
12 minute read
Suðurland
1
BORGARNES 50
LANGJÖKULL
1
427 47
9
48
ÞINGVELLIR
36
HVERAGERÐI
8 7
SELFOSS
ÞORLÁKSHÖFN
6
LAUGARVATN GEYSIR 35
GULLFOSS
30
35
30
26
4 3
261 32
Nr. Safn Síða 1 Kötlusetur ......................... 90 2 Skógasafn ......................... 92 3 Keldur á Rangárvöllum ............... 91 4 Lava Eldfjallasetur .................. 94 5 Mjaldrasetrið ....................... 96 5 Eldheimar ......................... 98 5 Skansinn .......................... 99 5 Sagnheimar ........................ 99 6 Byggðasafn Árnesinga - Húsið á Eyrarbakka .................103 7 Skyrland ..........................100 7 Fischersetrið .......................102 8 Listasafn Árnesinga .................104 8 Hveragarðurinn Hveragerði ............105 9 Jarðhitasýningin ....................106
VESTMANNAEYJAR
5
EYJAFJALLAJÖKULL
SELJALANDSFOSS
2
SKÓGAFOSS
HOFSJÖKULL
LANDMANNALAUGAR
MÝRDALSJÖKULL
VÍK 1
VATNAJÖKULL
1
Kötlusetur er miðstöð menningar, fræða og ferðamála í Mýrdal. Setrið er staðsett í Brydebúð, fyrstu byggingunni sem reis varanlega á Víkursandi – og næstelsta timburhúsi á Suðurlandi (á eftir Húsinu á Eyrarbakka).
Kötlusýningin einblínir á jarðfræði og menningu Kötlu UNESCO svæðisins, sem stofnað var árið 2010.
Sýningin fjallar um hin þrjú virku eldfjöll, Eyjafjallajökul, Grímsvötn og Kötlu (sem er að sjálfsögðu í aðalhlutverki). Gestir geta einnig skoðað helstu bergtegundir svæðisins og hvernig eldvirkni hefur haft áhrif á svæðið. Lærið um viðbrögð í eldgosum og hvernig jökulhlaup haga sér á svæðinu.
Sjóminjasafnið Hafnleysa segir sögu sjósóknar í Vík, sem er eina sjávarþorp landsins þar sem aldrei hefur verið höfn. Gestir sýningarinnar fræðast um sögu skipsstranda á suðurströndinni og upphaf verslunar í Vík. Djásn safnsins er 100 ára gamla fraktskipið Skaftfellingur.
Frekari upplýsingar eru veittar í upplýsingamiðstöðinni.



Víkurbraut 28, 870 Vík 487-1395 www.kotlusetur.is, info@vik.is Instagram: Katlacentre Opnunartími: 15. maí – 15. september: Mán – lau: 10-17. 16. september – 14. maí: þri – mið: 13-17. fim: 15-18. Fös – lau: 12-17. Lokað sunnudaga og mánudaga. Aðgangseyrir: Frítt er inn á sýningarnar en hægt að bóka leiðsögn gegn vægu gjaldi.

Á Keldum er að finna sögufrægan torfbæ af fornri gerð og hann er jafnframt eini stóri bærinn sem varðveist hefur á Suðurlandi.
Auk bæjarhúsa og kirkju eru þar skemmur, smiðja, myllukofi, fjós, hesthús, fjárrétt, jarðgöng o.fl. Keldur eru kunnur sögustaður. Samkvæmt Njálssögu bjó þar Ingjaldur Höskuldsson sem frægur varð fyrir að bregðast Flosa í aðför hans að feðgunum á Bergþórshvoli. Á 12. og 13. öld voru Keldur eitt af höfuðbólum Oddaverja en höfðingi þeirra, Jón Loftsson (d. 1197) bjó á Keldum síðustu æviár sín.


Keldur, 851 Hella 530 2200 www.thjodminjasafn.is thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: daglega, 10 -17. Aðgangseyrir: 1.200 kr. Eldri borgarar og námsmenn: 600 kr.

Skógasafn varðveitir og sýnir menningararf Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga í atvinnutækjum til lands og sjávar, í listiðn, gömlum húsakosti, bókum, handritum og skjölum, allt frá landnámsöld til samtímans. Samgöngusafnið miðlar sögu samgangna á Íslandi á 19. og 20. öld. Þar má finna ferðabúnað, fornbíla, vegagerðartæki og margt fleira. Einnig er saga póstþjónustu, rafvæðingar, fjarskipta og björgunarsveita rakin á sýningunni. Skógakaffi er staðsett innan Samgöngusafnsins og einnig er þar að finna gjafavöruverslun.


Safnavegur 1, Skógum, 861 Hvolsvöllur 487 8845, www.skogasafn.is skogasafn@skogasafn.is Facebook: /SkogarMuseum Instagram: /SkogarMuseum Opnunartími: Júní – ágúst: 9-18. September – október: 10-17. Nóvember – apríl: 10-16. Maí: 10-17. Aðgangseyrir: 2.300 kr. Eldri borgarar og nemendur: 1.800 kr. Börn 12 til 17 ára: 1.400 kr. 11 ára og yngri: Ókeypis. Afsláttur fyrir námsmenn og eldri borgara.



LAVA eldfjallamiðstöðin hefur hlotið fleiri verðlaun en nokkur önnur sýning á Íslandi. Sýningin er staðsett á Hvolsvelli, umkringd virkum eldfjöllum. Staðsetningin er því nokkurs konar hlið inn að virkasta eldfjallasvæði landsins. Heimsókn í LAVA er tilvalin fyrir alla sem vilja fá betri skilning á þeim ótrúlegu öflum sem hafa mótað Ísland.

Sýningin er án efa besti staðurinn til að öðlast betri skilning á eldgosinu við Fagradalsfjall. Sambærilegt gos hefur ekki átt sér stað á Íslandi í um 7000 ár og er því mjög áhugavert fyrir áhugafólk um jarðfræði Íslands. Ný sýningaratriði voru unnin af Ara Trausta Guðmundssyni og útskýra uppruna og eðli gossins. Nýtt myndefni frá Fagradalsfjalli auk annarra nýlegra eldgosa er svo sýnt í háskerpu í eldfjallabíóinu.
Sýningin hentar öllum aldurshópum. Börn hafa sérstaklega gaman af sýningunni og tækninni sem er nýtt til að segja frá þessum undrum íslenskrar náttúru. Aðgengi er fyrsta flokks og hentar þvi vel bæði eldri gestum og fötluðum.






Austurvegur 14, 860 Hvolsvöllur 415 5200, www.lavacentre.is Opnunartími: Daglega, 9-16. Aðgangseyrir: Eldfjalla- og jarðskjálftasýning: 3.990 kr. Kvikmynd um eldgos: 1.550 kr.
Fyrsta mjaldrasetur heimsins hefur gert sig heimakomið í Vestmannaeyjum og býðst gestum að kynnast fyrstu íbúum þess, Litlu grá og Litlu hvít.


Gestastofan sýnir ótrúlegt ferðalag mjaldranna frá byrjun til enda þar sem safngestir fara í gegnum sýningarsvæði sem þeir geta spreytt sig sjálfir á. Ferð þeirra hófst í Shanghai í Kína og endaði í Vestmannaeyjum og persónuleikar mjaldranna tveggja skína í gegn í sýningunni. Á sumrin er hægt að bóka leiðsöguferð á báti til þeirra í sjófriðhelgina í Klettsvík. Heimsóknin styður okkar verkefni, sem er að finna lausn fyrir hvaldýr sem voru í haldi. Hugmyndin er að tryggja öruggt svæði sem er líkara þeirra náttúrulegra búsvæði, en mjaldrarnir eru ófærir um að lifa af sjálfir í náttúrunni eftir dvöl þeirra í haldi.
Gestastofan er einnig heimkynni einu lundabjörgunarmiðstöðvar á Íslandi ásamt sædýrasafni þar sem hægt er að sjá tegundir sem búa í nágrenni við Íslandsstrendur. Þar geta gestir, ungir sem aldnir, komist í nálægð við lunda, kynnst sögum þeirra og fylgst með daglegum fæðugjöfum. Stærsta lundabyggð á Íslandi er aðeins nokkrum mínútum frá Gestastofunni og sérstök lundabjörgunarsveit starfar við að bjarga lundum á svæðinu. Á safninu er hægt að komast í mikla nálægð við tegundir eins og steinbít, hrognkelsi og þorska svo eitthvað sé nefnt. Þá er einnig hægt að fylgjast með því hvernig starfsfólk hlúir að safndýrum.

SEA LIFE Trust Beluga Whale Sanctuary Ægisgata 2, 900 Vestmanneyjar 540-2700 / 699 0665 belugasanctuary.sealifetrust.org belugas@sealifetrust.com Opnunartími og aðgangseyrir: Sjá heimasíðu.

Eldheimar miðla fróðleik um eldgosið í Vestmannaeyjum árið 1973, sem án vafa telst til stærstu náttúruhamfara Íslandssögunnar.
Skyggnst er inn í mannlífið og umhverfið í Vestmannaeyjum fyrir gos og hvernig náttúruhamfarirnar 1973 gripu inn í samfélagið og líf fólksins. Nær allir íbúar Heimaeyjar urðu að yfirgefa heimili sín í skyndi og flýja eyjuna. Margir sáu húsin sín, sem og megnið af eigum sínum aldrei aftur.
Á sýningunni er einnig farið yfir þróun Surtseyjar, eyjunnar, sem reis úr hafi sunnan við Heimaey árið 1963. Eldgosið í Surtsey stóð yfir í nær fjögur ár. Eftir gosið var Surtsey gerð að lokuðu náttúrverndarsvæði, sem gerði vísindaheiminum mögulegt að fylgjast með hvernig nýtt líf og vistkerfi verður til. Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO síðan 2008.

Gerðisbraut 10, 900 Vestmannaeyjar 488 2700 www.eldheimar.is eldheimar@vestmannaeyjar.is Opnunartími: Maí – september: daglega, 11-17. Apríl: daglega, 13-17. Aðgangseyrir: 2.700 kr. Börn 10 ára yngri: ókeypis. Afsláttur fyrir fjölskyldur, táninga, eldri borgara og stærri hópa.
Byggðasafnið Sagnheimar veitir innsýn inn í einstaka sögu Vestmannaeyja.

Á safninu geta gestir fræðst um sjómennsku, Tyrkjaránið, Heimaeyjargosið, Þjóðhátíð og ferðir íslenskra mormóna til Utah, svo eitthvað sé nefnt. Sýningin höfðar einnig vel til barna og unglinga.
Sagnheimar, Ráðhúströð Safnahúsi, 900 Vestmannaeyjar 488 2050 www. sagnheimar.is sagnheimar@sagnheimar.is Opnunartími: 1. maí – 30. september: daglega, 10-17. 1. október – 30. apríl: laugardaga, 13-16. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Börn yngri en 18 ára: ókeypis. Hópar (+10) og eldri borgarar: 750 kr.

Skansinn (sem á dönsku merkir virki) var reistur árið 1586 í því augnamiði að verja dönsku konungsverslunina gegn Englendingum. Stórfelldar endurbætur voru gerðar í kjölfar Tyrkjaránsins 1627.
Ásamt því að vera stórkostlegur útsýnisstaður, hýsir Skansinn einnig Landlyst, eitt af elstu húsum í Eyjum. Þar stóð fyrsta fæðingarheimili á Íslandi, byggt árið 1847. Stafkirkjan stendur einnig á Skansinum, en um er að ræða eftirmynd af fyrstu kirkjunni í Vestmannaeyjum sem byggð var rétt fyrir kristnitöku árið 1000. Kirkjan var gjöf frá Norðmönnum í tilefni af 1000 ára kristnitökuafmæli Íslendinga árið 2000.
Skansinn

Landlyst Skansinn, 900 Vestmannaeyjar 488 2040 bokasafn@vestmannaeyjar.is Opnunartími: 1. maí – 30. september: daglega, 10-17.

Skyrland er ný upplifunarsýning um skyr og matarmenningu Íslands í Mjólkurbúinu í miðbæ Selfoss, sem þegar er farin að raka að sér verðlaunum.
Skyrið, þessi afurð íslenskrar menningar og náttúru, hefur slegið í gegn víða um heim og í Skyrlandi er saga þess rakin.
Sýningin er skemmtileg og fræðandi og þar reynir á öll skilningarvit gesta – sjón, heyrn, snertingu, ilm og bragð – með frumlegri hönnun fjölbreyttra atriða.
Skyrland er metnaðarfull sýning í hjarta Selfoss og undirstaðan að því fallega matarmenningarhúsi sem gamla Mjólkurbúið er.


Gamla Mjólkurbúið Eyravegur 1, 800 Selfoss 454 0800 www.skyrland.is skyrland@skyrland.com Opnunartími: Sjá heimasíðu. Aðgangseyrir: 2.500 kr. Börn 6-15 ára 1.250 kr. Börn 0-5 ára 500 kr. Aldraðir og öryrkjar 20% afsláttur.


Verið velkomin í Mjólkurbúið

Mjólkurbúið í miðbæ Selfoss er sannkallað matarmenningarhús. Átta veitingastaðir, tveir barir og upplifunarsýning um sögu skyrs.

Austurvegur 21, 800 Selfoss 554 1972 / 894 1275 www.fischersetur.is fischersetur@gmail.com Í Fischersetrinu er sýning á ýmsum munum tengdum bandaríska skáksnillingnum Bobby Fischer.

Hann varð heimsmeistari í skák í Reykjavík 1972, er hann vann sovéska heimsmeistarann Boris Spassky. Er það einvígi jafnan kallað einvígi aldarinnar. Síðustu æviár sín bjó Fischer hér á landi og er gröf hans í Laugardælakirkjugarði, sem er skammt frá Selfossi. Í Fischersetrinu er einnig aðstaða fyrir Skákfélag Selfoss og nágrennis og boðið er upp á skákmót, fyrirlestra og annað er tengist skáklistinni.
GENS UNA SUMUS
SKÁKSAMBAND ÍSLANDS FIDE
THE BOBBY FISCHER CENTER
Opnunartími: 1. júní – 31. ágúst: daglega, 13-17. Vetur: gegn samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.000 kr. Börn yngri en 14: ókeypis.

Byggðasafn Árnesinga er staðsett í Húsinu, sögufrægum bústað kaupmanna sem var byggt 1765.
Húsið er eitt elsta hús landsins og glæsilegur minnisvarði þess tíma er Eyrarbakki var stærsti verslunarstaður Sunnlendinga. Þar eru margar og áhugaverðar sýningar um sögu og menningu Árnessýslu. Fornfrægt píanó, herðasjal úr mannshári og koppur kóngsins eru meðal sýningargripa. Hlýlegur og heimilislegur andi er aðalsmerki safnsins. Sjóminjasafnið á Eyrarbakka er örskammt frá en þar er áhersla á sjósókn og sögu alþýðunnar í þorpinu. Tólfróið áraskip „Farsæll“ er aðalsýningargripur safnsins.

Eyrargötu 50, 820 Eyrarbakki 483 1504 / 483 1082 www.byggdasafn.is info@byggdasafn.is Opnunartími: 1. maí – 30. september: daglega, 11-18. Vetur: eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: 1.500 kr.



Listasafn Árnesinga býður upp á fjölbreyttar og metnaðarfullar sýningar sem veita gott aðgengi að myndlistararfi þeim sem það varðveitir.
Safnið er staðsett í blómabænum Hveragerði, aðeins 40 mínútur frá höfuðborginni. Umhverfið er nærandi, fallegt og þar má einnig finna áhugaverða veitingastaði og afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Austurmörk 21, 810 Hveragerði 483 1727 www.listasafnarnesinga.is listasafn@listasafnarnesinga.is Facebook: /listasafnarnesinga Opnunartími: 1. maí – 10. september: daglega, 12-17. 11. september – 30. apríl: daglega, 12-17. Lokað á mánudögum. Aðgangseyrir: ókeypis.
Hveragerði er einn fárra staða þar sem heilt bæjarfélag er yfir virku háhitasvæði.

Í Hveragarðinum er hægt að ganga um svæðið og skoða gömlu hverina og gufuholur og kynna sér sögu og jarðfræði þessa einstaka svæðis.

Í Hveragarðinum er hægt að sjóða egg og smakka á hverabökuðu rúgbrauði þar sem gufan á svæðinu er nýtt í baksturinn og eggjasuðuna. Einnig er hægt að prufa leirfótaböðin sem hafa heilsubætandi áhrif. Goshverinn gýs reglulega og ekki má gleyma að kíkja á gróðurhúsið.

Hveramörk 13, Hveragerði 483 5062 / 483 4601 www.facebook.com/Geothermalpark geothermalpark@hveragerdi.is Opnunartími: Sumar: alla daga 9-17. Aðgangseyrir: Ókeypis fyrir 18 og yngri og eldri borgara. Fullorðnir 300 kr.

Jarðhitasýningin er staðsett á Hengilssvæðinu, innan um mosa og hraun í stórbrotinni íslenskri náttúru. Gestum gefst kostur á að upplifa græna, sjálfbæra orkuframleiðslu í einni stærstu jarðhitavirkjun í heimi, Hellisheiðarvirkjun.
Tilvalið að sameina heimsókn á sýninguna og útivist; fallegar merktar gönguleiðir eru á svæðinu.
Fyrir framan sýninguna er hleðslustöð ON fyrir rafbíla og í versluninni er að finna fjölbreytt úrval vistvænna minjagripa ásamt annarri vöru. Hluti af vörunum eru framleiddar á Hengilssvæðinu. Kaffihornið býður upp á kaffi, te og kalda drykki.

Hellisheiðarvirkjun, 801 Selfoss 591 2880 www.on.is/en/geothermal-exhibition/ syning@on.is Facebook: /jardhitasyning Instagram: /geothermalexhibition Opnunartími: Daglega, 9-16.
Aðgangseyrir: 1.990 kr. Börn 12 ára og yngri: ókeypis.