100. MARKIÐ HJÁ ELÍASI Í LOKALEIKNUM
15
15
rétti f r a g e l g Da Fimmtudagur 12. júní 2025 // 21. tbl. // 46. árg.
DREIFT Á SUÐURNESJUM OG Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU • ÓKEYPIS EINTAK
vf is
Vinnumálastofnun segir upp samningi við Reykjanesbæ
Vilja rökstuðning vegna Garðskaga Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar lýsir miklum vonbrigðum með að umsókn um styrk til nauðsynlegra framkvæmda á Garðskaga hafi enn á ný verið hafnað af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða. Málið var tekið fyrir á fundi bæjarráðs þann 28. maí og bókun þess efnis samþykkt samhljóða í bæjarstjórn. Í bókun bæjarráðs kemur fram að umrædd umsókn hafi verið lögð fram í samstarfi við Reykjanes Jarðvang, en Garðskagi er samkvæmt mælingum næst fjölsóttasti ferðamannastaður á Suðurnesjum, einungis á eftir Bláa Lóninu. Samþykkt var samhljóða að óska eftir rökstuðningi frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir þeirri ákvörðun að hafna umsókninni. Einnig var samþykkt að kallað verði eftir upplýsingum frá sjóðnum um framlög til Suðurnesja undanfarin ár og hvernig þau bera sig saman við framlög til annarra landsvæða.
n Rúmlega 20 ára þjónusta við umsækjendur um vernd lýkur í sumar Vinnumálastofnun hefur sagt upp samningi sínum við Reykjanesbæ um þjónustu við umsækjendur um alþjóðlega vernd. Uppsögnin tekur gildi 1. ágúst næstkomandi og mun stofnunin taka alfarið við verkefninu í síðasta lagi þann 31. júlí. Þetta kom fram á fundi velferðarráðs Reykjanesbæjar 5. júní, þar sem Hilma Hólmfríður Sigurðardóttir, teymisstjóri hjá velferðarsviði bæjarins, greindi frá verulegum áhrifum uppsagnarinnar á bæði mannauð og fjárhag sviðsins. Reykjanesbær hefur gegnt lykilhlutverki í þessum málaflokki allt frá árinu 2004 og verið í fararbroddi á landsvísu í þjónustu við umsækjendur um vernd. Velferðarráð vill koma á framfæri sérstökum þökkum til starfsfólks sem unnið hefur að verkefninu með fagmennsku og mannúð að leiðarljósi. Ljóst er að uppsögnin hefur óvænt fjárhagsleg áhrif, þar sem ekki var gert ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun ársins 2025. Áætlað er að halli vegna verkefnisins geti numið allt að 20 milljónum króna á þessu ári.
2 Sóllilja verðlaunuð
r!
Gangbraut fjölbreytileikans var máluð á Tjarnargötu í Keflavík í síðustu viku. Það er starfsfólk Vinnuskóla Reykjanesbæjar sem annast verkefnið og fær til liðs við sig gott aðstoðarfólk. Hér má sjá fremst Kristján Gunnarsson, formann félags eldri borgara á Suðurnesjum, sem mundaði rauða litinn og sagðist ætla að mála bæinn rauðan.
Tvö ný hringtorg við Njarðarbraut og undirgöng undir Grænásveg samþykkt n Bæjarstjórn samþykkir stórar breytingar til að bæta umferðarflæði og öryggi íbúa Ásahverfis Samþykkt var að ráðast í byggingu tvegg ja hringtorga við Njarðarbraut og hefja hönnun undirganga undir Grænásveg. Þetta var niðurstaða bæjarstjórnarfundar Reykjanesbæjar sem haldinn var í Stapa þann 3. júní sl. Framkvæmdirnar eru sagðar nauðsynlegar til að bæta umferðarflæði og tryggja öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda, ekki síst fyrir íbúa Ásahverfis sem hafa lengi kvartað undan seinkuðu aðgengi að aðalvegunum. Samkvæmt tillögu meirihlutans verður fyrsta framkvæmdin stóra hringtorgið við Fitjabakka, sem á að taka við umferðarþunga frá Njarðarbraut og Fitjabakkahverfi.
Hringtorgið, sem hefur hlotið tvítekna samþykkt í umhverfis- og skipulagsráði og er byggt á umferðargreiningu frá verkfræðistofunni Eflu, mun verða 48 metrar í þvermál og gæti farið í framkvæmdir strax í sumar.
Meirihlutinn leggur jafnframt til annað hringtorg við Bergás til að bæta útkeyrslu frá Ásahverfi, þar sem íbúar hafa kvartað undan seinkunum og skertu aðgengi. Tillagan um þetta smærra hringtorg var einnig samþykkt af meirihlut-
anum, en minnihlutinn sat hjá við atkvæðagreiðslu. Allir bæjarfulltrúar samþykktu að hafin verði hönnun á undirgöngum undir Grænásveg. Þau eiga að bæta öryggi barna og annarra vegfarenda sem þurfa að fara yfir umferðarþungan veg, sérstaklega til og frá Ásahverfi. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Umbótar lögðu fram tillögu um að fresta málinu og skoða að færa hringtorg sunnar til að þjónusta betur Ásahverfi. Þeir lögðu einnig til að skoðað yrði að loka tímabundið fyrir akstur frá Grænásvegi inn í hverfið. Tillaga um frestun var felld með sjö atkvæðum gegn fjórum.
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM