1 minute read

Bílamessa

Stilling stóð nýlega fyrir ráðstefnu sem var sérstaklega ætluð fagaðilum innan bíliðnarinnar . Hún bar nafnið Bílamessa og fór fram í Hörpu. Lykilfyrirtæki í þróun og framleiðslu bílahluta tóku þátt í ráðstefnunni og ræddu framtíð greinarinnar með tilliti til framtíðarorkugjafa. Tuttugu erlend fyrirtæki komu að ráðstefnunni og gafst þátttakendum kost á að fræðast um vanda sem þeir lenda í daglega ásamt hvaða lausnir þeir notuðu.

Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB hélt velsótt og áhugavert erindi um mikilvægi orkuskipta á Íslandi Fyrirtækin voru með áhugaverða fyrirlestra um tækninýjungar og framfarir á bílamarkaðinum ásamt því að vera með vinnustofur þar sem tæki og annar búnaður var sýndur. Þarna gafst því tilvalið tækifæri til að nálgast þau fyrirtæki sem eru að þróa nýjustu tækin og tæknina í bíla framtíðarinnar.

Erlendir fyrirlesarar með áratuga reynslu í varahlutum og þjónustu á verkstæðum fluttu áhugaverð og upplýsandi erindi. Má þar nefna efni eins og hvernig rafmagnsbíllinn mun hafa áhrif á fyrirtæki og hvaða tækifæri verða til á sama tíma. Enn fremur voru fyrirlestrar um nýjungar á bílamarkaðinum og hvaða tækifæri felast á þessum vettvangi. Á ráðstefnunni gafst þátttakendum tækifæri til að kynnast fólki í sambærilegum rekstri eða iðnaði og víst er að tækifærunum fjölgar þegar fólk talar saman.

This article is from: