6 minute read

Umhirða bílsins

Mikil vakning í gangi

Classic Detail er fyrirtæki og verslun sem sérhæfir sig í bón- og hreinsivörum fyrir bíla. Fyrirtækið hefur starfað í níu ár, frá september 2013. Það er umboðsaðili fyrir Chemical Guys, SOFT99 – Fusso, Collinite og Krauss Tools. Boðið er upp á yfir 800 vörunúmer í „detailvörum“, hreinsivörum og bóni, sem er líklega eitt mesta úrval af slíkum varningi á Íslandi. Fljótlega eftir að fyrirtækinu var komið á fót hófu starfsmenn þess námskeiðishald í umhirðu á bílum og hafa þau hlotið verðskuldaða athygli.

„Upphafið á þessari starfsemi er að fyrir níu árum síðan var enginn aðili sem sérhæfði sig í bílahreinsivörum, bóni og slíku. Það voru að vísu til fyrirtæki sem voru að gera mjög góða hluti en þau voru í einhverju öðru líka. Maður var alltaf að sjá aðila sem sérhæfðu sig í þessum vörum í Evrópu og í Bandaríkjunum. Í upphafi átti þetta bara að vera vefverslun en við sáum fljótlega að Íslendingar vildu snertingu við hlutina og skoða. Því var upphaflegu plani breytt fljótlega og við opnuðum litla verslun. Við vorum á þessum tíma í samstarfi við Bílaglerið og fengum inni hjá þeim, deildum húsnæði þar fyrstu fimm árin en opnuðum síðan þetta húsnæði sem við erum í núna fyrir fjórum árum,“ sagði Þórir Jökull Helgason, eigandi Classic Detail, í spjalli við FÍB-blaðið.

Hreinn bíll er betri bíll

Við bjóðum upp á mikla sérhæfingu

Húsnæðið er rúmgott og með kennslurými sem er vel nýtt. Þórir Jökull segir starfsemina ganga vel og ljóst að mikil þörf hafi verið fyrir þjónustu af þessu tagi. Viðtökurnar hafa verið sérlega góðar. Starfsemin hafi stækkað jafnt og þétt og nú eru þrír starfsmenn. Við bjóðum upp á mikla sérhæfingu og nóg er að gera. Classic Detail hefur að bjóða yfir 800 vörunúmer í þessari þjónustu.

- Eru bíleigendur almennt áhugasamir um að láta bílana sína líta vel út?

,,Það er mikil áhugi og við getum sagt að það svakning sé í þeim efnum. Fyrst vorum við að fá þessa hörðu „dellukalla“ ef við getum orðað það svo. Núna erum við að fá breiðan hóp af báðum kynjum og á öllum

aldri í heimsókn til okkar. Þetta hefur verið að breytast mjög hratt á síðustu árum. Youtube-rásirnar um þetta efni, þar sem fólki er kennt hvernig best er að þrífa bílana, hefur vakið áhuga fólks. Vissir aðilar eins og Chemical Guys, sem við erum umboðsaðilar fyrir og eru mjög framarlega í þessu sviði, hafa nú þegar búið til yfir sjö þúsund kennslumyndbönd um umhirðu á bílum,“ sagði Þórir Jökull.

Vera faglegir og fyrsta flokks þjónustu

- Svo færðuð þið út kvíarnar og fóruð að halda námskeið?

„Mikið rétt. Fljótlega eftir að við byrjuðum horfðum við til þess að vera faglegir og bjóða upp á fyrstaflokks þjónustu. Í því sambandi horfðum við sérstaklega til Chemical Guys kennslumyndbandanna sem bera nafnið STU (Smart Detailing University). Fulltrúar frá fyrirtækinu komu hingað til lands og tóku út aðstöðu og tæki hjá Classic detail, ásamt kennsluaðferðum og við fengum SDU-kennsluréttindi staðfest. Við vildum feta í fótspor Chemical Guys en þá kom í ljós að til þess að við gætum gefið út sömu prófskírteini og gefin eru út í Evrópu og Bandaríkjunum sættum við miklum kröfum. Við þurftum að fara út til þeirra á þrjú námskeið og gangast undir leiðsögn og kennslu af þeirra hálfu. Þegar við loks vorum komnir þessi kennsluréttindi þurftu þeir að koma hingað til lands og horfa á okkur kenna á fyrstu námskeiðinu, áður en við fórum sjálfir af stað með námskeiðin. Að því loknu gátum við farið að kenna og gefa sömu diplómur og gefnar eru út í skólum í Evrópu og Bandaríkjunum. Þar er farið almennt í bílaþrif, mössun, djúphreinsun og hreinsun á vélum. Það hefur sýnt sig að almenningur hefur mjög gaman af þessu, þykir þetta upplýsandi og fræðandi. Þeir sem starfrækja bílaþrifsfyrirtæki koma þessum prófskírteinum upp í andyrum eigin fyrirtækis svo að viðskiptavinir sjá að starfsmenn séu búnir að sækja kennslu í umhirðu á bílum. Við erum í þó nokkru mæli að fá starfsmenn frá fyrirtækjum sem sérhæfa sig í bílaþrifum almennt,“ segir Þórir Jökull.

Þórir Jökull segir að hámark sex nemendur sæki hvert námskeið sem hefst snemma morguns og stendur fram til sex á kvöldin. Tveir kennarar koma að hverju námskeiði og ná þannig að halda vel utan um hlutina.

Hámark sex nemendur sæki hvert námskeið sem hefst snemma morguns og stendur fram til sex á kvöldin.

Að loknu námskeiði fá nemendur diplóma skírteini í bílaþrifum, mössun, djúphreinsun og hreinsun á vélum. Svona heilt yfir eru 3 - 4 nemendur að hugsa þessi námskeið fyrir sjálfa sig og þar eru á ferð oft miklir bílaáhugamenn. Aðrir eru þeir sem eru að hefja störf sem fagaðilar og koma til að læra og verða betri á þessu sviði.

,, Við erum einnig á fá til okkar bílamálara en mössun sem þeir beita og þeirri sem við kennum eru ekki alveg þau sömu. Við erum líka þeir einu í þessum geira sem er að kenna og erum ennfremur með námskeið fyrir Iðuna, endurmenntunarsetrið, sem er hugsað fyrir Bílgreinasambandið og fagaðila innan þeirra vébanda. Öðru hvoru tekur Iðan heilt námskeið hjá okkur sem tekið er í gegnum endurmenntunarkerfið hjá þeim.“

Yfir haust- og vetrartímann heldur Classic Detail tvö námskeið í hverjum mánuði. Til þessa hefur verið fullt á þeim öllum en að sögn Þóris Jökuls er það algjör forsenda.

Lökkin ekki eins sterk og þau voru

- Skiptir ekki umhirða á bílnum miklu máli hvað varðar líftíma og eins þegar kemur að endursölu?

„Hún gerir það tvímælalaust. Lökkin eru orðin umhverfisvænni en áður var og þau eru að sama skapi ekki eins sterk og á árum áður. Í dag er eingöngu notast við vatnslökk sem eru mun viðkvæmari og veikari en akríllökkin. Hvað umhirðu varðar höfum við séð einstaklinga ganga hreinlega frá lakki bílsins með því að nota þvottakústinn. Við leggjum mikið upp úr því nota sleipar sápur og vera með svokallaða núðluhanska í verkinu. Tilgangurinn er að minnka líkur á því að rispa lakkið sem er orðið svo mjúkt nú til dags. Metnaður okkar liggur í því að kenna fólki að hugsa vel um bílinn sinn. Það eru algjör forréttindi að vera í vinnu sem er jafnframt áhugamálið líka. Við erum í þessum hópi fólks sem hlakkar til að mæta í vinnuna,“ sagði Þórir Jökull Helgason hjá Classic Detail í viðtalinu við FÍB-blaðið.

Þess má geta að félagsmenn FÍB fá 10% afslátt af vörum og þjónustu hjá Classic Detail Bíldshöfða 16.

Meðal þess sem gert er á námskeiðinu:

•Farið er yfir val á efnum, vélum og tækjum •Detailng Chart / röð efna. Rétt tækni við þvott á bílum (2 fötu tækni) •Þrif á felgum og dekkjum - dressing á hjólbarða •Notkun á froðusprautu •Notkun og val á leir/leirhanska (hvernig á að leira og hvers vegna) •Notkun á hjámiðju-mössunarvélum, frágangur fyrir mössun •Val á mössun

•Hvernig á að bera wax á liquid/paste með höndum og vél •Rétt notkun á microfiber-klútum

•Þrif á innréttingum, notkun á djúphreinsivélum •Rétt efni fyrir ólík yfirborð •Þrif á gleri •Þrif á vélasal.

Námskeiðin verða að vera fullsetin

„Á námskeiðinu erum við með bíl sem við ætlum að klára. Byrjum á honum um níuleytið að morgni þegar lokið er við bóklega hluta námskeiðsins sem inniheldur power-point-sýningu. Enn fremur eru þar útskýringar á mismunandi lökkum, vélum og efnum svo að eitthvað sé nefnt. Að því búnu hefst vinnan við bílinn sjálfan og er henni lokið klukkan 5. Námskeiðið er sett þannig upp að sex einstaklingar vinni í bílnum. Ef færri mæta gengur ekki eftir að klára námskeiðið á venjulegan hraða. Forsendan er alltaf að námskeiðin séu fullsetin,“ segir Þórir Jökull.

This article is from: