5 minute read

Austurland

Nr. Safn 864Síða 1 Minjasafnið á Bustarfelli..................................... 82 2 Skriðuklaustur - menningarsetur og sögustaður.... 83 3 Minjasafn Austurlands........................................ 86 4 Náttúrugripasafnið í Neskaupstað........................ 84 4 Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar...84 4 Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar ...................... 84 5 Sjóminjasafn Austurlands ................................... 85 6 Íslenska stríðsafnið............................................ 85 7 Frakkar á Íslandsmiðum...................................... 85 8 Menningarmiðstöð Hornafjarðar........................... 87

85

1

2

VATNAJÖKULL

1

8

94

EGILSSTAÐIR

LAGARFLJÓT

931

3

1

6

95 953

5

92

7

1 96

4

Bustarfell í Vopnafirði er einn af fegurstu og best varðveittu torfbæjum á Íslandi.

Hann hýsir safn muna sem lýsa glöggt búskaparháttum fyrri tíma. Leiðsögn um bæinn/safnið er í boði alla daga yfir sumartímann. Við hlið gamla bæjarins er Hjáleigan; kaffihús/ þjónustuhús og lítill húsdýragarður.

Bustarfell, 691 Vopnafirði 855 4511 vopnafjardarhreppur.is/sofn bustarfell@simnet.is facebook.com/bustarfell Opnunartími: Júní – september: daglega, 10-17. Aðgangseyrir: 1.300 kr. Eldri borgarar og hópar (10+): 1.000 kr. Börn 9-13 ára: 500 kr. Börn 8 ára og yngri: ókeypis.

Sögustaður með rústum miðaldaklausturs frá 16. öld og húsi Gunnars Gunnarssonar sem byggt var 1939.

Skáldið gaf íslensku þjóðinni þetta einstaka hús 1948 og í því er safn um Gunnar og klaustrið ásamt sýningum og viðburðum af ýmsum toga sem sækja efnivið í austfirska menningu og náttúru. Persónuleg leiðsögn er veitt um húsið og minjasvæðið. Klausturkaffi býður hádegis- og kaffihlaðborð alla daga að sumri með áherslu á austfirskt hráefni.

Gunnarsstofnun, Skriðuklaustur, 701 Egilsstaðir 471 2990 www.skriduklaustur.is klaustur@skriduklaustur.is Opnunartími: Apríl – maí: daglega, 11-17. Júní – ágúst: daglega, 10-18. 1. sept – 15. okt: daglega, 11-17. Breytilegur opnunartími yfir vetrartímann. Aðgangseyrir: Safn: 1.100 kr. Börn 16 ára og yngri: ókeypis.

Fullt af frábærum söfnum! Söfnin eru opin alla daga vikunnar frá 1. júní til 31. ágúst eða eftir samkomulagi í síma 470 9063 á öðrum tímum ársins.

Myndlistarsafn Tryggva Ólafssonar Tryggvi Ólafsson er á meðal helstu brautryðjenda í íslenskri myndlist. Safnið er stærsti eigandi landsins á verkum eftir Tryggva og er ný sýning sett upp á hverju ári.

Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar Einstaklega skemmtilegt safn sem gerir liðnum atvinnuháttum í báta-, járn- og eldsmíði aðgengileg skil. Nákvæm eftirlíking af eldsmiðju er á meðal athyglisverðustu safnamuna.

Náttúrugripasafnið í Neskaupstað Upplifðu flóru og fánu landsins í skemmtilegri nærmynd í einu athyglisverðasta náttúrugripasafni landsins.

Egilsbraut 2, 740 Neskaupstað 477 1446 / 470 9063 www.tryggvasafn.fjardabyggd.is/safnid/ sofn@fjardabyggd.is Opnunartími: Maí – ágúst: virka daga, 13-21. Helgar, 13-17. Aðrir árstímar: Eftir samkomulagi.

Sjóminjasafn Austurlands Afar fallegt safn staðsett í Gömlu búð, einu elsta húsi á Austurlandi. Safnið gerir ekki aðeins sjósókn skil heldur einnig ýmsum greinum iðnaðar og lækninga. Í eigu safnsins er einnig upprunaleg verbúð sem staðsett er í Randulffssjóhúsi á Eskifirði.

Íslenska stríðsárasafnið Safngestir ferðast aftur til daga seinni heimsstyrjaldarinnar. Veitt er einstök innsýn í lífið á stríðsárunum og áhrif hersetunnar á íslensku þjóðina.

Frakkar á Íslandsmiðum Nýtt og afar glæsilegt safn helgað arfleifð franskra skútusjómanna á Íslandi. Safnið er hluti af Frönsku húsunum á Fáskrúðsfirði og tengir skemmtilega saman Franska spítalann og Læknishúsið. Aðalhönnuður safnasýninga er Árni Páll Jóhannsson, leikmyndahönnuður.

Strandgata 39b, Eskifjörður 470 9000, www.sjominjasafn.com sofn@fjardabyggd.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: daglega, 13-17 (og eftir samkomulagi).

Hæðargerði, 730 Reyðarfjörður 470 9000 / 470 9063 stridsarasafn.fjardabyggd.is/ sofn@fjardabyggd.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: daglega, 13-17 (og eftir samkomulagi).

Hafnargötu 12, 750 Fáskrúðsfjörður 475 1170 / 470 9063 sofn@fjardabyggd.is Opnunartími: 15. maí – 30. september: daglega, 10-18. Aðrir árstímar: eftir samkomulagi.

Á Minjasafni Austurlands eru tvær grunnsýningar, annars vegar sýningin Hreindýrin á Austurlandi og hins vegar sýningin Sjálfbær eining. Auk þeirra er boðið upp á margvíslegar smærri sýningar yfir árið.

Hreindýrin á Austurlandi Á Íslandi lifa hreindýr aðeins villt á Austurlandi og það skapar náttúru og menningu fjórðungsins sérstöðu. Á sýningunni er fjallað um lífshætti og lífsbaráttu hreindýranna, hætturnar sem þau búa við af völdum náttúru og mannsins, um rannsóknir á þeim, sögu hreindýraveiða og hvernig afurðir dýranna hafa verið nýttar til matar og í handverk.

Sjálfbær eining Yfirskrift sýningarinnar vísar til þess að áður fyrr þurfti hvert íslenskt sveitaheimili að vera sjálfu sér nægt um brýnustu lífsnauðsynjar, s.s. fæði, klæði, áhöld, verkfæri og húsaskjól. Til sýnis eru ýmsir gripir sem tilheyra sögu gamla sveitasamfélagsins á Austurlandi eins og það var fram undir miðja 20. öld. Meðal sýningargripa er baðstofa frá bænum Brekku í Hróarstungu.

Minjasafn Austurlands, Laufskógar 1, 700 Egilsstaðir 471 1412, www.minjasafn.is minjasafn@minjasafn.is Opnunartími: Júní – ágúst: daglega, 10-18. September – maí: þri – fös, 11-16. Hægt að semja um opnun utan auglýsts opnunartíma. Aðgangseyrir: 1.500 kr. Nemendur, eldri borgarar og öryrkjar: 1.000 kr.

Menningarmiðstöð Hornafjarðar varð til árið 1990 með sameiningu nokkurra safna. Ýmis söfn eru starfrækt innan Menningarmiðstöðvarinnar: byggðasafn, sjóminjasafn, listasafn, sjóminjasafn og fleira.

Sýningar á vegum safnanna eru mikilvægur þáttur í safnastarfinu. Menningarmiðstöðin leggur mesta áherslu á miðlun og fræðslu menningararfs Hornafjarðar, skrásetningu hans og varðveislu til framtíðar.

Önnur meginmarkmið Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar er að hlúa að því öfluga og fjölbreytta menningarstarfi sem til staðar er í sveitarfélaginu og að efla atvinnustarfsemi og uppbyggingu ferðamannastaða í sveitarfélaginu. Efla vitund fólks um sérkenni og menningararf héraðsins og halda þeim sérkennum við með fræðslu, kynningu og beinum aðgerðum.

Litlabrú 2, Nýheimar, 780 Höfn í Hornafirði 470 8050 www.hornafjordur.is/mannlif/menning/ menningarmidstod@hornafjordur.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: virka daga, 10-16. 1. september – 31. maí: virka daga, 8-16.

This article is from: