HS VEITUR
Viðauki 1 - Stjórnháttayfirlýsing Stjórn og stjórnarhættir Með yfirlýsingu þessari um stjórnarhætti HS Veitna hf. er félagið að fylgja þeim viðurkenndu leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja sem gefnar eru út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, með það að markmið að styrkja innviði HS Veitna hf. og auka gagnsæi.
Lög og reglur Stjórnarhættir HS Veitna hf. taka mið af lögum nr. 2/1995 um hlutafélög, lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti, raforkulög nr. 65/2003, lögum um ársreikninga nr. 3/2006, og Leiðbeiningum um stjórnarhætti fyrirtækja (6. útgáfa) sem finna má á heimasíðu Viðskiptaráðs Íslands, www.vi.is, gefnum út af Viðskiptaráði Íslands í samstarfi við Samtök atvinnulífsins og Nasdaq Iceland, samþykktum félagsins, starfsreglum stjórnar og undirnefnda stjórnar. Lögin má nálgast á vef Alþingis, www.althingi.is, en samþykktir og reglur félagsins á vef HS Veitna hf. www.hsveitur.is
Stjórn HS Veitna hf. Í stjórn HS Veitna hf. sitja 7 aðalmenn og 7 varamenn og eru þeir allir kosnir á aðalfundi félagsins til eins árs í senn. Um hæfi stjórnarmanna og varamanna þeirra fer að lögum. Forstjóri situr stjórnarfundi ásamt sviðsstjóra fjármála. Stjórn félagsins stýrir öllum málefnum félagsins milli hluthafafunda og gætir hagsmuna þess gagnvart þriðja aðila.
Aðalmenn Guðbrandur Einarsson, stjórnarformaður, bæjarfulltrúi, Reykjanesbæ Heiðar Guðjónsson, varaformaður stjórnar, fulltrúi HSV Eignarhaldsfélag slhf. Guðný Birna Guðmundsdóttir, ritari, bæjarfulltrúi, Reykjanesbæ Kristinn Þór Jakobsson, meðstjórnandi, fv. bæjarfulltrúi, Reykjanesbær Margrét Sanders, meðstjórnandi, bæjarfulltrúi, Reykjanesbæ. Ólafur Ingi Tómasson, meðstjórnandi, bæjarfulltrúi, Hafnarfirði Sigríður Vala Halldórsdóttir, meðstjórnandi, fulltrúi HSV Eignarhaldsfélags slhf
Varamenn Anna María Ágústsdóttir, fulltrúi HSV Eignarhaldsfélags slhf. Anna Karen Svövudóttir, Hafnarfjarðarbæ Baldur Þórir Guðmundsson, Reykjanesbæ Eva Stefánsdóttir, Reykjanesbæ Friðjón Einarsson, Reykjanesbæ Kolbrún Jóna Pétursdóttir, Reykjanesbæ Ómar Tryggvason, fulltrúi HSV Eignarhaldsfélags slhf.
Hlutverk stjórnar og forstjóra Stjórn HS Veitna hf. fer samkvæmt samþykktum þess með æðsta vald í málefnum félagsins milli hluthafafunda og annast um að skipulag félagsins og starfsemi þess sé jafnan í góðu horfi. Stjórn félagsins annast um að nægilegt eftirlit sé haft með reikningshaldi og meðferð fjármuna félagsins. Félagsstjórn ræður forstjóra að félaginu og ákveður starfskjör hans. Forstjóri er ábyrgur fyrir daglegri starfsemi félagsins og fylgir stefnu þess sem mótuð er af stjórn félagsins.
74