
2 minute read
Tesla þarf að breyta hinu umdeilda eftirlitskerfi Sentry Mode
Eftir gagnrýni þarf Tesla að breyta stillingum hins umdeilda eftirlitskerfis, Sentry Mode. Nú er það á ábyrgð bifreiðaeigenda að fylgt sé reglum um eftirlit. Það er ekki í lagi þegar Tesla-bílar geta tekið upp á myndband þegar einstaklingur kemur nálægt bílnum án þess að hann viti að því. Því verður bandaríski bílaframleiðandinn nú að breyta eftirlitskerfi sínu, Sentry Mode, í grundvallaratriðum.
Kerfið, sem er einkum hugsað sem aðgerð gegn þjófnaði og skemmdarverkum, hefur hingað til byrjað að mynda umhverfið sjálfkrafa með myndavélum bílsins þegar vegfarendur hafa komið of nálægt bílnum, til dæmis með því að ganga framhjá á götunni. Neytendur, stofnanir að hluta til og yfirvöld hafa að hluta gagnrýnt Tesla fyrir að brjóta friðhelgi einkalífsins og einnig efast um lögmæti Sentry Mode.
Á síðasta ári leiddi það meðal annars til þess að danska persónuverndarstofnunin leitaði til hollenskra gagnayfirvalda, Autoriteit Persoonsgegevens (Persónuvernd Hollands, DPA), þar sem Tesla í Evrópu sem er skráð í Hollandi. Eftir að DPA kom inn í málið og rannsakaði ýmsar aðgerðir Sentry Mode hefur Tesla nú tilkynnt að fyrirtækið muni breyta uppsetningu eftirlitskerfisins.
Þetta þýðir að í framtíðinni muni Tesla aðeins taka upp efni ef bílarnir verða snertir en ekki þegar vegfarandur ganga eða hjóla hjá. Og aðeins eftir að hafa varað bíleigandann við í gegn um farsímann, sem getur þá kveikt á Sentry Mode. Jafnframt blikka ljós bílsins þegar hann er í upptöku, rétt eins og það kemur fram á stórum snertiskjá bílsins að bíllinn sé að taka upp. Allt er þetta gert til að gefa umhverfinu skýrt til kynna að tökur fari fram.
Að lokum mun Sentry Mode frá Tesla aðeins vista síðustu mínútuna af myndefni án sérstakra stillinga.
Félag danskra bifreiðaeigenda, FDM, er meðal þeirra sem hefur áður lýst gagnrýni á Sentry Mode Tesla og sýndi í myndbandi hvernig eftirlitið getur farið fram.

,,Það jákvætt að hollenska gagnaeftirlitið með rannsóknum sínum hafi gert alla aðila meðvitaðri um hvenær eigi að hreyfa sig innan rammans og að Tesla sé nú að leiðrétta Sentry Mode,“ segir yfirráðgjafi FDM, Dennis Lange.

„Það er samt sem áður mjög mikilvægt að þú sem bíleigandi hafir í huga að það er að lokum á þína eigin ábyrgð að fara eftir reglum um upptökur. Þarna myndum við vilja sjá Tesla, og aðra bílaframleiðendur þess efnis, axla ábyrgð og sjá til þess að þær vörur sem seldar eru megi einungis nota löglega útskýrir hann.“
Tesla sleppur vel Breyting Tesla í Sentry Mode þýðir að DPA hefur ekki fundið ástæðu til að gefa út sekt eða önnur viðurlög gegn félaginu. Rannsóknin hefur einnig leitt í ljós að bíleigandur bera lagalega ábyrgð en ekki Tesla sem framleiðandi, sem ber lagalega ábyrgð á því að upptökur séu í samræmi við gildandi lög í viðkomandi landi.

„Með breytingunum eru allir sem ganga framhjá Tesla betur verndaðir. Á sama tíma hefur fyrirtækið dregið úr hættunni á að einstakur bíleigandi brjóti lög,“ segir Katja Mur hjá DPA.
Tesla vill ekki að Félag danskra bifreiðaeigenda (FDM) greini nánar frá breytingum sínum á Sentry Mode eða viðræðum við hollenska gagnaeftirlitið, en tekur fram að það sé nú þegar í uppfærslu á bílunum.
Þetta mun gerast stöðugt í gegnum svokallaða loftuppfærslu (OTA).
Samgöngustofa með umferðarfræðslu
í framhaldsskólum
Í janúar fór Samgöngustofa aftur af stað með umferðarfræðslu í framhaldsskólum eftir langt hlé vegna Covid. Nú þegar hafa starfsmenn stofnunarinnar farið í FÁ, Kvennó og MH og fleiri fyrirlestrar hafa verið bókaðir á næstu vikum. Í fræðslunni er farið yfir bílprófið, sektir og punkta og umferðaröryggi.
Sérstök áhersla er lögð á að vera ekki í símanum undir stýri, beltanotkun og að keyra ekki undir áhrifum. Vel hefur verið tekið á móti starfsfólki Samgöngustofu og ungmennin verið einstaklega áhugasöm um viðfagsefnið.