
3 minute read
Starfsmannafélag
from Ársskýrsla 2020
lits fækkað til muna sem aftur gefur vísbendingu um betra ástand eigna og búnaðar . Allar fasteignir starfsstöðva heyra undir fasteigna- og viðhaldsdeild og hefur fyrirtækið verið að auka eftirlit með viðhaldi með því að setja allar starfstöðvar í DMM viðhaldskerfi ásamt tilheyrandi gátlistum . Á árinu var skipt um þak á vörugeymslu á Fitjabraut í Reykjanesbæ og var húsið málað að utan . Sett voru nýjar merkingar á stærstu byggingar HS Veitna á árinu . Einnig var unnið áfram að útskiptum á aðgangskerfum í öllum stærri fasteignum HS Veitna . Þau verkefni sem starfsmenn deildarinnar annast ekki eru ýmist boðin út eða unnin af iðnaðarmönnum samkvæmt samningsbundnum töxtum . Deildarstjóri fasteigna- og viðhaldsdeildar hefur umsjón með og annast samskipti við slíka verktaka/iðnaðarmenn og hefur eftirlit með vinnu þeirra . Enginn skortur var á verkefnum enda er ætíð lögð mikil áhersla á að húseignir fyrirtækisins séu í sem bestu ástandi .
Starfsmannafélag HS Veitna
Árið 2020 tók vel á móti okkur, flestir vöknuðu hressir og kátir að morgni nýársdags fullir tilhlökkunar með allt það sem framundan var á árinu sem gekk í garð þá um nóttina . En engin veit sína ævina fyrr en öll er, eins og kerlingin sagði . Stjórn starfsmannafélagsins ásamt starfsmönnum á Selfossi fóru á fullt í að skipuleggja þorrablót, það fyrsta í sögu starfsmannafélagsins . Blótið skyldi halda í húsnæði Karlakórs Selfoss föstudaginn 14 . febrúar 2020 . Allt var klárt, húsið, matur, skemmtiatriði, rútur o .s .frv . En eitthvað var almættið ekki sátt við þetta, skellti í eina alvöru vetrarlægð, veðurstofan og almannavarnir gáfu út gula viðvörun og fólk var varað við að vera á ferli á Suðurlandi . Þorrablótinu var aflýst og ákveðið að reyna aftur að ári en eins og staðan er þegar þetta er ritað þykir víst að við verðum að bíða til ársins 2022 . Árshátíð HS Veitna var haldin á Hótel Geysi þann 7 . mars 2020 . Miklar vangaveltur voru um hvort óhætt væri að halda árshátíð í skugga COVID-19 . Fyrirtæki um allt land voru að fella niður árshátíðir, en stjórn SHS og forstjóri HS Veitna tóku hins vegar þá ákvörðun að halda árshátíðna eftir átakafund að kvöldi 6 . mars . Gríðarlegt fjör var á hátíðinni og nýtt árshátíðarmyndband frumsýnt . Bjarni Ara kom og tryllti lýðinn og Atli kanill mætti með græjurnar sínar og plötusafn og þeytti skífum fram eftir kvöldi svo kaloríurnar fuku af fólki í miklu dansstuði . Langt er síðan menn hafa skemmt sér svo vel . Það sem eftir var af árinu 2020 fór í það að fresta fyrirhuguðum og hefðbundnum viðburðum svo sem aðalfundi, fjölskyldudegi, haustferð, Októberfest og jólahlaðborði . Við splæstum í leikhúsmiða í Borgarleikhúsið en blessuð veiran sá til þess að sýningunni var frestað aftur og aftur . Enn er ekki komin dagsetning fyrir þessa sýningu en við vonumst til að komast á árinu 2021 . Aðalfundur SHS var loks haldin á Teams fullveldisdaginn 1 . desember . Aldrei hefur þátttaka á aðalfundi verið jafn góð, 63 þegar mest var . Fundurinn fór friðsamlega fram, venjuleg aðalfundastörf, skýrsla stjórnar, reikningar, lagabreytingar o .s .frv . Þegar kom að stjórnarkjöri kom fram að Hrafnhildur J . Árnadóttir myndi ekki gefa kost á sér til áframhaldandi setu . Í framboði voru Svanur G . Árnason og Jóhanna M . Pálsdóttir . Það fór svo að Jóhanna var kjörin til stjórnarsetu til tveggja ára . Aðrir í stjórn eru Þórhildur Eva Jónsdóttir sem hóf sitt seinna ár og varamenn eru Theódór Kárason og Guðný Svava Friðriksdóttir . Forseti félagsins er eins og áður Páll Marcher Egonsson . Um mánaðamótin nóvember - desember var stjórnin búin að fá nóg . Við höfðum samband við Nomy veisluþjónustu sem útbjó lúxuspakka sem innihélt allskyns gúmmelaði úr eldhúsinu þeirra og við bættum svo við þetta einni flösku af Tommasi . Glaðningum var dreift föstudaginn 4 . desember og kom flestum á óvart þar sem við reyndum að halda þessu eins leyndu og mögulegt var . Viðbrögðin voru mjög góð og starfsmenn og makar nutu veitinga og deildu huggulegheitunum á samfélagsmiðlum . Mjög vel heppnað framtak sem var ríkulega styrkt af HS Veitum og takmarkinu náð, þ .e . að lyfta aðeins brúninni á COVID þreyttu samstarfsfólki . Við horfum nú björt fram á veginn, vonumst til að komast út úr kófinu sem fyrst svo að við getum farið að skemmta okkur í smærri sem stærri hópum . Að lokum viljum við þakka öllum sem hafa lagt hönd á plóg við að hafa þetta sem skemmtilegast og glæsilegast og vonumst til að geta haldið áfram að treysta á ykkur .