45 tbl 2014

Page 1

Víkurfréttir

Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær

www.lyfja.is

Póstur: vf@vf.is Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17

16%

12%

af lyfjum utan greiðsluþátttöku

af lausasölulyfjum og öðrum vörum

afsláttur

Sími: 421 0000

Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.

Auglýsingasíminn er 421 0001 Lyfja Reykjanesbæ, Krossmóa 4, sími 421 6565

afsláttur

Við stefnum að vellíðan.

Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19, laugard. 10–16, sunnud. 12–16

vf.is

F IMMTUDAGUR INN 2 0. NÓ VE MBE R 2 0 14 • 45 . T ÖLU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R

■■Brestir í „samstarfi“ meirihluta og minnihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar :

Erum að hreinsa upp skítinn -Sjálfstæðismenn leggjast gegn launalækkun starfsmanna. „Maður verður dálítið sár og svekktur að fráfarandi forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar skuli gagnrýna hagræðingaraðgerðir og segja að við séum að gera þetta í fljótheitum. Að núverandi meirihluti sé vondi gæinn þegar verið er að taka ákvörðun um nýjar skattlagningar og niðurskurð. Ef einhver hér inni heldur að þetta sé auðvelt þá er það ekki svo,“ sagði Friðjón Einarsson, formaður bæjarráðs og oddviti Samfylkingarinnar, á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ sl. þriðjudag. Harkalegar umræður urðu milli minnihluta og meirihluta vegna aðgerða til að laga fjárhagsstöðu bæjarfélagsins. Böðvar Jónsson flutti tillögu frá Sjálfstæðismönnum þar sem sagt er að þeir leggist gegn ákvörðun bæjarráðs um kjara-

skerðingu starfsmanna sem feli í sér umtalsverðar launalækkanir. „Ákvörðunin hafi verið tekin með fljótfærnislegum hætti og án nákvæmrar greiningarvinnu,“ en sjá má bókunina í heild á Víkurfréttavefnum, vf.is. Það var eins og Böðvar hefði hent inn sprengju á fundinn því í framhaldi komu bæjarfulltrúar nýja meirihlutans upp og fóru mikinn í máli sínu. Sögðu að það væri hart að sjálfstæðismenn sem hefðu komið bæjarfélaginu í þessa slæmu stöðu kæmu nú upp og gagnrýndu þær ákvarðanir sem nauðsynlegt væri að taka. Þeir væru nú að hreinsa upp skítinn eftir þá. Friðjón Einarsson greindi frá samningi sem gera þurfti við eftirlitsnefnd sveitarfélaga að kröfu hennar vegna slæmrar stöðu í fjármálum; samningi sem Reykja-

nesbæ var skylt að ganga að, fyrst allra sveitarfélaga á landinu. Guðbrandur Einarsson frá Beinni leið sagði stöðuna skelfilega. Fjárþörf næstu þriggja ára umfram tekjur væri 2,5 milljarður króna. „Þetta er hinn kaldi veruleiki og við getum ekki tekið lán. Við höfum ekki lánstraust lengur. Ég er í þeirri stöðu að hreinsa upp skítinn en ég ætla samt að taka það að mér,“ sagði Guðbrandur. Bæjarfulltrúar sjálfstæðismanna voru hissa á hörðum viðbrögðum nýja meirihlutans við bókuninni og sögðust vilja gott samstarf um þetta stóra verkefni, að vinna á fjárhagsvanda sveitarfélagsins. Þeir lögðu áherslu á að um leið og staðan myndi lagast yrðu ákvarðanir um launaskerðingar og skattahækkanir teknar til baka. Undir það tóku fulltrúar meirihlutans. Sjá meira á bls. 2.

Fjöldi starfsmanna Reykjanesbæjar fjölmennti á bæjarstjórarfund en margir þeirra lækka í launum vegna hagræðingaraðgerða. Tónlistarkennar mættu líka og mótmæltu stöðunni í þeirra málum. VF-myndir/pket.

ALLIR VELKOMNIR Á NÝJAN STAÐ

Mjög góður árangur grunnskólanema úr Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði á samræmdu prófunum:

Erum að mennta okkur út úr kreppunni

A

FÍTON / SÍA

ð sögn Gylfa Jóns Gylfasonar fræðslustjóra Reykjanesbæjar benda fyrstu tölur til að afar góður árangur hafi náðst á samræmdum prófum í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði, sérstaklega í fjórða og sjöunda bekk. Samanlagður árangur þessara sveitarfélaga er nú í fyrsta skipti kominn yfir landsmeðaltal í fjórða bekk í íslensku, langþráðar framfarir í íslensku í sjöunda bekk eru nú að koma fram og meðalárangur í stærðfræði er vel yfir landsmeðaltali, bæði í fjórða og sjöunda bekk. Enn vantar samt herslumuninn á unglingastigi í stærðfræði og ensku og

einföld reiknivél á ebox.is

niðurstöður í íslensku í sjöunda og tíunda bekk eru enn ekki ásættanlegar þótt framfarir hafi vissulega orðið á miðstigi. Gylfi Jón þakkar árangurinn þátttöku allra aðila skólasamfélagsins. „Leikskólarnir eru að skila nemendum sínum betur undirbúnum, við erum í góðu sambandi við foreldra, sérfræðiþjónustan styður vel við innra starf skólanna, gæði kennslu hefur aukist og þekking á því sem virkar vel flæðir nú óhindrað milli skóla og skólastiga. Kennaranir okkar eru fagmenn fram í fingurgóma og eru einfaldlega að nota aðferðir sem virka. Verkefnið núna er að við-

halda þeim árangri sem hefur náðst í fjórða og sjöunda bekk þannig að hann komi einnig fram í tíunda bekk í öllum skólunum.“ „Við lögðum upp með að við ætluðum okkur að mennta okkur út úr kreppunni með því að styrkja grunnnámið, minnka þannig brottfallið og fjölga með því þeim sem ljúka námi við hæfi eftir grunnskólagöngu. Það er okkur að takast og það mun í framtíðinni skila sér í auknum tekjum fyrir íbúana með betur launuðum störfum og auknum lífsgæðum.“

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.

GLÆSILEGUR MATSEÐILL FYRIR ALLA HAFNARGÖTU 62 - KEFLAVÍK - SÍMI 421 4457

25% AFLSÁTTUR á Nutrilenk 180 stk.

Hringbraut 99 - 577 1150


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
45 tbl 2014 by Víkurfréttir ehf - Issuu