Fib bladid 2 tbl 2014

Page 6

Efnisyfirlit 8

Nýtt þjónustusvæði Blönduós

9

Nýja FÍB appið

10

Bestu barnabílstólarnir

12

Bótasjóðirnir bólgna á ný

18

Sumardekkin 2014

28 Sumarborgin Lissabon

SUMARDEKKIN

2014

18

BÓTASJÓÐIRNIR

BÓLGNA Á NÝ

12

30 Íslenskur bíll á Silverstone 34 Vegatollar í Evrópu 35 Hefurðu týnt bílnum þínum? 36 Bíllyklar eru rafeindabúnaður 38 Borgarfjórhjól árekstrarprófuð 40 Ódýrari, einfaldari bílar 42 Umferðarsektir í Evrópu 44 Greiðslukortatryggingarnar 46 Nissan Qashqai reynsluakstur

NÝJUSTU OG BESTU

BARNABÍLSTÓLARNIR

10

48 Peugeot 308 reynsluakstur 50 Rafmagn í umferðinni 52 FÍB verslunin 53 FÍB skírteinið með í fríið 55 Bifreiðatengd þjónusta

GLEÐILEGT SUMARFRÍ

Nú er há-sumarleyfistíminn genginn í garð og þetta tölublað FÍB blaðsins að talsverðu leyti helgað því. Af ferðatengdu efni í blaðinu má þannig nefna nýja prófun sem ADAC í Þýskalandi hefur gert á gæðum barnabílstóla en hana er að finna á bls. 10. Margir Íslendingar verða akandi erlendis í sumarfríinu, ýmist á eigin bílum eða bílaleigubílum. Þeim má benda á samantekt ADAC og okkar á sektum við nokkrum algengum umferðarlagabrotum í 34 Evrópuríkjum, svo sem akstri yfir 6

hámarkshraða, ölvunarakstri, farsímanotkun undir stýri, fyrir að hunsa stöðvunarskyldu, aka gegn rauðu ljósi og leggja ólöglega. Skemmst er frá að segja að viðurlög við þessum brotum eru alls staðar þung, en sumsstaðar óheyrilega þung og geta auðveldlega sett fjölskyldufjárhaginn alvarlega úr skorðum. Farsælast er því að gera sér far um að fara að reglum í hvívetna og hlýða fyrirmælum umferðarskilta, vegmerkinga og lögreglu. Þá er næsta víst að yfirvöld í ferðalandinu eigi fátt vantalað við mann.

FÍB óskar félagsmönnum sínum og öllum þeim sem verða á ferðalagi í sumar, góðrar ferðar og farsældar og notalegrar heimkomu að fríinu loknu.

Stefán Ásgrímsson ritstjóri


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.