8 minute read

Rafmagnsbílaprófunin

Next Article
Bílamessa

Bílamessa

Norræna rafmagnsbílaprófunin Sumar 2022

Þann 1. júní síðastliðinn voru framkvæmdar árlegar sumar rafbílaprófanir í Noregi. Að þessu sinni tók 31 rafbíll þátt með það að markmiði að kanna:

• Raundrægni bílanna • Hvað gerist þegar bíllinn tæmist • Hleðsluhraða frá 10 – 80%.

Til að gæta jafnræðis voru allir bílarnir prófaðir við sömu aðstæður á sama tíma. Veðrið í prófununum var dæmigert íslensk sumarveður, þ.e. rigning á köflum og hitinn á bilinu 7–15 gráður. Því skal hafa í huga að akstur í rigningu og á blautu yfirborði getur haft umtalsverð neikvæð áhrif á drægni rafbíla. Í stuttu máli þá stóðst meiri hluti bílanna ekki væntingar varðandi drægni og er þá miðað við uppgefnar tölur frá framleiðendum. Því náðu aðeins 9 bílar af 31 að uppfylla loforð framleiðenda sinna.

Fyrstu bílarnir til að heltast úr lestinni voru Cupra Born sem er framleiddur af Seat og byggir í grunninn á VW ID3 rafmagnsbílnum og Hongqi EHF-9, kínverski rafmagnsbíllinn sem fæstir Íslendingar kannast við en hann er mjög íburðarmikill og stór, yfir fimm metrar á lengd og tveir á breidd.

Mikil eftirvænting var eftir niðurstöðum á prófunum á EHF-9 þar sem þetta er nýtt merki inn á norska markaðinn og bíllinn hefur ekki verið prófaður formlega á þennan hátt á norðlægari slóðum. Því miður ollu niðurstöðurnar vonbrigðum og náði bíllinn aðeins 371 kílómetra á hleðslunni sem var sögð duga fyrir allt að 465 kílómetra. Hlaut hann því þann vafasama heiður að vera sá bíll sem hafði hvað mest frávik frá WLTP-tölum framleiðenda eða um 20%.

Tesla á enn metið

Mercedes Benz EQS 450+ var annar bíll sem sjónir manna beindust helst að í prófunum en hann er með uppgefna 711 kílómetra WLTP-drægni. Drægnimetið í sumarprófununum var sett í fyrra af Tesla Model 3 Long Range AWD og náði bíllinn að aka 654,9 km áður en rafhlaðan tæmdist. Búist var við að EQS tæki vinninginn í ár en allt kom fyrir ekki. Vissulega náði EQS 450+ lengst allra bíla í þessu sinni eða 620 km en þó olli það vonbrigðum að bíllinn hafi stoppað 91 km skemur en WLTPtölur framleiðenda gáfu upp. Þetta er 12,8% skekkja og fær EQS 450+ sinn stað á lista yfir flesta ekna kílómetra og ein mestu drægnifrávik.

Það kannast ekki margir við rafbílaframleiðandann Hongqi en þessi gríðarstóri glæsivagn er hannaður með lúxus í huga og minnir óneitanlega á Rolls Royce bifreið. Því miður dugði lúxusinn skammt þar sem 99 kWst rafhlaðan var búin á því eftir aðeins 371 km en uppgefin drægni er 465 km. Því vantaði rúmlega 20% upp á loforð framleiðenda.

Aksturinn

Fyrirframákveðin leið var ekin um Osló og áfram til Gjøvíkur. Að endingu var haldið í norður fram hjá Lillehammer, Ringebu, Dombås og Hjerkinn áður en beygt var í átt að Folldal og til baka til Ringebu. Hafi einhver orka verið eftir á rafhlöðunum var hringurinn endurtekinn þar til bílarnir stoppuðu.

Reynt var að ná jafnri blöndu af borgar- og þjóðvegaakstri þar sem hraðinn var á bilinu 60–110 km/ klst. Þeir bílar sem náðu hvað lengst þurftu einnig að takast á við akstur um fjallvegi en þarvar hækkunin allt að 1000 metrar.

Ökumenn áttu að aka á venjubundinn hátt, fylgja umferðarreglum og hraða. Þá átti ekki að fara í óþarfa framúrakstur og hleðslubremsan (e. regenerative braking) skyldi alltaf vera stillt í hámark.

Bílarnir voru hlaðnir innandyra yfir nótt upp í 100%. Þeir voru allir kaldræstir, þ.e. engin forhitun var á farþegarými eða rafhlöðum. Þá voru akstursstillingar á sparnað (e. eco mode). Cubra Born var einn af fyrstu bílum til að klára hleðsluna. Þessi sportlegi rafbíll er undirmerki Seat sem er í eigu VW-samsteypunnar. Bíllinn er útbúinn 62 kWst rafhlöðu sem tæmdist eftir 376 km en framleiðendur segja bílinn eiga að komast 424 km á einni hleðslu. Því vantaði tæpa 50 km upp á að bíllinn stæðist væntingar.

Akstursleiðin

A - Osló B - Gjøvik C - Lillehammer D - Ringebu E - Dombås F - Hjerkinn G - Folldal D - Ringebu

Maxus Enuiq6 kom hvað mest á óvart í prófununum en bíllinn fór 34,4 km lengra en framleiðandi sagði til um. Maxus er einn af fjölmörgum kínverskum bílaframleiðendum sem eru að sækja inn á evrópskan rafbílamarkað. Vatt er umboðsaðili

Maxus á Íslandi. Skemmtileg staðreynd er að Maxus er í eigu SAIC-motor sem er einnig eigandi rafbílaframleiðandans MG sem BL Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Raun orkunotkun 1 kom með á íslenskan markað fyrir Maxus Euniq6 354 388,4 km 34,4 km 9,72 % 17,6 kWst/100 km 2 tveimur árum. Tesla Model Y LR DM 507 545 km 38 km 7,50 % 13,2 kWst/100 km 3 BMW i4 M50 497 521,1 km 24,1 km 4,85 % 16,1 kWst/100 km

Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Raun orkunotkun

1 Flestir kílómetrar Hongqi EHS-9 465 km 371 km -94 km -20,22 % NA 2 Vinninginn með flesta ekna kílómetrar á einni hleðslu fékk Mercedes-Benz EQS 450+ með 120 kWst rafhlöðu. M.Benz AMG EQE 43 4 518 km 443 km -75 km -14,48 % 20,7 kWst/100 km 3 Samtals ók bíllinn 620 km áður en rafhlaðan tæmdist. Þrátt fyrir flesta kílómetra var bíllinn 12,8% undir uppgefinni M.Benz EQS 450+ 711 km 620 km -89 km -12,80 % 17,5 kWst/100 km drægni en framleiðendur segja bílinn eiga að ná 711 km á einni hleðslu.

Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Raun orkunotkun Rafhlaða Rafhlaða raun 1 M.Benz EQS 450+ 711 km 620 km -89 km -12,80 % 17,5 kWst/100 km 120 kWst 107,8 kWst 2 M.Benz EQS 580 4M 647 km 596 km -51 km -7,88 % 18,5 kWst/100 km 120 kWst 107,8 kWst 3 BMW i4 eDrive40 565 km 583,6 km 18,6 km 3,29 % 14,3 kWst/100 km 83,9 kWst 80,7 kWst

Akstur umfram væntingar

Maxus Enuiq6 fór lengst umfram væntingar og uppgefnar tölur framleiðenda. Bíllinn er búinn 70 kWst rafhlöðu og uppgefin WLTP-drægni framleiðenda er 354 km en hann fór tæplega 10% umfram væntingar og stöðvaðist eftir 388,4 km. Eingöngu fóru níu bílar af 31 umfram tölur framleiðenda en þeir voru Maxus Enuiq6, BMW i4 eDrive40 og M50, Tesla Model Y, BYD Tang, Skoda Enyaq RS, MB EQB, Polestar 2 LR, MG ZS LR og Audi e-tron.

Tegund

WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Orkunotkun (WLTP) Raun orkunotkun

1 Maxus Euniq6 354 388,4 km 34,4 km 9,72 % 21 kWst/100 km 17,6 kWst/100 km 2 Tesla Model Y LR DM 507 545 km 38 km 7,50 % 16,9 kWst/100 km 13,2 kWst/100 km

Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Orkunotkun (WLTP) Raun orkunotkun

3 BMW i4 M50 497 521,1 km 24,1 km 4,85 % 19 kWst/100 km 16,1 kWst/100 km 1 Maxus Euniq6 354 388,4 km 34,4 km 9,72 % 21 kWst/100 km 17,6 kWst/100 km 2 Tesla Model Y LR DM Mestu vonbrigði 507 545 km 38 km 7,50 % 16,9 kWst/100 km 13,2 kWst/100 km 3 BMW i4 M50 497 521,1 km 24,1 km 4,85 % 19 kWst/100 km 16,1 kWst/100 kmEHS-9 stóri lúxusrafbíllinn frá Hongqi hafnaði í neðsta sæti með mestu frávik frá uppgefnum drægni tölum. Bíllinn Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Orkunotkun (WLTP) Raun orkunotkunnáði eingöngu 371 km akstri á 99 kWst rafhlöðu en framleiðandi bílsins hefur lofað allt að 465 km drægni. Frávikin 1 Hongqi EHS-9 voru því rúmlega 20%. 465 km 371 km -94 km -20,22 % 22 kWst/100 km NA 2 M.Benz AMG EQE 43 4M 518 km 443 km -75 km -14,48 % NA 20,7 kWst/100 km

Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Orkunotkun (WLTP) Raun orkunotkun

3 M.Benz EQS 450+ 711 km 620 km -89 km -12,80 % NA 17,5 kWst/100 km1 Hongqi EHS-9 465 km 371 km -94 km -20,22 % 22 kWst/100 km NA 2 M.Benz AMG EQE 43 4M 518 km 443 km -75 km -14,48 % NA 20,7 kWst/100 km

Tegund WLTP Raun drægni Frávik (km) Frávik (%) Orkunotkun (WLTP) Raun orkunotkun Rafhlaða

3 M.Benz EQS 450+ 711 km 620 km -89 km -12,80 % NA 17,5 kWst/100 km 1 M.Benz EQS 450+ 711 km 620 km -89 km -12,80 % NA 17,5 kWst/100 km 120 kWst 2 M.Benz EQS 580 4MTegund 647 km WLTP 596 km Raun drægni -51 km Frávik (km) -7,88 % Frávik (%) NAOrkunotkun (WLTP) 18,5 kWst/100 km Raun orkunotkun 120 kWst Rafhlaða 3 1 BMW i4 eDrive40 M.Benz EQS 450+ 565 km 711 km 583,6 km 620 km 18,6 km -89 km 3,29 %-12,80 % 16,9 kWst/100 km NA 14,3 kWst/100 km 17,5 kWst/100 km 83,9 kWst 120 kWst 2 M.Benz EQS 580 4M 647 km 596 km -51 km -7,88 % NA 18,5 kWst/100 km 120 kWst 36 FÍB-blaðið3 BMW i4 eDrive40 565 km 583,6 km 18,6 km 3,29 % 16,9 kWst/100 km 14,3 kWst/100 km 83,9 kWst

Rafhlaða Nothæf rafhlaða

120 kWst 107,8 kWst 120 kWst Rafhlaða 107,8 kWstNothæf rafhlaða 83,9 kWst 120 kWst 80,7 kWst107,8 kWst 120 kWst 107,8 kWst 83,9 kWst 80,7 kWst

FÍB-blaðið 37

This article is from: