
1 minute read
Vegan eplakaka
Þegar líða fer á sumarið er tilvalið að henda í eina eplaköku. Þessi uppskrift er ótrúlega góð og enn betri með ís.
• 2 og ½ dl hveiti • 1 dl sykur • 1 tsk lyftiduft • 1 tsk matarsódi • ½ tsk salt • 1 tsk malaðar kardimommur • 1 tsk vanilludropar • 1 dl olía • 1 msk eplaedik • 2 og ½–3 dl hrein vegan jógúrt • ½ dl bourbon viskí • ½ krukka epla- og kanilsulta • 1–2 epli • Kanilsykur • Möndluflögur að toppa með 1. Hitið ofninn í 175°c
2. Byrjið á því að hræra saman þurrefnum í stóra skál.
3. Bætið restinni af hráefnunum saman við (fyrir utan sultuna, kanelsykurinn og möndlurnar) og hærið saman í deig án kekkja. Hrærið samt ekki of mikið svo kakan verði ekki þurr.
4. Smyrjið 20 cm form með smjörlíki eða leggið smjörpappír í það.
5. Hellið deiginu í formið og toppið með sultunni.
6. Skerið eplið í þunnar sneiðar og raðið yfir sultuna. Stráið svo kanilsykri og möndluflögum yfir.
7. Bakið í 25–30 minútur eða þar til pinni kemur hreinn úr kökunni þegar stungið er í hana.
8. Berið fram með vegan vanilluís og njótið. Gott er að láta kökuna kólna en finnst þó gott að bera hana fram örlítið volga.
