Skip to main content

Embla - Sandra Ósk Júníusdóttir

Page 1

Grafísk miðlun

13. tbl. 11. árg.

vor 2022

1


SÓTTU VEFNÁMSKEIÐIN OKKAR HVAR SEM ÞÚ ERT BROT AF VEFNÁMSKEIÐUNUM OKKAR GRAFÍSK HÖNNUN UMBÚÐA STAFRÆN GÆÐASTÝRING ÍSLENSKAR JURTIR Í MATARGERÐ EXCEL POWERPOINT INDESIGN PHOTOSHOP ÖRVERUR Í KJÖTI FARÐU INNA IDAN.IS OG SKOÐAÐU ÚRVALIÐ

Vatnagarðar 20

104 Reykjavík

Sími 590 6400

idan@idan.is

www.idan.is


EFNISYFIRLIT 4-5 Kynning

6-9 Inniplöntur

10-11 Vegan eplakaka

12-13 Máttur náttúrunnar

13 Gersemi skógarins

Umbrot og hönnun Þá er komið að útskriftarverkefninu sem er lífstílstímaritið Embla. Ég er búin að eiga æðisleg tvö ár í þessu námi og hef lært mikið frá frábærum kennurum og samnemendum. Efnistökin í tímaritinu mínu endurspeglar mín helstu áhugamál sem eru plöntur, náttúran og bakstur. Njótið!

Sandra Ósk Júníusdóttir

Hönnun forsíðu Sandra Ósk Júníusdóttir

Útgefandi Upplýsingatækniskólinn

Prentun Upplýsingatækniskólinn

3


4


Kynning Heil og sæl. Sandra Ósk heiti ég og er útskriftar nemandi í grafískri miðlun. Ég bý í Skipholtinu með kærastanum mínum og hundinum okkar henni Kleinu. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á hönnun og list. Og þegar ég var í námi út í Danmörku árið 2019 fékk ég mikinn áhuga á að hanna grafík utan um umbúðir og allskyns prentgripi. Og út frá því fann ég þetta nám hérna á Íslandi sem heillaði mig. Þetta nám hefur kennt mér margt sem ég átti eftir ólært og fer ég út í heiminn með fleiri verkfæri í töskunni og sem betri listakona. Eins og þið sjáið kannski þegar þið byrjið að glugga í blaðið þá hef ég mikinn áhuga á plöntum og náttúrunni, og þess vegna er það aðalumfjöllunarefnið í blaðinu mínu. Njótið!

5


Inniplöntur Það eru margvíslega ástæður fyrir því að fá sér inniplöntu. Inniplöntur geta t.d. bætt andlegan líðan, lýst upp rými og aukið loftgæði.

Við könnumst mörg við það að kaupa plöntu til þess að lífga upp á heimilið og síðan nokkrum vikum seinna er hún dáin. Það geta verið margar ástæður fyrir því að planta deyr skyndilega en lang oftast er ástæðan að plantan fékk ekki réttu umhirðuna. Fólk áttar sig ekki oft á því að ekki þurfa allar plöntur sömu umhirðu. Sumar plöntur eru t.d. harðgerðari en aðrar og þurfa ekki mikla athygli á meðan aðrar þurfa mikla umhugsun og ást. Hvernig á að halda plöntu á lífi? Allar plöntur þurfa dagsbirtu og vatn til þess að lifa af. Ef planta fær of lítið eða of mikið af hvoru tveggja þá deyr hún. Margir eiga það til að gleyma að vökva plönturnar sínar. Þá er mjög gott að velja einn dag í vikunni þar sem hægt er að hafa ,,plöntudag‘‘. Segjum að það sé

6

sunnudagur. Á hverjum sunnudegi ætla ég að athuga með plöntuna mína, hvort að hún þurfi vatn eða annað. Sumir eiga það til að gefa plöntunum sínum of mikla ást og drekkja þeim, án þess að átta sig á því. Þá er mjög sniðugt að kaupa rakamælir. Rakamæli stingur maður í moldina sem mælir þá hvort að plantan þurfi vatn eða ekki. Hversu oft á ég að vökva plöntuna mína? Ekki hafa allar plöntu sömu umhirðuna. Til þess að vita hvernig umhirðu plantan þarf er mikilvægt að fræðast aðeins um plöntuna. Það er hægt með því að lesa um plöntuna í plöntubókum eða horfa á myndbönd um hana á netinu. Oft er gott að skoða frá hvaða landi plantan er upprunalega. Plöntur sem t.d. koma upprunalega frá röku og heitu landsvæði munu þrífast best í röku og heitu umhverfi. Plöntur sem koma frá sólríku og þurru landsvæði munu þrífast best í þurru og sólríku umhverfi (þessar plöntur myndu t.d. þola það að vera á suðurglugga á Íslandi)


Íslandi er með mjög þurrt loft miðað við önnur lönd þar sem plöntur vaxa við hvert götuhorn. Og vegna þess þrífast sumar plöntur alls ekki vel við íslenskar aðstæður.

PLANTA

Ef að planta þarf mikinn raka þá er hægt að beita hinum ýmsum aðferðum til þess að auka rakan í kringum hana.

VÖKVUN

BIRTA

Peningaplanta Rifblaðka Friðarlilja Kaktus Gúmmíplanta Þykkblöðungur Burkni Kólus

7


Hvaða plöntu á ég að velja? Ef þú hefur aldrei átt plöntu og langar í fallega plöntu til þess að lífga upp á heimilið, þá gæti hentað þér að fá plöntu sem er harðgerð og þolir að þorna vel á milli vökvunar eins og t.d. sómakólfur, þykkblöðungur eða kaktus. Þessar plöntur eiga það sameiginlegt að vera upprunalega frá mjög þurru svæði. Plöntur sem þola þessa umhirðu eru oft frá austur Afríku. Það sem skal varast með þessar plöntur er að gefa þeim of mikið vatn. Ef þú hefur áhuga á plöntum en ert algjör byrjandi þá myndi henta þér að fá plöntu sem þarf að vökva sirka einu sinni í viku. eins og t.d. gúmmíplöntu, mánagull og peningablóm. Ef þú hefur mjög mikinn áhuga á plöntum og þig langar í plöntu sem mun vera áskorun fyrir þig, þá ertu heppinn. Því oft eru það mest spennandi og litameiri plönturnar sem þurfa aðeins meiri ást og athygli en aðrar. Þessar plöntur væru t.d. begóníur, burknar og tígurskrúð. Hvenær á ég að umpotta? Umpottun nefnist það þegar plantan er færð í nýjan pott með nýrri mold. Oft vegna þess að

8

plantan sjálf er orðin of stór fyrir pottinn sem hún er í og rætur eru byrjaðar að vaxa út úr pottinum. Umpottunartímabilið á Íslandi er frá miðjum apríl til byrjun ágúst, þó það megi umpotta allan ársins hring. Þá er mælt gegn því vegna þess að plöntur geta fengið sjokk þegar þeim er umpottað að vetri til vegna þess að margar plöntur taka sér hvíldartímabil á veturna, þar sem þær vaxa lítið sem ekkert. Gæta þarf þó að kynna sér plöntuna áður en er umpottað því sumar plöntur kjósa frekar að hafa svolítið þröngt um sig og líður hreinlega betur í litlum pottum. Mun plantan mín vaxa endalaust? Ef þú ert hrædd/ur um að plönturnar þínar munu vaxa og vaxa og yfirtaka heimilið, þá geturðu andað léttar. Sumar plöntur vaxa hratt en þá er ekkert mál að klippa af þeim. Plönturnar munu ekki deyja við það, ef eitthvað er það gott fyrir plöntuna að fá smá klippingu af og til. Þegar klippt er af plöntum er hægt að gefa afklippur til vina og vandamanna sem græðlinga sem einn daginn verða að stórri plöntu. En ef


maður nennir ekki að standa í því er bara hægt að fá sér plöntu sem vex hægt. Plöntur eru góðar fyrir heimilið, skemmtilegt áhugamál og tengir okkur við náttúruna. Plöntuáhugi hefur alltaf verið til staðar í íslensku samfélaginu en með aukinni tölvu tækni í gegnum árin hafa skapast skemmtileg samfélög á netinu, eins og t.d. Facebook hópar, þar sem fólk getur talað saman, deilt myndum og fengið ráð. Einnig eru til YouTube rásir sem einblína bara á plöntur. Og síðan er margt skemmtilegt á Instagram reikningar sem gaman er að skoða.

Plöntu tips Hægt er að auka raka fyrir plöntur með því að:

Staðsetja plöntuna inná baðherbergi

Raða plöntum saman í þyrpingar

Fjárfesta í rakatæki

Úða á plöntuna með vatni daglega

9


Vegan eplakaka Þegar líða fer á sumarið er tilvalið að henda í eina eplaköku. Þessi uppskrift er ótrúlega góð og enn betri með ís.

• • • • • • • • • • • • • • •

2 og ½ dl hveiti 1 dl sykur 1 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi ½ tsk salt 1 tsk malaðar kardimommur 1 tsk vanilludropar 1 dl olía 1 msk eplaedik 2 og ½–3 dl hrein vegan jógúrt ½ dl bourbon viskí ½ krukka epla- og kanilsulta 1–2 epli Kanilsykur Möndluflögur að toppa með

1. Hitið ofninn í 175°c 2. Byrjið á því að hræra saman þurrefnum í stóra skál. 3. Bætið restinni af hráefnunum saman við (fyrir utan sultuna, kanelsykurinn og möndlurnar) og hærið saman í deig án kekkja. Hrærið samt ekki of mikið svo kakan verði ekki þurr. 4. Smyrjið 20 cm form með smjörlíki eða leggið smjörpappír í það. 5. Hellið deiginu í formið og toppið með sultunni. 6. Skerið eplið í þunnar sneiðar og raðið yfir sultuna. Stráið svo kanilsykri og möndluflögum yfir. 7. Bakið í 25­–30 minútur eða þar til pinni kemur hreinn úr kökunni þegar stungið er í hana. 8. Berið fram með vegan vanilluís og njótið. Gott er að láta kökuna kólna en finnst þó gott að bera hana fram örlítið volga.

10


11


Máttur náttúrunnar Rannsóknir hafa sýnt að fá sér göngutúr í náttúrunni dregur verulega úr streitueinkennum. Einnig er hægt að finna margt spennandi í náttúrunni eins og t.d. sveppi, ber og jurtir sem hægt er að nota til matargerðar. Náttúran á andlega líðan Þegar við förum í göngutúr í náttúrunni þá förum við að einbeita okkur frekar að augnablikinu heldur en vandamálum gærdagsins. Líkaminn fer t.d. ósjálfrátt að hlusta frekar á fuglasönginn og finna fyrir kyrrðinni heldur en að hlusta á hugsanir okkar sem eru stundum óstöðvandi að reyna að leysa öll heimsins vandamál. Nú til dags þegar við erum alltaf sitjandi við tölvuna og í símunum er enn þá mikilvægara að draga sig aðeins til hlés, standa upp og fá sér göngutúr. Þó það sé ekki nema stuttur göngutúr, þá náum við aðeins að aftengja okkur við óstöðvandi áreiti frá tölvum og símum. Og oft fáum við góðar hugmyndir þegar við fáum okkur göngutúr því það er eins og hausinn

12

á okkur nær að anda, og nær að hugsa skýrar og á auðveldari með að leysa vandamál. Hér á Íslandi eru til margar fallegar gönguleiðir. Og sérstaklega eru gönguleiðirnar í íslenskum skógum fallegar. Fyrir nokkrum áratugum síðar voru alls ekki mörg tré hér á landi en vegna aukinna gróðursetningu trjáa fara skógar vaxandi. og ekki skemmtir fyrir hvað er hægt að finna í skógum ef maður er með augun opin. Íslensk náttúra Íslensk náttúra er einstök vegna fegurð sinnar en hún er líka einstök því hér á landi vaxa allskyns jurtir, ber og sveppir.


Hjá mörgum Íslendingum er hefð fyrir því að fara á sumrin í tínslu. Margar gera t.d. fjölskyldu ferð úr þessu og hefur þetta tíðkast í langan tíma í aldanna rás hafa forfeður okkar nýtt sér jurtir, sveppi og ber sem þrífast í íslenskri náttúru sér til lækninga og heilsubótar. Margar jurtir töldust t.d. hafa lækningaeiginleika og voru notaðar gegn hinu ýmsum kvillum. líklegt er talið að í fyrstu hafi maðurinn af eðlisávísun tekið að safna jurtunum til átu og smám saman lært að nýta sér þær til lækninga. þannig hafi fólki lærst hvaða jurtir væru góðar til matar, hverjar nýtanlegar til lækninga og hverjar eitraðar. Í tímans rás hefur svo hver kynslóð á fætur annarri numið og betrumbætt listina að búa til lyf. Höfundur: Sandra Ósk

13


Gersemi skógarins Sveppir Á Íslandi er hægt að finna fjölda allan af sveppum Sumir þeirra eru ætir en aðrir ekki. Sveppir reiða sig á rótarkerfi trjáa í uppvextinum og finnast því gjarnan í skóglendi. Vegna þess að sumir sveppir eru eitraðir er mikilvægt að kynna sér hvaða sveppi má tína áður en lagt er af stað í sveppatínslu. Hægt er að afla sér upplýsinga með því að sækja námskeið eða glugga í sveppabók. Gott er að hafa sveppabók meðferðis þegar lagt er af stað í sveppatínslu til þess að geta auðkennt sveppina. Jurtir Allskyns jurtir er hægt að finna í Íslenskri náttúru. Oft eru þessar jurtir notaðar til heilsubótar og til lækninga. Einnig er vinsælt að nýta jurtirnar til matargerðar og til drykkju. Vinsælar jurtir eru t.d. eru fjallagrös, hvannir og blágresi. Blóm

Ber Hægt er að finna allskyns ber í skógum landsins. Vinsælustu berin til þess að týna eru bláber, rifsber, krækiber og hrútaber. Margir búa til sultu, saft og hlaup úr berjunum og njóta yfir árið. Einnig er hægt að frysta berin og nota í bakstri eða í drykki.

14

Höfundur: Sandra Ósk

Gaman er að týna blóm á sumrin og setja í vasa fyrir sumarstemninguna. Vinsæl blóm til þess að týna eru t.d. túnfífill, lúpína og baldursbrá. Þó sumir kalla þessi viltu blóm arfa þá munu þau alltaf vera partur af íslensku sumri.


LÍFIÐ ER Í LIT

HJÁ OKKUR FORVINNSLA PRENTUN OG FRÁGANGUR

Við sjáum um þetta allt! Hafðu samband við okkur og við reddum málunum!

Skemmuvegi 4

200 Kópavogi

Sími 540 1800

litlaprent@litlaprent.is

www.litlaprent.is15


ÞÍN KJÖR ÞÍN RÉTTINDI Að vera í réttu stéttarfélagi skiptir máli

GRAFÍA Stéttarfélag í prentog miðlunargreinum

Kynntu þér réttindin þín og fáðu frekari upplýsingar inn á heimasíðunni okkar

Stórhöfða 31

3. hæð

www.grafia.is

110 Reykjavík

Sími 552 8755

grafia@grafia.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Embla - Sandra Ósk Júníusdóttir by Tækniskólinn - Issuu