
1 minute read
Stefna ESB er óumflýjanleg
Sala á bensín- og dísilbílum verður bönnuð innan Evrópusambandsins frá 2035. Umhverfisráðherrar aðildarríkja sambandsins komust að þessari niðurstöðu á dögunum á fundi sínum í Lúxemborg. Samningurinn þýðir í raun að ekki verður leyft að selja nýja bíla með brunahreyfla frá og með 2035.
Nú þarf að semja um endanlega málamiðlun við Evrópuþingið sem styður einnig algjört bann við sölu á ökutækjum með brunahreyfli frá og með 2035. Umhverfisráðherrar 27 aðildarríkja Evrópusambandsins komust enn fremur að samkomulagi um fjölda annara aðgerða til að berjast gegn loftslagsbreytingum. „Ástandið í lofslagsmálum og afleiðingar hennar eru skýrar og því er stefna óumflýjanleg,“ sagði Frans Timmermans, yfirmaður loftslagsstefnu ESB. Yfirlýsing ráðherra ESB kom í kjölfar þess að samsteypustjórn Þýskalands studdi niðurfellinguna í áföngum en þó með þeim skilyrðum að sala á nýjum bílum sem keyra á „CO2 hlutlausu“-eldsneyti haldi áfram eftir 2035. „Aðildarríki ESB hafa greitt atkvæði með yfirgnæfandi meirihluta að frá og með 2035 verði aðeins leyfðir bílar og létt atvinnutæki sem losa ekki CO2. Þetta gefur skýr merki um að við verðum að ná loftslagsmarkmiðunum. Þau veita bílaiðnaðinum líka það skipulagsöryggi sem hann þarfnast,“ sagði Steffi Lemke, umhverfisráðherra Þýskalands. Í aðgerðaráætlun frá 2018 í loftslagsmálum marka íslensk stjórnvöld þá stefnu að nýskráningar bensín- og dísilbíla verði almennt óheimilar eftir árið 2030. Þessi aðgerð og fleiri eru hluti af átaki í orkuskiptum í vegasamgöngum sem hefur það markmið að notkun jarðefnaeldsneytis leggist á endanum af.
Raunhæft er talið að stefna að því að hætta notkun jarðefnaeldsneytis alfarið á Íslandi fyrir miðja þessa öld, samkvæmt því sem fram kemur í aðgerðaáætluninni. Í henni segir að samfara þessu banni við nýskráningum bíla sem einungis ganga fyrir jarðefnaeldsneyti verði þó gætt sérstaklega að hugsanlegum undanþágum. Mögulega verði þannig gerðar undanþágur með vísan til byggðasjónarmiða á þeim svæðum þar sem erfitt væri að nota aðra bíla en þá sem ganga fyrir bensíni og dísilolíu.
