Rupaul‘s Drag Race
Dragmenning Orðið drag var fyrst notað í leikhúsum yfir karlmenn sem klæða sig upp í kvenmanns klæðnað og öfugt. Dragmenningin er því ótrúlegt en satt margra alda gömul. Þegar Shakespeare tímabilið var að ná sínum hápunkti, seint á 16. öld og byrjun 17. aldar, þá var sviðið ekki bara staður fyrir skemmtun. Þau höfðu sterk tengsl við kirkjuna og reglur um að karlmenn mættu bara ráða. Ef að leikrit var með kvenkyns hlutverk þá voru það karlmennirnir sem áttu að taka að sér þessi hlutverk svo sagan myndi ekki raskast. Orðið drag dregur merkingu sína frá því að þegar karlmenn voru í kvenkyns hlutverki þá drógu þeir kjólana eftir gólfunum. Leikarar sem leika kvenmann í hlutverki er ekki það sem við köllum drag í dag en það var byrjunin. Fljótlega byrjaði drag að vera leið fyrir karlmenn, oftast samkynhneigða, til að tjá sig og aðra hlið af sjálfum sér. Hægt og rólega með tímanum fór dragmenningin frekar að snúast um einstaklinginn og dragdrottn ingarnar byggðu fljótlega upp aðdáendahópa. Ein af stærstu drag stjörnunum snemma á 20. öld var Julian Eltinge. Hann var ein frægasta kvenna eftir herma síns tíma. Margir aðdáendur hans héldu að hann væri leikkona en ekki leikari að leika
12
kvenmann. Julian byrjaði ungur að leika kvenmenn og þegar hann var 24 ára lék hann í fyrsta skipti á Broadway. Honum gekk vel þangað til að kreppan skall á árið 1930 en hann hélt samt áfram að koma fram á næturklúbbum. Sama ár og kreppan var í gangi var mikið af kynferðisofbeldi í gangi og það hafði neikvæð áhrif á dragmenninguna. Neðanjarðarklúbbar Neðanjarðarklúbbar spiluðu stórt hlutverk í að halda dragmenningunni uppi. Þar gátu t.d. sam kynhneigðir farið að skemmta sér, klætt sig upp sem kvenmenn og drukkið áfengi. Þetta magnaðist allt upp þegar áfengisbannið tók gildi árið 1920 og jókst þá eftirspurn eftir neðanjarðarklúbbum. Að vera samkynhneigður var ekki samþykkt á þessum tíma þannig að neðanjarðarklúbbarnir hjálpuðu einnig í því samhengi. Dragmenningin fór stækkandi á neðanjarðarklúbbunum og fékk sú menning viðurnefnið „The Pansy Craze‘‘. Þessi tími stóð frá 1950–1960 þangað lögreglan fór að handtaka fólk fyrir slík athæfi. Þetta stoppaði hins vegar ekki dragdrottningarnar, þær fóru að mótmæla og 6 árum seinna, árið 1966, voru margar opinberar dragdrottningar í Ameríku. Frægar dragdrottningar Fyrsta þekkta dragdrottningin í Ameríku var