
5 minute read
Vestfirðir
Nr. Safn Síða 1 Minjasafn Egils Ólafssonar ............ 56 2 Skrímslasetrið ..................... 56 3 Listasafn Samúels í Selárdal .......... 57 4 Safn Jóns Sigurðssonar .............. 58 5 Smiðjan á Þingeyri .................. 59 6 Turnhúsið. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 59 7 Ósvör Sjóminjasafn .................. 60 8 Snjáfjallasetur ..................... 60 9 Steinshús ......................... 62 10 Sauðfjársetur á Ströndum ............. 63
3
1
PATREKSFJÖRÐUR
612
BOLUNGARVÍK
7
6
ÍSAFJÖRÐUR
624
5
2 4
63
DYNJANDI
60
62
HORNSTRANDIR
633
8
635
9
608
60 61
608 643
10
68
60
Á Minjasafni Egils Ólafssonar að Hnjóti við Örlygshöfn er einstætt safn merkilegra muna frá sunnanverðum Vestfjörðum sem segja sögu sjósóknar, landbúnaðar og daglegs lífs. Þessir munir veita góða innsýn í lífsbaráttu fólks og þá útsjónarsemi og sjálfsbjargarviðleitni sem fólk varð að beita til að komast af við erfiðar aðstæður. Á safninu er einnig að finna hattinn hans Gísla á Uppsölum og sýningu um björgunarafrekið við Látrabjarg. Í safninu er björt og heimilisleg kaffitería og vísir að upplýsingamiðstöð.
Hnjótur, Örlygshöfn, 451 Patreksfjörður 456 1511 www.hnjotur.is museum@hnjotur.is Opnunartími: 1. maí – 31. sept: daglega, 10-18. Okt – apr: eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Nemendur, eldri borgarar og hópar: 700 kr.
Skrímslasetrið Bíldudal
Í Skrímslasetrinu eru varðveittar skrímslasögur sem fylgt hafa þjóðinni frá öndverðu.
Mikill fjöldi skráðra skrímslasagna er til frá Arnarfirði og hefur verið talað um hann sem einn mesta skrímslafjörð Íslands. Gestir safnsins geta hlýtt á sögur um viðureignir manna og skrímsla, sem settar eru fram á frumlegan og áhrifaríkan hátt. Myndir, myndbönd og textar gæða skrímslin lífi, svo ekki sé minnst á gagnvirka skrímslakortið og tvö skrímsli í fullri stærð. Í Skrímslasetrinu er gott kaffihús og minjagripabúð.

Skrímslasetrið Bíldudal, Strandgata 7, 465 Bíldudalur 456 6666 www.skrimsli.is skrimsli@skrimsli.is Opnunartími: 15. maí – 15. september: daglega, 10-17. Aðgangseyrir: 1.450 kr. 1.000 kr. fyrir eldri borgara og öryrkja. Frítt fyrir 10 ára og yngri í fylgd með fullorðnum.



Mörg undanfarin ár hefur Félag um listasafn Samúels unnið í Selárdal að viðgerðum á verkum listamannsins með barnshjartað. Búið er að taka í notkun hús Samúels og er þar opin kaffistofa og minjagripasala. Í listasafnshúsinu eru nú haldnar listsýningar á neðri hæðinni.
Listasafn Samúels í Selárdal Brautarholti, Selárdal við Arnarfjörð 698 7533 www.samueljonssonmuseum.jimdofree.com olafur@sogumidlun.is Opnunartími: 10-19 á sumrin.
Aðgangseyrir: 500 kr. Börn yngri en 12 ára: ókeypis.
Hrafnseyri við Arnarfjörð er fæðingarstaður Jóns Sigurðssonar sem fæddist þar 17. júní 1811.

Jón Sigurðsson var óumdeilanlegur foringi Íslendinga í sjálfstæðisbaráttu þeirra undan yfirráðum Dana á 19. öld. Hann vildi bæði frelsa landið undan stjórn einvalds konungs og íslensku þjóðina frá úreltum samfélags- og atvinnuháttum. Nafn hans er því órjúfanlega tengt stofnun íslenska þjóðríkisins og eftir andlát hans árið 1879 varð Jón sameiningartákn íslensku þjóðarinnar. Þann 17. júní 2011 var opnuð ný sýning á Hrafnseyri um Jón Sigurðsson í tilefni þess að 200 ár voru liðin frá fæðingu hans. Á Hrafnseyri er einnig að finna burstabæ sem byggður var 1997 og er að nokkru leyti eftirlíking af þeim bæ sem Jón fæddist í. Þar er rekin veitingasala. Snotur timburkirkja er á staðnum, vígð 1886.


Hrafnseyri við Arnarfjörð, 465 Bíldudalur 456 8260 / 845 5518 www.hrafnseyri.is hrafnseyri@hrafnseyri.is Opnunartími: 1. júní – 8. sept. Frekari upplýsingar er að finna á www.hrafnseyri.is.

Sjóminjasafnið í Ósvör í Bolungarvík samanstendur af tvöfaldri 19. aldar verbúð, salthúsi, stakkstæði og þurrkhjalli.

Á safninu er að finna sexæringinn Ölver sem gefur gestum góða mynd af fiskveiðiskipum fyrri alda. Einnig eru til sýnis veiðarfæri sem og ýmis tæki og tól sem notuð voru við veiðar og fiskverkun á öldum áður. Safnvörður tekur á móti gestum íklæddur skinnklæðum líkum þeim er íslenskir sjómenn klæddust áður fyrr og lýsir því sem fyrir augu ber.

Sjóminjasafnið Ósvör Aðalstræti 10-12, 415 Bolungarvík 892 5744, www.bolungarvik.is/osvor/ osvor@osvor.is Opnunartími: 10. júní – 20. ágúst: daglega, 10-16. Aðrir tímar eftir samkomulagi.
Aðgangseyrir: 1.300 kr. Börn yngri en 15 ára: ókeypis. Afsláttur fyrir eldri borgara.
Snjáfjallasetur
Snjáfjallasetur er í Dalbæ á Snæfjallaströnd.
Þar má sjá sýningu um Drangajökul og um horfna byggð í Snæfjalla- og Grunnavíkurhreppum hinum fornu, um tónskáldið Sigvalda Kaldalóns og Spánverjavígin 1615.
Snjáfjallasetur er einnig með útgáfustarfsemi og viðburði í Dalbæ yfir sumarið.
Snjáfjallasetur: Dalbær, Snæfjallaströnd, 401 Ísafjarðardjúp 698 7533 www.snjafjallasetur.is snjafjallasetur@snjafjallasetur.is Opnunartími: 17. júní –16. ágúst. Frekari upplýsingar um opnunartími veittar símleiðis.

Skáldið Steinn Steinarr hefur verið talinn helsta skáld módernismans hér á landi.

Á sýningu í Steinshúsi í næsta nágrenni við Nauteyri (4 km frá vegamótum við Steingrímsfjarðarheiði) er fjallað um helstu æviatriði Steins Steinarrs – uppruna skáldsins við Djúp, hreppaflutninga í Saurbæ, fyrstu kynni af skáldskap hjá Stefáni frá Hvítadal, nám þar hjá Jóhannesi úr Kötlum, fyrstu skáldskapartilraunir, námsdvöl að Núpi, lausamennsku í vinnu, útgáfur ljóða, upphaflega gerð Tímans og vatnsins, kynni Steins og Ásthildar Björnsdóttur, ferðalög Steins, áhrif hans á ungskáld, síðustu ár hans og ýmislegt fleira. Sýningin er bæði á íslensku og ensku.

Í Steinshúsi er opin veitingastofa í þrjá mánuði yfir sumartímann. Á matseðlinum er súpa, kaffi, heitt súkkulaði, heimabakað brauð, kökur og vöfflur. Hægt er að kaupa handverk úr héraði á staðnum. Þráðlaust net er í boði.

Steinshús-Nauteyri, 512 Hólmavík 822 1508 www.steinnsteinarr.is steinshus@steinnsteinarr.is thruman@simnet.is Opnunartími: 16. júní – 21. ágúst: daglega, 10-20.
Aðgangseyrir: Ókeypis.
Sauðfjársetrið er áhugaverð og fræðandi sýning um íslensku sauðkindina og sauðfjárbúskap.

Einnig eru tvö rými fyrir tímabundnar sýningar sem er reglulega skipt út. Sauðfjársetrið veitir fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Börnin una sér vel í leikherberginu meðan fullorðna fólkið skoðar sýninguna en öll fjölskyldan getur líka skemmt sér saman við að láta reyna á þekkingu sína um sauðfé og önnur húsdýr. Setrið er við sjóinn og umhverfis það er fjölbreytt fuglalíf. Þar er einnig að finna fallega gönguleið með útilistaverkum. Á kaffihúsinu gefst færi á að smakka frægu rabarbarabökuna eða ís sem framleiddur er í nágrenninu. Þar er einnig að finna hannyrða- og minjagripaverslun.

Sævangur, 510 Hólmavík 451 3324 / 693 3474 www.strandir.is/saudfjarsetur saudfjarsetur@saudfjarsetur.is Opnunartími: Júní – ágúst: 10-18. Sept – maí: eftir samkomulagi.