1 minute read

Upplýsingatæknideild

Á árinu hefur verið unnið að viðbótum, endurbótum og viðhaldi tölvubúnaðar eins og tilefni hefur verið til . Tölvukerfin eru rekin miðlægt og í skýinu að nokkru leyti . Til upplýsingakerfa telst allur tölvuhugbúnaður, tölvuvélbúnaður og símabúnaður fyrirtækisins fyrir utan iðntölvustýringar og álagsstýribúnað . Mikið hefur mætt á fjarvinnulausnabúnaði og fjartengingum vegna heimavinnu hjá starfsmönnum . Segja má að allir starfsmenn hafi núna reynslu af Teams fundahugbúnaðinum sem reynst hefur vel . Fjarvinnutengingar hafa sannað gildi sitt og einnig hversu þægilegt er að vinna með skjöl í Teams og SharePoint hugbúnaðinum . Útbúið var smáforrit til að auðvelda utanumhald gagna og skráningu vegna mælaskipta sem gefið hefur góða raun, ásamt talningasmáforriti fyrir lagertalningar . Þessi smáforrit eru innan Microsoft Power Apps sem einnig er nýtt til skráningar á viðverutíma, matarskráningar og skráningar álestra . Þessi grunnlausn kemur með Office 365 lausninni frá Microsoft og hefur reynst vel að mestu leyti . Aukið hefur verið við upplýsingagjöf á Mínum Síðum og meðal annars útbúið vefþjónustukall sem er aðgengilegt þar til að sækja upplýsingar um notkun veitna . Starfsstöðin í Hafnarfirði var flutt á árinu og gekk vel að hefja rekstur í nýju húsi .

This article is from: