2 minute read

Öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismál

Next Article
HS Veitur hf

HS Veitur hf

Árið 2020 rann upp með miklar væntingar um áframhaldandi velgengni á öllum sviðum samfélagsins, en þess í stað verður þess minnst sem ársins þegar allt breyttist er Covid 19, veiran tók að breiðast út meðal þjóða . Þetta ástand kallaði á miklar breytingar á vinnu og vinnutilhögun með áherslu á að verja starfsfólk fyrirtækisins og tryggja órofinn rekstur .

Slysaskráning

Haldin er skrá yfir slys og atvik (nærri slys) sem verða hjá HS Veitum hf . Slysum og atvikum er skipt upp í þrjá flokka eftir alvarleika og fjarveru frá vinnustað . Tegund 1 = Atvik/slys án fjarveru Tegund 2 = Slys með 1 - 7 daga fjarveru Tegund 3 = Alvarlegt slys með fleiri en 7 daga fjarveru Samtals voru 32 slys/atvik skráð árið 2020 . Í 24 tilvikum áttu starfsmenn HS Veitna hlut að máli . Í 7 tilvikum voru starfsmenn verktaka aðilar máls og í einu tilfelli skemmdist búnaður í eigu HS Veitna af völdum þriðja aðila .

Hér að neðan eru nánari upplýsingar um slys og atvik: • Eitt fjarveruslys var tilkynnt, sem olli 39 töpuðum vinnudögum . • Eitt rafmagnsslys var tilkynnt þegar starfsmaður varð fyrir raflosti og fékk brunasár á þumalfingur, þegar hann var tengja rafmagnsmæli í töflu . • Fimm rafmagnsatvik voru tilkynnt á árinu . • Eitt atvik var tilkynnt þar sem starfsmaður var á leið til vinnu á reiðhjóli og féll á gangbraut vegna hálku .

Starfsmaðurinn slasaðist lítillega . • Tvö frítímaslys voru tilkynnt á árinu . • Þrjú „nærri því“ slys voru tilkynnt . • Sex umferðartengd atvik voru tilkynnt . • Ein ábending barst, bent var á skemmdir í steinteppi á gangi í þjónustuveri .

Slysa- og atvikaskráning verktaka

Fylgst er með slysa- og atvikaskráningu verktaka sem vinna á vegum HS Veitna en verktökum er skylt að tilkynna slys/ atvik til viðkomandi opinberra aðila . Slysatíðni verktaka telur hinsvegar ekki í slysatíðni HS Veitna . Verktakar hafa tilkynnt um sjö slys/atvik á árinu Atvikaskráning vega tjóna eða atvika af völdum þriðja aðila: • Eitt atvik var tilkynnt af þriðja aðila, þegar hann tilkynnti að hann hafi ekið á skilti á bílastæði við höfuðstöðvar HS

Veitna . Engar skemmdir urðu á skiltinu .

Tíðni vinnutengdra fjarveruslysa

Alþjóðlegir staðlar miða við 100 ársverk eða 200 .000 unnar vinnustundir

Slysatíðni

S Staðall 200 .000 Unnar stundir U

Reikniregla S x 200 .000/U

Tíðni Ár "S" Staðall "U" fjarveruslysa 2020 1 200 .000 186 .440 1,073 2019 6 200 .000 180 .524 6,647 2018 1 200 .000 180 .506 1,108 2017 1 200 .000 181 .696 1,101 2016 2 200 .000 169 .206 2,364 2015 2 200 .000 173 .361 2,307

This article is from: