Embla - Anna Lóa Óskarsdóttir

Page 1


Grafísk miðlun 3. tbl. – 14. árg. – Vor 2025

Anna Lóa

Ég heiti Anna Lóa og er 26 ára gömul. Ég kem úr Hafnarfirði þar sem ég hef búið síðan ég var 5 ára gömul.Ég eyddi einu ári beint eftir grunnskóla í Danmörku, við EVN (Efterskolen ved Nyborg) þar sem ég spilaði körfubolta og kynntist öllu sem viðkemur dönum og Danmörku. Ég á einn kött, tvo hunda og fjóra hesta ásamt fjölskyldunni minni.

Jólin 2019 útskrifaðist ég úr Flensborgarskólanum í Hafnarfirði, einnig stundaði ég nám við Menntaskólann við Hamrahlið áður en ég útskrifaðist. Eftir menntaskóla var ég ekki viss hvað ég ætti að gera í framhaldinu, ég prufaði bæði að skrá mig í félagsfræði og ensku við HÍ en fann mig ekki þar.

Ég hef lengi haft mikið dálæti af list og hönnun en hélt að ég hefði það ekki í mér að gera það sjálf. Veturinn 2022 byrjaði ég að vinna með grafík fyrir íþróttaútsendingar hjá RÚV og fannst það verulega skemmtilegt. Þá fór ég að kynna mér nám í grafískri hönnun og uppgötvaði grafíska miðlun hjá Tækniskólanum. Mér datt í hug að ég gæti blandað ást minni á íþróttum og hönnun með því að klára það nám og það er þangað sem ég stefni.

Bee T lejuice

Beetlejuice (1988), leikstýrð af Tim Burton, er ein sú mynd sem fyrst sýndi áhorfendum hvað Burton hafði fram að færa sem kvikmyndagerðarmaður. Hún sameinar drauga sögu, svartan húmor, gotneska fagurfræði og súrrealíska fantasíu í einstaka blöndu sem hefur staðist tímans tönn. Myndin segir frá nýlátnu hjónunum Barbara og Adam Maitland sem festast íhúsi sínu sem draugar og þurfa að horfa á nýja íbúa, fjölskylduna Deetz, gera líf sitt (eða dauðann) að martröð. Í örvæntingu sinni kalla þau á öfgafullan, óútreiknanlegan „bio­exorcist“ – sjálfan Beetlejuice – með ófyrir séðum afleiðingum.

Það sem gerir Beetlejuice svo einstaka er ekki aðeins sagan heldur hinn skýri og sérkennilegi sjónræni stíll Burtons. Leikmyndirnar eru brenglaðar og bjagaðar – líkt og lifandi útgáfa af teikningum Burtons sjálfs. Heimur lifenda og dauðra er skýrlega aðgreindur í gegnum liti, form og andrúmsloft: hinn lifandi heimur er kaldur og ópersónulegur, á meðan hinn dauði heimur er furðulegur, litríkari og óskipulegur – öfugt við það sem búast mætti við. Þetta sjónræna tungumál gerir Beetlejuice að ógleymanlegri upplifun.

Michael Keaton í hlutverki Beetlejuice stal

senunni með stórkostlega ýktri túlkun sem blandaði saman ógeðslegum og aðlaðandi eiginleikum – skemmtilega óviðeigandi og fullkomlega ófyrirsjáanlegur. Þrátt fyrir að birtast aðeins í takmarkaðan tíma í myndinni, varð persónan hans miðpunkturinn og síðar tákn kvikmyndarinnar.

Beetlejuice naut strax vinsælda, en hefur síðan þróast í „cult classic“ – kvikmynd sem nær langt út fyrir hefðbundin viðmið vinsælda. Hún hefur orðið að menningarlegu fyrirbæri: aðdáendahópar, teiknimyndaþættir, varningur og jafnvel vinsæl tónlistarsýning á Broadway hafa haldið myndinni lifandi í fleiri en þrjá áratugi.

Það sem heldur Beetlejuice ferskri er þessi tímaleysi í fagurfræði Burtons. Hún höfðar til þeirra sem kunna að meta það sérviskulega og óhefðbundna – þeirra sem finna fegurð í furðuleikanum. Hún dregur fram kjarna Burtons: að við lifum í heimi þar sem dauðinn getur verið fyndinn, þar sem enginn passar fullkomlega inn, og þar sem það að vera öðruvísi getur verið okkar stærsta gildi.

Dark shaDows

Dark Shadows (2012), undir leikstjórn Tim Burtons, er mynd sem fangar einstaka blöndu af gotneskri fagurfræði, hádramatískum fjölskyldu tengslum og dökkum húmor – allt sett fram í klassískum Burton­stíl. Myndin byggir á samnefndum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratugnum og segir frá Barnabas Collins (leikinn af Johnny Depp), gömlum aðalsmanni sem verður að vampíru og hann síðan grafinn lifandi, aðeins til að vera grafinn upp af verkamönnum árið 1972 – í heimi sem hann skilur ekki og fjölskyldu sem hefur misst sitt veldi.

Þótt Dark Shadows hafi fengið blendna dóma við útgáfu sína, þar sem gagnrýnendur sögðu hana ósamræmda í tón og yfirborðskennda í sögu – þá hefur myndin fundið sér stað í hjörtum aðdáenda Burtons. Það sem margir gagnrýnendur sáu sem veikleika – tilvísanir í poppmenningu, óvæntan húmor og stórkostlega yfirdrifna karaktera – sáu aðdáendur sem hluta af heillandi og sjálfsmeðvitaðri stílæfingu.

Myndin skartar ýktum, djörfum litum í bland við klassíska gotneska myrkvídd. Leikmyndin,

Collins­höfðingjasetur, er sannkölluð burtonísk paradís, full af skuggum, steingerðum leyndarmálum og djúpum litum sem skapa tímalaust andrúmsloft. Sjálfur Barnabas er tragísk persóna með dularfulla reisn – dæmigerður „Burton­antihetja“ sem glímir við eigið eðliog flókið samband við nútímann.

Húmorinn í Dark Shadows er kaldhæðinn og ýktur – myndin hæðist að bæði gömlum vampírumýtum og 1970s menningu á sama tíma. Þessi blanda af hryllingi og húmor, ásamt dásamlega ýktum leik hjá leikaraliði á borð við Eva Green, Helena Bonham Carter, Michelle Pfeiffer og Depp sjálfan, gefur myndinni sterkan karakter og einkennandi stíl sem aðeins Burton getur skapað.

Fyrir aðdáendurBurtons, hefur Dark Shadows orðið eins konar falinn gimsteinn. Hún sameinar marga af þeim þáttum sem einkenna Burton best – einmana og flóknar persónur, furðuleg rými, og togstreitu milli fortíðar og nútíðar. Þó hún hafi ekki náð sömu vinsældum og Edward Scissorhands eða Corpse Bride, hefur hún fundið sinn sess meðal þeirra sem meta list Burtons.

BILLIE EILISH

Billie Eilish Pirate Baird O‘Connell, betur þekkt sem Billie Eilish, er bandarísk söngkona og lagahöfundur. Hún fæddist 18. desember 2001 í Los Angeles í Kaliforníu. Foreldrar hennar voru báðir listamenn og tónlist var stór hluti af lífinu. Billie byrjaði að syngja og semja tónlist með bróður sínum, Finneas, sem hefur alltaf unnið með henni.

Ferill Billie hófst árið 2015 þegar hún var aðeins 13 ára. Þá gaf hún út lagið „Ocean Eyes“ á SoundCloud. Lagið vakti strax mikla athygli og var síðar gefið út af plötufyrirtækinu Interscope Records, í framhaldinu var Billie boðin plötusamning hjá þeim.

Árið 2017 kom út fyrsta smáskífusafnið hennar, „Don’t Smile at Me“, sem inniheldur lög eins og „Bellyache“. og „COPYCAT“. Þetta safn kynnti aðdáendum og öðrum fyrir tónlistarstíl hennar, sem er blanda af rafpoppi, tilfinningum og einfaldri tónlist.

„When We All Fall Asleep, Where Do We Go?“ (2019)

Árið 2019 gaf hún út fyrstu stórplötuna sína, „When We All Fall Asleep, Where Do We Go?“. Platan varð hratt mjög vinsæl og frægð Billie jókst. Platan innihélt meðal annars lögin „Bad Guy“, „Bury a Friend“ og „When the Party’s Over“.

Á Grammy­verðlaunahátíðinni árið 2020 vann hún öll helstu verðlaunin, meðal annars plötu ársins, lag ársins og besta nýliðinn. Hún var þá aðeins 18 ára og varð yngsta manneskjan til að ná þessum árangri.

„Happier Than Ever“ (2021) Árið 2021 gaf Billie út sína aðra plötu, Than Ever“. Hún var rólegri en fyrsta platan og textarnir voru persónulegri. Titil rólega en verður taktmeira og hraðara með gangi lagsins og er tilfinningaþrungið. Platan fékk góðar viðtökur hjá bæði aðdáendum og gagnrýnendum.

„Hit Me Hard and Soft“ (2024) Nýjasta platan hennar, „Hit Me Hard and Soft“, kom út árið 2024. Hún hafði áður sagt í viðtölum að þessi plata væri mjög persónuleg og tilfinningaþrungin. Hún blandar saman rólegum lögum og sterkari popplögum. Eins og áður vann hún plötuna með Finneas, bróður sínum.

Meðal laga á plötunni eru „Lunch“, „Birds of a Feather“ og „Chihiro“. Textarnir fjalla um tilfinningar, sjálfsmynd og sambönd. Platan fékk góðar viðtökur og sýnir að Billie heldur áfram að þróast sem listamaður. Hún flutti lögin á tónleikum víða um heim og fékk frábærar undirtektir.

Billie hefur náð miklum árangri á stuttum tíma. Hún hefur unnið fjölmörg verðlaun og er einnig mikil fyrirmynd fyrir unga fólkið. Hún

ÞAÐ BYRJAR ALLT MEÐ LÍTILLI HUGMYND

Litlaprent er svansvottuð prentsmiðja með áherslu á faglega og persónulega þjónustu.

Fjölbreytt úrval prentlausna – allt frá nafnspjöldum til sérsniðinna veggspjalda.

Forvinnsla Prentun Frágangur

Skemmuvegur 4, blá gata – 200 Kópavogur – Opið: 8:00 – 16:00 alla virka daga Sími 540 1800 – litlaprent@litlaprent.is – www.litlaprent.is

Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
Embla - Anna Lóa Óskarsdóttir by Tækniskólinn - Issuu