4 minute read

Inniplöntur

Next Article
Vegan eplakaka

Vegan eplakaka

Það eru margvíslega ástæður fyrir því að fá sér inniplöntu. Inniplöntur geta t.d. bætt andlegan líðan, lýst upp rými og aukið loftgæði.

Við könnumst mörg við það að kaupa plöntu til þess að lífga upp á heimilið og síðan nokkrum vikum seinna er hún dáin. Það geta verið margar ástæður fyrir því að planta deyr skyndilega en lang oftast er ástæðan að plantan fékk ekki réttu umhirðuna.

Fólk áttar sig ekki oft á því að ekki þurfa allar plöntur sömu umhirðu. Sumar plöntur eru t.d. harðgerðari en aðrar og þurfa ekki mikla athygli á meðan aðrar þurfa mikla umhugsun og ást.

Hvernig á að halda plöntu á lífi?

Allar plöntur þurfa dagsbirtu og vatn til þess að lifa af. Ef planta fær of lítið eða of mikið af hvoru tveggja þá deyr hún.

Margir eiga það til að gleyma að vökva plönturnar sínar. Þá er mjög gott að velja einn dag í vikunni þar sem hægt er að hafa ,,plöntudag‘‘. Segjum að það sé sunnudagur. Á hverjum sunnudegi ætla ég að athuga með plöntuna mína, hvort að hún þurfi vatn eða annað.

Sumir eiga það til að gefa plöntunum sínum of mikla ást og drekkja þeim, án þess að átta sig á því. Þá er mjög sniðugt að kaupa rakamælir. Rakamæli stingur maður í moldina sem mælir þá hvort að plantan þurfi vatn eða ekki.

Hversu oft á ég að vökva plöntuna mína?

Ekki hafa allar plöntu sömu umhirðuna. Til þess að vita hvernig umhirðu plantan þarf er mikilvægt að fræðast aðeins um plöntuna. Það er hægt með því að lesa um plöntuna í plöntubókum eða horfa á myndbönd um hana á netinu. Oft er gott að skoða frá hvaða landi plantan er upprunalega.

Plöntur sem t.d. koma upprunalega frá röku og heitu landsvæði munu þrífast best í röku og heitu umhverfi. Plöntur sem koma frá sólríku og þurru landsvæði munu þrífast best í þurru og sólríku umhverfi (þessar plöntur myndu t.d. þola það að vera á suðurglugga á Íslandi)

Íslandi er með mjög þurrt loft miðað við önnur lönd þar sem plöntur vaxa við hvert götuhorn. Og vegna þess þrífast sumar plöntur alls ekki vel við íslenskar aðstæður.

Ef að planta þarf mikinn raka þá er hægt að beita hinum ýmsum aðferðum til þess að auka rakan í kringum hana.

PLANTA

Peningaplanta

Rifblaðka

Friðarlilja

Kaktus

Gúmmíplanta

Þykkblöðungur

Burkni

Kólus

VÖKVUN BIRTA

Hvaða plöntu á ég að velja?

Ef þú hefur aldrei átt plöntu og langar í fallega plöntu til þess að lífga upp á heimilið, þá gæti hentað þér að fá plöntu sem er harðgerð og þolir að þorna vel á milli vökvunar eins og t.d. sómakólfur, þykkblöðungur eða kaktus. Þessar plöntur eiga það sameiginlegt að vera upprunalega frá mjög þurru svæði. Plöntur sem þola þessa umhirðu eru oft frá austur Afríku. Það sem skal varast með þessar plöntur er að gefa þeim of mikið vatn.

Ef þú hefur áhuga á plöntum en ert algjör byrjandi þá myndi henta þér að fá plöntu sem þarf að vökva sirka einu sinni í viku. eins og t.d. gúmmíplöntu, mánagull og peningablóm.

Ef þú hefur mjög mikinn áhuga á plöntum og þig langar í plöntu sem mun vera áskorun fyrir þig, þá ertu heppinn. Því oft eru það mest spennandi og litameiri plönturnar sem þurfa aðeins meiri ást og athygli en aðrar. Þessar plöntur væru t.d. begóníur, burknar og tígurskrúð.

Hvenær á ég að umpotta?

Umpottun nefnist það þegar plantan er færð í nýjan pott með nýrri mold. Oft vegna þess að plantan sjálf er orðin of stór fyrir pottinn sem hún er í og rætur eru byrjaðar að vaxa út úr pottinum.

Umpottunartímabilið á Íslandi er frá miðjum apríl til byrjun ágúst, þó það megi umpotta allan ársins hring. Þá er mælt gegn því vegna þess að plöntur geta fengið sjokk þegar þeim er umpottað að vetri til vegna þess að margar plöntur taka sér hvíldartímabil á veturna, þar sem þær vaxa lítið sem ekkert.

Gæta þarf þó að kynna sér plöntuna áður en er umpottað því sumar plöntur kjósa frekar að hafa svolítið þröngt um sig og líður hreinlega betur í litlum pottum.

Mun plantan mín vaxa endalaust?

Ef þú ert hrædd/ur um að plönturnar þínar munu vaxa og vaxa og yfirtaka heimilið, þá geturðu andað léttar. Sumar plöntur vaxa hratt en þá er ekkert mál að klippa af þeim. Plönturnar munu ekki deyja við það, ef eitthvað er það gott fyrir plöntuna að fá smá klippingu af og til.

Þegar klippt er af plöntum er hægt að gefa afklippur til vina og vandamanna sem græðlinga sem einn daginn verða að stórri plöntu. En ef

maður nennir ekki að standa í því er bara hægt að fá sér plöntu sem vex hægt.

Plöntur eru góðar fyrir heimilið, skemmtilegt áhugamál og tengir okkur við náttúruna.

Plöntuáhugi hefur alltaf verið til staðar í íslensku samfélaginu en með aukinni tölvu tækni í gegnum árin hafa skapast skemmtileg samfélög á netinu, eins og t.d. Facebook hópar, þar sem fólk getur talað saman, deilt myndum og fengið ráð.

Einnig eru til YouTube rásir sem einblína bara á plöntur. Og síðan er margt skemmtilegt á Instagram reikningar sem gaman er að skoða.

Plöntu tips

Hægt er að auka raka fyrir plöntur með því að:

 Staðsetja plöntuna inná baðherbergi

 Raða plöntum saman í þyrpingar

 Fjárfesta í rakatæki

 Úða á plöntuna með vatni daglega

This article is from: