
1 minute read
Bíll ársins
Kia EV6 bíll ársins á Íslandi 2022
Bandalag íslenskra bílablaðamanna hefur nú valið bíl ársins í síðasta skiptið en ákveðið hefur verið að leggja verðlaunin niður, allavega tímabundið, vegna lítils áhuga íslenskra bílaumboða á verðlaununum. Bíll ársins hefur verið valinn frá 2001, fyrir utan hrunárið 2009 og hlýtur verðlaunahafinn Stálstýrið til geymslu í eitt ár. Kia EV6 varð efstur í valinu að þessu sinni en skammt á hæla honum kom systurbíllinn Hyundai Ioniq 5 en þriðji var kínverski rafbíllinn Aiways U5.
KIA EV6 hefur vakið verðskulduga athygli en hann var kosinn bíll ársins í Evrópu 2022 þar sem yfir 60 bílablaðamenn frá 22 þjóðum komu að valinu. Við það tækifæri sagði Frank Janssen, forseti Car of the Year verðlaunanna, það mikinn heiður að KIA EV6 skyldi hljóta þennan stóra titil. Kia á það sannarlega skilið því að framleiðandinn hefur unnið ötullega að gerð og hönnun bílsins. Framfarir Kia eru miklar og það skilar sér í þessum sigri. EV6 er aflmikill rafbíll og er hægt að velja um 170 og 325 hestafla rafmótor. Einnig má hlaða bílinn allt að 80% hleðslu á aðeins 18 mínútum og ná hleðslu sem dugar allt að 100 km á innan við fjórum og hálfri mínútu. EV6 er í boði bæði aftur- og fjórhjóladrifinn.
„Það er mikill heiður að hljóta þessa viðurkenningu á okkar heimamarkaði. Það hefur verið ævintýri líkast að fylgjast með vinsældum EV6 út um allan heim. Við erum mjög stolt af þessum árangri og hlökkum til að halda áfram að færa Íslendingum framúrskarandi rafbíla á komandi misserum,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Bílaumboðinu.


Hyundai Ioniq 5 hafnaði í öðru sæti skammt á eftir EV6 en bílarnir deila ýmsum búnaði eins og drifrás og undirvagn. Í þriðja sæti hafnaði rafmagnsbíllinn Aiways U5. Þetta kínverska merki er nýkomið á íslenskan markað og er umboðsaðillinn Vatt.
