VILTU FÁ ÞÉR RAFBÍL? BÍLAPRÓFUN FÍB FRÉTTIR
- Ekki sama hvaðan hann kemur
F
leiri en áður geta nú hugsað sér að fá sér rafmagnsbíl til daglegra nota og hefur salan á þeim aukist undanfarið og rafbílareynsla notenda er yfirleitt góð. En rétt er að minna væntanlega kaupendur á þá staðreynd að það er eins með rafbíla og aðra bíla að þeir eru framleiddir fyrir mismunandi markaðssvæði. Bíll sem framleiddur er fyrir t.d. bandaríska markaðssvæðið er öðruvísi úr garði gerður á ýmsan hátt en bíll fyrir Evrópska efnahagssvæðið, þar á meðal Ísland. Framleiðandaábyrgð á nýjum og nýlegum bílum í Bandaríkjunum fellur niður sé bíllinn seldur út fyrir Bandaríkin og það er hægara sagt en gert að flytja bíl fram og til baka milli Bandaríkjanna og Íslands ef hann bilar á ábyrgðartíma. Sérstaklega er mikilvægt að þetta sé haft í huga gagnvart rafbílum sem fluttir eru inn frá Bandaríkjunum. Þar er yfirleitt 110 volta spenna á rafmagninu og 60 riða tíðni á sek. Á Íslandi er 230 volta spenna og 50 riða straumur. Hvaða millibúnað er nauðsynlegt að kaupa svo hægt sé að hlaða hann með íslenska rafmagninu og hvað kostar sá búnaður? Hvaða ábyrgðir eru á bílnum og rafgeymunum hér á Íslandi og hver ber kostnaðinn af því ef hann bilar? Þessi atriði verða að vera á hreinu áður en kaup eru ákveðin.
Ástþór og Islandus
Undanfarin misseri hafa nokkrir félagsmenn leitað til FÍB 8
vegna viðskipta þeirra við fyrirtækið Islandus Europe ehf. í tengslum við kaup á bifreiðum sem fluttar hafa verið til landsins frá Bandaríkjunum. Til að upplýsa félagsmenn og koma í veg fyrir misskilning hefur FÍB tekið saman eftirfarandi upplýsingar sem nýst geta félagsmönnum við mat á því hvers konar þjónustu þetta umrædda fyrirtæki veitir. Umkvörtunarefni félagsmanna sem leitað hafa til félagsins ná meðal annars til 1) seinkunar á afhendingu bifreiða sem keyptar eru, 2) þess að bifreiðar skorti aukabúnað sem félagsmenn töldu sig eiga rétt á og jafnvel höfðu pantað, 3) skemmda á bifreiðunum. Markmiðið með þessari grein er ekki að setjast í dómarasæti í umræddum málum heldur þess í stað að draga saman áhugaverðar staðreyndir sem í ljós koma þegar skilmálar fyrirtækisins eru skoðaðir. FÍB hefur undir höndum samning Islandusar við félagsmann frá maí 2014. Þar kemur fram að Islandus sé ekki seljandi bifreiðar og heldur ekki umboðsmaður seljanda. Þess í stað sé fyrirtækið milliliður. Islandus undanþiggur sig allri ábyrgð á bifreiðinni og virðist markmið smáa letursins fyrst og fremst að undanþiggja fyrirtækið ábyrgð, m.a. á töfum og ástandi bifreiðarinnar. Athygli vekur að þrátt fyrir að Islandus segist aðeins vera milliliður þá áskilur fyrirtækið sér samt sem áður eignar-
réttarfyrirvara í bifreiðinni. Það kemur á óvart í ljósi þess að Islandus segist ekki vera seljandi bifreiðarinnar. FÍB hefur einnig undir höndum eldri samning félagsmanns við Islandus frá september 2013. Þar er fyrirsögn samningsins „kaupsamningur." Verður ekki betur séð en að þar komi Islandus fram sem seljandi umræddrar bifreiðar. Fyrirtækið virðist því notast við mismunandi samningsform. Mikilvægt er að félagsmenn séu með það á hreinu áður en þeir ganga frá samningi við Islandus hvers konar samning um er að ræða, þ.e. kaupsamning um bifreið eða þá þjónustusamning. Það getur haft þó nokkur áhrif á réttarstöðu félagsmanna gagnvart Islandusi hvernig samning um er að ræða. Ef um kaupsamning er að ræða þá geta neytendur byggt á neytendakaupalögum, sem veita kaupendum almennt sterka réttarstöðu, en ef um er að ræða þjónustusamning þá standa neytendur verr að vígi. FÍB hvetur neytendur sem hyggjast eiga viðskipti við aðila sem gefa sig út fyrir að vera einungis milligönguliðir í bifreiðainnflutningi, til að tryggja að í samningi komi fram hvaða undirtegund bifreiðar félagsmaðurinn sé að kaupa (t.d. ef það er bifreið með öllum aukabúnaði) sem og hvenær bifreiðin eigi að koma til landsins. Æskilegt væri að sá sem milligöngu hefur um viðskipti sem þessi ábyrgðist gagnvart neytandanum að bifreiðin komi til landsins á umsömdum tíma því neytandinn á afar erfitt með að sækja rétt sinn í þeim efnum á hendur erlendum seljanda sem kann að lúta erlendri löggjöf. Í einu tilviki greindi félagsmaður FÍB frá því að samningur hefði verið gerður um innflutning bifreiðar í maí 2014 og bifreiðin átt að koma til landsins í síðasta lagi í júlí sama ár. Þegar þetta er ritað í lok október þá hefur ekkert ennþá bólað á bifreiðinni. Þegar Islandus og framkvæmdastjórinn, Ástþór Magnússon, er krafinn skýringa á þessu vísar hann til smáa letursins (almennu skilmálanna) í samningnum um viðskiptin og segir jafnframt að hann beri enga ábyrgð á þessum töfum. Sökudólgurinn sé þungt bandarískt skriffinnskubákn.