2 minute read

Rekstrarsvið

Undir rekstrarsvið heyra málaflokkarnir þjónusta, orkureikningagerð og innheimta, mannauður, upplýsingatækni, markaðs- og ímyndarmál, gæða- og skjalamál og öryggismál . Á sviðinu starfa 24 starfsmenn í tæplega 23 stöðugildum . Hlutverk sviðsins er að styðja við kjarnastarfsemi HS Veitna og stuðla að sem bestri þjónustu við viðskiptavini og samstarfsfólk ásamt því að stuðla að framþróun og árangri fyrirtækisins til framtíðar . Árið einkenndist að miklu leyti að því að tryggja órofinn rekstur félagsins og verja starfsfólk með því að skipuleggja starfsemina á hverjum tíma eftir því hvernig staðan var í samfélaginu . Starfsfólki var skipt í hópa á vormánuðum og aftur að hausti til að lágmarka hættuna á því að allur hópurinn lenti í sóttkví á sama tíma . Starfsfólk kom því viku í senn á starfsstöð, en vann að heiman vikuna á móti eða fór beint út á verk . Kórónuveirusmit bárust ekki inn á vinnustöðvar og starfsfólk var samviskusamt í eigin sóttvörnum og tilkynnti til öryggisstjóra og hélt sig heima ef minnsti grunur var um smit . Aðgerðirnar skiluðum góðum árangri og var flest starfsfólk sátt við þær leiðir sem farnar voru, sýndu ástandinu mikinn skilning og sveigjanleika . Á tímum sem þessum kemur glöggt í ljós hversu öflugur hópur starfar innan félagsins og slíkt ber að þakka . Helstu aðgerðir HS Veitna í Covid má sjá á myndinni hér fyrir neðan .

Tímalína aðgerða vegna COVID-19

Snúa að því að vernda viðskiptavini og starfsfólk og að þjónusta raskist sem minnst

Almannavarnardeild Ríkislögreglustjóra lýsir yfir óvissuástandi

26. jan. 2020 Framkvæmdastjórn fundar. Takmörkun aðgengis að starfsstöðvum. Greining rekstraráhættu í faraldrinum hefst

4. mars 2020 Undirbúningur fjarvinnu hafinn. Skráningar Covid upplýsinga tengdum starfsfólki hafnar. Starfsfólk upplýst um breytingar á verklagi Afgreiðslum lokað og hópaskipting starfsfólks tekur gildi Leiðbeiningar um veitingu þjónustu í neyðartilvikum kynntar starfsfólki Framkvæmdastjórn fundar daglega og metur stöðuna Skoðanakönnun send út til starfsmanna varðandi aðgerðir fyrirtækisins í smitvörnum Hertar aðgerðir á ný með grímuskyldu og fjarlægðarmörkum

Tilmæli um að samgangur milli starfsstöðva sé sem minnstur eða enginn Fjöldatakmarkanir og sóttvarnarhólf áfram

10. mars 2020 17. mars 2020 22. mars 2020 31. mars 2020 22. júní 2020 30. júlí 2020 16. sept. 2020 9. desember 2020

1. - 28. feb. 2020

Framkvæmdastjórn fundar vegna veirunnar. Vinna hafin við gerð viðbragðsáætlana 8. mars 2020 12. mars 2020 18. mars 2020

Neyðarstjórn kölluð saman til fundar

Fyrirkomulagi í mötuneyti breytt, starfsfólki skipt í hópa Aðeins tekið á móti umsóknum rafrænt í gegnum mínar síður 23. mars 2020

Fjarvinna starfsfólks og átaksverkefni dregin fram. Daglegir stöðufundir 5. maí 2020

Hópaskiptingu lýkur og starfsmenn snúa til baka á sína starfsstöð 7. júlí 2020

Minnt á reglur við heimkomur erlendis frá 15. sept. 2020 4. október 2020

Starfsmönnum boðið upp á mótefnamælingu

Reglur hertar m.a. í mötuneytum. Fjarvinna hefst á ný

This article is from: