar sem Nýibær 3 224:109-111 þekkt voru fjögur hús og Knútsborgum 6 224:114, 116, 119, 120, 123-124 Grótta 2 225:003, 013 Bygggarður þar sem þekkt voru Bygggarður 6 226:002-006, 015 sex. Ekki fundust greinilegar tóftir Mýrarhús 2 227:002-003 Pálsbær 2 227:010-011 af neinu útihúsi á Seltjarnarnesi en 45
SAMTALS útihús
óljósar þústir fjögurra húsa fundust þó. Þrjár þústanna voru í Nestúni (224:011-013). Þar hefur hluti túna ekki verið sléttaður með jarðýtu og má því vel greina þústir í túninu. Auk þess er ennþá greinileg ólöguleg þúst í landi Bygggarðs (sjá 226:006) sem merkt er inn á túnakort frá 1916 en gæti reyndar vel fremur tengst sjósókn heldur en skepnuhirðingu eða landbúnaði. Ljóst er að víða á Seltjarnarnesi geta leynst leifar útihúsa undir sverði innan túna eldri bæja. Þar sem nesið varð snemma þéttbýlt var eldri húsum víða rutt út og öll vitneskja um þau hefur í sumum tilfellum týnst niður á skömmum tíma. Vel er hugsanlegt að slíkar leifar hafi