Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
OÐ AR 98 stk. B L TI UNN uit 2 mg r u r VIK icotinell f afslátt
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
N
20%
Auglýsingasíminn er 421 0001
VELKOMIN Í LÁGT LYFJAVERÐ Félagar í FEB fá 12% afslátt af öllum vörum og góð kjör á lyfseðilsskyldum lyfjum
Opið: Mánudaga-föstudaga. 9:00 - 19:00. Laugardaga 14:00 - 18:00.
Hringbraut 99 - 577 1150
vf.is
F IMMTUDAGUR INN 2 0. F E BR ÚAR 2 0 14 • 7. TÖLU BLA Ð • 35. Á RGA NGU R
Söngleikir og þyrluflug í Sjónvarpi Víkurfrétta
S
jónvarp Víkurfrétta verður á menningarlegum nótum og í háloftunum í kvöld. Í þætti kvöldsins á ÍNN og vf.is verður leiklistinni í Reykjanesbæ gerð ítarleg skil. Vox Arena, sem er leikfélag Fjölbrautaskóla Suðurnesja, er að frumsýna í kvöld söngleikinn Dirty Dancing í samvinnu við nemendafélag skólans í Andrews menningarhúsinu á Ásbrú. Leikfélag Keflavíkur æfir einnig af kappi söngleikinn Ávaxtakörfuna. Við kíkjum á æfingu í þættinum í kvöld. Við kynnum okkur einnig hvernig ferðamenn geta skoðað margar af helstu náttúruperlum landsins á nokkrum klukkustundum með því að ferðast á milli staða í þyrlu. Við tökum því flugið í þætti kvöldsins. Þá endar þátturinn á tónlist frá tónlistarskólunum á Suðurnesjum. Sjónvarp Víkurfrétta verður á ÍNN kl. 21:30 í kvöld og aðgengilegt á vf.is á sama tíma í háskerpu. Þá er þátturinn sýndur á bæjarrásinni á Kapalkerfinu í Reykjanesbæ.
Sápukúlur og fjör í Dirty Dancing Úr söngleiknum Dirty Dancing sem frumsýndur er í Andrews menningarhúsinu á Ásbrú í kvöld. Sérstök styrktarsýning fyrir Heilbrigðisstofnun Suðurnesja verður á föstudagskvöld kl. 20:00. Nánar er fjallað um söngleikinn í blaðinu í dag og einnig í Sjónvarpi Víkurfrétta í kvöld.
Bæjarmálin eiga ekki að tengjast stjórnmálaflokkum - segir Guðbrandur Einarsson sem fer fyrir nýju framboði í Reykjanesbæ þar sem konur eru í meirihluta
Grunur um íkveikju
G
runur er um íkveikju þegar kveikt var í við byggingu á Ásbrú í Reykjanes síðdegis í gær. Slökkvilið Brunavarna Suðurnesja réð niðurlögum eldsins áður en hann náði að valda frekara tjóni. Eldurinn logaði í skýli við byggingu 755. Í skýlinu var lúga fyrir öryggishólf frá tímum Varnarliðsins. Lögreglan fer með rannsókn brunans.
Efni birtist á vf.is
Mikið af efni berst til birtingar hjá Víkurfréttum í hverri viku. Því miður náum við ekki að koma öllu þessu efni í blaðið en það birtist hins vegar á vef Víkurfrétta, vf.is. - Ritstj.
„Þetta framboð er að verða til vegna ákveðinnar undiröldu í bæjarfélaginu okkar. Það eru greinilega margir sem vilja að valkostirnir verði fleiri þegar þeir ganga að kjörborðinu í vor,“ segir Guðbrandur Einarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ en hann er í hópi fólks sem vinnur að undirbúningi nýs framboðs fyrir kosningarnar í vor. Guðbrandur er enginn nýgræðingur í bæjarpólitík. Hann sat í bæjarstjórn fyrir Samfylkinguna árin 2002 til 2006 og svo næstu fjögur ár á eftir sem oddviti A-listans sem var sameiginlegt framboð félagshyggjuflokkanna. „Þegar við fórum nokkur að tala saman um þessi mál, þá kom í ljós að við höfðum öll orðið vör
við þessa undiröldu. Það eru einnig margir sem telja að bæjarmál þurfi ekki og eigi ekki að tengjast stjórnmálaflokkum og þessi hópur sem stendur að þessu framboði endurspeglar þá hugsun að verulegu leyti.“ Guðbrandur segir að sérstök uppstillingarnefnd muni leggja fram drög að lista þegar þar að kemur, en nú sé þegar kominn öflugur hópur sem sé tilbúinn til að taka þátt í þessu verkefni og þar séu konur í meirihluta. „Það eitt að fjölga þeim hópum sem eiga sæti í bæjarstjórn eykur lýðræði. Einn flokkur hefur nú haft hreinan meirihluta í bæjarstjórn Reykjanesbæjar í tólf ár og við viljum koma í veg fyrir að árin verði sextán. Það er engum hollt að sitja í þeirri stöðu. Það meirihlutaalræði sem viðgengst í mörgum bæjarstjórnum á Ís-
landi er tímaskekkja. Til hvers þarf meirihluta? Er myndaður meirihluti í stjórnum fyrirtækja og minnihlutinn dæmdur úr leik? Er ekki kominn tími til að breyta þessu og taka upp önnur vinnubrögð. Við teljum einnig að það sé rétt að leita til íbúa eftir ráðleggingum í veigameiri málum. Mörg slík mál hafa komið til kasta bæjarstjórnar undanfarin kjörtímabil án þess að vilji íbúa hafi verið kannaður. Þarna er hægt að gera bragarbót á. Við erum þessa dagana á fullu við að undirbúa þetta, skoða málefnagrunninn og máta fólk á listann og munum mæta fersk og fjörug til leiks í næstu kosningum. Við lofum skemmtilegri kosningabaráttu,“ segir Guðbrandur Einarsson og vildi ekki gefa upp nafnið á framboðinu. Það sé komið en verði kynnt á næstunni.
www.lyfja.is
Frábært vöruúrval og þjónusta í Reykjanesbæ Betri kjör fyrir heldri borgara
Félagar í Félagi eldri borgara á Suðurnesjum njóta sérkjara í Lyfju Reykjanesbæ.
16%afsláttur
af lyfjum utan greiðsluþátttöku
12% afsláttur
af lausasölulyfjum og öðrum vörum
FÍTON / SÍA
Við stefnum að vellíðan. einföld reiknivél á ebox.is
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR
eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt.
Lyfja Reykjanesbæ Krossmóa 4 Sími 421 6565
auðveldar smásendingar Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
Afgreiðslutími: mán.–fös. 9–19 laugard. 10–16 sunnud. 12–16