Stórt skref í átt að bættu umferðaröryggi í Evrópu Á heimsþinginu um umferðaröryggi sem haldið var í Stokkhólmi í febrúar var lögð gífurleg áhersla á að bæta umferðaröryggi og um leið alla innviði þeirra á heimsvísu á næstu árum. Ljóst er að mun meira fjármagni verður veitt nú en áður í þá þætti sem snúa almennt að umferðaröryggi. Markmið ráðstefnunnar var að miðla þekkingu og ræða leiðir til að auka umferðaröryggi á heimsvísu, meðal annars á grunni heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. Á þinginu var fjallað um reynslu og innleiðingu Svía og nokkurra annarra ríkja á stefnu um núllsýn (e. Vision Zero) í umferðaröryggi. Núllsýn felst í að stefna skuli að því að engin banaslys eða alvarleg slys verði í umferðinni í náinni framtíð. Mikilvægt væri að viðurkenna ekki að banaslys í umferðinni geti verið viðunandi ástand og miða opinberar áætlanir, aðgerðir, fræðslu og eftirlit við núllsýn. Frá því að stefnan var innleidd í Svíþjóð árið 1997 hefur tekist að draga úr umferðarslysum um helming. Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sótti heimsþingið í Stokkhólmi um umferðaröryggi en það sóttu 80 samgönguráðherrar víðs vegar að úr heiminum en auk þeirra stjórnendur og fulltrúar alþjóðastofnana og félagasamtaka og aðilar frá atvinnulífinu, þ.á m. bifreiðaframleiðendum og fjárfestingarfyrirtækjum. Alls tóku um 1.700 manns þátt í ráðstefnunni frá 140 löndum.
stjórnvöld og samfélag taki höndum saman um að fækka alvarlegum slysum og dauðaslysum í umferðinni. Á ráðstefnunni hafa um 200 ungmenni frá 75 löndum hvaðanæva úr heiminum sagt frá reynslu sinni og baráttumálum. Staðan væri mjög ólík eftir heimshlutum en á heimsvísu látast 500 börn á dag í umferðarslysum. Þátttakendur voru sammála um mikilvægi þess að ungmenni væru þátttakendur í stefnumótun og ákvarðanatöku í umferðaröryggismálum og að ungt fólk yrði að vera þar í forystu. Á þinginu var kunngert að Evrópski fjárfestingabankinn, EIP, væri genginn til samstarfs við þrjú félaga-samtök sem leiða vegamatsáætlanir (RAP) sem hluta af alþjóðlegu átaki til að fækka verulega dauðsföllum og alvarlegum slysum á heimsvísu fyrir árið 2030. EIB og Evrópska vegamatsáætlunin (EuroRAP), alþjóðlega vegamatsáætlunin (iRAP) og umferðaröryggisstofnunin (RSF) ætla að taka höndum saman og styðja sérstaklega fjárfestingar í uppbyggingu á bættum og öruggari vegum.
Allir munu leggjast á eitt að ná settum markmiðum Ferry Smith, stjórnarformaður EuroRap, sagði eftir undirritunina að samstarfið væri gríðarlega ánægjulegt og stórt skref í þá átt að bæta umferðaröryggi í Evrópu og um allan heim. Í þessu felst mikil áskorun og allir munu leggjast á eitt við að ná settum markmiðum. Lilyana Pavlova, varaforseti EIB–hópsins, sagði þetta stóran dag með það að markmiði að bæta umferðaröryggi um allan heim. Mikilvægt er að geta sótt nauðsynlega ráðgjöf, þjálfun og færni til að þróa öruggari vegi og efla innviði. Á þinginu var sænskum stjórnvöldum veitt hin eftirsóttu alþjóðlegu iRAP nýsköpunarverðlaun. Alþjóðlegu vegaöryggissamtökin iRAP eru móðursamtök EuroRAP sem hefur allt frá árinu 2005 tekið út öryggi íslenskra vega. Verðlaunin eru veitt vegna frumkvæðis við hönnun og þróun 2+1 vega með víravegriði til aðgreiningar á akstursstefnum. Uppbygging 2+1 vega hefur dregið verulega úr alvarlegum framanákeyrslum og skilað helmingsfækkun í fjölda látinna og alvarlega slasaðra í Svíþjóð og mörgum öðrum löndum sem notast við þessa hönnun vega.
Fjögur ungmenni sóttu ráðstefnuna Fjögur íslensk ungmenni sátu ráðstefnuna en yfirskrift hennar útleggst á íslensku „Hingað og ekki lengra“. Yfirskriftin vísar til þeirrar kröfu ungmenna um allan heim að 10
Íslensk ungmenni sátu ráðstefnuna í Stokkhólmi. Hér eru þau með Sigurði Inga Jóhannssyni
samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra.