
6 minute read
Stórfelldir vegtollar boðaðir
Stórfelldir vegtollar boðaðir þvert á þjóðarvilja og fyrri loforð
Eins og fram hefur komið í fréttum hefur Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra boðað gríðarlega aukna skattheimtu af bíleigendum með vegtollum í öllum jarðgöngum til viðbótar við vegtolla af svokölluðum samvinnuleiðum sem er pólitískur orðaleikur um einkavæðingu hluta sameiginlegs vegakerfis landsmanna. Þarna er um að ræða algjöra stefnubreytingu frá yfirlýsingu formanns Framsóknarflokksins í aðdraganda alþingiskosninga í október 2017. Þetta gengur einnig þvert á vilja meirihluta landsmanna samkvæmt ítrekuðum skoðanakönnunum og undirskriftasöfnunum á liðnum árum.
Haft hefur verið eftir ráðherra að „við“ værum að „fara í að taka upp annarskonar gjaldtöku í umferðinni. Við erum að hætta með bensín- og dísilgjöld og fara í einhverskonar notkunargjöld.“ Hverjir eru þessir við? Stóð nokkuð til að bera þetta undir kjósendur í lýðræðislegu ferli eða eru þessi svokölluðu „við“ skálkaskjól fyrir einræði í þessum stórfelldu skattabreytingum?
Gjaldið nokkuð hátt en samt hóflegt?
Sigurður Ingi Jóhannsson sagði í fréttum Stöðvar 2 þann 14. júlí sl. að horft væri til Færeyja varðandi fyrirmyndir um gjaldtöku og að þar sé gjaldið haft nokkuð hátt en þó hóflegt. Hvað þýðir þetta? Í febrúar sl. var opinn fundur Vegagerðarinnar um fyrirhugað útboð á samvinnuverkefni um nýja brú yfir Ölfusá. Fram kom fyrirspurn til forstjóra Vegagerðarinnar og bæjarstjóra Árborgar um upphæð fyrirhugaðs gjalds fyrir staka ferð yfir brúna. Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar svaraði 400 krónur en Gísli Halldór Halldórsson þáverandi bæjarstjóri Árborgar var með hugmynd um 75% lægra gjald eða 100 krónur fyrir staka ferð til þess að hann gæti nýtt brúna í daglegu lífi sínu.
Sigurður talar um nokkuð hátt gjald en þó hóflegt. Hvort mun kosta 400 krónur á verðlagi í febrúar 2022 eða 100 krónur að fara á fjölskyldubílnum yfir væntanlega Ölfusárbrú? FÍB-blaðinu þætti gott að fá hreinskilin svör frá innviðaráðherra og formanni Framsóknarflokksins um þessi fyrirhuguðu útgjöld fjölskyldna og atvinnulífs á Íslandi. Kjósendur Sigurðar gætu einnig haft áhuga á að fá frekari upplýsingar um þetta.
Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra sagði að verið væri að efna loforð um að þjóðin eignaðist Hvalfjarðargöngin þegar göngin væru uppgreidd. Núna hefur hann boðað að hefja gjaldtöku á ný þvert á fyrri loforð.
Á myndinni má sjá Sigurð taka við göngunum og handsala við Gísla Gíslason stjórnarformann Spalar, á myndinni eru Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar og Gunnar Gunnarsson aðstoðarforstjóri Vegagerðarinnar.

Hvað mælir gegn vegtollum til að fjármagna vegabætur
FÍB ítrekar fyrri ábendingar um vegtolla, mikilvægi öruggra vega og ríflegar tekjur ríkissjóðs af bílum og umferð. FÍB er alfarið á móti því að vegamannvirki verði fjármögnuð með vegtollum.
Vegtollar eru mjög dýr leið til að hafa tekjur af umferðinni. Raunsætt er að áætla 15% fari í kostnað við innheimtu vegtolla þar sem umferð er mikil og 60–80% þar sem umferð er lítil.
Vegtollar eru mun kostnaðarsamari en aðrar innheimtuaðferðir stjórnvalda af bílum og umferð. Kostnaður við vegtolla felst m.a. í dýrum tækjabúnaði, hugbúnaði, tengingum, innheimtukostnaði, viðhaldi, endurnýjun og almennum rekstri.
Skyndileg áform um vegtolla fela í sér lýðræðishalla. Kjósendur hafa ekki fengið tækifæri til að taka afstöðu til slíkra hugmynda í kosningum.
Vegtollar þýða aukna skattbyrði, þeir bætast við þær greiðslur sem umferðin skilar nú þegar. Engin áform hafa verið kynnt um að lækka aðra skattheimtu af bílum og umferð.
Vegtollar mismuna vegfarendum eftir búsetu og ferðatilgangi og leggjast þyngst á þá sem hafa minna aflögu. Ávinningur af búsetu á ódýrari svæðum fer fyrir lítið. Það er lýðskrum að lofa þeim sem mest aka tug prósenta afslætti af vegtollum. Eigi þeir sem mest nota vegina að borga sama og ekkert skila vegtollarnir aldrei áformuðum tekjum. Fjarstæðukennt er að verðlauna þá sem mest aka og valda mestum umhverfisáhrifum.
Vegtollar á þjóðvegum gera lítið til að létta áhyggjum stjórnvalda af minnkandi tekjum af eldsneytissköttum vegna fjölgunar rafbíla (orkuskiptin). Akstur á þessum leiðum er aðeins hluti af heildarumferð á landinu á hverjum degi.
Fáheyrt er að innheimta sérstaka vegtolla vegna öryggisúrbóta og eðlilegrar uppbyggingar á grundvallarsamgönguæðum þjóðfélagsins. Umferðin skilar nú þegar nægum tekjum til að standa undir þessum útgjöldum.
Ríkisvaldið getur ekki réttlætt að almennri umferð um samgönguæðar Íslands sé breytt í arðbæra féþúfu.
Það er ekki hægt að réttlæta vegtolla með því að benda á að þetta sé gert víða í útlöndum. Skattar á bifreiðanotkun íslenskra heimila eru með þeim hæstu sem þekkjast um víða veröld. Nýir skattar í formi vegtolla eru frekleg aðför að fjárhag margra fjölskyldna sérstaklega þeirra sem þurfa að sækja þjónustu um langan veg.
Svar innviðaráðuneytisins við fyrirspurn FÍB
Í fyrirspurn FÍB til innviðaráðuneytisins sem barst félaginu 25. júlí kemur m.a. fram að það sé yfirlýst stefna stjórnvalda að samgöngukerfi landsins þjóni íbúum og atvinnulífi sem best með áherslu á öryggi, styttingu vegalengda og eflingu byggða og atvinnusvæða. Jafnframt er unnið að því að draga verulega úr umhverfisáhrifum samgangna. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um fjárhæðir notkunargjalda eða veggjalda. Við ákvörðun þeirra yrði tekið mið af aðstæðum og forsendum verkefnanna, s.s. umferðarmagni og framkvæmda- og rekstrarkostnaði.
Það liggur fyrir að tekjur ríkisins af gjöldum á ökutæki og eldsneyti hafa minnkað verulega síðustu ár og sú þróun mun halda áfram að óbreyttu. Það má rekja til nýrra orkugjafa og bifreiða sem ýmist að hluta eða öllu leyti eru knúnar af þeim.
Jafnframt liggur fyrir að fjárfestingarþörf í samgönguinnviðum er gríðarlega mikil. Tekjuöflun af umferð er því ekki aðeins mikilvæg út frá sjónarhorni ríkisfjármála heldur lykilþáttur í stefnu og áætlunum ríkisins í samgöngumálum. Stefna ríkisstjórnarinnar er að ráðist skuli í skilgreindar þjóðhagslega arðsamar flýtiframkvæmdir í samgöngum á grundvelli fjölbreyttari fjármögnunar.
Heildarstefnumörkun framundan
Framundan er því heildarstefnumörkun varðandi gjaldtöku af umferð og ökutækjum. Undir það falla einkum fjögur megin viðfangsefni:
• Tekjustofnar endurskoðaðir.
Hafin er heildarendurskoðun á gjaldtöku af ökutækjum og eldsneyti í ljósi breyttra forsendna til að tryggja áfram framlög frá ríkinu í uppbyggingu og rekstur samgönguinnviða. Nýir tekjustofnar þurfa að taka mið af auknum og hraðari orkuskiptum ökutækja, svo sem með því að miða gjaldtöku í auknum mæli við notkun.
• Samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins.
Flýti- og umferðargjöld á höfuðborgarsvæðinu þarf að útfæra samkvæmt samgöngusáttmála ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Þau eiga að fjármagna stóran hluta af fyrirhuguðum framkvæmdum sáttmálans við stofnvegi,
Borgarlínu og hjólastíga.
• Samvinnuverkefni (þjóðhagslega arðbærar flýtiframkvæmdir).
Alþingi hefur þegar samþykkt lög sem heimila samvinnu við einkaaðila um sex afmarkaðar samgönguframkvæmdir sem verða fjármagnaðar með gjaldtöku að hluta til eða öllu leyti, eftir aðstæðum. Þar á meðal eru Sundabraut,
Ölfusárbrú, heilsársvegur yfir Öxi og brú yfir Hornafjarðarfljót. Margvíslegur þjóðfélagslegur ávinningur felst í því að flýta slíkum samgönguframkvæmdum, s.s. aukið umferðaröryggi, stytting leiða með jákvæðum umhverfisáhrifum og betri og öruggari tengingar byggða og atvinnusvæða. Ein lykilforsenda er að notendur hafi val um aðra leið.
Samkvæmt lögum um samvinnuverkefni mun gjaldtaka vegna þessara verkefna ekki hefjast fyrr en framkvæmdum lýkur og opnað er fyrir umferð. Gjaldtaka mun að hámarki standa í 30 ár.
• Jarðgöng.
Stefnt er að rekstur jarðganga og framkvæmdir við ný jarðgöng verði að hluta fjármagnaðar með gjaldtöku. Miðað er við að unnið sé að jafnaði að gerð einna jarðganga á hverjum tíma í samræmi við jarðgangaáætlun og stefnt að því að hægt verði að klára mikilvægustu jarðgangakosti landsins, á næstu 30 árum. Gert er ráð fyrir því að gjaldtaka standi undir hluta kostnaðar við jarðgangagerð en einnig rekstri og viðhaldi ganganna, í samræmi við gildandi samgönguáætlun 2020–2034.

er stjarna í bílrúðuNNi er stjarna í bílrúðuNNi?

Við leysum vandaNN þér að kostnaðarlausu

