
6 minute read
Ökunám stafræn umsókn
Stafræn umsókn um ökunám
Stafræn umsókn um bráðabirgðaskírteini er nú að finna á Ísland.is en slík umsókn er fyrsta skrefið að því að hefja ökunám. Einstaklingar geta sótt um frá 16 ára aldri en þá mega tilvonandi ökumenn fyrst hefja ökunám til almennra ökuréttinda.
Ferlið er stafrænt þar sem ökunemi skráir ökukennara og greiðir fyrir skírteinið. Allar upplýsingar úr umsókn eru skráðar beint í ökuskírteinaskrá. Ökunemi skilar inn mynd til sýslumanns í kjölfar umsóknar og læknisvottorði ef við á. Námsheimild er þá veitt í kjölfarið og ökunemi getur hafið nám með ökukennara sínum.
Árið 2021 sóttu 6.056 einstaklingar um að hefja ökunám og verður áhugavert að sjá hversu margir velja nú að fara í gegnum stafrænt ferli. „Við höfum lagt mikla áherslu á að bæta þjónustuna og færa hana á stafrænt form. Þetta skref er eitt af mörgum sem miða að því að bæta þjónustu okkar við fólk,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.
Áður var stafræn umsókn um fullnaðarökuskírteini gerð aðgengileg á Ísland.is auk þess sem ökukennarar geta staðfest niðurstöður akstursmats með stafrænum hætti en slík staðfesting er nauðsynleg svo gefa megi út fullnaðarökuskírteini. „Stafræna leiðin einfaldar bæði umsóknarferlið fyrir umsækjendur sem og umsýslu hjá sýslumönnum. Þetta leiðir af sér betri pappírslausa þjónustu sem hægt er að nýta sér þegar hentar óháð opnunartíma,“ segir Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi og formaður sýslumannaráðs. Í framhaldi af þessum áfanga er unnið að því að opna stafræna ökunámsbók sem verið hefur í prófunum. Með stafrænni ökunámsbók geta ökukennarar skráð inn tíma og framvindu ökunáms. Einnig er unnið að því að ökuskólar staðfesti nám með stafrænum hætti. Lokaáfangi verkefnisins er svo rafræn próftaka fyrir bókleg ökupróf. „Við höfum lagt mikla áherslu á þetta verkefni samhliða því að tryggja gæði námsins og þar með umferðaröryggi okkar allra. Með stafrænum ökunámsferli gerum við ökunám á Íslandi markvissara og umhverfisvænna í takt við nútímatækni og þarfir samfélagsins,“ segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu.
Stafræn umsókn um bráðabirgðaskírteini er liður í stóru samstarfsverkefni innviðaráðuneytisins, Samgöngustofu, sýslumanna, Ríkislögreglustjóra og Stafræns Íslands um stafrænt ökunámsferli frá A–Ö.

Þungi framleiðslunnar verður í rafbílum
Bílaframleiðendur um allan heim horfa til framtíðar og er ljóst að þungi framleiðslunnar verður á rafbílum. Japanski bílaframleiðandinn Toyota og þýski framleiðandinn Volkswagen eru með stór áform á þessu sviði eins og kom glögglega í ljós í tilkynningu frá þeim á dögunum.
Fyrir árið 2030 ætlar Toyota að koma með inn í markað hátt í 30 gerðir af rafmagnsbílum í ýmsum útfærslum. Sérstök áhersla verður lögð á hina svokölluðu bz-línu, ,,beyond Zero“, sem marka mun miklar breytingar í framleiðslu á rafmagnsbílum.
Volkswagen sagði einnig frá enn meiri áherslu í framleiðslu á rafbílum á næsta áratug. Gríðarlegum fjármunum verður varið í þessa framkvæmd. Volkswagen er mjög framarlega í framleiðslu á þessum bílum í dag og er stefna fyrirtækisins sú að um 25% framleiðslunnar verði rafmagnsbílar fyrir árið 2025.
Mikil aukning hefur orðið í sölu á nýorkubílum í heiminum og þar fara Norðurlandaþjóðirnar fremstar í flokki. Nýleg norsk könnun leiðir í ljós að tveir af hverjum þremur svarendum í Noregi telja að nýorkubíll verði næst fyrir valinu í bifreiðakaupum. Um 65% Norðmanna svara því að rafbíllinn verði fyrsti kostur á næstu árum. Áhuginn er mestur hjá yngra fólki og hjá þeim sem hafa meiri menntun og hærri tekjur. Í aldurshópnum 34–49 ára svara allt að 76% því til að rafbíll verði fyrir valinu við næstu kaup. Í könnuninni kemur þó fram að dísil- og bensíneiegndur sveiflist fram og til baka í ákvörðunartöku sinni en íhugi á sama tíma að kaup á rafbíl væri skynsamur kostur sem vert er að skoða frekar.
Rafbílamarkaðurinn í Evrópu vex hratt og í lok síðasta árs voru skráðir yfir 270.000 raf- og tengiltvinnbílar. Markaðshluti tengilrafbíla var 19% og hreinna rafbíla 10%. Á árinu 2021 seldust yfir yfir 1,5 milljónir raftengjanlega bíla í Evrópu.
Kia EV6 var valinn rafbíll ársins 2022 hjá bílatímaritinu Autocar sem er elsta bílatímarit heims. EV6 hefur sankað að sér verðlaunum frá því að bíllinn kom á markað á síðasta ári. Hann var m.a. valinn bíll ársins í Evrópu 2022.
EV6 er einn af 14 nýjum EV-rafbílum Kia sem fyrirtækið mun hyggst setja á markað fyrir árið 2027. Kia EV6 hefur allt að 528 km drægi á rafhlöðu og getur hlaðið 10–80% á aðeins 18 mínútum. Hvort tveggja er með því besta sem þekkist í rafbílaheiminum.
Suður-kóreski bílahönnuðurinn þykir hafa náð afburða árangri í hönnun í bílaiðnaðinum og hefur m.a. hlotið Gullna stýrið á vegum þýsku bílatímaritinna Bild am Sonntag og AutoBild sem veita verðlaunin en þau þykja mjög eftirsótt.
Við sama tækifæri var Peter Schreyer, forstjóra hjá Kia Motors og yfirhönnuði hjá fyrirtækinu, veitt sérstök heiðursverðlaun, ,,Lifetime Achievement Award“, fyrir áratugastarf í þágu bílaiðnaðarins.

Hér kynnir stjórnarformaður Toyota, Akio Toyoda, framlag Toyota og Lexus í rafbílaflóruna næstu ár.
Nóg að gera hjá KIA


Peter Schreyer, yfirhönnuður og forstjóri Kia Motors hlaut sérstök heiðursverðlaun, ,,Lifetime Achievement Award“, fyrir áratugastarf í þágu bílaiðnaðarins.
Landsréttur staðfesti niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem hafði ógilt úrskurð kærunefndar útboðsmála frá því í júní 2021 þess efnis að Orka náttúrunnar þyrfti að loka Hverfahleðslum í Reykjavík. Taldi úrskurðarnefndin útboðið hafa verið ólöglegt en nú hafa bæði Héraðsdómur Reykjavíkur og Landsréttur komist að annarri niðurstöðu. Hverfahleðslur ON í Reykjavík fá því að vera opnar áfram, öllum rafbílaeigendum til heilla.
„Það er mjög gott að niðurstaða liggi fyrir í þessu máli enda sjáum við að rafbílaeigendur eru að treysta á þessa þjónustu. Við sjáum aukningu í notkun og það er afar mikilvægt að viðskiptavinir okkar geti nýtt sér þessa þjónustu áfram,“ segir Berglind Rán Ólafsdóttir framkvæmdastýra ON.
Rúmenski bílaframleiðandinn Dacia Duster fagnaði því fyrir skemmstu að hafa selt bílinn í tveimur milljónum eintaka. Bíllinn kom fyrst á markað 2010 og hefur salan á honum vaxið jafnt og þétt.
Það var markmið hönnuða og framleiðanda bílsins að koma með á markað fjórhjóladrifinn bíl og vel hannaðan með fjölskyldur í huga. Enn fremur hefur verðið á bílnum verið hagstætt og það er ein meginástæða fyrir því hversu vel hann hefur selst í 60 löndum víða um heim.
Þegar rýnt er í tölur um bílinn kemur í ljós að konur í Bretlandi eru í meiri hluta kaupenda bílsins. Yngri kaupendur og barnafjölskyldur í suðurhluta Evrópu hafa einnig tekið bílnum vel. 56% kaupenda bílsins segjast hafa keypt bílinn vegna verðsins. „Orka náttúrunnar hefur verið í fararbroddi þegar kemur að stuðningi við orkuskipti í samgöngum og við ætlum að halda því áfram. Hverfahleðslurnar eru ásamt Hraðhleðslum okkar og Heimahleðslum gríðarlega mikilvægur hlekkur þegar kemur að orkuskiptunum sem eru á fleygiferð. Við höfum alltaf lagt áherslu á að þjónusta alla okkar viðskiptavini með sem bestum hætti og Hverfahleðslurnar gegna lykilhlutverki hjá þeim sem ekki geta hlaðið heima hjá sér.“
Nú er hægt að greiða fyrir hleðslu með ON-appinu og til upprifjunar er fólk minnt á að taka með sér snúru í Hverfahleðslurnar. Eigendur brunabíla, bifreiða sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti, eru vinsamlegast beðnir um að leggja bílum sínum annars staðar en í hleðslustæði ON.

Dacia Duster komin yfir tvær milljónir

Mikilvægustu markaðir Dacia Duster eru fimm, þar er Frakkland í 1. sæti með um 455 þúsund nýskráningar frá 2010. Ítalía er næst stærsti markaðurinn með 258 þúsund bíla, Þýskaland með 211 þúsund, Tyrkland 152 þúsund og Spánn 124 þúsund bíla.
Mesta rafbílaúrval landsins
100% rafmagn, Plug-in Hybrid eða Hybrid. Framtíðin er á bl.is
