1 minute read

Kynning

Next Article
Inniplöntur

Inniplöntur

Heil og sæl. Sandra Ósk heiti ég og er útskriftar nemandi í grafískri miðlun. Ég bý í Skipholtinu með kærastanum mínum og hundinum okkar henni Kleinu.

Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og list. Og þegar ég var í námi út í Danmörku árið 2019 fékk ég mikinn áhuga á að hanna grafík utan um umbúðir og allskyns prentgripi. Og út frá því fann ég þetta nám hérna á Íslandi sem heillaði mig.

Þetta nám hefur kennt mér margt sem ég átti eftir ólært og fer ég út í heiminn með fleiri verkfæri í töskunni og sem betri listakona.

Eins og þið sjáið kannski þegar þið byrjið að glugga í blaðið þá hef ég mikinn áhuga á plöntum og náttúrunni, og þess vegna er það aðalumfjöllunarefnið í blaðinu mínu. Njótið!

This article is from: