
8 minute read
Höfuðborgarsvæðið
1
REYKJAVÍK MIÐBÆR BLS 8
SELTJARNARNES
49
41
HALLGRÍMSKIRKJA
ÁLFTANES
4
40
5
7 6
41
VIÐEY
40
49
KRINGLAN
2
3
SMÁRALIND
KÓPAVOGUR 413
GARÐABÆR
408
41
8
1 1
10
36
MOSFELLSBÆR
9
431
430
410 413
ELLIÐAVATN
408 1
431
408
Nr. Safn Síða 1 Nesstofa .......................... 32 2 Grasagarður Reykjavíkur ............. 31 3 Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn ....... HEIÐMÖRK30 4 Gerðarsafn ......................... 34 4 Náttúrufræðistofa Kópavogs ........... 35 4 Salurinn ........................... 35 5 Hönnunarsafn Íslands ................ 33 Nr. Safn Síða 6 Byggðasafn Hafnarfjarðar ............. 36 7 Hafnarborg ........................ 37 8 Árbæjarsafn ....................... 16 9 Listasalur Mosfellsbæjar/Bókasafn
Mosfellsbæjar ...................... 38 10 Gljúfrasteinn – Hús skáldsins .......... 39
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn alla daga ársins. Í garðinum ættu allir meðlimir fjölskyldunnar að finna eitthvað við sitt hæfi.
Þar er að finna íslensku húsdýrin, íslensk villt dýr, helstu nytjafiska Íslendinga, skriðdýr og gæludýr.
Í garðinum er einnig að finna leiktæki af ýmsum toga sem eru starfrækt yfir sumarmánuðina en dýrin er hægt að heimsækja alla daga ársins. Í Vísindaveröld geta ungir og aldnir svalað forvitni sinni um heim vísindanna. Sömuleiðis er hægt að tylla sér í kaffihús garðsins.
Múlavegur 2, 104 Reykjavík 411 5900 www.mu.is postur@husdyragardur.is Opnunartímar: Sumar: daglega 10:00-18:00. Vetur: daglega 10:00-17:00. Aðgangseyrir: 13 ára og eldri: 980 kr. Börn 6-12: 750 kr. Börn 0-5, eldri borgarar og öryrkjar: frítt.


Grasagarður Reykjavíkur er lifandi safn undir berum himni. Hlutverk garðsins er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu og yndisauka.
Í hefðbundnum söfnum eru sýningar en í Grasagarðinum eru átta safndeildir plantna sem koma í þeirra stað. Plöntusöfnin gefa hugmynd um fjölbreytni gróðurs í tempraða beltinu nyrðra. Sérhver safndeild gegnir ákveðnu hlutverki, til dæmis að sýna og kynna íslenskar plöntur, trjágróður eða mat- og kryddjurtir. Sumardagskráin er viðburðarík og boðið er upp á móttöku hópa árið um kring.
Hið vinsæla kaffihús Flóran býður upp á ljúffengar veitingar með áherslu á hráefni úr eigin ræktun. Kaffihúsið er starfrækt í garðskálanum í gróðursælu umhverfi. Nánar um opnunartíma er að finna á www.floran.is.



Laugardalur, 104 Reykjavík 411 8650 www.grasagardur.is botgard@reykjavík.is Facebook: /grasagardur Opnunartími: Sumar: 10-22. Vetur: 10-15.
Aðgangseyrir: Ókeypis.
Nesstofa var byggð á árunum 1761-1767 sem embættisbústaður landlæknis og er því eitt af elstu steinhúsum landsins. Á safninu gefst gestum kostur á að kynnast byggingarsögu Nesstofu í samhengi við önnur steinhús í landinu.

Safnatröð 3, 170 Seltjarnarnes 530 2200 www.seltjarnarnes.is/thjonusta/menning/ nesstofusafn/ thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opnunartími: 13. júní – 31. ágúst: daglega, 13-17. Lokað á mánudögum.
Aðgangseyrir: ókeypis.

Hönnunarsafn Íslands er sérsafn á sviði íslenskrar hönnunar og listhandverks frá aldamótunum 1900 til dagsins í dag.
Haldnar eru fjórar til sex sérsýningar á ári á íslenskri og erlendri hönnun. Safnið á rúmlega 3.000 muni og ber helst að nefna húsgögn, vöruhönnun, leirlist, glerlist, textíl, fatnað og grafíska hönnun. Safnið er miðstöð heimilda um íslenska hönnuði og verk þeirra. Reglulega eru haldnar leiðsagnir um sýningar safnsins og efnt til fyrirlestrahalds um íslenska og alþjóðlega hönnun. Í safnverslun fæst úrval íslenskrar hönnunar og bækur og tímarit um hönnun.

Strætó leið 1, stoppar í Ásgarði.
Garðatorg 1, 210 Garðabær 512 1525 www.honnunarsafn.is honnunarsafn@honnunarsafn.is Opnunartími: Þri-sun 12-17. Lokað á mánudögum.

Á menningarhæð Kópavogsbæjar við Hamraborgina má njóta einstaklega fjölbreytts og lifandi menningarlífs þar sem standa metnaðarfullar menningarstofnanir bæjarins: Gerðarsafn, Náttúrufræðistofa Kópavogs, Salurinn og Bókasafn Kópavogs.

Návígi húsanna gerir gestum því kleift að upplifa allt í senn, spennandi samtímamyndlist, undur íslenskrar náttúru, einstaklega heimilislegt og fallegt bókasafn og kraftmikla tónleika. Í Gerðarsafni má svo njóta veitinga á notalegu kaffihúsi en í safninu er einnig rekin glæsileg safnbúð. Kópavogskirkja sem er eitt helsta kennileiti bæjarins stendur efst á hæðinni og Sundlaug Kópavogs er í göngufæri.
Greið leið er með almenningssamgöngum í Hamraborgina þar sem leiðir 1, 2 og 4 stansa.
Gerðarsafn er framsækið listasafn með megináherslu á nútíma- og samtímalist í glæsilegri byggingu á besta stað í Kópavogi. Safnið er reist í minningu Gerðar Helgadóttur myndhöggvara. Þrír sýningarsalir eru í safninu, tveir á efri hæð en á neðri hæð er fjölnotasýningarsalur þar sem finna



má notalegt fræðslurými fyrir börn og fjölskyldur. Kaffihúsið Reykjavík Roasters starfar innan veggja safnsins og glæsileg safnbúð er í móttöku með ýmsar fallegar hönnunarvörur og eftirprent af verkum úr safneign.
Á Náttúrufræðistofu Kópavogs er að finna eina náttúrufræðisafnið á höfuðborgarsvæðinu sem opið er allt árið. Sýningin Heimkynni – búsvæði í íslenskri náttúru er glæsileg grunnsýning stofunnar þar sem fjölbreyttum búsvæðum í íslenskri náttúru eru gerð góð skil á myndrænan, lifandi og fræðandi hátt og fræðast má um undur íslenskrar náttúru. Aðgangur er ókeypis.
Bókasafn Kópavogs er notalegur vettvangur bæjarbúa til að hittast, verja tíma með vinum og fjölskyldu og nýta sér fjölbreyttan safnkost.
Salurinn í Kópavogi er fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins, tekinn í notkun 2. janúar 1999. Tónleikahald í Salnum er afar fjölbreytt þar sem allar tónlistarstefnur rúmast og hefur Salurinn hlotið mikið lof fyrir góðan hljómburð og vandaða tónleika.
Saman standa menningarstofnanirnar að viðburðum og hátíðum árið um kring. Kynnið ykkur dagskrána á meko.is.


Gerðarsafn Hamraborg 4, 200 Kópavogur www.gerdarsafn.is 441 7600 Opið alla daga frá 10 - 17.
Náttúrufræðistofa Kópavogs Hamraborg 6, 200 Kópavogur www.natkop.is 441 7200 Opið frá mánudegi - fimmtudags 8 - 18. Föstudagur - laugardags 11 - 17. Ókeypis aðgangur. Bókasafn Kópavogs Hamraborg 6, 200 Kópavogur www.bokasafn.kopavogur.is 441 6800 Opnunartímar: mán-fim 8 - 18. Fös-lau 11 - 17. Ókeypis aðgangur.
Salurinn Hamraborg 6, 200 Kópavogur www.salurinn.is 441 7500 Opnunartími miðasölu: þriðjudagur - föstudags 12 - 16.




Byggðasafn Hafnarfjarðar er minja- og ljósmyndasafn Hafnarfjarðarbæjar. Minjasvæði Byggðasafnsins er Hafnarfjörður og nágrenni hans. Byggðasafn Hafnarfjarðar er með sýningaraðstöðu í sex húsum og að jafnaði eru níu sýningar í gangi í einu þar sem varpað er ljósi á sögu og menningu svæðisins.
Vesturgata 8, 220 Hafnarfjörður 585 5780 www.museum.hafnarfjordur.is museum@hafnarfjordur.is Opnunartími: Júní-ágúst: daglega, 11-17. Sept-maí: helgar, 11-17. Opið fyrir hópa eftir samkomulagi. Aðgangseyrir: Ókeypis.
Í hjarta Hafnarfjarðar stendur Hafnarborg, þar sem fram fer menningarstarfsemi af ýmsu tagi – myndlistarsýningar, tónleikar, listasmiðjur og fleira.

Árlega eru settar upp fjölbreyttar sýningar á verkum innlendra og erlendra listamanna í fremstu röð, auk þess sem reglulega eru settar upp sýningar á verkum úr safneign Hafnarborgar. Telur safneignin nú yfir 1500 verk eftir marga af helstu listamönnum landsins, þar á meðal Eirík Smith sem gaf stofnuninni mörg hundruð verk eftir sig. Meðal vinsælla tónleikaraða á dagskrá safnsins má svo nefna hádegistónleika í Hafnarborg, samtímatónleikaröðina Hljóðön og Sönghátíð í Hafnarborg.
Strandgata 34, 220 Hafnarfjordur 585 5790 www.hafnarborg.is hafnarborg@hafnarfjordur.is Opnunartími: Opið 12-17 alla daga, nema þriðjudaga.



Aðgangseyrir: ókeypis.

Listasalur Mosfellsbæjar hefur verið starfræktur frá 2005.
Þetta er fjölnota salur í hjarta Mosfellsbæjar, staðsettur inn af Bókasafni Mosfellsbæjar. Á hverju ári eru settar upp um tíu sýningar, jafnt reyndra listamanna og nýgræðinga á sviðinu. Einnig er salurinn nýttur fyrir ýmsa viðburði eins og tónleika, fyrirlestra og fundi.
Listasalur Mosfellsbæjar hefur það að leiðarljósi að vera virkur samkomustaður fyrir Mosfellinga og aðra gesti, bjóða upp á fjölbreyttar sýningar listamanna og vinna þannig að framþróun myndlistar á Íslandi.

Kjarni, Þverholt 2, 270 Mosfellsbær 566 6822 www.bokmos.is bokasafn@mos.is Facebook: /listasalurmoso, /bokmos Instagram: listasalur_moso, bokasafn_moso Opnunartími: Mán-þri, 9-18. Laugardaga, 12-16.
Aðgangseyrir: ókeypis.
Gljúfrasteinn var heimili og vinnustaður nóbelsskáldsins Halldórs Laxness og fjölskyldu hans um hálfrar aldar skeið. Gljúfrasteinn er nú safn og er húsinu haldið óbreyttu frá því Halldór bjó þar og starfaði.

Fjöldi listaverka setur sterkan svip á heimilið, meðal annars eftir Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Jóhannes Kjarval og danska málarann Asger Jorn. Einnig gefur þar að líta útsaumsmyndir eftir Auði Laxness sem var annáluð hannyrðakona. Húsgögn og innanstokksmunir eru þeir sömu og í tíð Halldórs og Auðar.
Móttökuhúsið er fyrsti viðkomustaður gesta á Gljúfrasteini. Þar er hægt að skoða margmiðlunarsýningu um ævi og verk skáldsins. Í móttökuhúsinu er einnig lítil safnverslun þar sem áhersla er lögð á úrval bóka skáldsins á ýmsum tungumálum.
Inni í húsinu er boðið upp á hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, sænsku, þýsku og dönsku og textaleiðsögn á frönsku.
Gljúfrasteinn stendur við ána Köldukvísl og er byggður í landi jarðarinnar Laxness þar sem Halldór ólst upp. Halldór Laxness var mikill útivistarmaður og gekk mikið í nágrenni Gljúfrasteins enda umhverfið fagurt. Garðurinn umhverfis Gljúfrastein er opinn almenningi og fallegar gönguleiðir eru í næsta nágrenni.
Gljúfrasteinn, 270 Mosfellsbær 586 8066 www.gljufrasteinn.is gljufrasteinn@gljufrasteinn.is
Opnunartímar: Mars – apr: daglega, 10-16, lokað á mán. Maí – ágúst: 10-17. Nóv – feb: þri – fös, 10-16.
Aðgangseyrir: 1.200 kr. Eldri borgarar og námsmenn: 1.000 kr. Öryrkjar, atvinnulausir og börn yngri en 18 ára: ókeypis.