
1 minute read
Markaðs- og ímyndarmál
from Ársskýrsla 2020
Markaðs- og ímyndamál
Ársins 2020 verður væntanlega minnst fyrir veiru, sóttvarnir, heimavinnu og fjarfundi . Allt var ekki eins og við eigum að venjast og kallaði á nýjar lausnir, nýja hugsun . Enskur hluti heimasíðunnar fór í loftið í febrúar í framhaldi af endurnýjun heimasíðunnar 2019 . Skopos þýðingarstofa vann þýðingar á síðunni sem er nú aðgengileg á íslensku og ensku . Það er ljóst að hópur af viðskipavinum HS Veitna notar annað tungumál en íslensku . Ef um er að ræða skilaboð eða annað sem vilji er fyrir að verði settur á annað tungumál er það gert með einhverjum hætti á okkar miðlum . Móttaka umsókna var gerð rafræn og aðeins í gegnum Mínar síður á heimasíðunni . Áfram var unnið með útfærslur til að viðskiptavinir geti í auknu mæli skoðað notkun sína, reikninga og fleira inn á Mínum síðum . Möguleikar sem eru sannarlega til staðar með tilkomu snjallmæla og upplýsinga sem þeir safna . Á árinu voru viðskiptavinir hvattir til að uppfæra skráð símanúmer og netföng á Mínum síðum til að tryggt væri að þeir fengju tilkynningar um viðhald og bilanir í textaskilaboðum . Mikil aukning var í sendingu tilkynninga á íbúa þeirra hverfa þar sem unnið var að viðgerðum og viðhaldi . Notkun þessarar lausnar hefur reynst vel og fjölmargar ánægjuraddir heyrðust . Allir miðlar HS Veitna gegna mikilvægu hlutverki við að nálgast viðskiptavini og koma til þeirra skilaboðum og upplýsingum, þ .e . heimasíðan, Facebook síða, YouTube rás og textaskilaboð .