1 minute read

Milljón mílur á Tesla

1.600.000 kílómetra akstur á Tesla S

Þegar teljarinn á hraðamælinum í 2014 árgerð Tesla S bíl þýska aðalsmannsins Hansjörg von Gemmingen skreið yfir milljón ekinna mílna varð ljóst að þessi bíll er mest ekni rafbíll heims eða í það minnsta mest ekna Teslan í veröldinni. Sá rafbíll sem næst mest er ekinn stendur nú í tæplega 750 þúsund km.

Hansjörg, sem á heima í Þýskalandi og ber aðalstitilinn ,,freiherr“ (fríherra), var meðal allra fyrstu bíleigenda til að sjá fyrir sér að rafknúnir bílar ættu framtíðina fyrir sér. Árið 2014 keypti hann þennan umrædda rauða Tesla bíl Model S P85D+ sem náði á dögunum milljón mílna markinu. Hansjörg greindi fyrst frá atburðinum á fésbókarsíðu sinni en í kílómetrum talið hefur bílnum þá verið ekið 1.609.344 km. Átta ára sambúð Hansjörgs von Gemmingens og Tesla Model S bílsins hefur ekki verið alger dans á rósum. Hann greinir frá því í viðtali við fjölmiðla að þann 25. mars á þessu Öðru máli hafi þó gegnt um mótorana. Um þá gilda ekki aðrar ábyrgðir en almennt um bíla, vélar og búnað. Hansjörg greinir frá því að upphaflegi mótorinn í bílnum hafi dugað langbest eða 78 þúsund mílur. Sama verði ekki sagt um þá sem á eftir komu, sérstaklega ekki hina fjóra síðustu sem dugðu aðeins til um það bil 20 þúsund mílna aksturs.

Sé sá sem nú knýr bílinn eitthvað svipaður og hinir gæti hann farið að gefa upp öndina. Því er Hansjörg farinn að huga að því að skipta Teslunni út og hefur hann augastað á lúxus-rafmagnsvagni af tegundinni Lucid Air.

Hansjörgs von Gemmingens stoltur eigandi milljón mílna Teslunnar en myndin var tekin þegar hann rauf milljón kílómetra múrinn.

ári hafi hann skipt út mótornum í bílnum í áttunda sinn. Enn fremur hafi hann orðið að skipta út rafhlöðunum tvisvar og bíllinn væri þannig með þriðju rafhlöðusamstæðu sína. Hingað til hafi rafhlöðuskiptin verið honum að kostnaðarlausu þar sem áratugs ábyrgðartími þeirra var ekki liðinn.

Ekki gleyma að sýna skírteinið! FÍB afslættir um allt land. Nánar á FÍB.is

This article is from: