Inniplöntur Það eru margvíslega ástæður fyrir því að fá sér inniplöntu. Inniplöntur geta t.d. bætt andlegan líðan, lýst upp rými og aukið loftgæði.
Við könnumst mörg við það að kaupa plöntu til þess að lífga upp á heimilið og síðan nokkrum vikum seinna er hún dáin. Það geta verið margar ástæður fyrir því að planta deyr skyndilega en lang oftast er ástæðan að plantan fékk ekki réttu umhirðuna. Fólk áttar sig ekki oft á því að ekki þurfa allar plöntur sömu umhirðu. Sumar plöntur eru t.d. harðgerðari en aðrar og þurfa ekki mikla athygli á meðan aðrar þurfa mikla umhugsun og ást. Hvernig á að halda plöntu á lífi? Allar plöntur þurfa dagsbirtu og vatn til þess að lifa af. Ef planta fær of lítið eða of mikið af hvoru tveggja þá deyr hún. Margir eiga það til að gleyma að vökva plönturnar sínar. Þá er mjög gott að velja einn dag í vikunni þar sem hægt er að hafa ,,plöntudag‘‘. Segjum að það sé
6
sunnudagur. Á hverjum sunnudegi ætla ég að athuga með plöntuna mína, hvort að hún þurfi vatn eða annað. Sumir eiga það til að gefa plöntunum sínum of mikla ást og drekkja þeim, án þess að átta sig á því. Þá er mjög sniðugt að kaupa rakamælir. Rakamæli stingur maður í moldina sem mælir þá hvort að plantan þurfi vatn eða ekki. Hversu oft á ég að vökva plöntuna mína? Ekki hafa allar plöntu sömu umhirðuna. Til þess að vita hvernig umhirðu plantan þarf er mikilvægt að fræðast aðeins um plöntuna. Það er hægt með því að lesa um plöntuna í plöntubókum eða horfa á myndbönd um hana á netinu. Oft er gott að skoða frá hvaða landi plantan er upprunalega. Plöntur sem t.d. koma upprunalega frá röku og heitu landsvæði munu þrífast best í röku og heitu umhverfi. Plöntur sem koma frá sólríku og þurru landsvæði munu þrífast best í þurru og sólríku umhverfi (þessar plöntur myndu t.d. þola það að vera á suðurglugga á Íslandi)