3 minute read

Landsþing FÍB

,,Þakklátur fyrir sterkan stuðning á landsþinginu“

„Ég er þakklátur fyrir sterkan stuðning sem fram kom á landsþinginu eftir 15 ár í þessu embætti. Við erum með yfir 18 þúsund fjölskyldur sem félagsmenn svo að okkar ábyrgð sem neytendafélag er mikil og af nægu að taka,“ segir Steinþór Jónsson, endurkjörinn formaður Félags íslenskra bifreiðaeiganda, FÍB.

Landsþing félagsins var haldið 6. maí á Hilton Nordica í Reykjavík og var góð þátttaka félagsmanna enda fyrirliggjandi kosningar um formannsembættið. Niðurstaðan í formannskjöri var afgerandi en Ólafur Guðmundsson, fyrrverandi varaformaður félagsins og núverandi varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, bauð sig fram gegn sitjandi formanni en hafði ekki erindi sem erfiði. Steinþór Jónsson hlut 100 prósent atkvæða en Ólafur fékk ekkert atkvæði.

Steinþór segir að barátta fyrir neytendur sé sér efst í huga á þessum tímamótum og nefnir til dæmis að bílatryggingar séu nálægt helmingi hærri hér á landi en á Norðurlöndunum. Hann sagði í ræðu sinni á þinginu að einfaldlega þurfi að taka tryggingagjöld hér á landi föstum tökum. Auka þurfi almennt aðhald varðandi bæði eldsneytisgjöld og skatta á bifreiðaeigendur. Verið er að þrengja að bifreiðum m.a. með Borgarlínu sem við höfum ekkert á móti sem slíkri en sættum okkur ekki við þrengingu frá því sem nú er, þar af síður að fjármögnun Borgarlínu eða almenningssamgangna almennt komi fram í bifreiðasköttum.

„Þá er rafbílavæðing mjög hröð og hugmyndir um skattlagningu rafbíla yfirvofandi svo að nú er tími fyrir okkur að vera vakandi fyrir félagsmenn okkar. Við höfum öflugan framkvæmdarstjóra, Runólf Ólafsson, sterka samstæða stjórn sem ásamt starfsfólki skrifstofunnar myndar heild sem ég er stoltur að vera hluti af. Saman ætlum við að ná góðum árangri fyrir félagsmenn okkar. Ég skora á alla bifreiðaeigendur að kynna sér aðild að FÍB sem bæði margborgar sig og um leið styrkir fjöldinn málstaðinn,“ segir Steinþór Jónsson.

Nýkjörin stjórn FÍB er skipuð eftirtöldum einstaklingum: Steinþór Jónsson formaður, Kristín Sigurðardóttir frá Reykjavík, Ingigerður Karlsdóttir frá Reykjavík, Viggó Helgi Viggósson úr Reykjanesbæ og Einar Bárðarson frá Hafnarfirði. Í varastjórn sitja Ástríður Sigurðardóttir úr Reykjanesbæ, Bogi Auðarson frá Kópavogi og Halldór Óli Kjartansson frá Akureyri.

Steinþór Jónsson, formaður FÍB, ásamt Runólfi Ólafssyni framkvæmdastjóra FÍB á landsþinginu.

Ályktanir sem samþykktar voru á landsþingi FÍB

Á landsþingi FÍBvoru eftirfarandi ályktanir samþykktar. Þingið hvetur stjórnvöld til að koma til móts við fjölskyldur og fyrirtæki í landinu með því að lækka skatta, allavega tímabundið, á bifreiðaeldsneyti. FÍB hefur nú þegar lagt til að stjórnvöld bregðist við hækk¬un¬um á þeim. Mörg Evrópulönd hafa farið þessa leið að lækka tímabundið álögur á eldsneyti til að koma til móts við almenning. Verðið á því er í hæstu hæðum um þessar mundir en það má rekja að stórum hluta til stríðsástandsins í Úkraínu.

Landsþingiðmótmælir hugmyndum um að fjármagna samgöngubætur á höfuðborgarsvæðinu að stórum hluta með nýjum sköttum á fólksbíla. Þessi fjármögnun er óútfærð en hugmyndir hafa verið uppi um setja vegtollahlið um allt höfuðborgarsvæðið. Vegtollar eru mjög dýr leið til að hafa tekjur af umferð. Vegtollar mismuna vegfarendum eftir búsetu og ferðartilgangi og leggjast þyngst á þá sem hafa minna aflögu.

Landsþingið fagnar yfrilýsingu ríkis og borgar um Sundabraut. Leitun er að arðsamari framkvæmd hér á landi. Þjóðhagslegur ábati áætlaður á 30 ára tímabili á bilinu 186–236 ma.kr.

Landsþingið hvetur stjórnvöld til að innleiða nýjar reglur um vátryggingarstarfsemi sem banna verðmismun á milli nýrra og eldri viðskiptavina. Með þessu móti er tryggt að allir sem falla í sama áhættuflokk greiði algerlega sambærileg verð. Landsþingið gagnrýnir þá takmörkuðu verðsamkeppni sem ríkir í fáokunarumhverfi tryggingafélaganna. FÍB telur æskilegt að skylda tryggingafélögin til að birta opnar iðgjaldareiknivélar á vefsíðum sínum. Með því eykst verðvitund neytenda og fólk á hægara með að gera verðsamanburð. Tæknin er fyrir hendi svo og forsendurnar sem tryggingafélögin nota við útreikning iðgjalda. Benda má á að flest félaganna gefa viðskiptavinum nú þegar færi á að fylla inn upplýsingar á vefsíðum sínum til að fá sjálfvirkt tilboð í tryggingar. Það eina sem þau þurfa að gera er að opna fyrir þá hindrun að verðupplýsingar miðist aðeins við tiltekinn einstakling eða fyrirtæki.

This article is from: