2 minute read

FÍB aðstoð Ísafirði

Next Article
Umhirða bílsins

Umhirða bílsins

FÍB aðstoð á Ísafirði:

Góð tæki veita öryggi og betri þjónustu

Bílasmiðja SGB á Ísafirði annast FÍB aðstoð á Ísafirði og hefur gert í tvö ár. Sindri Gunnar Bjarnason ræður þar ríkjum. Hann segist almennt hafa aðstoðað almenning við bíla allar götur frá 2013. Aðstoðin er af ýmsum toga og má þar nefna viðgerðir, dekkjaskipti og uppdælingar þegar rangt eldsneyti hefur verið dælt á tankinn. Svo bætist FÍB-aðstoðin við svo að segja má að í mörg horn sé að líta. Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt og það skipti öllu máli. Sindri Gunnar er Súgfirðingur en fór suður 2004 og kom aftur til baka 2013.

Sindri Gunnar er meistari í bílasmíði og bílasprautun frá Borgarholtsskóla í Reykjavík. Hann tók enn fremur áfanga og á lítið eftir til að vinna í rafvirkjun og rennismíði. Hann festi kaup á verkstæðinu fyrir um áratug síðan.

„Ég keypti má segja nokkuð óvart verkstæðið hérna á Ísafirði, bauð í það af rælni og tilboðið var samþykkt. Þannig var maður að taka pokann sinn og drífa sig vestur á nýjan leik,“ sagði Sindri Gunnar.

Starfið er fjölbreytilegt og gefandi

„Starfið er fjölbreytilegt og gefandi. Við erum fjórir starfsmenn í Bílasmiðjunni og stundum er mikið að gera annars minna eins og gengur og gerist. Við tókum að okkur FÍB-aðstoðina um 2020 og hefur hún verið skemmtileg viðbót. Óskir eftir aðstoð eru af mismunandi toga, gefa bílum start og veita aðstoð hér í kring eins og á Flateyri, Þingeyri og Súgandafirði. Það eru öll merki um að ferðamenn verði mikið á ferð hér í sumar og það gæti hæglega kallað á meiri þjónustu við bíleigendur. Þetta er samt mjög breytilegt á milli ára. Það getur verið meira að gera í bílabjörgunum af ýmsum toga og eins í tjónum og viðgerðum almennt. Við höfum ekki lent í því að verða verkefnalausir, sem skiptir öllu máli,“ segir Sindri Gunnar.

Hann segist enn fremur hafa verið búinn að starfa lengi í björgunarsveitinni eða allt frá unga aldri. Það hafi komið sér vel í starfinu. Mikil og góð reynsla skilar sér alltaf alla leið og hefði hann svo sannarlega fundið fyrir því.

Reyndir starfsmenn með kunnáttu er afar miklvægt

„Þegar maður rekur svona fyrirtæki og þjónustar félagsmenn FÍB þwarf eins og gefur að skilja að vera vel tækjum búinn. Ég er með sérútbúinn Ford F450 með gleraugum að aftan og stuttum krana. Síðan er ég með annan sömu tegundar með stól og vélavagn aftan í og annan með bílakerru og spili. Fleira gæti ég týnt til og meira stendur fyrir dyrum til að komast með betra móti yfir hálendið. Tækin sem við þurfum að vinna með skipta öllu máli og fyrir vikið verður þjónusta og öryggi allt miklu betra. Það er svo gefandi að koma fólki í vanda til hjálpar. Góð tæki og reyndir starfsmenn með kunnáttu er afar miklvægt,“ segir Sindri Gunnar Bjarnason sem annast FÍB-aðstoðina á Ísafirði í spjalli við blaðið.

This article is from: