Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17 Auglýsingasíminn er 421 0001
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
Hringbraut 99 - 577 1150
vf.is
F IMMTUDAGUR INN 15 . ÁGÚST 2 0 13 • 3 0. TÖ LUBLA Ð • 34. Á RGA NGU R
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra og Ólafur Þór Jóhannsson, formaður stjórnar Fisktækniskóla Íslands, undirrituðu í vikunni samning til eins árs um kennslu í fisktækni í tilraunaskyni. Kennslan fer að mestu fram í Grindavík en einnig er unnið að uppbyggingu náms í fisktækni víða um landið í samstarfi við heimamenn á hverjum stað. Skólinn hefur verið í biðstöðu en nýundirritaður samningur þýðir að nú er grundvöllur skólans traustur þar til starfsemin kemst á fjárlög. „Það eitt og sér að ráðherra skuli heimsækja okkur er heilmikil vítamínsprauta í okkar starf,“
segir Nanna Bára Maríasdóttir sviðstjóri og kennari við skólann. Hún segir mikla kynningarvinnu liggja að baki en nú sé aðsókn í skólann að aukast og hróður hans um leið. Hugmyndafræði skólans er að sögn Nönnu sú að fólk sé ekki „bara“ að vinna í fiski. „Flestir sem starfa í þessum geira hafa mikinn eru áhugasamir um samhengið í vinnslunni, nýtingu hráefnis og verðmæti afurðanna. Fólkið vill taka þátt í því að fyrirtækin beri sig vel og skili lúxus matvöru til viðskiptavinanna. Flestir gera sér grein fyrir hversu miklu máli sjávarútvegurinn skiptir fyrir þjóðarbúið,“ segir Nanna Bára. Sverrir Þorgeirsson og Hörður Jónsson eigendur Veiðafæraþjónustunnar í Grindavík sýna ráðherra verknámsaðstöðu skólans.
Þingmenn svæðisins óvinnandi blokk
N
anna segir sjávarútveginn hafa tekið skólanum opnum örmum. Sama hvert á land leitað sé. „Við höfum aldrei komið að lokuðum dyrum með nemendur,“ segir Nanna en unnið er að því að bjóða upp á námið á landsvísu, jafnt bóklegt og verklegt. Skólinn er staðsettur í Grindavík og hafa heimamenn tekið starfseminni afar vel. „Sem dæmi má nefna að þingmennirnir hérna frá Suðurnesjum hafa staðið mjög þétt við bakið á okkur, sem og bærinn. Illugi (Gunnarsson) hafði einmitt á orði við undirskriftina að það væri óvinnandi blokk sem stæði við bakið á okkur,“ segir Nanna og hlær. Skólinn sem hefur verið starfandi frá árinu 2010 er á framhaldsskólastigi. Þeir sem mennta sig sem fisktæknar geta síðar bætt við sig annað hvort á gæðabraut eða svokallaðri Marelsbraut. Fisktæknar kynna sér fiskvinnslu, sjómennsku og fiskeldi og geta því gengið að störfum víða í sjávarútvegsgeiranum. Til stendur að stofna jafnvel háskólabrú. Einnig er skólinn í samstarfi við skóla í Stavanger í Noregi sem er tilbúinn að taka við nemendum hvenær sem er. Skólinn getur tekið á móti 30 nemendum og nú er nánast allt að fyllast fyrir haustönn. Nanna segir nemendur vera á öllum aldri og sem dæmi nefnir hún að síðasti nemandi sem var skráður inn hafi verið 53 ára kona. Nemendur sem klárað hafa skólann eru eftirsóttir í vinnu og oft er þeim boðin vinna á meðan á skólagöngu stendur.
FÍTON / SÍA
Framtíð Fisktækniskólans í Grindavík tryggð ������� ��������� � e���.��
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Alls starfa fjórir starfsmenn hjá skólanum og þeir eiga fullt í fangi með að halda öllum boltum á lofti. Sjálf hefur Nanna, sem er menntuð frá gamla Fiskvinnsluskólanum en einnig hefur hún B.A í félagsráðgjöf og kennslufræðum, kennt um 1500 manns bara á síðasta ári víðs vegar um landið á fiskvinnslunámskeiðum, þar af um 400 manns á Suðurnesjum.