Skip to main content

Embla - Ólöf Rut Gísladóttir

Page 1

GRAFÍSK MIÐLUN | VOR 2021 | 9. tbl. 10. árg.


Fjölbreytt nálgun á fræðslu

Hlaðvarp - Sýnikennsla - Námskeið - Heimsóknir

Iðan býður upp á fjölbreytta fræðslu á besta stað. Þú finnur okkur á idan.is Vatnagarðar 20 • 104 Reykjavík • www.idan.is • idan@idan.is • Sími: 590 6400


Þá er útskriftarverkefnið að baki og nálgast útskriftin. Þetta verkefni er búið að vera krefjandi en mjög skemmtilegt að vinna við. Ég er ánægð með útkomuna af þessu tímariti. Ég er ánægð að við vorum með „eðlilega“ kennslu s.s. fengum að vera í skólanum, vorum samt í tvo daga heima rétt fyrir páskana. Ég fékk að upplifa eina venjulega önn þar sem ekkert Covid var í gangi á þessari skólagöngu. Þetta nám kom mér skemmtilega á óvart og er búin að hafa gaman af þessu námi. Ég er spennt að halda áfram í framtíðinni. Í þessu tímariti ætla ég að fjalla um þrjú efni sem ég hef mikinn áhuga á. Nike, heilsu/rækt og drag. Ég hafði mjög gaman að skrifa um þetta og vona að þú hafir jafn gaman að lesa.

Takk fyrir og njótið!

Umbort og hönnun Ólöf Rut Gísladóttir Forsíða Ólöf Rut Gísladóttir Útgefandi Upplýsingatækniskólinn Prentun Upplýsingatækniskólinn Letur Univers 45 Light 9/13 Univers 65 Bold 9/13 Univers 55 Roman 9/13 Pappír UPM DiGi 150 g/m2 UPM DiGi 170 g/m2

EFNISYFIRLIT

LEIÐARI

5 – Um mig

6 – Saga Nike

8 – Air Jordan

10 – Hreyfum okkur daglega 11 – Viðtal

12 – Drag menning

14 – RuPaul


4


ÓLÖF RUT

GÍSLADÓTTIR Ég heiti Ólöf Rut Gísladóttir, fædd í Keflavík þann 8. október 1999 og er því 21 árs gömul. Ég hef alltaf haft áhuga á einhverskonar hönnun og list, þegar ég var yngri var ég alltaf með eitthvað í höndunum á leiðinni að föndra. Ég útskrifaðist úr Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2018 af listnámsbraut og lauk stúdent á þremur árum. Mér fannst mjög gaman á listabraut vegna þess að þetta var eitthvað sem ég hafði áhuga á og vildi halda áfram að gera í framtíðinni. Ég var mikið að teikna og mála sem mér fannst gaman. Eftir útskrift frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja þá tók ég mér eitt ár í pásu og fór að vinna í vopnaleitinni

á Keflavíkurflugvelli. Ástæðan var sú að ég vissi ekki hvað ég vildi læra. Á meðan ég var að vinna þá var ég að reyna að finna eitthvað sem mér myndi finnast skemmtilegt. Ég vissi að ég vildi eitthvað sem tengdist hönnun og sköpun. Þegar ég skoðaði grafíska miðlun þá leyst mér mjög vel á það og ákvað í kjölfarið að skrá mig í það nám. Ég sé alls ekki eftir því í dag. Eftir útskrift langar mig að halda áfram í þessu námi og reyna komast erlendis í skóla. Þegar ég er ekki að stunda námið er ég í ræktinni, með fjölskyldu minni eða horfa á sjónvarpsþætti.

5


SAGA NIKE Ljósmynd: Klim Musalimov

Nike er amerískt íþróttavörufyrirtæki sem sér um að hanna, þróa og framleiða íþróttavörur, skó, aukahluti og annars konar tæki. Þetta er stærsta fyrirtækið sem framleiðir svoleiðis vörur. Fyrirtækið var stofnað 1964 af Bill Bowerman og Phil Knight. Áður hét fyrirtækið Blue Ribbons Sports og var upprunalega skófyrirtæki en síðan var því breytt í Nike, Inc árið 1971. Fyrirtækið tekur nafnið sitt frá Grísku gyðjunni af sigri, Nike. Nike, áður þekkt sem Blue Ribbons Sports, var stofnað af íþróttakappanum Phil Knight og þjálfara hans Bill Bowerman árið 1964. Ári eftir voru þeir með fullmannað fyrirtæki og ári seinna opnuðu þeir fyrstu búðina sína í Californíu. Áður en þeir opnuðu búðirnar sínar vildi Phil Knight sjá hvort fólk myndi vilja kaupa gæða skó eins og önnur íþróttafyrirtæki voru að selja en á sanngjörnu verði. Hann fór þá að selja skó úr skottinu á bílnum sínum. Árið 1966 fór Bowerman með nýja hönnun af skóm til Tiger skófyrirtækisins. Þessir skór voru hannaðir fyrir hlaupara. Skórnir fengu góðar undirtektir og voru framleiddir ári seinna. Eftir mikla velgengni þeirra fór fyrirtækið Tiger að segja fólki frá því að Blue Ribbons Sports hafi verið að selja sína eigin útgáfu af sömu skóm og kölluðu þá „Nike‘‘. Árið 1971 slitu þau samstarfi og fengu að selja hvor sína eigin útgáfu af skónum. Eftir þennan skilnað breyttu þeir nafninu yfir í Nike. Skórnir sem voru gerðir í samstarfi við Tiger og „Waffle‘‘ skórnir sem Bowerman hannaði hjálpaði fyrirtækinu að koma sér á framfæri. Hugmyndin af „Waffle‘‘ hönnuninni kom upp hjá Bowerman þegar hann var að fá sér vöfflu í morgunmat á meðan hann hugsaði um hugmyndir um hvernig ætti að aug-

6

lýsa hlaupaskó. Hann sá hvernig mynstrið var á vöfflunni og hugsaði hvernig það liti út öfugt. Fyrirtækið heldur alltaf áfram að stækka. Það sem hjálpaði fyrirtækinu að stækka á sínum tíma var „Just Do It‘‘ herferðin. Þessi herferð sýnir 80 ára Walter Stack hlaupa yfir Golden Gate Bridge. Lógó Nike lógóið er eitt þekktasta vörumerki heimsins í dag. Allir þekkja „The Swoosh‘‘. Þetta lógó var tekið upp árið 1971 þegar þeir breyttu nafninu í Nike. Grafíski hönnuðurinn Carolyn Davidson, stúdent í Portland University, hannaði þetta lógó. Það hafa verið litlar sem engar breytingar á þessu lógói. Það er til útgáfa af lógóinu sem er með The Swoosh og Nike saman. Bæði eru notuð í dag. Hönnun og litir Lógóið táknar vænginn í Grísku gyðjunni. Margir sjá mismunandi hluti þegar þeir sjá Nike lógóið. Það getur séð hlaupabraut lógóið er sett öfugt. Þegar lógóið var fyrst gefið út var það sett í marga liti til að standa út frá öðrum skófyrirtækjum. Vinsælasti liturinn var rauður. Í dag er lógóið algengast í svörtu og hvítu. Þar til ársins 1995 var notast við letrið Futura Bold. Kringum 1995 var nafnið hins vegar tekið af lógóinu og því einungis táknið sjálft notað. Ástæðan var sú að merkið var orðið það vinsælt að táknið dugaði, allir þekktu það. Íþróttavörur Nike er með fjölbreytt úrval af íþróttavörum. Fyrsta varan þeirra voru hlaupaskór og enn í dag er verið að framleiða skó en þeir hafa einnig ein-


blínt á íþróttafatnað og er með vörur fyrir flestar íþróttagreinar t.d. körfubolta, fótbolta, tennis, golf og ræktina. Nike Air Max er lína af skóm sem var fyrst gefin út árið 1987. Þeir eru enn framleiddir í dag og hönnunin er búin að þróast mikið með tímanum. Nike er í sífelldri vöruþróun og á hverju ári koma nýjar vörur, t.d. nýrri útgáfur af Nike Air Max. Nike er í samstarfi við marga fremstu íþróttamenn heims t.d. Tiger Woods, Michael Jordan, Lebron James. Tískan Fólk er ekki bara að nota Nike fötin sem íþróttaföt í dag. Í kringum 1980 voru Nike föt orðin hluti af hversdagslegri tísku hjá fólki, þá sérstaklega íþróttagallar, derhúfur og Air Jordan skór. Á árunum 1990–2000 voru amerískir og evrópskir unglingar búnir að sameina þessa íþróttaskó, boli og íþróttabuxur við svokallaða götutísku, s.s.

gallabuxur og pils. Í byrjun 20 aldar voru Nike körfuboltasokkar partur af hversdags fatastíl hjá ungu fólki. Í dag framleiðir Nike mikið af hversdagsfötum, margar tegundir af peysum, bolum, buxum og skóm. Eitt vinsælasta undirmerki hjá Nike er Nike Tech Fleece en þau framleiða einn vinsælasta jogging galla heims. Nike er með mikið úrval af ræktarfötum og eru þau mjög vinsæl hjá fólki. Ef maður stígur inn í líkamsræktarstöð þá er að minnsta kosti önnur hver manneskja í Nike. Heimildir sóttar á thestreet.com. (History of Nike). Þýðing: Ólöf Rut.

JUST DO IT.

FYRIR

ÞIG

Gæðamálning frá LADY

Þú finnur okkur á husa.is

7


Air Jordan Air Jordan er samstarf á milli Nike og körfuboltamannsins Michael Jordan. Árið 1984 kom nýr leikmaður inn í NBA, Michael Jordan. Frá fyrsta tímabili hans sást að hann var einstaklega hæfileikaríkur körfuboltamaður. Nike ákvað að taka áhættu með því að bjóða honum samning. Samningurinn gekk út á það að Jordan gæti hannað sína eigin línu af skóm, eitthvað sem örfáir einstaklingar höfðu gert áður. Nike sér alls ekki eftir þeirri ákvörðun í dag. Upprunalegu Air Jordan I skórnir voru framleiddir sérstaklega fyrir Jordan snemma á árinu 1984 og gefnir út seinna sama ár. Skórnir voru þeir klassísku með rauðri og svartri grafík. Fyrst voru þessir skór bannaðir af NBA fyrir að vera of litríkir. Á þessum tíma voru allir körfuboltaskór hvítir. Í hvert sinn sem Jordan spilaði í þessum skóm þá var hann sektaður af NBA en Nike borgaði sektina fyrir hann vegna þess að skórnir fengu svo mikla athygli út á sektirnar. Fyrstu 50.000 pörin af Air Jordan skónum seldust upp samstundis.

Á nokkurra ára fresti kom uppfærð hönnun af Air Jordans. Árið 1988 komu Air Jordan III út og klæddist Jordan þeim þegar hann vann troðslukeppni NBA sama ár. Air Jordan merkið hefur gefið út yfir 32 gerðir af skóm í dag, margar af þeim hafa verið gefnar aftur út vegna mikillar eftirspurnar. Lógó Upprunalegt lógó Air Jordan leit fyrst öðruvísi út en það gerir í dag. Það er þekkt í dag sem „OG logo‘‘ eða „Vængja lógó‘‘. Lógóið sýnir körfubolta með vængi sem teygja sig út til beggja hliða og Air Jordan skrifað fyrir ofan. Jumpman lógóið birtist á 3. útgáfu af Air Jordan árið 1987. Jumpman lógóið sýnir Jordan í loftinu á leiðinni að troða í körfu. Hann var í myndatöku fyrir skóna sína og þá var þessi mynd tekin af honum að troða. Honum leist svo vel á þessa mynd að hún varð að nýja lógóinu. Heimildir sóttar á brandastic.com. (Nike Air Jordan–Behind the brand). Þýðing: Ólöf Rut.

Númer

Nafn

Ártal

1

Air Jordan I, Bred

1985

2

Air Jordan III, Black Cement

1988

3

Air Jordan XI, Bred

1996

4

Air Jordan IV, UNDFTD

2005

5

Air Jordan III, White Cement

1988

Vinsælir Air Jordan skór

8


9 Ljósmynd: Danilo Capce


Ljósmynd: Bruno Nascimento

Hreyfum okkur daglega Heilsa er mikilvæg. Að hreyfa sig reglulega, þótt það sé ekki nema bara 30 mín á hverjum degi, er mjög hollt fyrir líkamann. Það getur minnkað líkur á flestum langvinnum sjúkdómum og eykur líkur á að fólk lifi lengur og við betri lífsgæði. Hreyfing þarf ekki endilega að vera að mæta í ræktina og taka þunga og stóra æfingu heldur er nóg að kíkja út í smá göngutúr og fá ferskt loft í lungun. Regluleg en róleg hreyfing styrkir ónæmiskerfið, minnkar bólgur, lækkar estrógen- og insúlín magn í blóðinu og hjálpar til að viðhalda hæfilegri líkamsþyngd. Þetta eru allt þættir sem geta veitt vernd gegn krabbamein. Það hreyfa sig allir eitthvað á hverjum degi. Hreyfing er hugtak sem nær yfir nánast allt sem felur í sér hreyfingu eins og ferðast á milli staða gangandi, hjólandi eða gera ýmis heimilisverk. Heilsa er skilgreind sem líkamleg, andleg og félagsleg vellíðan. Næring Góð næring er líka mikilvæg fyrir heilsuna. Til þess að hafa orku út allan daginn er mikilvægt að næra sig á hollum og næringarríkum mat. Ráðlagður dagskammtur af ávöxtum eru fimm á dag, fiskur tvisvar í viku, fituminni mjólkurvörur. Vatn er besti drykkurinn. Umhverfi Umhverfi getur haft áhrif á hreyfingu einstaklings. Þreyta, óöryggi eða áhugaleysi getur spilað inn í. Ef það er óöryggi er alltaf hægt að biðja um aðstoð. Panta tíma hjá einkaþjálfara og fá leiðsögn, fara með einhverjum sem þekkir umhverfið betur

10

og alltaf er best að trúa á sjálfan sig. Ef það er þreyta þá er best að fá nægan svefn yfir nóttina og næringu yfir daginn. Ef það er áhugaleysi er gott að hafa félagsskap með sér til að hvetja sig áfram. Dagleg hreyfing Dagleg hreyfing er nauðsynlegt fyrir eðlilegan vöxt, þroska og andlega vellíðan. Hreyfing getur þjálfað hreyfifærni, bætt líkamshreysti og bætt sjálfstraust. Hreyfing ætti að vera eins fjölbreytt og mögulegt er til að efla sem flesta þætti líkamshreysti, þar á meðal afkastagetu lungna, hjarta, vöðvastyrk og liðleika. Kröftug hreyfing, sem reynir á beinin, er mikilvæg á kynþroskaskeiði fyrir beinmyndun og beinþéttni. Regluleg hreyfing er ekki aðeins mikilvægt til að minnka líkur á ýmsum sjúkdómum heldur hjálpar hún við andlegan styrk sem getur hjálpað við að takast við verkefni daglegs lífs. Það er gott fyrir fullorðna einstaklinga að stunda erfiða æfingu að minnsta kosti tvisvar í viku til að bæta þol, vöðvastyrk, liðleika og jafnvægi. Það er aldrei of seint að byrja hreyfa sig. Þegar komið er á efri ár er eðlilegt að smám saman dragi úr líkamlegri og andlegri getu. Regluleg hreyfing hægir á áhrifum og einkennum öldrunar og hjálpar fólki til að viðhalda getunni til að vera sjálfbjarga í daglegu lífi. Styrkþjálfun er sérstaklega gott fyrir eldra fólk. Það getur hjálpað að viðhalda hreyfifærni og stuðlað auknu gönguöryggi. Heimildir sóttar á landlaeknir.is. (Ráðleggingar um hreyfingu). Ólöf Rut tók saman.


VIÐTAL Nafn og aldur: Guðmundur Eggert Gíslason, 32 ára. Á hvaða líkamsræktarstöð vinnur þú á? World Class.

Hvort er mikilvægara – mataræði eða hreyfing? Mataræði og hreyfing skipta jafn miklu máli. Það skiptir jafn miklu máli að borða hollan mat og hreyfa sig. Það helst oft í hendur að hreyfa sig og borða hollan mat.

Hvenær byrjaði áhugi þinn á líkamsrækt? Áhugi minn á líkamsrækt byrjaði árið 2006 þegar ég skráði mig fyrst í þjálfun hjá einkaþjálfara. Af hverju skiptir hreyfing miklu máli?

Ertu með góðar byrjendaæfingar? Góðar byrjenda æfingar eru t.d. æfingar með eigin líkamsþyngd eins og armbeygjur, hnébeygjur, framstig og afturstig svo eitthvað sé nefnt.

Hreyfing skiptir máli því manni liður svo vel eftir á. Hvaða ráð ertu með til þeirra sem vilja að byrja hreyfa sig en vita ekki hvar á að byrja eða þora ekki? Það er gott að byrja á að afla sér upplýsinga t.d. á netinu og svo er gott að setja sig í samband við einkaþjálfara ef fólk vill fá nánari leiðsögn. Af hverju er svefn mikilvægur? Það er mikilvægt að hvílast vel til þess að líkaminn nái að hlaða batterýin eftir daginn.

Hvernig var á Covid tímunum þegar líkamsræktastöðvarnar voru lokaðar? Þá þurfti maður að passa að missa ekki niður æfingarútínuna og hugsa út fyrir kassann og sjá hvernig æfingar maður gæti gert heima eða úti. Ef líkamsræktarstöðvarnar loka aftur ertu með eitthvað ráð fyrir þá sem vilja halda áfram að hreyfa sig heima. Það er gott að halda rútínu og gera það að reglu og hreyfa sig heima alveg eins og maður væri að fara að hreyfa sig í líkamsræktarstöð.

Hvað er lágmarks tími fyrir góðan svefn? Ég myndi segja að ná 7–8 klukkutíma svefn væri góð regla.

Viðtalið tók Ólöf Rut Gísladóttir

Guðmundur Eggert Guðmundur Eggert Gíslason er einkaþjálfari hjá World Class. Hann er 32 ára og er fæddur og uppalinn í Keflavík. Í dag býr hann í Reykjavík með fjölskyldu sinni, unnustu og tveimur börnum. Guðmundur byrjaði að stunda líkamsrækt árið 2004 og hefur síðan stundað líkamsrækt reglulega sér til heilsubótar. Hann útskrifaðist sem ÍAK einkaþjálfari í júní árið 2016 og sem ÍAK styrktarþjálfari ári seinna. Hann hefur mikinn áhuga á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl og er sífellt að leita leiða til þess að auka þekkingu sína í þeim efnum. Guðmundur tekur að sér einkaþjálfun, paraþjálfun og fjarþjálfun. Áherslan er lögð á almenn hreysti og bætta líðan. Hann leggur áherslu á persónulega þjáflun fyrir byrjendur og lengra komna. Guðmundur Eggert – ÍAK einkaþjálfari/ÍAK styrktarþjáflari.

11


Rupaul‘s Drag Race

Dragmenning Orðið drag var fyrst notað í leikhúsum yfir karlmenn sem klæða sig upp í kvenmanns klæðnað og öfugt. Dragmenningin er því ótrúlegt en satt margra alda gömul. Þegar Shakespeare tímabilið var að ná sínum hápunkti, seint á 16. öld og byrjun 17. aldar, þá var sviðið ekki bara staður fyrir skemmtun. Þau höfðu sterk tengsl við kirkjuna og reglur um að karlmenn mættu bara ráða. Ef að leikrit var með kvenkyns hlutverk þá voru það karlmennirnir sem áttu að taka að sér þessi hlutverk svo sagan myndi ekki raskast. Orðið drag dregur merkingu sína frá því að þegar karlmenn voru í kvenkyns hlutverki þá drógu þeir kjólana eftir gólfunum. Leikarar sem leika kvenmann í hlutverki er ekki það sem við köllum drag í dag en það var byrjunin. Fljótlega byrjaði drag að vera leið fyrir karlmenn, oftast samkynhneigða, til að tjá sig og aðra hlið af sjálfum sér. Hægt og rólega með tímanum fór dragmenningin frekar að snúast um einstaklinginn og dragdrott­n­ ingarnar byggðu fljótlega upp aðdáendahópa. Ein af stærstu drag stjörnunum snemma á 20. öld var Julian Eltinge. Hann var ein frægasta kvenna eftir­ herma síns tíma. Margir aðdáendur hans héldu að hann væri leikkona en ekki leikari að leika

12

kvenmann. Julian byrjaði ungur að leika kvenmenn og þegar hann var 24 ára lék hann í fyrsta skipti á Broadway. Honum gekk vel þangað til að kreppan skall á árið 1930 en hann hélt samt áfram að koma fram á næturklúbbum. Sama ár og kreppan var í gangi var mikið af kynferðisofbeldi í gangi og það hafði neikvæð áhrif á dragmenninguna. Neðanjarðarklúbbar Neðanjarðarklúbbar spiluðu stórt hlutverk í að halda dragmenningunni uppi. Þar gátu t.d. sam­ kynhneigðir farið að skemmta sér, klætt sig upp sem kvenmenn og drukkið áfengi. Þetta magnaðist allt upp þegar áfengisbannið tók gildi árið 1920 og jókst þá eftirspurn eftir neðanjarðarklúbbum. Að vera samkynhneigður var ekki samþykkt á þessum tíma þannig að neðanjarðar­klúbbarnir hjálpuðu einnig í því samhengi. Dragmenningin fór stækkandi á neðanjarðarklúbbunum og fékk sú menning viðurnefnið „The Pansy Craze‘‘. Þessi tími stóð frá 1950–1960 þangað lögreglan fór að handtaka fólk fyrir slík athæfi. Þetta stoppaði hins vegar ekki dragdrottningarnar, þær fóru að mótmæla og 6 árum seinna, árið 1966, voru margar opinberar dragdrottningar í Ameríku. Frægar dragdrottningar Fyrsta þekkta dragdrottningin í Ameríku var


Mother Flawles Sabrina. Hún var formaður LGBT samtakanna. LGBT stendur fyrir lesbian, gay, bisexual og transgender. Hún sá um margar keppnir tengdar drag og var oft handtekin fyrir mótmæli. Dragdrottningin Devine varð fræg árið 1972 fyrir aðalhlutverk í myndinni Pink Flamingos. Árið 1988 lék Devine í leikritinu Hairspray þar sem hún lék móðir Tracy. Nú er hefð að hafa karlmann í þessu hlutverki. John Travolta fór með hlutverkið í kvikmyndinni sem kom út árið 2007. Tim Curry lék fræga hlutverkið Dr. Frank n Furter í myndinni Rocky Horror árið 1975. Ein frægasta dragdrottningin í dag er Rupaul. Hann var án efa frægasta dragdrottningin í byrjun 21. aldar. Hann er söngvari, leikari, rithöfundur og einnig er hann með frægasta dragdrottninga keppnisþáttinn, Rupaul‘s Drag Race. Rupaul sameinaði dragmenninguna og poppmenninguna og árið 2017 var hann nefndur einn af hundrað áhrifamestu manneskjum heims hjá tímaritinu The Time.

JAFN RÉTTI FYRIR

ATVINNU LAUSA NÁMS MENN

Fjölskyldur Böll hjá dragdrottningum urðu vinsæl í kringum 1970. Þar komu allir saman til að skemmta sér en einnig voru dómarar sem dæmdu flottasta drag-ið og fólk gat unnið verðlaun fyrir. Fyrirbærið „dragmóðirin” kom út frá þessu, þar sem eldri drottningar taka að sér yngri dragdrottningar til að leiðbeina þeim. Eftir það getur móðirin ættleitt hana til sín og hjálpað henni og þar af leiðandi tekið upp sama eftirnafn. Dragmæður eru efstar í „húsinu‘‘ þeirra og sjá þá um alla fjölskylduna. Dragfjölskyldur urðu þekktar út frá myndinni Paris is Burning sem kom út árið 1990. Heimildir sóttar á bbc. co.uk. (The fabulous history of drag). Þýðing: Ólöf Rut.

Ráðstefna í Hörpu 1. – 2. maí Skráning fer fram á harpa.is eða í appinu

Trixie Mattel


RuPaul Rupaul Andre Charles er ein frægasta drag drott­ning í heimi. Hann er fæddur og uppalinn í San Diego en flutti svo til Atlanta til að læra list. Eftir námið fór hann til New York þar sem hann fór að láta til sín taka. Rupaul varð þekktur eftir að hann gaf út lagið Supermodel árið 1993. Í dag hefur hann gefið út ótal mörg lög og plötur. Einnig hefur hann leikið í myndum og gefið út bækur. Það mætti því segja að Rupaul hafi komið dragmenningu á hærri stall með áhrifum sínum í gegnum þættina sem hann stýrir, Rupaul‘s Drag Race. Spjallþátturinn hans The Rupaul Show er einnig fyrsti þátturinn til að hafa dragdrottningu sem þáttastjórnanda. Rupaul er giftur Georges Lebar og hafa þeir verið saman í 27 ár. Rupaul‘s Drag Race Rupaul‘s Drag Race er raunveruleikaþáttur þar sem dragdrottningar koma saman og keppast um titilinn „Dragdrottning Ameríku‘‘ eða „Americas next drag superstar‘‘. Rupaul er framleiðandi, kynnir, dómari og leiðbeinandi þáttarins. Ásamt Rupaul eru þau Michelle Visage, Ross Matthews og Carson Kressly dómarar. Fyrsta serían kom út árið 2009 og eru seríurnar í dag 13 talsins. Þessi keppni er góður stökkpallur fyrir ungar dragdrott­ningar til að koma sér á framfæri. Þátturinn nýtur mikilla vinsælda um allan heim. Árið 2016 vann Rupaul Emmy verðlaun fyrir frábæra frammistöðu sem kynnir. Heimildir sóttar á wikipedia.com. (Rupaul). Þýðing: Ólöf Rut

RuPaul Ljósmynd:Tony Kelly

14


Veldu umhverfisvæna prentun hjá okkur

Veldu umhverfisvænarleiðir. Prentsmiðjan okkar er með Svansvottun á öllu prentferlinu. Við getum tekið að okkur hvaða prentverk sem er. Hafðu samband og við sjáum um rest.

Skemmuvegur 4, blá gata | 200 Kópavogi | Sími: 540 1800 | litlaprent@litlaprent.is | www.litlaprent.is


Þekktu réttindi þín Kjaramál skipta miklu máli fyrir launþega og þá er best að vera í góðu stéttarfélagi eins og Grafía. Kíktu til okkar og við sjáum um þín réttindi. Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar.

www.grafia.is Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

GRAFÍA

Stórhöfða 31, 3. hæð, 110 Reykjavík • Sími: 552 8755 • grafia@grafia.is • www.grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Ólöf Rut Gísladóttir by Tækniskólinn - Issuu