
2 minute read
Bílasala gengur vel
Bílasala gengur vel en blikur á lofti
„Þrátt fyrir blikur á lofti er bílasala búin að vera góð það sem af er árinu. Þá munar miklu hversu vel gengur hjá bílaleigunum sem hafa verið að kaupa inn mikið af nýjum bílum. Það er enn fremur mikil eftirspurn á meðal einstaklinga og fyrirtækja eftir nýjum valkostum sem eru í boði. Þar af leiðandi er salan því meiri í raf- og tengiltvinnbílum og hefur haldist stöðug á þessu ári. Það er einna helst að maður hafi áhyggjur af skorti frá framleiðendum. Það er margt sem spilar þar inn í eins og vöntun á hálfleiðurum sem er því miður viðfarandi eins og málin líta út í dag,“ sagði Jón Trausti Ólafsson, forstjóri bílaumbðsins Öskju, í spjalli við FÍB-blaðið.
Flestir hafa litla eða enga lagerstöðu
„Þegar öllu er á botninn hvolft hefur bílasala verið með ágætum. Þó er ákveðin óvissa sem tengjast stríðinu í Úkraínu sem kemur niður á framleiðslunni á næstu mánuðum. Kaupendur þurfa að bíða lengur eftir nýjum bíl og lagerstaða er lítil eða engin hjá flestum. Þetta ástand er ekki bara hér heldur um alla Evrópu. Það búa allir við sama vandann. Hvað framtíðarsýn varðar sé ég áframhald verða í aukinni sölu á nýorkubílum. Ég sé ekki annað en að Íslendingar fari hratt inn í að verða að mestu með rafknúinn bílaflota. Einstaklingar í
dag eru annaðhvort að velja raf- eða tengiltvinn þegar þeir standi frammi fyrir því að kaupa nýjan bíl. Ég held að salan til einstaklinga og fyrirtækja á þeim bílum verði fljótlega komin í 95–100% í heildarsölunni. Þetta er að gerast hraðar en margir gerðu ráð fyrir og er það jákvætt. Ég ætla að leyfa mér að vera bjartsýnn á framhaldið en jafnframt verðum við að hafa í huga að þetta er langt í frá sjálfgefið. Þetta ræðst af stórum hluta á framvindu mála í efnahagslífinu almennt í heiminum og stríðinu í Úkraínu. Verðbólga og hráefnisskortur hefur allt saman áhrif á þróunina. Blikur eru á lofti akkúrat núna,“ sagði Jón Trausti.
Verksmiðja Kia í Slóvakíu
Tafir í framleiðslu verða jafnvel út næsta ár
Jón Trausti sagðist halda að áfram verði raskanir í framleiðslunni á þessu ári og jafnvel út það næsta. Það er svo mikil sala á öðrum hlutum í heiminum sem þurfa á hálfleiðurum að halda og fyrir vikið hafa bílaframleiðendur ekki fengið það sem þeir þyrftu. Nú er miklu flóknari bílar í framleiðslu en áður og þeir kalla á þessa íhluti sem skortur er á í dag. Jón Trausti Ólafsson, framkvæmdastjóri Öskju
Stjórnvöld þurfa að vera með meiri sýn
Inntur eftir framhaldi á ílvilunum í kaupum á rafbílum sagði Jón Trausti að stuðningur í þeim efnum muni minnka enn frekar um næstu áramót. Bílar sem kosta allt að fimm milljónir króna munu njóta full frelsis í sköttum. Við höfum sagt að stjórnvöld þurfa að vera meiri sýn á þetta en einungis nokkra mánuði í einu. Við viljum sjá 2–3 ára vegferð í þessum málum sem er eðlilegt en þetta þarf samt að vinna með skynsamlegum hætti.
333 þúsund bílar í umferð
Nýorkubílum hefur fjölgað hratt hin síðustu misseri. Tengiltvinnbílar telja orðið um 19 þúsund, rafmagnsbílar 14.500 og hybrid 11.400. Í dag eru bensínbílar 185 þúsund og dísilbílar 143 þúsund. Bifreiðar í umferð í landinu telja um 333 þúsund.