14 tbl 2016

Page 1

• Fimmtudagurinn 7. mars 2016 • 14. tölublað • 37. árgangur

STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM

LJÓSMYND: EYÞÓR SÆMUNDSSON

Fjórar F15C og eldsneytisvél í loftrýmisgæslu

Stjarna er fædd

n Loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins við Ísland hófst að nýju sl. mánudag með komu flugsveitar bandaríska flughersins. Flugsveitin kemur frá Air National Guard í Westfield, Massachusetts. Alls munu um 150 liðsmenn taka þátt í verkefninu og til viðbótar starfsmenn frá stjórnstöð NATO í Uedem, Þýskalandi (Combined Air Operations Center). Flugsveitin kom til landsins síðdegis í gær með fjórar F-15C orrustuþotur og KC-135 eldsneytisbirgðaflugvél. Verkefnið verður framkvæmt með sama fyrirkomulagi og fyrri ár og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun NATO fyrir Ísland. Ráðgert er að verkefninu ljúki fyrir lok apríl. Verkefnið er framkvæmt af starfsmönnum Landhelgisgæslu Íslands á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli, segir í frétt Landhelgisgæslunnar.

l Jóhanna Ruth söng til sigurs í úrslitum Ísland Got Talent l „Það voru allir að knúsa mig og kissa“ Nemendur Myllubakkaskóla tóku Jóhönnu Ruth opnum örmum þegar sigurvegari Ísland got talent söng fyrir samnemendur sína á sal skólans í vikunni. Á sunnudag fagnaði Keflvíkingurinn Jóhanna sigri í keppninni og hafði hún fengið frí í skólanum á mánudeginum til þess að jafna sig á

herlegheitunum og ræða aðeins við fjölmiðla. „Ég var bara mjög hress og kát eftir sigurinn. Ég fór heim og hafði það gott með fjölskyldunni. Það var mjög erfitt að sofna eftir keppnina og ég svaf held ég í bara fimm klukkutíma,“ sagði Jóhanna létt í spjalli við VF. Jóhanna fékk frábærar móttökur

þegar hún mætti í skólann eftir sigurinn. „Það voru allir að knúsa mig, heilsa mér og kyssa mig á kinnina og allir voru forvitnir um keppnina.“ Nánar er fjallað um afrek Jóhönnu Ruthar í blaðinu í dag en einnig er birt viðtal við hana í Sjónvarpi Víkurfrétta sem er á dagskrá ÍNN í kvöld.

n Um 150 liðsmenn taka þátt í loftrýmisgæslu Nató með komu flugsveitar bandaríska hersins. Fjórar F-15C orrustuþotur hafa látið til sín taka yfir Suðurnesjum og víðar að undanförnu. VF-mynd: Hilmar Bragi

Fjármunir af sölu eigna á Ásbrú verði eftir á svæðinu l Á þriðja hundrað starfsmenn við byggingu kísilvers United Silicon Allur búnaður fyrir kísilver United Silicon ásamt byggingarefni til að ljúka byggingu kísilversins er kominn til Helguvíkur. Því var fagnað sl. föstudag að 90 dagar eru þar til framkvæmdum á að ljúka við byggingu kísilversins sem síðan hefur framleiðslu 15 dögum síðar. Magnús Garðarsson, framkvæmdastjóri United Silicon, sagðist vongóður á að tímaramminn muni standast nú þegar allt sem þarf til að ljúka byggingunni og uppsetningu verksmiðjunnar væri komið á framkvæmdastað. Starfsmönnum á framkvæmdasvæði United Silicon var gerður dagamunur sl. föstudag en nú vinna 205 starfsmenn að uppbyggingu kísilversins, auk tólf starfsmanna á skrifstofu United Silicon.

Eignir á Ásbrú, gamla varnarsvæðinu, fyrir 11,5 milljarða hafa nú þegar verið seldar. Það eru um 60 prósent húsnæðis á svæðinu, í fermetrum talið. Fasteignamat þeirra eigna sem á eftir að selja er um 7,5 milljarðar. Á fundi bæjarstjórnar Reykjanesbæjar á þriðjudag lögðu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks fram bókun þess efnis að gerð verði krafa til ríkisins um að stórum hluta söluverðmætis eigna á Ásbrú verði varið til uppbyggingar á nærþjónustu á svæðinu. Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur óskað eftir afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eignum á Ásbrúarsvæðinu. Að sögn Kjartans Þórs Eiríkssonar, framkvæmdastjóra Kadeco, Þróunarfélags Keflavíkurflugvallar, á nú eftir að selja um 300 einingar af þeim 900 fjölskylduíbúðum sem eru á Ásbrú og um 300 af þeim 1100 einstaklingsíbúðar/-herbergja einingum sem þar eru. „Einnig er nokkuð eftir af verslunar-, þjónustu- og iðnaðarhúsnæði,“ segir hann. Allir kaupendur íbúðar- og atvinnuhúsnæðis á Ásbrú hafa verið leigufélög. Kjartan segir áætlanir

FÍTON / SÍA

90 dagar eftir af framkvæmdum

l Eignir fyrir 11,5 milljarða þegar seldar l 60% húsnæðis á svæðinu

einföld reiknivél á ebox.is

Kadeco um mótun samfélags á Ásbrú gengið eftir og að miðað við ástand á fasteignamarkaði undangenginna ára sé allt á áætlun. Kadeco, Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar, er í eigu ríkisins og segir Kjartan Kadeco hafa skilning á afstöðu þeirra sem vilja að meirihluti fjármagns af sölu eigna á Ásbrú verði eftir á svæðinu en að á endanum verði það eiganda fjármunanna, það er ríkisins, að ákveða hvernig þeim verði varið. Eftirfarandi er bókun bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokks í Reykjanesbæ sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar þriðjudaginn 5. apríl: Við brotthvarf bandaríska varnarliðsins haustið 2006 stofnaði ríkið Þróunarfélag Keflavíkurflugvallar ehf. og fól því að annast umsýslu fasteigna ríkisins á svæðinu og önnur verkefni sem tengjast framtíðarþróun þess. Við höfum séð svæðið þróast mikið í kringum Keili, frumkvöðlasetrið og gagnaver svo eitthvað sé nefnt og nú er svo komið að mikið af íbúðahúsnæðinu eru selt. Mikill áhugi er meðal fjárfesta og fyrirtækja í flugtengdum rekstri að nýta enn meira af því hús-

Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR

auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is

næði sem eftir er. Ásbrú er óðum að festa sig í sessi sem eitt af stærri hverfum Reykjanesbæjar og er löngu tímabært að við lítum til þess hvernig við sem sveitarfélag munum þjónusta og þróa þetta hverfi til framtíðar. Í bréfi Fjármála- og efnahagsráðuneytisins er farið fram á afstöðu Reykjanesbæjar til sölu á eigna á Ásbrúarsvæðinu. Við Sjálfstæðismenn gerum þá kröfu til ríkisins að stórum hluta söluverðmætis þessara eigna verið varið til að byggja upp nærþjónustuna á svæðinu. Reykjanesbær hefur byggt upp grunnskóla og tvo leikskóla á þessu svæði með tilheyrandi kostnaði og taka verður tillit til þessa þegar fjármunum sem myndast í Þróunarfélaginu verður úthlutað.

eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.
14 tbl 2016 by Víkurfréttir ehf - Issuu