Víkurfréttir 47. tbl. 2017

Page 1

LAUFABRAUÐ

TÍU ÁR FRÁ ÚT GÁFU PL Ö TUNNAR BO TTLE OF BL UES MEÐ KL ASS AR T

„Eins og að ferðast aftur í tímann“

24

EIGINKVENNA GULL ALDARDRENGJA KEFL AVÍKUR

S U Ð U R N E S J A

MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is

og einnig í Suðurnesjamagasíni VF

facebook.com/vikurfrettirehf

twitter.com/vikurfrettir

instagram.com/vikurfrettir

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

fimmtudagur 30. nóvember 2017 // 47. tbl. // 38. árg.

Jólalukka VF í sautjánda sinn í 22 verslunum Tuttugu og tvæ r ve r s l anir og þjónustuaðilar á Suðurnesjum eru með í Jólalukku Víkurfrétta 2017 en þetta er í sautjánda skipti sem þessi vinsæli skafmiðlaleikur er í boði í desember. Glæsilegri vinningar eru í Jólalukkunni og má þar nefna Iphone X síma, 120 þús. kr. gjafabréf í Nettó og tíu Evrópuferðir með Icelandair. Jólalukkan hefst 1. desember í tuttugu og tveimur verslunum í Reykjanesbæ og Grindavík. Í þessum vinsæla jólaleik sem gengur út á það að fyrir 5000 kr. viðskipti fæst afhentur skafmiði eru 6 þúsund vinningar og heildarverðmæti um 7 milljónir króna. Auk fyrrnefndra vinnninga má nefna fleiri eins og vegleg gjafakort frá Bláa lóninu og Sporthúsinu, rafbækur frá einka.is og bílaþrif hjá Bílaleigunni Geysi. Þá má nefna 30 KEA hamborgarhryggi, 30 KEA hangilæri og 50 Daim íshringi frá Nettó, einnig fjölda bóka frá vinsælustu rithöfundum landsins eins og Arnaldi Indriðasyni og Yrsu Sigurðardóttur. Þá eru veglegar úttektir frá verslunum sem taka þátt í jólaleiknum. Fjölmörg önnur fyrirtæki gefa vinninga. Tvö hundruð heppnir munu fá ís á Bitanum, á Pulsuvagningum bíða eitt hundrað pulsur og kók, Sigurjónsbakarí gefur 50 snúða og Héðinsbollur, fimmtíu Issa fish & chips skammtar eru meðal vinninga, tugir af pítsum frá Langbest og Fernando’s, fjöldi báta á Olsen Olsen og 50 bíómiðar frá Sambíóunum munu renna út í leiknum. Svo eru sem fyrr tvö þúsund kókflöskur og jafn margar af Egils Appelsíni í Nettó auk fleiri vinninga. Punkturinn yfir i-ið er svo útdráttur skafmiða sem skilað er í Nettó í Reykjanesbæ og Grindavík. Í desember verða dregnir út tveir Iphone X símar, fjórir Icelandair ferðavinningar og tvö 120 þús. króna gjafakort frá Nettó auk tuttugu minni gjafakorta frá sömu verslun. Úrdrættir verða 6., 13., 20. og 24. des. Og nöfn vinningshafa kynnt á vf.is. Það er því vissara að skila miðum sem fyrst því til mikils er að vinna.

Á ferð og flugi um Suðurnes með fisk og franskar Jóhann Issi Hallgrímsson og Hjördís Guðmundsdóttir verða á ferð og flugi á ISSI FISH&CHIPS-vagninum á aðventunni. Þau reka einn vagn á Fitjum sem þau hófu rekstur á í sumar og eru svo með annan sem verður á ferðinni milli bæjarfélaganna á Suðurnesjum þar sem fiskur og franskar verða boðin til sölu. Á mánudögum verður Issi með vagninn í Vogum hjá Þorbirni, á þriðjudögum í Garði við gamla pósthúsið á miðvikudögum í Sandgerði í porti við grunnskólann og vagninn verður í Grindavík á fimmtudögum og

föstudögum á Festistplaninu hjá GEO hotel. Vagninn er opinn kl. 18-20 í þessum sveitarfélögum en að sjálfsögðu ræðst opnun að því að veður sé þannig að hægt sé að ferðast með vagninn á milli staða. Jóhann Issi sagði í samtali við Víkurfréttir að þetta sé spennandi tilraun til að hressa upp á bæjarbrag á aðventunni. Þau hjónin fá nýjan fisk í vagninn á hverjum degi og allt ferlið er sniðið til að skila hámarks gæðum til neytandans. Á myndinni brugðu þau Issi og Hjördís á leik á táknrænum stað fyrir þá sem verða á ferð og flugi. VF-mynd: HBB

VALT YFIR VEGRIÐ Á REYKJANESBRAUT

Ásbrú fær nýtt póstnúmer Dreifbýli á Suðurnesjum fá sérstök póstnúmer og Keflavíkurflugvöllur 235 Póst­ur­inn mun gera nokkr­ar breyt­ing­ar á póst­núm­er­um lands­ins frá og með næstu mánaðamót­um. Sér­stakt póst­núm­er verður tekið upp á svæðum í dreif­býli sem áður féllu und­ir sama póst­núm­er og næsti þétt­ býliskjarni. Hægt verður að þekkja flest nýju póst­núm­er­in á því að síðasta tal­an í þeim hækk­ar um einn. Póstur í dreifbýli í Vogum fer á póstnúmerið 191, 241 fyrir dreifbýli í Grindavík, 246 fyrir dreifbýli í Sandgerði, 251 fyrir dreifbýli í Garði.

Betur fór en á horfðist þegar bifreið valt á Reykjanesbraut um helgina. Henni var ekið í átt til Reykjanesbæjar þegar hún fór að rása og ökumaðurinn missti stjórn á henni. Við það valt hún yfir vegrið á veginum og endaði á hinum helmingi Reykjanesbrautarinnar. Ökumaðurinn hlaut skrámur og var fluttur með sjúkrabifreið á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja þar sem hann fékk aðhlynningu.

Ásbrú, sem er á gamla varn­ar­svæðinu, fær nú sitt eigið póst­ núm­er sem verður 262 Reykja­nes­bær en áður var póstnúmerið þar 235. Þá verður Kefla­vík­ ur­flug­völl­ur héðan í frá með sína eig­in árit­un, eða 235 Kefla­vík­ur­ flug­völl­ur.

FARÞEGAFLUG FJÓRFALDAST Á ÁTTA ÁRUM Fjölgun farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur verið hröð undanfarin ár, en árið 2010, þegar Isavia var stofnað, fóru rúmar tvær milljónir farþega um völlinn. Ef ný farþegaspá gengur eftir mun farþega-

AÐALSÍMANÚMER 421 0000

FÍTON / SÍA

Iphone X og Icelandair flugmiðar meðal 6000 vinninga

einföld reiknivél á ebox.is

fjöldi hafa fjórfaldast á átta árum og ríflega tvöfaldast frá árinu 2015. Margvíslegar áskoranir fylgja slíkum vexti og hefur Isavia staðið í tuga milljarða framkvæmdum til að mæta vextinum auk þess að fjölga starfsfólki mjög

AUGLÝSINGASÍMINN 421 0001

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

hratt. Þetta kom fram á árlegum morgunfundi Isavia sem haldin var á Hilton Nordica sl. þriðjudag þar sem kynnt var ný spá um farþegafjölda fyrir Keflavíkurflugvöll árið 2018. Sjá nánar á síðu 2 í Víkurfréttum í dag.

FRÉTTASÍMINN 421 0002

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

S U Ð U R N E S J A

MAGASÍN fimmtudagskvöld kl. 20 á Hringbraut og vf.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.