1 minute read

Ísland bætir stöðu sína í umferðaröryggi

Samkvæmt nýjum bráðabirgðatölum Evrópusambandsins hefur Ísland bætt stöðu sína í umferðaröryggi, þ.e. yfir fjölda látinna í umferðinni, miðað við höfðatölu í ríkjum Evrópu. Þar er Ísland í þriðja sæti á eftir Norðmönnum og Svíum með fæst banaslys árið 2022. Samkvæmt meðaltali áranna 2018–2022 er Ísland í fjórða sæti yfir þær þjóðir þar sem fæstir látast í umferðinni miðað við höfðatölu. Aðeins Norðmenn, Svíar og Bretar standa sig betur á fimm ára tímabilinu.

Þar sem fjöldi slysa á Íslandi er breytilegur milli ára hefur þótt rétt að tengja markmið við fimm ára meðaltal í samanburði við aðrar Evrópuþjóðir. Sé næsta fimm ára tímabil á undan skoðað var Ísland í 9. sæti.

„Eitt af yfirmarkmiðum gildandi samgönguáætlunar og umferðaröryggisáætlunar er að Ísland sé í hópi þeirra fimm Evrópuþjóða þar sem fæstir látast í umferðinni. Þetta markmið hefur nú náðst og það verður áskorun næstu ára að halda okkur á þessum stað í alþjóðlegum samanburði. Hvert banaslys er þó alltaf einu of mikið og við þurfum áfram að vinna að því hörðum höndum að uppræta þá vá sem banaslys í umferðinni eru,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra.

Fjölmargir áhrifavaldar

Fjölmargir þættir stuðla að þessari jákvæðu þróun: ökutæki eru orðin öruggari, vegir betri og ökumenn standa sig betur. Fræðsla og forvarnir, ekki hvað síst til erlendra ökumanna, hafa skilað sér vel og sömuleiðis hvatning um að við bætum hegðun okkar í umferðinni.

„Samkvæmt þessum tölum er umferðaröryggi á Íslandi með því besta sem gerist í Evrópu. Árangurinn er ekki sjálfsagður og er afrakstur áralangs samstarfs fjölmargra aðila sem koma að málaflokki umferðaröryggis.

Fjölmargir geta tekið þennan árangur til sín og vonandi verður hann okkur öllum hvatning til að gera enn betur,“ segir Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu.

FÍB hefur alla tíð lagt þunga áherslu á að efla umferðaröryggi í landinu ásamt innviðaráðuneytinu, Samgöngustofu, Vegagerðinni, lögreglu, Slysavarnafélaginu Landsbjörgu, sveitarfélögum, fjölmiðlum, tryggingafélögum, ökuskólum og ökukennurum. Auk þess sinnir fjöldi félagasamtaka og einstaklinga ómetanlegu starfi í þágu umferðaröryggis.

Endanlegar tölur Evrópusambandsins um fjölda látinna í umferðinni fyrir árið 2022 verða birtar seinni hluta ársins.

Ref Ld J Nusta Eftir Tj N

Til viðbótar við hefðbundnar tryggingar léttir Toyota þér lí ð með lausnamiðaðri þjónustu. Eftirfarandi er innifalið í kaskótryggðu tjóni hjá Toyota tryggingum:

AFNOT AF BÍLALEIGUBÍL

TOYOTA BÍLALEIGUBÍLL

- Við viljum að þú komist ferða þinna á meðan við gerum við bílinn þinn. Sama hversu langan tíma það tekur.

VIÐURKENNDIR TOYOTA

VARAHLUTIR

TOYOTA VARAHLUTIR

TOYOTA BÍLAÞVOTTUR

- Við notum eingöngu varahluti frá Toyota sem passa í bílinn þinn.

BÍLAÞVOTTUR

- Við skilum þér bílnum þínum skínandi hreinum eftir viðgerð.

A Er Einfalt A Tryggja

TOYOTATRYGGINGAR.IS

Kynntu þér málið á toyotatryggingar.is.

Þetta er eins einfalt og það getur orðið. Það er Toyota tjónustu þjónusta.